Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 21.09.2021, Blaðsíða 32
Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . Elsku systir okkar, mágkona og frænka, Gígja Guðfinna Thoroddsen Starengi 6, Reykjavík, sem lést 8. september, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju, þriðjudaginn 21. september, kl. 15. Ásta St. Thoroddsen Bolli Héðinsson Einar Gunnar Guðmundsson Sverrir Bollason Atli Bollason Brynhildur Bolladóttir Ólafur E. Thoroddsen Ólöf Jónína Thoroddsen Hrafnhildur Thoroddsen Elsku faðir minn og bróðir okkar, Snæbjörn Aðils lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi laugardaginn 11. september. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 23. september kl. 15. Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið. Anja Elísabet Snæbjörnsdóttir Aðils Páll Guðlaugsson Snæfríður Íris B. Kjartansdóttir Ragnhildur Ólafsdóttir Bjarki Þröstur Leifsson Linda Mjöll Leifsdóttir Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Jóhanna Eiríksdóttir síðan 1996 Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN Útfararþjónusta í yfir 70 ár Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, Miriam Thorarensen Skarðshlíð 8, Akureyri, lést á lyflækningadeild sjúkrahússins á Akureyri 10. september sl. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Jóhann G. Thorarensen Valdís Lára Thorarensen Þorvaldur Hansson Snædís, Lena, Agnes og Rakel Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, Stefanía Guðrún Jónsdóttir lést á Heilsustofnun Norðurlands á Sauðárkróki þann 14. september. Útförin fer fram frá Sauðárkrókskirkju þann 24. september kl. 14.00. Streymt verður frá Sauðárkrókskirkju. https://m.youtube.com/watch?v=YhP0ZwJ-St8 Simmi, Anna, Nonni, Beggi, Öddi, Steini, Hóffý og fjölskyldur. Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi, bróðir, mágur og frændi, Sigurður Þorsteinn Unnsteinsson lést á sjúkrahúsi í Sønderborg Danmörku þann 14. september síðastliðinn. Manuela Schulz Unnar Bæring Sigurðsson Nanna Guðrún Hjaltalín Bjarki Páll Sigurðsson Sarah Anita Neubauer Sara Dögg Sigurðardóttir Dennis Madsen Nikolaj Madsen barnabarn, systkini og fjölskyldur. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Birna Friðgeirsdóttir Gunnólfsgötu 18, Ólafsfirði, lést á Heilbrigðisstofnuninni á Siglufirði 16. september. Útförin fer fram frá Ólafsfjarðarkirkju föstudaginn 24. september klukkan 14. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á dvalar- og hjúkrunarheimilið Hornbrekku, Ólafsfirði. Sigurður Guðmundsson Valgerður Sigurðardóttir Rúnar Guðlaugsson Guðmundur Sigurðsson Sigurborg Gunnarsdóttir Friðgeir Sigurðsson Ragnhildur Skúladóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Símon Símonarson fv. skipstjóri og útgerðarmaður á Akranesi, Norðurbrú 6, Garðabæ, lést á líknardeild Landspítalans 4. september sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug. Bryndís Símonardóttir Ásgeir Guðnason Hallfreður Óttar Símonarson Laufey Ófeigsdóttir Edda Símonardóttir Vésteinn Benediktsson barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Ingibjörg Gunnhildur Jósafatsdóttir (Imba Jós) Sauðármýri 3, Sauðárkróki, lést fimmtudaginn 16. september síðastliðinn á Lyflækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri. Útför Imbu fer fram frá Sauðárkrókskirkju mánudaginn 27. september kl. 14. Björgvin Jósafat Sveinsson Gunnar Bragi Sveinsson Sunna Gunnars Marteinsdóttir Atli Freyr Sveinsson Ingibjörg Jenný Leifsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær systir, mágkona og frænka, Þóra Sigríður Tómasdóttir frá Vallnatúni, Vestur-Eyjafjöllum, lést sunnudaginn 19. september á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli. Útför fer fram frá Ásólfsskálakirkju, laugardaginn 25. september klukkan 14. Þórður Tómasson Guðrún Tómasdóttir Magnús Tómasson Kristín Magnúsdóttir og fjölskylda Tómas Birgir Magnússon og fjölskylda Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, Kristín Jónsdóttir talsímavörður, Kjarnagötu 14, Akureyri, andaðist á Sjúkrahúsinu á Akureyri, 16. september. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju, fimmtudaginn 30. september kl. 13. Streymt verður frá athöfninni. Rafn Sveinsson Sveinn Rafnsson Berghildur Þóroddsdóttir Jón Rúnar Rafnsson Jónína Vilborg Karlsdóttir Ingvar Rafnsson Íris Dröfn Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Anna Leif Auðar Elídóttir safnkennari flytur fyrir- lestur í Þjóðminjasafninu um viðgerðir Íslendinga á ýmsum hlutum í gegnum aldirnar. arnartomas@frettabladid.is Fyrirlestur undir yfirskriftinni Stagbætt, spengt og stoppað í göt fer fram á Þjóðminjasafninu í dag. Þar fer Anna Leif Auðar Elídóttir safnkennari yfir viðgerða gripi og segir gestum frá því hvernig gert hafi verið við muni á mismunandi vegu í gegnum aldirnar. Í lok fyrirlestursins verður svo farið í gegnum sýning- una Þjóð verður til – menning og samfélag í 1200 ár, þar sem leitað verður eftir viðgerðum gripum. „Hugmyndin að þessu kemur út frá aukinni vitundarvakn- ingu um grænan lífsstíl þar sem fólk er farið að hugsa betur um hlutina sína,“ segir Anna Leif. „Við á Þjóðminjasafninu höfum tekið þátt í átakinu Græn skref í ríkisrekstri, og mér datt í hug að nýta safnkostinn til að sýna fólki hvernig sjálfbærnin í lífi okkar á þessu skeri hefur verið í gegnum aldirnar.“ Anna Leif segir að innilokun okkar sem eyþjóðar hafi líklega ýtt undir hversu hög við þurftum að vera. „Eins og sést oft á hagleik viðgerðanna þá vandaði fólk mjög til verka,“ segir Anna Leif. „Fólk vildi gera gripinn enn fallegri með viðgerðinni og það var ekki talað vel um það ef gripirnir voru ljótir eftir viðgerðina, það var jafnvel kallað hrossalækningar.“ Skatan gulls ígildi Í Japan lýsir hugtakið Kintsugi þeirri aðferð þar sem gylling er notuð til að fylla upp í skorurnar á brotnum munum, sem verða enn fallegri vegna galla sinna. Anna Leif segir að viðgerðir á Íslandi eigi sitthvað sameiginlegt með þessari hugmyndafræði. „Við notuðum kannski ekki gyllingu til að fylla upp í skor- urnar heldur fór fólk aðrar leiðir,“ segir hún. „Í grúskinu mínu fann ég til dæmis að þegar stór matarföt og skálar brotnuðu var borað báðum megin og fest með málmi. Til að fylla upp í og líma betur saman var þetta svo soðið í potti með skötusoði.“ Þá fylgja viðgerðunum oft skemmtilegar sögur. „Það er einn jakki hérna sem ég dáist að. Sagan segir að hann hafi verið viðgerður þar sem bræðurnir sem áttu hann gengu gjarnan með nagla í vösunum,“ segir Anna Leif. „Svo var hann notaður sem mjaltastakkur, en kýrnar sleiktu bakið á stúlkunni sem var að mjólka þær og því þurfti að lappa upp á bakið líka. Það er gaman að sjá hvernig einn gripur getur geymt svona margar sögur.“ Fyrirlesturinn fer fram á safninu sjálfu klukkan 12 en hægt er að fylgjast með honum á YouTube-rás Þjóðminjasafnsins. n Gert og græjað í gegnum aldirnar Stakkurinn góði sem er í miklu uppá- haldi hjá Önnu Leif. MYND/AÐSEND TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 21. september 2021 ÞRIÐJUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.