Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Blaðsíða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021
FERÐLÖG
Opið mán - fim 8:30 – 17:00, fös 8:30 – 16:15
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
VANDAÐUR
HLÍFÐARBÚNAÐUR
Grímur, hanskar og andlitshlífar.
Skoðaðu úrvalið á fastus.is/hlifdarbunadur
É
g byrjaði í ferðabransanum í
Hollandi og fyrirtækið mitt
er þar. En svo kom Covid og
allt stöðvaðist og þá flutti ég ásamt
manni mínum og syni heim til Ís-
lands. Ég fór að kenna í Lækjar-
skóla í Hafnarfirði en er að keyra
fyrirtækið mitt samhliða þeirri
vinnu, ásamt samstarfsfólki í Hol-
landi,“ segir Helga Kristín en hún
bjó sex ár í Delft í Hollandi og þar
áður áratug í Kaupmannahöfn.
„Maðurinn minn er bandarískur
og það var hann sem dró mig til
Hollands þar sem hann vann, en
hann getur unnið hvar sem er og
vinnur nú hér. Honum finnst æð-
islegt að búa á Íslandi.“
Eins og amma gamla
Þegar Helga Kristín hafði búið ár í
Hollandi stofnaði hún fyrirtækið
Iceland Unwrapped.
„Ég fór að kynna Ísland fyrir út-
lendingum og fór að senda Hollend-
inga, Bandaríkjamenn, Belga,
Breta og Dani til Íslands. Ég
skipulegg persónulegar ferðir og
ræði mjög mikið við fólk um ferð-
ina. Svo geri ég plan í samstarfi við
fólkið og allir fá sína eigin vefsíðu.
Ég tengi svo fólk við Íslendinga og
menninguna hér, en í þessum ferð-
um er farið hægt í sakirnar og
stoppað lengur á hverjum stað. Ég
ráðlegg fólki kannski að lesa bók
frá svæðinu, til dæmis eftir Lax-
ness eða Arnald, eða finn tónlist
sem passar hverjum stað. Ég er
svolítið eins og amma gamla sem
passar upp á fólkið sitt,“ segir
Helga Kristín og segist einnig
bjóða fólki upp á að borða með ís-
lenskum fjölskyldum í heimahúsum.
„Ég er með fjórtán heimili allt í
kringum Ísland sem taka fólk heim
í mat og er það rosalega vinsælt.
Kvöldbirtan er engu lík á fallegu sumarkvöldi og rómantíkin liggur í loftinu.
Í þessari hundrað þúsund
manna borg er engin bílaum-
ferð í miðbænum og hægt að
ganga og hjóla allar sínar ferðir.
Ljósmyndir/Helga Kristín
Það er margt að sjá og skoða í Delft. Delft er þekkt fyrir postulín en það er selt á mörkuðum.
Dásemdir
Delft
Ferðamálafrömuðurinn Helga Kristín Friðjóns-
dóttir býður erlendum ferðamönnum til Íslands
og Íslendingum til Delft í Hollandi.
Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is
Helga Kristín smellti í sjálfu fyrir
framan íslenskan ferðahóp.
Yfir þúsund ára gamlar kirkjur má finna í Delft sem er lítil og vinaleg borg.
5