Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Síða 2
Hvað er að frétta? Ég var að útskrifast með framhaldspróf á kontrabassa úr Menntaskóla í tónlist af almennri braut, fyrsta konan sem tekur það próf á Íslandi. Hvenær byrjaðir þú að læra á kontrabassa? Þegar ég var átján ára en ég hafði áður lært á fiðlu frá fimm ára aldri. Ég lærði á fiðlu í ellefu ár en missti áhugann og hætti. En svo saknaði ég þess svo mik- ið að æfa á hljóðfæri. Pabbi stakk upp á bassa og mér fannst það fyrst fá- ránleg hugmynd af því að þetta er svo stórt hljóðfæri og ég svo lítil. Ég fór svo að hugsa þetta og fannst kontrabassinn svo ótrúlega fjölbreytt hljóðfæri og heillandi. Ég hendi mér oft í djúpu laugina og hef því náð að þroskast mjög hratt sem kontrabassaleikari. Ertu að spila víða? Ekki þessa dagana út af Covid en ég hef verið dugleg að spila í sinfóníuhljómsveitum og strengjasveitum. Eru fleiri kontrabassaleikarar í fjölskyldunni? Já, pabbi spilar á kontrabassa. Hann var einmitt að klára miðprófið í rytmískum kontrabassaleik. Við erum sitt á hvorum pólnum, ég í klassíkinni og hann í djassinum. Svo var afi minn, Jón bassi eins og hann var kallaður, aðal- kontrabassaleikari Sinfóníunnar um langt skeið. Hann var líka í KK-sextettinum og spilaði með Sumar- gleðinni með Ragga Bjarna. Dreymir þig um að komast í sinfóníuhljómsveit? Já, það væri mjög gaman. Hvað á að gera í sumar? Ég er að fara til Finnlands í sumar að taka þátt í verkefni með Orkestra Norden. Svo flyt ég til Stokkhólms í haust en ég er á leið í BA-nám í klassískum kontrabassaleik við Konunglegu tónlistarakademíuna. Þú hefur þá fundið þína hillu þegar þú fannst bassann? Já. Og það varð ekki aftur snúið. Er ekki erfitt að druslast með svona stórt hljóðfæri út um allt? Það er rosa leiðinlegt, en þess virði. Þetta er svakalega þungt. ÁSTHILDUR HELGA JÓNSDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021 K annist þið við austurríska gjörningalistamanninn Hildibrand von Uppstufen? Nei, það er ekki von, enda er hann aðeins til í höfðinu á undirrituðum. Þetta er samt ekki einn af þessum gaurum sem ég hef búið til mér til dægrastyttingar, eins og ég hef stundum sagt ykkur frá, með- an þið hin, sem að sönnu eigið aðild að þessari sömu vídd og ég, eruð upp- tekin á samfélagsmiðlum. Mig einfaldlega dreymdi Hildibrand von Uppstuf- en. Hann hafði brotist hingað gegnum kófið til að fremja gjörning í Listasafni Íslands að viðstöddu stórmenni, lífs og liðnu, en þarna var einnig nokkuð um fólk sem aldrei hefur verið til og verður ugglaust aldrei, í hefðbundnum skilningi. Gjörningurinn var umdeildur enda svolítið um nekt og siðferðis- lega áleitnar tilvísanir. Broddborg- ari hér í bæ, Ragnar Jónsson kaup- maður, ritaði í framhaldinu grein í Morgunblaðið, þar sem hann lét aur- sletturnar ganga yfir Hildibrand von Uppstufen; sagði hann ómögulegan listamann og hneyksli að slík drusla hefði verið fengin til landsins á kostnað íslenskra skattgreiðenda. Samfélagsmiðlar loguðu að vonum í kjölfarið og Ragnari ýmist hampað sem afhjúpandi hetju eða lýst sem þröng- sýnni dulu og afturhaldssegg. Eins og sönnum listamanni sæmir lét Hildibrand von Uppstufen upp- hlaupið ekki trufla sig, heldur henti í annan gjörning í Listasafni Íslands viku síðar. Sexfalt fleiri mættu að vonum á seinni gjörninginn en þann fyrri. Hildi- brand von Uppstufen kom þar fram undir dulnefninu Ragnar Jónsson kaup- maður sem var partur af gjörningnum. Heyra mátti saumnál detta í salnum meðan á gjörningnum stóð nema þegar Gudda gamla á Stokkahlöðum geisp- aði óvænt undir lokin. Hafði sofið illa um nóttina gamla konan vegna jarð- hræringa. En það er allt önnur saga. Fyrir allt annað blað. Því miður vaknaði ég áður en viðbrögð Ragnars Jónssonar kaupmanns við þessu útspili Hildibrands von Uppstufens lágu fyrir. Ekki er heldur langt síðan mig dreymdi annan góðan. Það var maður að nafni Alfífill Fífill Fífilsson, Íslendingur í húð og hár og með öllu áhugalaus um menningu og fagrar listir. Einbeitti sér í staðinn að sorphirðu í Árbænum og naut almennrar lýðhylli fyrir framtakssemi og góð afköst. Réttnefndur al- þýðumaður, æðrulaus og seinþreyttur til vandræða, Alfífill Fífill Fífilsson. Þess utan með afbragðsgóða nærveru. Ég hlakka iðulega til að leggjast til hvílu á kvöldin. List Hildibrands von Uppstufens Pistill Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is ’ Hann hafði brotist hingað gegnum kófið til að fremja gjörning í Lista- safni Íslands að viðstöddu stórmenni, lífs og liðnu. Gunnsteinn Skúlason Nei. Ég hef ekki fengið boð ennþá. SPURNING DAGSINS Er búið að bólusetja þig? María Þórólfsdóttir Nei. Ég er búin að fá tvisvar boð í Janssen en þar sem ég er ólétt ákvað ég að bíða með það. Dario Massarotto Ekki enn. Ég verð örugglega með þeim síðustu. Nína Björk Hlöðversdóttir Nei, ég er búin að fá Covid og fæ því ekki sprautu fyrr en í síðasta hópnum. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndin er samsett frá AFP og Reuters Þrír ættliðir á bassa Morgunblaðið/Ásdís Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is Amerísk heimilistæki rafvorur.isRAFVÖRUR ehf Þvottavélar og þurrkarar sem taka 10-17 kg 101.9 AKUREYRI 89.5 HÖFUÐB.SV. Retro895.is ÞÚ SMELLIR FINGRUM Í TAKT MEÐ RETRÓ ‘70,‘80 OG ‘90 STÖÐIN

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.