Morgunblaðið - Sunnudagur - 23.05.2021, Qupperneq 29
lekið út um nálgunina og áherslurn-
ar en eigi að síður hringja viðvör-
unarbjöllur víða. Hvorki Anderson
né Lee hafa tjáð sig opinberlega en
haft hefur verið eftir vini hennar í
fjölmiðlum að hún ætli ekki að horfa
á þennan „hræðilega þátt“. Eini til-
gangurinn með honum sé að græða
peninga á ógæfu annarra.
Nú er greinarhöfundur ekki spá-
mannslega vaxinn en ætlar samt að
gefa sér að sú staðreynd að Rand
Gauthier sé meðal aðalpersóna í
þættinum hafi eitthvað með bræði
Love að gera. Það hefur komið fram
og mun Seth Rogen, sem jafnframt
hefur unnið að þróun þáttarins, fara
með hlutverk hans.
Nú klórar þú þér ugglaust í höfð-
inu, kæri lesandi, og spyrð, í anda
Courtney Love: „Hver í andskot-
anum er Rand Gauthier?“ Og lái þér
hver sem vill; sjálfur þurfti ég að
fletta þessu nafni upp – og er ég þó
allvel að mér um strandlíf og málm.
Rand Gauthier er sumsé rafvirk-
inn sem stal kynlífsmyndbandinu
fræga af Anderson og Lee og kom
því í umferð á netinu. Fór það eins
og eldur í sinu um heimsbyggðina
með tilheyrandi afleiðingum og nið-
urlægingu fyrir dagskrárgerðar-
fólkið. Enda átti gjörningurinn aldr-
ei að fara úr húsi.
Rekinn á staðnum
Forsaga málsins er sú að Rand
Gauthier lenti upp á kant við
Tommy Lee sem rak hann á staðn-
um og harðneitaði að greiða honum
fyrir verk sem hann vann á heimili
þeirra hjóna. Það átti eftir að hafa
afdrifaríkar afleiðingar. Hermt er að
svo reiður hafi Lee verið að hann
hafi meira að segja dregið upp hólk
og beint honum að manninum.
Rand Gauthier átti vont með að
una þessu og eftir að hafa legið yfir
ítarlegri hefndaraðgerðaáætlun um
mánaða skeið braust hann inn hjá
hjónunum og rændi öryggisskáp,
þar sem téð myndband var að finna.
Mest var um saklaust myndefni frá
hveitibrauðsdögum þeirra hjóna að
ræða – en inn á milli var sumsé sjóð-
heitt kynlífsatriði. Bingó!
Eftir að myndbandið fór í umferð
á netinu höfðuðu hjónin mál á hend-
ur fyrirtækinu sem bar ábyrgðina,
Internet Entertainment Group
(IEG), en samkomulag náðist utan
dómsalar. Eftir það fór IEG að
bjóða áskrifendum upp á aðgang og
þá þrefaldaðist víst traffíkin.
Giftust eftir fjóra daga
Pamela Anderson gekk að eiga
Tommy Lee árið 1995 – aðeins fjór-
um dögum eftir að þau hittust fyrst.
Sem er út af fyrir sig alveg verðugur
upptaktur að sjónvarpsþætti.
Hjónavígslan fór fram á ströndinni
og var Anderson íklædd vörumerki
sínu, sundbol, en hún er frægust fyr-
ir að hafa leikið í hinum goðsagna-
kenndu sjónvarpsþáttum Strand-
vörðum, ásamt David gamla
Hasselhoff og fleiri góðum. Lee
gleymdi víst að láta móður sína vita
og las hún fyrst um ráðahaginn í
tímaritinu People. Til að bæta gráu
ofan á svart þá er móðir hans grísk
og eins og við þekkjum á sú þjóð sér
ekki stærra áhugamál en hjóna-
vígslur. Sú hefur verið Zorbitin!
Hjónaband Anderson og Lee
vakti gríðarlega athygli og útheimti
ófáa dálksentimetrana í blöðum og
tímaritum næstu árin. Sambandið
var stormasamt en Lee hlaut meðal
annars sex mánaða fangelsisdóm
fyrir að ráðast á spúsu sína. Þau
eignuðust tvo syni, fædda 1996 og
1997, en skildu 1998. Áttu þó eftir að
slá sér upp aftur síðar.
Sem frægt er þá smitaði Lee And-
erson af lifrarbólgu C, þegar þau
deildu húðflúrnál, að því er næst
verður komist, og kvaðst hún ekki
eiga nema tíu til fimmtán ár eftir í
útvarpsþætti æringjans Howards
Sterns árið 2003. Þeim tíðindum
trúðu menn víða eins og nýju neti.
Þetta mun þó hafa verið sagt í hálf-
kæringi og árið 2015 kom fram að
hún væri læknuð af lifrarbólgunni.
Þetta var hennar fyrsta hjóna-
band en Anderson hefur gift sig fjór-
um sinnum síðan og slegið sér upp
með allmörgum mönnum að auki.
Meðal eiginmanna má nefna rokk-
arann Kid Rock og meðal ástmanna
knattspyrnumanninn Adil Rami og
glysrokkarann Bret Michaels úr
Poison. Þau hentu einnig í kynlífs-
myndband sem síðar kom upp á yfir-
borðið. Það er sagt styttra en mynd-
bandið með Lee og var tekið upp
áður.
Tommy Lee og Pa-
mela Anderson
meðan allt lék í lyndi.
AFP
23.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 1001 - VÍÐÞEKKT ÞÆGINDI
Byggt á fyrsta DUX rúminu sem var framleitt árið 1926, þetta er sannarlega það sem draumar eru byggðir á.
BIÐ Það eru fleiri glyströll en Kiss í
startholunum en „eitís“-goðin Möt-
ley Crüe, Poison, Def Leppard og
Joan Jett & The Blackhearts hafa
frestað leikvangatúr sínum fram á
sumarið 2022. Upphaflega ætlaði
hersingin af stað í fyrrasumar og
aftur nú í sumar. Túrnum er frest-
að á ný til að tryggja að hægt verði
að leika fyrir alla sem þegar hafa
keypt miða. Sami hugurinn er þó
eftir sem áður í mannskapnum.
„Þessi fer í sögubækurnar!“ sagði í
yfirlýsingu frá hópnum.
Glysverjar fresta tónleikaferð
Crüe eru með hressari mönnum.
AFP
BÓKSALA 12.-18. MAI
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
1
Færðu mér stjörnurnar
Jojo Moyes
2
Mávurinn
Ann Cleeves
3
Rím og roms
Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
4
Tengdadóttirin III
– sæla sveitarinnar
Guðrún frá Lundi
5
Stjáni og stríðnispúkarnir
- Púkar á ströndinni
Zanna Davidson
6
Nickel-strákarnir
Colson Whitehead
7
Skollaleikur
Ármann Jakobsson
8
Að telja upp í milljón
Anna Hafþórsdóttir
9
Eikonomics
Eiríkur Ásþór Ragnarsson
10
Jarðvísindakona deyr
Ingibjörg Hjartardóttir
1
Rím og roms
Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn
2
Stjáni og stríðnispúkarnir
- Púkar á ströndinni
Zanna Davidson
3
Stafavísur
Ýmsir höfundar
4
Hvolpasveitin – litir
Nickelodeon
5
Fleiri hryllilega stuttar
hrollvekjur
Ævar Þór Benediktsson
6
Depill í leikskólanum
Eric Hill
7
Hvolpasveitin – tölur
Nickelodeon
8
Depill heimsækir afa
og ömmu
Eric Hill
9
Þegar leikskóla-
kennararnir hurfu
Ólíver Þorsteinsson
10
Herra Fnykur
David Walliams
Allar bækur
Barnabækur
Ég hef starfað við kennslu og leið-
sögn. Lestraráhuginn hefur litast
af því vil ég segja og mikilli löngun
til að fræðast um land og þjóð.
Leyndardómur Vatnajökuls, eftir
þá Hjörleif
Guttorms-
son og Odd
Sigurðsson,
liggur oft
við rúm-
stokkinn.
Lýsingar á
öllu því
magnaðasta og stórbrotnasta
sem íslensk náttúra býr yfir. Víð-
erni, fjöll og byggðir. Einstök nátt-
úra, eldgos og jökulhlaup. Um ald-
ir áttuðu Íslendingar sig aðeins að
hluta af þeim öflum og kynngi-
krafti sem býr í landinu.
Þó höfðu ýmsir kannað þetta
margslungna land og um það er til
mikið skrifað. Norður yfir Vatna-
jökul 1875 eftir William Lord
Watts, íslenskuð af Jóni Eyþórs-
syni, er bók sem er alltaf í seiling-
arfjarlægð. Hún er í dagbók-
arformi og lýsir
ferð Williams
Lord Watts. Það
sem tengir mig við
þessa fornu ferða-
bók er að langafi
minn, Páll „jökull“
Pálsson, var einn
fylgdarmanna
þessa unga land-
könnuðar. Watts hafði gert nokkr-
ar atlögur að þeirri för sem hann
hugðist fara. Sumarið 1875 var
svo ferðin farin. Hann komst yfir
Vatnajökul ásamt sínum góðu
fylgdarmönnum.
Ég gríp niður í dagbókina, þar
sem þeir líta gosið í Öskju augum.
„Óþefurinn magnaðist um allan
helming og vikurinn varð leir-
bornari. Hæðarloftvog mín sýndi
3500 fet ... loksins stóðum við á
hátindinum ... sprungur allt í
kringum okkur sýndu, að ekki var
hættulaust að standa þar, sem við
vorum. En vindurinn var að sópa
mekkinum frá, svo við settumst á
vikursteina, kveiktum okkur í pípu
og biðum átekta.“
Enn bíður þjóðin átekta og
verður vitni að eldsumbrotum.
Nú er bjarti tími íslenskrar nátt-
úru og ferðasumarið fram undan
með öllum sínum ævintýrum.
Fornar ferðaleiðir í Vestur-
Skaftafellssýslu um aldamótin
1900, er í miklu uppáhaldi, þar
segir frá ferðum
og lífsbaráttu
Skaftfellinga áð-
ur en bílar
gerðu innreið
sína. Frásagnir
af mögnuðum
póstferðum,
ferðum barna
til að afla mat-
ar, jafnvel elds, þegar myrkur og
hungurvofa vofði yfir. Fjöruferðir
sem gáfu reka, timbur og mat,
verslunarferðir, sjóferðir og síðast
en ekki síst kirkjuferðir. Hlakka til
að feta í fótspor genginna ferða-
langa í sumar. Þegar húmar aftur í
haust verða ljóðabækur dregnar
fram. Þar bíður efstur í bunkanum
Káinn, fæddur til að fækka tárum,
ævi og ljóð. Ein frá honum..
Af því ég veit hann er og var
andlegum krafti gæddur
segðu mér, lagsmaður, hvernig og
hvar
og hvenær var djöfullinn fæddur.
KOLBRÚN HJÖRLEIFSDÓTTIR ER AÐ LESA
Fræðist um land og þjóð
Kolbrún
Hjörleifsdóttir
er kennari og
leiðsögu-
maður.