Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Blaðsíða 8
FRÉTTASKÝRING 8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021 F yrir liðlega aldarfjórðungi náði breska ríkisútvarpið að skúbba allan heiminn með viðtali við Díönu prins- essu, sem átti eftir að hafa varanleg áhrif á líf hennar og raunar fyrir krúnuna líka. Hún lést sem kunnugt er af slys- förum tæpum tveimur árum síðar. Sonur Díönu og væntanlegur ríkisarfi, Vilhjálmur prins, her- togi af Cambridge, hefur nú ráðist á ríkis- útvarpið af offorsi fyrir dæmalausan óheiðar- leika við gerð viðtalsins, það hefur sætt víðtækri fordæmingu fyrir og í breska þinginu hefur verið rætt um að skakka þurfi leikinn hjá stofnuninni, sem líti á sig sem ríki í ríkinu. Kvöldið 20. nóvember 1995 birti breska ríkis- sjónvarpið BBC viðtal Martins Bashirs við Díönu prinsessu af Wales í fréttaskýringar- þættinum Panorama. Gervallt Bretland beið viðtalsins í ofvæni, enda á almannavitorði að hjónaband hennar og ríkisarfans, Karls Breta- prins, hafði ratað í ógöngur. Sá áhugi birtist í því að ríflega þriðjungur Breta, um 23 milljónir manna, horfði á viðtalið. Utan landsteinanna var áhuginn ekki síðri og erlendar stöðvar slóg- ust um birtingarréttinn að því, en hér á Íslandi birti Stöð 3 „óritskoðað“ viðtalið við hana á besta tíma. Áhorfendurnir voru ekki sviknir, því í viðtal- inu lýsti Díana því hvernig hjónabandið hefði flosnað upp og játaði framhjáhald. Það var í sjálfu sér nóg að smjatta á um þetta fremsta slebbapar heimsins, en hafði auk þess bein og augljós áhrif á breska ríkið þegar hjónaband ríkisarfans var komið í uppnám (og jafnvel hvískrað um faðerni yngri sonar hennar og mögulegs ríkisarfa). Sagan kallaði líka á sinn hátt, því þá voru aðeins 59 ár frá afsögn Ját- varðar konungs VIII., sem setti Bretland á ann- an endann. Þetta sögulega viðtal var því mikil skraut- fjöður í hatt BBC, sem aukinheldur skapaði rík- ismiðlinum verulegar tekjur. Og sá sem fékk islega, þegar það var hann sjálfur sem hafði kynt undir grunsemdum hennar um slíkt sam- særi. Hann hafði sagt henni að óyggjandi heim- ildir væru fyrir undirróðri blaðamanna, fyrir- fólks við hirðina, leyniþjónustanna og jafnvel náinna vina gegn henni, að undirlagi eigin- manns hennar. Því til staðfestingar hafði hann sýnt henni gögn, sem áttu að staðfesta það. – „Jú,“ svaraði Díana og hélt nú það. Þessar frásagnir um samsæri gegn prinsess- unni vinsælu komu mörgum í opna skjöldu, en skoðanir voru ögn skiptar á lýsingunum. Marg- ir sem stóðu nærri hirðinni drógu orð hennar í efa og gáfu jafnvel til kynna að hún hefði snert af ofsóknaræði auk annara andlegra kvilla. Mun fleiri lögðu hins vegar trúnað við orð Díönu og efasemdamennirnir margir afgreiddir sem höfðingjasleikjur, ef ekki útsendarar hirð- arinnar. Síðastliðið haust fóru hins vegar að koma fram upplýsingar sem bentu til þess að ekki hefði allt verið með felldu. Á sama tíma upplýsti Charles Spencer, jarl og bróðir Díönu heitinnar prinsessu, að hann hefði haldið minnisblöð yfir fundi sína með Bashir á þessum tíma og stað- hæfingar hans, en það var einmitt Spencer jarl, sem kom á fundum prinsessunnar og frétta- mannsins. Minnisblöð Spencers jarls setja viðtalið og tilurð þess í allt annað og annarlegra ljós, en hingað til hefur verið haldið. Niðurstaða Dy- sons lávarðar er að þau og frásögn Spencers jarls séu trúverðug, en verra sé að innanhúss- skjöl BBC, sem hingað til hafa verið hjúpuð leynd, sýna að ekki aðeins hafi enginn vafi leikið á því að Bashir hafi ítrekað logið um framgöngu sína og viðtölin, heldur að þau staðfesti að yf- irmenn stofnunarinnar hafi vitað og viðurkennt að hann hafi þverbrotið bæði siðareglur blaða- manna og vinnureglur BBC, en látið kyrrt liggja. Til þess að bæta gráu ofan á svart hafi Stjörnufréttamaðurinn Martin Bashir spurði spurninganna, en hafði skáldað sum svörin líka. Samsærið gegn Díönu Viðtal breska ríkisútvarpsins BBC við Díönu prinsessu af Wales haustið 1995 reyndist afar afdrifaríkt, bæði fyrir hana og kon- ungsfjölskylduna. Nú er komið á daginn að til þess var stofnað með blekkingum sem yfirstjórn BBC hylmdi yfir í aldarfjórðung. Andrés Magnússon andres@mbl.is Óheiðarleiki Martins Bashirs gagnvart sínum berskjaldaða viðmælanda má heita með ólík- indum, en verra er að ríkis- útvarpið BBC kærði sig kollótt í aldarfjórðung og stjórnendur hylmdu yfir. PERSÓNUR & LEIKENDUR Patrick Jephson þáverandi einkarit- ari Díönu Martin Bashir hinn fallni stjörnu- fréttamaður BBC Tony Hall sá ekk- ert að og varð síð- ar forstjóri BBC Spencer jarl bróðir Díönu prinsessu Díönu prinsessu til þess að koma í viðtalið, hinn 32 ára gamli fréttamaður Martin Bashir, ferill hans umturnaðist á einni nóttu, um leið og allar vonir hrundu um að bjarga mætti hjónabandi prinsins og prinsessunnar af Wales. Efasemdir um heiðarleika Lengi hafa hins vegar verið uppi efasemdir um það hvernig stóð á viðtalinu og þær komu upp enn á ný síðastliðið haust þegar slétt 25 ár voru liðin frá birtingu viðtalsins. Fullyrt var að Bas- hir hefði beitt brögðum og blekkingum til þess að öðlast traust og tiltrú prinsessunnar, sem fyrir vikið hefði sagt annað og meira en hún ella hefði gert. BBC fékk þess vegna Dyson lávarð, sem er fyrrverandi hæstaréttardómari, til þess að komast til botns í málinu og hann skilaði skýrslu sinni í liðinni viku. Í skýrslu Dysons var ekki skafið af hlutunum og komist að því að Bashir væri „óáreiðan- legur“, „undirförull“ og „óheiðarlegur“, en verri einkunnir er tæpast unnt að velja fréttamanni. Þetta var þó ekki í fyrsta sinn, sem vinnu- brögð Bashirs í kringum viðtalið voru rann- sökuð. Það gerði á sínum tíma einnig Tony nokkur Hall, sem síðar varð forstjóri BBC. Hall, sem hefur verið aðlaður síðan, komst að því að Bashir væri „heiðarlegur“ og „heiðvirður maður“. Dyson lávarður hefur hins vegar for- dæmt rannsókn Hall og sagt hana „gallaða“ og „skelfilega gagnslausa“. Hér var ljóslega mikið í húfi og frægð og frami fleiri en konungsfjölskyldunnar í húfi. Samt hefur sagan öll legið í þagnargildi í ald- arfjórðung og er nú fyrst að koma í ljós. Umrætt viðtal fór um alla heimsbyggðina og er tvímælalaust meðal helstu sjónvarps- viðburða liðinnar aldar. Díana var enn eigin- kona ríkisarfans, þó þau mættu heita skilin að borði og sæng, og hún dró ekki af sér í viðtalinu. Þar ræddi hún um hór og hjúskaparbrot, sam- særi í höllinni, andleg sem líkamleg veikindi sín og að Karl Bretaprins væri ófær um að verða konungur. Undirmál Bashirs Allt vakti þetta nokkra athygli, svo vægt sé til orða tekið. Ekki þó síst allt baktjaldamakkið í konungsfjölskyldunni og hirðinni, sem hún lýsti alvarleg í bragði. „Heldurðu í alvöru að það hafi verið rekin herferð gegn þér,“ spurði Bashir hana sakleys- Sjá síðu 10 5

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.