Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Qupperneq 4

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR 4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021 G rímuskyldan var rýmkuð til muna í vikunni og miklar tilslakanir aðrar gerðar á sóttvarnatakmörkunum. Þannig mega nú 150 manns koma saman í stað 50 áður, 300 áhorfendur sitja á viðburðum, laugarnar og ræktin taka við eins og vill og barinn er op- inn klukkustund lengur eða til mið- nættis. Raforkukaup Reykjavíkurborgar voru dæmd ólögmæt hjá áfrýj- unarnefnd útboðsmála, sem fól borginni að bjóða út innkaup sín á raforku. Íslensk orkumiðlun ehf. kærði borgina og krafðist þess að samningur borgarinnar og Orku náttúrunnar (ON) yrði ógiltur. Á daginn kom að þar var enginn samn- ingur og borgin borgaði bara upp- sett verð eftir almennri gjaldskrá, svo þar hafa tugmilljónir króna farið í súginn. Alltaf stuð í borginni. Landhelgisgæslan var ekki lengi í Paradís með sínar þrjár þyrlur, þeg- ar það uppgötvaðist að í þessu landi skógareldanna eru ekki þrjár slökkviskjólur, svo unnt sé að nota allar þyrlurnar þrjár til þess að koma í veg fyrir að landið allt verði Surtarlogum að bráð. Eldfjallafræðingar telja nokkrar vikur í að hraun muni renna um Suð- urstrandarveg að óbreyttu. Því ætti að gefast tími til þess að verja veg- inn og ljósleiðara við hann. Líklegt er að fleiri varnargarðar verði reist- ir. Landssamtökin Geðhjálp stofnuðu styrktarsjóð geðheilbrigðis, sem þau safna nú fé í. Samtökin leggja 100 milljónir króna í sjóðinn og hafa ósk- að þess að ríkissjóður geri slíkt hið sama, en einnig er leitað eftir stuðn- ingi atvinnulífsins. Markmiðið er að þar verði svo drjúgur sjóður, að vaxtatekjur dugi til sérstakra geð- heilbrigðisverkefna á ári hverju. Mál Bjórbílsins er komið til ákæru- sviðs lögreglunnar á Vesturlandi, en brugghúsið Steðji gerir hann út til þess að aka öli heim að dyrum hjá fólki, sem það kaupir í netverslun Steðja. Áhugi landsmanna á áfengi virðist ekki hafa dvínað við áskoranir land- læknis um að spritta sig daginn lon og daginn don. Salan í útsölum Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins jókst um 18% í fyrra og var þó drykkfelldum ferðamönnum ekki fyrir að fara. Af sölutölum má ráða að fólk vilji bjór í stórri dós og vínið úr beljum. Tveir Íslendingar, Heimir Fannar Hallgrímsson og Sigurður Bjarni Sveinsson, komust á tind Everest- fjalls á hvítasunnudag, en þeir klifu fjallið í nafni Umhyggju – félags langveikra barna. Til stendur að byggja upp aðstöðu til útivistar og afþreyingar við Skíða- skálann í Hveradölum. Þar á meðal annars að opna stórt gufubað, klif- urgarð og aparólu fyrir aðvífandi apa. Eins dauði er annars bálfararþjón- usta, en nú á að takmarka notkun ofnanna í Fossvogi á daginn og koma fyrir mengunarvarnabúnaði þar. Forstjóri Kirkjugarða Reykja- víkurprófastsdæma sér öll tormerki á því og telur fjögurra ára aðlögun til þess fráleitlega stutta í saman- burði við eilífiðina. . . . Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðs- dóttur um styrki til sjálfstæðra fjöl- miðla var samþykkt á Alþingi með 34 atkvæðum. Fjölmiðlar geta sótt um stuðning vegna allt að 25% rekstrarkostnaðar við ritstjórn, en þó getur enginn einn fengið meira en 100 milljónir króna. Alls eru 400 milljónir til skiptanna. Lengi lifi frjáls og óháð fjölmiðlun! Talnaspekingar Íslandsbanka telja að fasteignaverð muni hækka um þriðjung frá upphafi árs 2021 til ársloka 2023. Þar af er gert ráð fyrir 11,3% hækkun á þessu ári, sem vel kunni að reynast of lágt áætlað að sögn sérfræðinga bank- ans. Rauðagerðismálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur. Þar sitja fjögur á sakamannabekk, en einn játar og kveðst hafa verið einn að verki meðan þrjú neita sök. Í fyrra hleraði lögregla grunaða glæpamenn388 sinnum, en það var gert í 92 aðskildum málum. Þetta var langoftast gert í sollinum á höf- uðborgarsvæðinu, mest með sím- hlerun, en einnig með hlustunarbún- aði. Oftast reyndi á þetta í fíkniefnamálum. Liðsmenn Sigur Rósar voru í vik- unni sýknaðir af ákæru um stórfelld skattsvik. Árstíðasveiflur í ferðaþjónustu hafa löngum verið miklar hér á landi með vertíð á sumrin og tómum kofum á veturna. Sú tíð er hins vegar liðin, því sveiflur hér á landi eru orðnar með minnsta móti á Norðurlöndum samkvæmt Ferðamálastofu. Ný brú yfir Skjálfandafljót hjá Foss- hóli verður boðin út í ár, en hún verður þá fjórða brúin þar yfir. Gagnkvæm viðurkenning og fulln- usta einkamála milli Íslands og Bretlands eru í uppnámi eftir að Evrópusambandið ákvað að leyfa Bretum ekki að gerast aðilar að Lúganó-samningnum þar um. Ás- laug Arna Sigurbjörnsdóttir dóms- málaráðherra segir að verið sé að at- huga hvort ekki megi koma á tvíhliða samningi við Breta þar að lútandi. Friðrik Jónsson var kjörinn nýr for- maður Bandalags háskólamanna (BHM) með 70% atkvæða. Hættustig Almannavarna vegna skógarelda var áfram í gildi. Einn lést af völdum kórónuveiru- smits í vikunni. . . . Meirihluti fjárlaganefndar Alþingis telur aðkallandi að taka á fjárhags- vanda hjúkrunarheimila og að það verði að gera við næstu fjárlagagerð. Athygli vekur að ekki er gert ráð fyrir því í fjármálaáætlun, en það var gagnrýnt ákaflega af Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Í sama mund kynnti Bjarni Bene- diktsson fjármálaráðherra áætlun um langtímahorfur í efnahagsmálum og opinberum fjármálum til 30 ára. Samkvæmt henni er staðan góð og horfurnar ekki afleitar, þó að til langs tíma litið séum við öll dauð, eins og Keynes heitinn lávarður benti réttilega á. Sendiherra Rauða-Kína segir að þátttaka íslenskra stjórnvalda í við- skiptaþvingunum gegn kínverskum embættismönnum hafi skaðað sam- skipti ríkjanna. Hann segir að 75 milljónir Kínverja hafi reiðst af þeim sökum, en nefndi þá þó ekki. Það þýðir að 1.323 milljónir Kínverja hafi verið sáttir við þetta. Velflest hátíðahöld voru blásin af í fyrra vegna plágunnar, en nú þegar hún virðist í rénun bendir flest til þess að þær verði haldnar af þeim mun meiri þrótti í ár. Reykjavíkurborg veit ekki aura sinna tal eins og flestir ættu að vita og því er stefnt að því að leggja milljarð króna í innviði hjólreiða á ári hverju. Íslensk uppfærsla á The Bold and The Beautiful átti sér stað í uppstill- ingarnefndum Viðreisnar í vikunni, þar sem Þorsteinn Pálsson fékk það hlutverk að hreinsa til í flokksforyst- unni með því að bjóða heiðurssætið til þeirra, sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður grunar um ofmetnað. Að öðru leyti var gripið til þess nýmælis að bjóða þingmönnum flokksins efstu sæti. Í prófkjörum Sjálfstæðisflokksins, sem haldin verða í öllum kjör- dæmum á næstu vikum, bjóða sig alls 52 fram. Þar af eru konur 40% sem þykir ekkert sérstakt. Storytel ákvað að gefa út bók á prenti upp á grín. . . . Aðgerðir til þess að koma í veg fyr- ir rakaskemmdir og myglu í Foss- vogsskóla, sem staðið hafa yfir með hléum í tvö ár, hafa ekki skilað til- ætluðum árangri, svo segja má að komið sé aftur á byrjunarreit, og á því að reyna hið sama aftur á kom- andi skólaári, en börnum verður áfram kennt úti í sveit. 600 millj- ónir króna hafa farið í vaskinn fyrir vikið. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, segir ASÍ leggjast gegn auknu valfrelsi félagsmanna í lífeyrismálum. Hann ætlar að stefna SA og Elkem fyrir Félagsdóm til málamynda til að skera úr um ágreininginn. Geitungar eru seinna á ferðinni í ár en vant er, en þeirra hafa fáir sakn- að aðrir en skordýrafræðingar. Talið er að kuldar valdi þessari seinkun. Grímunni kastað Flestir Íslendingar gátu kastað grímunni í vikunni og það gerðu þeir svikalaust. Kysstust jafnvel og föðmuðust sumir. 23.5.-28.5. Andrés Magnússon andres@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.