Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021
LESBÓK
BROTTREKSTUR Bassafantinum David Ellefson var í
vikunni vikið úr þrassbandinu Megadeth. Eins og
Sunnudagsblaðið greindi frá fyrir tveimur vikum þá lak
myndband, þar sem Ellefson sýnir kynferðislega til-
burði í samskiptum við ókunnuga konu á netinu, út fyrir
skemmstu og baðst hann afsökunar á framferði sínu.
Konan steig líka fram í sviðsljósið og upplýsti að Ell-
efson hefði ekki brotið gegn sér; allt hefði verið með
samþykki beggja. Eigi að síður sendi Dave Mustaine,
leiðtogi Megadeth, frá sér yfirlýsingu þar sem hann seg-
ir Ellefson ekki lengur hluta af Megadeth. „Ákvörðunin
var ekki auðveld. Þó við vitum ekki í smáatriðum hvað
gerðist þá dugar það sem fram hefur komið til að binda
enda á samband sem þegar var orðið stirt.“
Ellefson látinn fara
David Ellefson er
hættur í Megadeth.
AFP
SPENNA Enda þótt hún verði ekki frumsýnd
fyrr en í október þá er nýjasta kvikmynd
breska leikstjórans Edgars Wrights farin að
vekja heilmikið umtal og bíða margir hennar
með mikilli eftirvæntingu en fyrsta stiklan þykir
lofa mjög góðu. Um er að ræða sálfræðihroll-
vekju um ungan hönnuð sem skreppur aftur í
tímann og ber niður í Lundúnum árið 1966; í
sveiflubylgjunni miðri. Ekki er þó allt sem sýnist og
mörkin milli draums og veruleika, nútíðar og for-
tíðar, verða víst býsna fljótt óljós. Með að-
alhlutverk fara Anja Taylor-Joy (úr
Drottningarbragði), Thomasin
McKenzie og Matt Smith.
Anya Taylor-
Joy fer með
eitt aðal-
hlutverkið.
AFP
Ann Wilson veit hvað hún syngur.
Flutt til Flórída
BÚFERLI Ann Wilson, söngkona
rokkbandsins Heart, sér ekki eftir
að hafa flutt frá Seattle, þar sem
hún bjó um langt árabil, til Flórída.
Þetta kom fram í samtali við hana á
útvarpsstöðinni Hawaii Public Ra-
dio. Wilson, sem er sjötug, viður-
kennir að margir vinir sínir og
vandamenn hafi legið henni á hálsi
fyrir gjörninginn enda sé Seattle
mun heitari suðupottur tónlistar-
lega en Flórída, auk þess sem ríkið
sé óþægilega „rautt“ í pólitískum
skilningi. Við munum að „rautt“
merkir hægri í Bandaríkjunum.
Wilson blæs á þau sjónarmið og
kveðst hafa kynnst fjöldanum öllum
af góðu fólki þar syðra. „Seattle er
alltof upptekin af sjálfri sér.“
V
inir eða Friends eru ein-
hverjir vinsælustu gaman-
þættir sjónvarpssögunnar.
Þeir voru framleiddir í áratug vestur
í henni Ameríku, frá 1994 til 2004, en
virðast eigi að síður aldrei hafa horf-
ið af skjánum. Kynslóð eftir kynslóð
lepur efnið upp og bindur trúss sitt
við það. „O, þau eru svo miklar dúll-
ur!“ Og ekki ofsögum sagt að millj-
ónir sjónvarpsáhorfenda um heim
allan upplifi Rachel, Ross, Monicu,
Joey, Phoebe og Chandler sem ætt-
menni sín, jafnvel nákomin. Taka
jafnvel frekar yfir sig aurslettur um
Liverpool eða KR en sexeykið á
Manhattan. Og er þá mikið sagt.
Engum bregður lengur þegar virðu-
legir fræðimenn eða herskáir stjórn-
málamenn gera frasa úr Vinum að
sínum. Lýðurinn kinkar bara kolli –
og botnar frasana. Án þess að falla
úr takti.
Fyrir vikið þóttust margir hafa
himin höndum tekið þegar upplýst
var að sexeykið myndi koma saman
eftir sautján ára hlé í einum 100 mín-
útna löngum viðauka, sem hvort sem
er má kalla þátt eða mynd. Eftir því
hvernig á málið er litið. Téður þáttur
kom loksins fyrir sjónir almennings
á fimmtudaginn á efnisveitunni
HBO Max. Ekki er um að ræða
dæmigerðan Friends-þátt, heldur
koma leikararnir sex saman og lofta
út úr minningabankanum, með að-
stoð góðra manna. Breski háðfugl-
inn James Corden spyr þau spjör-
unum úr, meðal annars um það
hvort einhver þeirra hafi dregið sig
saman meðan á gerð þáttanna stóð
og þar fram eftir götunum. Kemur
sér gjarnan beint að efninu, Corden.
Aðrir gestir koma úr ólíkustu áttum,
svo sem David Beckham, Cindy
Crawford, Justin Bieber, Lady
Gaga, Tom Selleck, Cara Dele-
vingne, Elliott Gould og Reese
Witherspoon. Sumt af þessu fólki
kom við sögu í þáttunum á sinni tíð
en annað dáðist bara að þeim úr
fjarska. Og það á hinum ýmsu tíma-
skeiðum, enda þetta fólk á ólíkum
aldri, allt frá þrítugs upp í áttræðis.
Það er sem ég segi, eitthvað fyrir
alla, konur og kalla … Sorrí, man
ekki rest.
Heimspressan stakk sér að vonum
á bólakaf í vikunni og virðast um-
sagnir gegnumsneitt vera lofsam-
legar, eða í öllu falli vinsamlegar.
Mögulega nær Adam White utan
um gjörninginn í umsögn sinni í
breska blaðinu The Guardian. Þann
dóm felli ég þó án þess að hafa séð
veisluna sjálfur.
„Þurftum við á endurfundum Vina
að halda? Eiginlega ekki. Er sá eða
sú sem fékk nóbelshafinn Malala
Yousafzai til að viðurkenna að hún
væri „Joey með phoebísku ívafi“
snillingur? Ábyggilega. Var þessi
Tilgangslaust
en yndislegt
Bestu vinir sjónvarpssögunnar komu loksins sam-
an aftur eftir sautján ára hlé í vikunni í einum við-
aukaþætti. Heimspressan fór að vonum á hliðina
enda þykir mörgum vænna um Rachel, Joey og
þau hin en móðurina sem fæddi þá í heiminn.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Jennifer Aniston hefur vegnað best af Vinunum sex eftir að þátturinn rann sitt
skeið á enda. Og lítið breyst, þannig lagað, en myndin er tekin á seinasta ári.
AFP
Drottning bragðar á fortíðinni