Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 30.05.2021, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30.5. 2021 08.00 Uppskriftir fyrir svanga birni 08.02 Laugardagsklúbburinn 08.05 Rita og krókódíll 08.10 Regnbogasögur 08.12 Ég er fiskur 08.14 Örstutt ævintýri 08.16 Ást er ást 08.19 Blíða og Blær 08.40 Monsurnar 08.50 Víkingurinn Viggó 09.00 Adda klóka 09.25 Mörgæsirnar frá Mada- gaskar 09.45 Lukku Láki 10.10 Ævintýri Tinna 10.35 Mia og ég 10.55 It’s Pony 11.25 Angry Birds Stella 12.15 Nágrannar 13.45 Planet Child 14.35 Impractical Jokers 14.55 Dagbók Urriða 15.25 Stofuhiti 15.55 Flipping Exes 16.50 60 Minutes 17.35 Víglínan 18.26 Veður 18.30 Fréttir Stöðvar 2 18.40 Sportpakkinn 18.50 Ísland í dag 19.00 GYM 19.30 Race Across the World 20.35 Mr. Mayor 21.00 We Are Who We Are 22.00 Brave New World 22.40 C.B. Strike: Lethal White 23.40 Queen Sugar ÚTVARP OG SJÓNVARP Sjónvarp Símans RÚV Rás 1 92,4 . 93,5 Omega N4 Stöð 2 Hringbraut 20.00 Þegar – Hallgrímur Ey- mundsson 20.30 Uppskrift að góðum degi – Drangey Endurt. allan sólarhr. 15.00 Joel Osteen 15.30 Charles Stanley 16.00 Trúarlíf 17.00 Times Square Church 18.00 Tónlist 20.00 Sir Arnar Gauti (e) 20.30 Mannamál (e) 21.00 Suðurnesja-magasín Víkurfrétta (e) 21.30 Leiðtoginn með Jóni G. (e) Endurt. allan sólarhr. 11.15 The Block 12.20 Dr. Phil 13.05 Dr. Phil 13.50 Dr. Phil 14.35 Dr. Phil 15.20 Dr. Phil 16.50 The King of Queens 17.10 Everybody Loves Ray- mond 17.35 Ný sýn 18.05 Með Loga 19.05 The Block 20.10 Gudjohnsen 20.50 This Is Us 21.40 Black Monday 22.15 Gangs of London 23.15 Penny Dreadful: City of Angels 00.15 Love Island 01.10 Ray Donovan 02.00 Blue Bloods 02.45 Seal Team 06.55 Morgunbæn og orð dagsins. 07.00 Fréttir. 07.03 Hringsól. 08.00 Morgunfréttir. 08.05 Á tónsviðinu. 09.00 Fréttir. 09.05 Svona er þetta. 10.00 Fréttir. 10.05 Veðurfregnir. 10.15 Bók vikunnar. 11.00 Guðsþjónusta í Hafn- arfjarðarkirkju. 12.00 Hádegisútvarp. 12.20 Hádegisfréttir. 13.00 Sögur af landi. 14.00 Víðsjá. 15.00 Lestin. 16.00 Síðdegisfréttir. 16.05 Úr tónlistarlífinu: Tvær kúnstpásur. 17.25 Orð af orði. 18.00 Kvöldfréttir. 18.10 Fólkið í garðinum. 18.50 Veðurfregnir. 18.53 Dánarfregnir. 19.00 Óskastundin. 19.40 Hótel Ísland. 20.35 Gestaboð. 21.30 Úr gullkistunni. 22.00 Fréttir. 22.05 Veðurfregnir. 22.10 Á reki með KK. 23.10 Frjálsar hendur. 24.00 Fréttir. 00.05 Næturútvarp Rásar 1. 07.15 KrakkaRÚV 07.16 Refurinn Pablo 07.21 Hið mikla Bé 07.43 Poppý kisukló 07.54 Kúlugúbbarnir 08.17 Klingjur 08.28 Kátur 08.30 Hvolpasveitin 08.53 Hrúturinn Hreinn 09.00 Úmísúmí 09.23 Robbi og Skrímsli 09.44 Eldhugar 09.49 Sjóræningjarnir í næsta húsi 10.00 Dýrleg vinátta 11.00 Silfrið 12.15 Skólahreysti 13.35 Popp- og rokksaga Ís- lands 14.35 Af fingrum fram 15.20 Ljótu hálfvitarnir 16.00 Mega karlar syrgja hár- ið? 16.25 Tónaflóð um landið 17.50 Táknmálsfréttir 18.00 KrakkaRÚV 18.01 Söguspilið 18.25 Menningin – samantekt 18.45 Músíkmolar 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Vigdís Finnbogadóttir 20.20 Við 21.25 Karlakórinn Hekla 23.00 Inn í algleymið 00.50 Dagskrárlok 9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og síðdegisþáttum K100. 13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt- unar á sunnudögum. 16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40 vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm- plötuframleiðenda. „Ég fór bara að sofa klukkan níu á kvöldin og þá fór allt liðið, allt bandið mitt sem var náttúrlega komið til þess að gera ekki neitt nema standa uppi á sviði og þykjast spila sko, að djamma,“ seg- ir Birgitta Haukdal í Síðdegisþættinum en átján ár eru liðin síðan hún tók þátt fyrir Íslands hönd í Eurovision. Birgitta hefur síðan þá ekki tekið þátt í neinu sem viðkemur Eurovision en segist þó alveg vera til í að skoða það að vera lagahöf- undur eða textahöfundur. Birgitta svaraði í þættinum tuttugu ógeðslega mikilvægum spurningum og er hægt að nálgast viðtalið við hana í heild sinni á K100.is. Átján ár frá því að Birgitta var í Eurovision Ljósmynd/Hari París. AFP. | Ofurhugar kvikmynd- anna eru margir og hafa lagt í mikil stórvirki, en þögla kvikmyndin Napóleon eftir Abel Gance (1889- 1981) nýtur ákveðinnar sérstöðu. Myndin var gerð árið 1927 og eru til nokkrar gerðir af henni. Í 12 ár hefur nú verið unnið að endurgerð myndar- innar. Að því stendur hópur dyggra aðdáenda Gance og er talið að verkið muni kosta 2,5 milljónir evra (um 370 milljónir króna). „Það er bilun að leggja út í þetta,“ viðurkennir George Mourier, sem stýrir verkinu. Þegar þeir hófust handa árið 2008 höfðu hann og Laure Marchaut klippari í hyggju að verja nokkrum mánuðum í að taka til í myndasafni Gance í kjallara kvik- myndasafnsins Cinematheque Fran- caise í París. Þegar þau hófust handa áttuðu þau sig á því að við fyrri endurgerðir myndarinnar hafði tveimur útgáfum, sem sýndar voru á frumsýningunni, verið ruglað saman, annars vegar stuttri útgáfu fyrir almenning (sem þó var þriggja klukkustunda löng) og hins vegar lengri útgáfu, sem Gance klippti sjálfur. Það hefur kostað miklar rann- sóknir, stafræna galdra og ósérhlífni að setja myndina saman að nýju eins og leikstjórinn sá hana fyrir sér. Þrátt fyrir mikla eftirvæntingu þegar hún var frumsýnd 1927 náði hin epíska kvikmynd um fyrri hluta ævi Napóleons – átti að verða fyrsti hlutinn af fimm – ekki verðskuldaðri hylli almennings. Að hluta til var það vegna þess hvað hún var gríðarlega löng, en einnig skipti máli að hún var gerð um það leyti sem tilkoma hljóðs- ins gerði út um áhugann á þöglu myndunum. Endurteknar tilraunir dreifingar- aðila, sagnfræðinga og Gance sjálfs til að endurklippa myndina urðu til þess að filmurnar dreifðust um heiminn. Sumar týndust, aðrar skemmdust og enn öðrum var blandað saman. Talið er að til séu 22 útgáfur af myndinni. „Þetta er Frankenstein kvik- myndanna!“ sagði Mourier við AFP. Liðsmenn hans þurftu oft að púsla saman einstökum tökum. Til dæmis þurfti að blanda saman filmu- römmum, sem fundust í Róm, við ramma sem fundust í Kaupmanna- höfn, til að púsla saman upprunalega atriðinu af því þegar Napóleon heyrir Marseilleasinn í fyrsta skipti. Liðsmenn hans hafa nú unnið sig í gegnum 100 kílómetra af filmu og voru langir kaflar við það að leysast upp vegna aldurs. Marchaut þurfti ávallt að vera með hanska á meðan hún vann með filmurnar og segist en finna „sterka lyktina af ediki“ sem gaus upp þegar hún opnaði hylki með filmu sem byrjuð var að mygla. Með því að nota efnablöndur og nýjustu stafrænu tæknina tókst þeim að endurgera ramma sem vantaði og búa til hágæðaútgáfu sem gefur vonir um að halda megi í „sál og tilfinn- ingu“ upprunalegu filmunnar. Myndin sjálf hefur verið hafin á nánast goðsögulegan stall hjá áhuga- mönnum um kvikmyndir og kvik- myndagerðarmönnum, ekki síst leik- stjóranum Francis Ford Coppola, sem á víðtæk réttindi að myndinni í gegnum fyrirtæki sitt, American Zoe- trope, og sýndi eina af endurgerðu út- gáfunum við mikið lof árið 1981. Þá var hún sýnd með undirleik sinfóníu- hljómsveitar á tónlist eftir Carmine Coppola, föður leikstjórans. Kevin Brownlow, breskur kvik- myndasagnfræðingur, varði 50 árum ævi sinnar í að leita uppi og laga hinar ýmsu útgáfur myndarinnar. Breska kvikmyndastofnunin gaf útgáfu Brownlows út á DVD og Blueray árið 2016 og var hún fimm og hálf klukku- stund. Kvikmyndin á orðspor sitt að hluta að þakka mörgum tæknilegum nýj- ungum við gerð hennar. Þar má telja hraðar klippingar, tökur með kvik- myndavélum, sem tökumennirnir héldu á eða var komið fyrir á hest- baki, atriði þar sem ein taka var lögð yfir aðra og ekki síst hinn frægi loka- hluti myndarinnar, sem brugðið var upp á þremur tjöldum og nota þurfti þrjár vélar til að sýna í bíósalnum. „Hver sena var bylting í kvikmynd- um,“ segir Mourier og bætir við að þetta hafi verið síðasta „stórmynd“ þöglu myndanna. Vonir höfðu staðið til að hægt yrði að klára nýjustu útgáfuna af mynd- inni áður en þess var minnst 5. maí að 200 ár voru liðin frá andláti Napóle- ons, en verkið hefur tekið lengri tíma en búist var við. Mourier vonast til að klára verk- efnið fyrir árslok og nú liggur fyrir að finna stað við hæfi til að sýna þetta mikla sjónarspil. Mourier lætur sig dreyma um að lokka að þúsundir manna á fjöldasýn- ingu í portinu meðfram gröf Napóle- ons við Les Invalides í París. „Eitt er víst,“ segir hann. „Áhorf- endur munu aldrei átta sig á því hvað við þurftum að leggja á okkur til að gera þetta.“ Unnið að endurgerð Napóleons eftir Abel Gance í höfuð- stöðvum Cine- matheque Francaise. AFP ÞÖGUL STÓRMYND FRÁ 1927 BÚIN TIL SÝNINGA Á NÝ 12 ár í að endur- gera Napóleon Vissir þú að r þína auglýsingu? Morgunblaðið er með 47% lengri lestrartíma að meðaltali og 106% lengri yfir vikuna * yfi * G a llu p Q 1 2 0 2 1

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.