Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Page 29

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Page 29
100 mínútna óður til vinsælasta gamanþáttar í heimi eins tilgangs- laus og hann var yndislegur? Al- gjörlega.“ Caryn James tekur í svipaðan streng á vefsíðu breska ríkis- útvarpsins, BBC. „Það er ekkert sérstaklega nýtt eða hvatvíst hér á ferð en þessi viðauki nær vel utan um anda þáttanna í allri sinni hlýju, krafti og léttleika, með glefsum sem minna okkur á gullöldina sem hóp- urinn svo sannarlega átti. Undir loðnu yfirborðinu kemur einnig fram hvers vegna þættirnir gengu svona vel og hafa lifað góðu lífi allar götur síðan,“ segir James. Henni þykir viðaukinn einnig staðfesta, án þess að ætla sér það, hvernig þættirnir geirnegldu leik- arana í ákveðin hlutverk og urðu þeim þannig fjötur um fót á ferli þeirra í framhaldinu. Þannig ræðir einn af höfundum þáttanna, David Crane, um það hvernig valið var í hlutverkin. „Við vildum ekki stjörnur,“ segir hann, „heldur hóp jafningja.“ Þess vegna urðu fyrir valinu leikarar sem í besta falli höfðu farið með agnarsmá hlut- verk í gamanþáttum áður. Vinir um aldur og ævi „Strax frá og með fyrsta vetrinum færðu Vinir þeim frægð sem hæg- lega getur orðið gildra,“ skrifar James og bætir við að í dag sé Jenni- fer Aniston þeirra frægust. Í viðauk- anum rifjar hún upp að framleiðandi nokkur hafi varað sig við að þiggja hlutverkið. „Þessi þáttur er aldrei að fara að gera þig að stjörnu.“ Þar var manngreyið vitaskuld úti á hinni víðáttumiklu þekju; þátt- urinn gerði slíkar stjörnur úr leik- urunum að Courtney Cox, Lisa Ku- drow, David Schwimmer, Matt LeBlanc, Matthew Perry, og jafnvel Aniston sjálf verða alltaf fyrst og síðast „Vinir“ í huga almennings. „Til eru gamanþættir þar sem leik- arar leika tilbrigði við sjálfa sig, svo sem Roseanne og Seinfeld, en Vinir fóru í þveröfuga átt. Tefldu fram óþekktum leikurum sem síðan runnu saman við karaktera sína, um aldur og ævi, að því er virðist,“ bætir James við. Það er áhugavert í ljósi þess að hún upplifir það svo, eftir að hafa horft á viðaukann, þó ekki sé það af- dráttarlaust, að persónuleikar leik- aranna liggi býsna fjarri karakter- unum. Þannig sé enginn þeirra með fæturna eins kirfilega á jörðinni og Kudrow, sem lék sveimhugann Phoebe. LeBlanc sé ekki þessi treg- gáfaði spéfugl, sem Joey var, en eigi að síður í senn fyndnastur og virðu- legastur í hópnum. Henni þykir Schwimmer að einhverju leyti búa yfir alvöru Ross en Cox og Perry hverfi eiginlega bara í skuggann. „Frægðin er þannig í eðli sínu að við munum aldrei fá að kynnast því fyrir fullt og fast hvern mann þetta fólk hefur í raun og sann að geyma og viðaukinn gerir heldur enga tilraun til að gægjast þar á bak við tjöldin.“ Eins og öllum sé ekki slétt sama. Vinirnir sex saman komnir árið 2002. Frá vinstri: David Schwimmer, Lisa Kudrow, Matthew Perry, Courtney Cox, Jennifer Aniston og Matt LeBlanc. AFP 30.5. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29 HEILSA Okkar besti Íslandsvinur, Bruce Dickinson, söngvari málm- bandsins Iron Maiden, er allur að koma til eftir að hafa slitið hásin og farið í mjaðmaskiptaaðgerð á síð- ustu misserum. Kappinn æfði stíft í útgöngubanni á heimili sínu í París, hljóp upp stiga og skylmdist á svöl- unum en mjöðmin gaf sig víst frek- ar vegna 40 ára ferils í þeirri góðu íþrótt en út af því að hann hoppar eins og gormur á öllum tónleikum. Hann ætti því að vera sem nýr þeg- ar Járnfrúin kemst aftur á túr. Kominn með nýja mjöðm Bruce Dickinson er hress að vanda. AFP BÓKSALA 19.-25. MAÍ Listinn er tekinn saman af Eymundsson 1 Færðu mér stjörnurnar Jojo Moyes 2 Rím og roms Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn 3 Skollaleikur Ármann Jakobsson 4 Mávurinn Ann Cleeves 5 Etna og Enok ferðast um Ísland Sigríður Etna Marinósdóttir 6 Depill í leikskólanum Eric Hill 7 Nickel-strákarnir Colson Whitehead 8 Eikonomics Eiríkur Ásþór Ragnarsson 9 Ekki var það illa meint Hjálmar Freysteinsson 10 Undir 1000 kr. fyrir tvo Áslaug Björg Harðardóttir 1 Rím og roms Þórarinn Eldjárn/Sigrún Eldjárn 2 Etna og Enok ferðast um Ísland Sigríður Etna Marinósdóttir 3 Depill í leikskólanum Eric Hill 4 Hvolpasveitin – litir Nickelodeon 5 Veran í vatninu Hjalti Halldórsson 6 Hvolpasveitin – tölur Nickelodeon 7 Lærum um tölur Walt Disney 8 Klói lendir í vanda – Gosi Walt Disney 9 Gagn og gaman 1 og 2 Helgi Elíasson/Ísak Jónsson 10 Gírafína og Pellinn og ég Roald Dahl Allar bækur Barnabækur Ég er svo lánsamur að vera með- limur í virkum leshring, Kose- gruppa, sem vinahópurinn minn úr menntaskóla stofnaði fyrir nokkrum árum. Ein fyrsta bókin sem við tókum fyrir var bókin Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur og er skemmst frá því að segja að ég hef hik- laust tilgreint hana sem minn eftirlætishöfund upp frá því. Ég dáist að því hvað stíllinn hennar er fallegur og áreynslulaus – og er hægt en örugglega að vinna mig í gegnum öll verkin hennar, bæði til að njóta og læra. Ég veit ekki hvers vegna en það þarf mikið til að ég skelli upp úr þegar ég les. Hins vegar hef ég sjaldan sjaldan skemmt mér eins vel við lestur og þegar ég las Konuna við 1000° eftir Hallgrím Helgason. Svakaleg saga og þétt bók þar sem frá- sagnargleðin er í fyrirrúmi. Bók sem býr yfir mikilli flettiorku. Með ári hverju hrannast upp bækur sem mig langar til að lesa en einhvern veg- inn tekst mér ekki að lesa nema hluta af staflanum. Þetta er óvinnandi kapphlaup. Fyrir vikið heyrir það til undantekninga að ég lesi sömu bókina tvisvar en ég get þó sagt að mig langar gjarnan að lesa Ljósu eftir Krist- ínu Steinsdóttur aftur í bráð. Vægast sagt vönduð bók um konu sem þjáist af geðsjúkdómi á 19. öld. Stríð og kliður eftir Sverri Norland og Að telja upp í milljón eftir Önnu Haf- þórsdóttur eru tvær splunkunýj- ar bækur sem ég drakk í mig á dögunum. Fyrr- nefnda bókin var virkilega gefandi lesning, ekki síst fyrir mig sem rit- höfund, þar sem höfundurinn tekst á við risa- stór umfjöllunar- efni – loftslags- vandann, hina alltumlykjandi tækni sem og sagnahefð mannsins – á ein- lægan og innblás- inn hátt. Það er heillandi að finna hvað höfund- urinn er vel lesinn en nær þó að miðla pælingum sínum á að- gengilegan og skemmtilegan hátt. Þá síðarnefndu las ég fullur aðdáunar. Bókin er fyrsta skáld- saga höfundarins en skrifuð af slíku öryggi að ætla mætti að þær væru talsvert fleiri. Áhrifa- mikil og fersk samtímasaga um flókin samskipti innan fjölskyldu, samskiptaleysi, sambandsslit og geðveiki, bæði falleg og sorgleg í senn. EINAR LÖVDAHL ER AÐ LESA Óvinnandi kapphlaup Einar Lövdahl er rithöfundur og sendi á dög- unum frá sér sitt fyrsta skáld- verk, Í miðju mannhafi. 295 Vinnuvettlingar PU-Flex Öflugar Volcan malarskóflur á frábæru verði frá 365 Glærir ruslapokar Ruslapokar 120L Ruslapokar 140L Sterkir 10/50stk 695 1.995 Strákústar á tannbursta verði Öflug stungu- skófla Garðverkfæri í miklu úrvali Fötur í miklu úrvali Hakar, hrífur, járnkarlar, kínverjar, sköfur, skröpur, fíflajárn, fötur, balar, vatnstengi, úðarar, stauraborar......... Léttar og góðar hjólbörur með 100 kg burðargetu 999Barna- garðverk- færi frá 395 Ruslatínur frá 295 Laufhrífur frá999 Úðabrúsar í mörgum stærðum frá 995 Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Garðslöngur í miklu úrvali Hrífur Greinaklippur frá 595 Burstar framan á borvél 3 stk. Mikið úrval af garðstömpum

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.