Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23.5. 2021
LESBÓK
SKELLUR Spennutryllirinn The Woman In The Window,
nýja kvikmyndin hans Joe Wrights, sem m.a. gerði Dar-
kest Hour, fær mikinn skell hjá gagnrýnendum ytra. In-
dieWire gefur henni D+ og segir metsölubók A.J. Finn,
sem myndin byggir á, rústað á hvíta tjaldinu. The Guardian
segir áhorfendur líklegri til að skella upp úr en falla í stafi á
ögurstund spennunnar og að þeim líði eins og að þeir séu að
lesa bók í miðri rúgbítæklingu, slík sé óreiðan. Variety segir
samtölin undarlega stíf og hver tilgerðarlega uppá-
koman reki aðra. Allt kemur greinilega fyrir ekki
þótt handritið sé eftir verðlaunaleikskáldið Tracy
Letts og einvalalið leikara komi fram í myndinni,
svo sem Amy Adams, Gary Oldman, Julianne
Moore, Anthony Mackie og Jennifer Jason Leigh.
Tryllir rúgbítæklaður
Amy Adams
fer með að-
alhlutverkið. AFP
GLYS Doc McGee, umboðsmaður glyströlla
allra glyströlla, Kiss, fór mikinn í hlaðvarps-
þættinum Rob’s School Of Music vestur í
Bandaríkjunum á dögunum. Bandið goð-
sagnakennda bíður þess nú að leggja upp í
lokalokalokatúr sinn um heimsbyggðina en
McGee lítur þó alls ekki á það sem upphafið
að endalokunum. „Kiss er Kiss. Fólk vill sjá
007. Mikki Mús er orðinn hundrað ára. Ég er
ekki í vafa um að Kiss verður eitt af þessum
eilífu fyrirbrigðum,“ sagði hann án þess að
blikna og lofaði því jafnframt að Ace Frehley
myndi skjóta upp kollinum á lokaloka-
lokatúrnum og jafnvel Peter Criss líka.
Líkir Kiss við 007 og Mikka Mús
Hvar í ósköpunum væri heimurinn án Kiss?
Reuters
Goldie Hawn á glæstan feril að baki.
Vill fræðslu
um þunglyndi
ÞUNGLYNDI Bandaríska leik-
konan Goldie Hawn vill að meiri
áhersla verði lögð á að fræða skóla-
börn um þunglyndi, orsakir þess og
afleiðingar og starfsemi heilans al-
mennt. Þetta kom fram í viðtali við
hana á bresku sjónvarpsstöðinni
ITV á dögunum. Sjálf kveðst Hawn
hafa glímt við þunglyndi upp úr tví-
tugu, um líkt leyti og heimsfrægðin
knúði dyra, og átti um tíma erfitt
með að fara úr húsi, hvað þá meira.
Hún kveðst hafa brugðist við þessu
ástandi með því að ræða við lækna
og sálfræðinga og lesa sér til um
starfsemi heilans sem hafi svo sann-
arlega skilað árangri. Andleg
heilsa hefur verið Hawn hugleikin
allar götur síðan en hún er 75 ára.
Þ
etta er helvítis hneyksli! Ég
finn til með Pammy; þetta
gæti endurvakið áfallastreit-
una. Og skammastu þín, Lily James,
hver í andskotanum sem þú ert.
#viðbjóðsleg.“
Þannig komst tónlistarkonan Co-
urtney Love, sem fræg er fyrir að
hafa munninn fyrir neðan nefið, að
orði í vikunni. Hún var að viðra
skoðanir sínar á sjónvarpsþættinum
Pam & Tommy á samfélagsmiðlum
en upptökur á honum eru nýhafnar í
Bandaríkjunum. Pam þessi er leik-
konan Pamela Anderson, góðvin-
kona Love, og Tommy er fyrrver-
andi eiginmaður hennar, með
ættarnafnið Lee, sem margir þekkja
sem trymbil glysmálmsveitarinnar
geðþekku Mötley Crüe. Ef þið eruð
ekki að kveikja á Lily James, frekar
en Courtney Love, þá er það bresk
leikkona sem fer einmitt með hlut-
verk Anderson í þættinum. Hinn
rúmensk/bandaríski Sebastian Stan
leikur Lee.
Graig Gillespie leikstýrir.
Það er gömul saga og ný að líf og
störf fræga fólksins vestra séu
mönnum innblástur við gerð sjón-
varpsþátta og kvikmynda. Í þessu
tilviki koma hvorki Anderson né Lee
á hinn bóginn nærri verkefninu og
hafa fyrir vikið ekkert um það að
segja hvurslag mynd verður dregin
upp af þeim á skjánum. Lítið hefur
Þetta er hel-
vítis hneyksli!
Tökur á sjónvarpsþættinum Pam & Tommy voru
ekki fyrr hafnar en allt gekk af göflunum vestur í
Hollywood og vinir hjónanna fyrrverandi vanda
aðstandendum þáttarins ekki kveðjurnar.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Sebastian Stan og Lily James sem Tommy Lee og Pamela Anderson.
Skjáskot/instagram
Tommy Lee hefur lifað langan dag í
sviðsljósinu; steig fyrst fram ásamt
hljómsveit sinni, Mötley Crüe, fyrir
réttum fjörutíu árum. Níundi áratug-
urinn var gullöld þess ágæta glys-
bands, svo sem annarra banda af þeirri
gerð, en það starfar enn, eins og lesa
má um hér efst á opnunni. Lee hefur
víða komið við og má í því sambandi
rifja upp raunveruleikasjónvarpsþátt-
inn Rock Star; Supernova árið 2006, ásamt ekki minni mönnum en
Jason Newsted, sem á sinni tíð var í Metallica, og Magna okkar Ás-
geirssyni. Ólíklegt verður þó að teljast að Magni verði ein af per-
sónunum í Pam & Tommy enda var parið þá löngu skilið að lögum.
Árið 2008 gerði kappinn sér lítið fyrir og heimsótti Ísland; þeytti
skífum við góðan orðstír á skemmtistaðnum Nösu sálugu. Fram
kom að hann hefði verið hinn rólegasti við það tækifæri enda orð-
inn 45 ára gamall. Sem er vitaskuld enginn smáræðis aldur! Það
þýðir að hann er 58 ára í dag, að verða 59.
Verið lengi í sviðsljósinu
Tommy Lee
á Nösu.