Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021 ÁHUGAMÁL FAXAFENI 5 Reykjavík 588 8477 DALSBRAUT 1 Akureyri 588 1100 SKEIÐI 1 Ísafirði 456 4566 AFGREIÐSLUTÍMI Mán.–fös. 11–18 | Lau. 11–16 www.betrabak.is VEFVERSLUN www.betrabak.is DÝPR I OG BE TR I SVEFN Með því einu að snerta takka getur þú stillt rúmið í hvaða stöðu sem er og með öðrum færð þú nudd. Saman hjálpa rúmið og dýnan þér að ná hámarks- slökun og dýpri og betri svefni. Svo vaknar þú endurnærð/ur og tilbúin/n í átök dagsins. AÐ SOFA BETUR OG LÍÐA BETUR ER OKKUR ÖLLUM DÝRMÆTT STILLANLEGIR DAGAR Tilboð 314.925 kr. C&J stillanlegur Platinum botn með Tempur Original, Cloud eða Firm heilsu- dýnu, 90 x 200 cm. Fullt verð: 419.900 kr. Tilboð 262.452 kr. C&J stillanlegur Platinum botn með Hollandia Lili latex heilsudýnu, 90 x 200 cm. Fullt verð: 349.900 kr. Á skrifstofu prestsins í Vídalínskirkju íGarðabæ er stór bókahilla stútfull afbókum og ekki fjalla þær allar um trú- mál; þvert á móti! Þarna má sjá tugi bóka um tónlistarmenn á borð við Bob Dylan, David Bo- wie, Johnny Cash og Megas svo einhverjir séu nefndir. Á skrifstofuvegg hangir líka gítar og upp við lítið harmoníumorgel stendur undar- legt og fremur ljótt hljóðfæri. Það mun víst vera rafkontrabassi. Séra Henning Emil Magnússon grípur í bæði gítar og bassa af og til og segist spila á orgelið til að æfa sig að tóna. „Stundum æfi ég mig að tóna en þegar ég stend svo fyrir framan sex hundruð manns í kirkjunni á aðfangadag kemur stundum eitt- hvert allt annað hljóð út úr mér. Það er hræði- legt,“ segir hann og brosir. Allt í einu orðinn fertugur Bob Dylan hefur lengi verið á fóninum hjá þessum tæplega fimmtuga Keflvíkingi sem fór krókaleiðir í átt að hempunni. Henning fór heldur ekki hefðbundna leið þegar hann valdi sér efni til að skrifa um í meistararitgerð sinni í guðfræði. Hann ákvað að tvinna saman tón- list og trú og valdi einn af sínum uppáhalds- tónlistarmönnum sem viðfangsefni, áður- nefndan Bob Dylan sem varð áttræður á mánudaginn var. Sama kvöld stóð Henning fyrir afmælistónleikum í kirkjunni en þar söng Sigríður Thorlacius vel valin Dylan-lög undir tónum frá Ómari Guðjónssyni og Tómasi Jóns- syni. Henning vill gjarnan halda fleiri Bob Dylan-tónleika á þessu stóra afmælisári. Við hefjum spjallið á trúarlegum nótum, en Henning fékk kristilegt uppeldi og töldu margir í fjölskyldunni að hann ætti að verða prestur. „Ég fór í sunnudagaskóla sem barn og bað bænir á kvöldin. Á unglingsárunum var ég í KFUM og það var mjög skemmtilegt og lær- dómsríkt. Þarna fengum við að gera allt sjálf og gera mistök, sem ég tel mjög mikilvægt að fá að gera. En ég ætlaði ekki í guðfræði heldur ensku og miðaldafræði,“ segir Henning sem endaði á að taka kennsluréttindi og kenndi lengi í grunnskóla. „Mér fannst ég ekki nógu gamall til að verða prestur þótt aðrir hefðu viljað það. Ég sagði fólki að ég myndi skoða það aftur um fertugt og keypti mér þannig frið. Svo allt í einu var ég orðinn fertugur og fór að hugsa þetta upp á nýtt,“ segir Henning sem hafði þá klárað BA- prófið í guðfræði löngu áður og skellti sér í meistaranámið. Plata með Dylan í jólagjöf Henning viðurkennir að hann hafi alla tíð verið svolítill nörd. Sem ungur maður sökkti hann sér ofan í tónlist og kvikmyndir og hafði einnig áhuga á myndlist. „Tónlistin hefur alltaf verið risaþáttur í mínu lífi. Sem unglingur horfði ég mikið á tónlistar- myndbönd og þætti á borð við Skonrokk. Ég man eftir því þegar ég er þrettán ára árið 1987, þá kemur út myndband með Robert Smith í The Cure þar sem hann syngur lagið Just like heaven af plötunni Kiss me, Kiss me, Kiss me. Þetta var svo ferskt og flott og ég hljóp út og keypti plötuna,“ segir Henning og segir þetta litla atvik nokkurs konar vendipunkt í lífi sínu því eftir það hóf hann að hlusta á tónlist nokkra klukkutíma á dag, og gerir enn. „Tónlistin er stærsta áhugamálið. Sem ung- ur maður var ég í tónlistarskóla og tók inn tuttugustu öldina, barokkið og ýmislegt annað en ég lærði á klassískan gítar.“ Henning kynntist konu sinni, óperusöng- konunni Bylgju Dís Gunnarsdóttur, þegar hann var á fimmtánda ári. „Fyrsta jólagjöfin frá Bylgju var platan Oh Mercy með Bob Dylan. Þannig að hún á alveg þátt í þessum áhuga.“ Endalaust hægt að kafa Henning hlustaði á þá plötu alveg „út í eitt“ eins og hann orðar það. Það varð ekki aftur snúið. „Það var enginn annar í bekknum að hlusta á Bob Dylan. Fram að því hafði ég hlustað mikið á Stranglers og Madness. Þarna er Bob Dylan eins lítið flottur og hægt er; kannski svolítið bú- inn að tapa áttum. En þessi plata kom honum aftur á sporið. Ég tengdi við þessa plötu og fór þá líka að hlusta á hans eldri plötur,“ segir hann. „Ég komst svo yfir ævisöguna hans og fannst það rosalegt. Ég endursagði eldri vinum valda kafla af ævintýrum söngvaskáldsins. Þannig var stemningin þá,“ segir Henning og brosir. Er Bob Dylan þinn uppáhaldstónlistar- maður? „Hann er einn af þeim, en ég á svo marga. Ég ákvað að skrifa um hann í meistararitgerð- inni. Ég þurfti að klára ákveðna hluti gagnvart honum sem mig langaði að skoða og stefnan er að leggja honum eftir afmælisárið. Auðvitað mun ég hlusta á hann áfram en ég á svo mörg áhugamál og það eru aðrir tónlistarmenn, eins og John Coltrane, sem eru stórkostlegir. Það er eitt með Bob Dylan sem skilur hann frá öðr- um; það er svo mikil dýpt. Það er endalaust hægt að kafa og kafa. Hann þolir það mjög vel að vera skoðaður ofan í kjölinn.“ Alltaf verið að fást við trú Hvað er svona sérstakt við Bob Dylan? „Það er einhver kjarni í honum. Það er líkt og gildi hans og uppeldi sem hefur mótað hann birtist sífellt á nýjan hátt. Hann hefur svo áhugaverða sýn á lífið og setur oft hluti í sam- hengi sem maður býst ekki við. Hann tengir saman hluti á svo góðan hátt. Ég hef ekki mik- inn áhuga á hans persónulega lífi heldur frekar hvernig hann tekur út þroska við að tefla fram alls kyns hlutum,“ segir Henning og telur texta Dylans taka lögunum fram. „Það eru mikið orðin sem hann er að fást við. Það er svo skemmtilegt hvernig hann hugsar.“ Bob Dylan er af gyðingaættum og elst upp í gyðingdómi. „Það var því mörgum stórt áfall þegar hann varð það sem kallast „Born again Christian“. Hann fór alla leið; fór í biblíuskóla og varð bók- stafstrúarmaður og var upptekinn af heims- endaspám. Í þessum pælingum var hann í tvö ár. Þetta fór illa í fólk og sumir hafa ekkert jafnað sig. En svo fór hann út úr þessu aftur og endurnýjaði gyðingdóminn. Ég kalla þetta bókstafstrúartímabilið en ekki trúartímabil því hann er alltaf að fást við trúarleg þemu, all- an ferilinn. Og það hefur hann gert á áhuga- verðari hátt eftir að hann varð eldri. Plöturnar sem hann gaf út um aldamótin eru lang- áhugaverðastar út frá trúarlegum vísunum, en hann hefur alltaf verið með tilvitnanir í Biblí- una.“ Tónlist er hans köllun Henning nefnir einnig að það sem geri Dylan áhugaverðan sé hversu breytilegur hann sé og að hann komi fólki sífellt á óvart. „Hann þarf alltaf að halda áfram; fara lengra. Hann var draumabarnið í þjóðlagasenunni en svo bara hætti hann í því og þá voru rosalega margir sárir. Þá fer hann út í töffaraskap og keyrir sig út og lendir í mótorhjólaslysi. Það er alltaf eitthvað nýtt. Hann er á eigin vegferð og er sama hvað öðrum finnst,“ segir Henning og segir fólk oft hafa í gegnum tíðina spáð enda- lokum hans sem tónlistarmanns. „Þá kemur hann með eitthvað óvænt. Það var stórkostlegt þegar hann á gamals aldri fór að vera með útvarpsþætti þar sem var enda- laus gleði og brandarar. Þegar allir voru vissir um að hann væri búinn að loka sig af varð hann bara skemmtikraftur,“ segir hann og segir Dylan hafa mikið til haldið sínu einkalífi utan sviðsljóssins. „Hann giftist seinni konu sinni og náði að halda því leyndu í fimmtán, tuttugu ár. Hann hefur forðast mikið sviðsljósið, enda lenti hann illa í því oft. Hann hefur oft blekkt fjölmiðla, snýr út úr eða segir eitthvað sem er út í hött. Aðallega er hann að passa að gefa sem minnst- ar upplýsingar,“ segir Henning og bætir við að Dylan hafi verið afar duglegur að túra, búa til nýjar plötur, að skrifa endurminningar sínar, auk þess sem hann málar og teiknar. „Hann heldur oft 200 tónleika á ári en hefur verið beðinn um að hægja á sér. En þetta er hans köllun.“ Fann endalausa samhljóma Þegar Henning loks ákvað að verða prestur þurfti hann að ákveða efni fyrir meistara- ritgerðina. „Ég ákvað að skrifa um eitthvað sem ég þekkti fyrir og datt þá í hug Bob Dylan. Hinn anginn af ritgerðinni er í raun þroskakenn- ingar, og það þekkti ég úr kennslunni. Ég ákvað því að taka þetta tvennt og móta,“ segir hann og segist hafa notað kenningar James W. Fowlers um trúarþroska og mátað þær við val- in verk eftir Bob Dylan. Dylan er á dýptina Séra Henning Emil Magnússon veit allt um Bob Dylan en meistarinn sá átti áttræðisafmæli í vikunni. Í meistararitgerð í guðfræði rýndi Henning í verk Dylans og skoðaði trúarþróun söngvaskáldsins. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Henning Emil Magnússon hefur brenn- andi áhuga á tónlist og hefur Bob Dylan skipað stóran sess í hans lífi. Eiginkona hans, þá kærasta, gaf honum fyrstu Dyl- an-plötuna þegar hann var fimmtán ára. Hann kolféll fyrir meistaranum.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.