Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Andrés Magnússon andres@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Samningur í lagi en samráðið lítið - Samið um fríverslun milli Íslands og Bretlands - Þjónar hagsmunum og getum við unað, segir for- maður Bændasamtaka Íslands - Tækifæri til meiri útflutnings - Leynd yfir magntölum í viðræðum Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Hvað varðar hagsmuni landbúnað- arins teljum við okkur geta unnið með þennan viðskiptasamning, svona við fyrstu sýn,“ segir Gunnar Þorgeirsson, formaður Bændasam- taka Íslands. Fyrir helgina var nýr fríverslunarsamningur milli Íslands og Bretlands, vegna útgöngu Breta úr ESB, staðfestur. Viðskiptakjör landanna verða að mestu leyti hin sömu og var innan ESB, svo sem að iðnaðarvörur verða áfram tollfrjáls- ar. Hvað landbúnaðarvörur áhrærir fær Ísland meira svigrúm. Stækkar Evrópumarkað Margvísleg tækifæri verða til auk- ins útflutnings á lambakjöti og skyri með tollfrjálsum innflutningskvót- um. Þeir nema 692 tonnum fyrir lambakjöt og 329 tonnum í skyri, segir í kynningu utanríkisráðuneyt- isins. Þar er staðhæft að ráðstöfun þessi stækki Evrópumarkað fyrir ís- lenskar landbúnaðarfurðir verulega – án þess að aðrar þjóðir fái meiri möguleika til innflutnings hingað. Ís- land muni veita Bretlandi toll- frjálsa innflutn- ingskvóta fyrir 19 tonnum af osti og 18,3 tonnum af unnum kjötvör- um. Þá er bent á að í samningnum séu ákvæði um endurskoðun sem gefi Íslandi tæki- færi til að sækja á um betri kjör. „Á fundi sem við áttum með fulltrúum ráðuneytisins heyrðum við aðrar og hærri tölur um leyfilegan innflutning. Okkar áhyggjur sneru m.a. að því að þegar Bretland ætti ekki hlutdeild í nýtingu innflutnings- kvóta ESB yrði hann nýttur af öðr- um aðildarríkjum. Töldum samning- inn ekki þjóna hagsmunum Íslendinga en nú hefur annað komið á daginn,“ segir Gunnar og áfram: „Við hjá Bændasamtökunum gagnrýnum þó að ekki hafi verið haft samráð við greinina á lokametrum samkomulagsins. Einnig að leynd hafi hvílt yfir magntölum. Það er undarlegt þegar svona miklir hags- munir eru í húfi að samráðið skuli ekki vera meira.“ Lítið breytt í sjávarútvegi Skilmálar um útflutning á íslensk- um sjávarafurðum til Bretlands verða að mestu óbreyttir, en virði þeirra viðskipta er um 55 milljarðar króna á ári. Íslenskir útflytjendur sitja við sama borð og keppinautar innan ríkja EES. Þetta segir utan- ríkisráðuneytið þýðingarmikið því hindranir á grundvelli heilbrigðis- reglna geta verið mun meira íþyngj- andi en tollar. Gunnar Þorgeirsson Sveitarstjórn Langanesbyggðar samþykkti samhljóða á fundi sínum 17. maí að skoða mögulegan flutning og uppsetningu á Þórsstofu í sveit- arfélaginu. Þórsstofa geymir ljós- myndir og upplýsingar um störf dr. Þórs Jakobssonar veðurfræðings. Þór starfaði bæði á Íslandi og í Kan- ada og helgaði sig málefnum norður- slóða og hafíss. Um er að ræða stórar veggplötur með upplýsingum og innrammaðar ljósmyndir frá leiðöngrum Þórs um norðurslóðir og Norður-Íshaf. Þór segist meðal annars hafa beint sjón- um að hugsanlegum siglingaleiðum yfir Norður-Íshaf í gegnum tíðina og hafi verið manna fyrstur til að skrifa um þær hér á landi. Þórsstofa var áður til húsa í húsnæði Kvenna- skólans á Blöndu- ósi. Þar er einnig Textílsetur Ís- lands. Þórsstofa var flutt frá Blönduósi árið 2019 en Þór segir það hafa verið vegna þess að sýn- ingin hafi horfið svolítið inn í textíl- setrið. Efniviður Þórsstofu er nú hýstur tímabundið í Odda á Rangárvöllum. Þór segir Þórsstofu þó alls ótengda starfsemi Odda og nærtækara væri að hýsa sýninguna á Norðurlandi. Nálægð við Finnafjörð Þór segist hafa stungið upp á því við sveitarstjórn Langanesbyggðar að flytja Þórsstofu til Þórshafnar, meðal annars vegna tengingar svæð- isins við málefni norðurslóða. Uppi eru áform um uppbyggingu stór- skipahafnar við Finnafjörð á Langa- nesi sem myndi þjónusta siglingar um Norður-Íshaf. Nýjar siglinga- leiðir hafa verið að opnast á svæðinu samhliða hlýnun og bráðnun hafíss. Þór segir nálægðina við Finnafjörð myndu setja sýninguna í skemmti- legt samhengi. esther@mbl.is Þórsstofa mögulega opnuð að nýju á Þórshöfn á Langanesi - Dr. Þór Jakobsson helgaði sig málefnum norðurslóða Þór Jakobsson Forseti Íslands Guðni Th. Jó- hannesson og frú Eliza Reid kona hans fara í opin- bera heimsókn í Ölfus í dag. Heim- sóknin hefst í Herdísarvík klukkan 10 þar sem bæjarstjóri Ölfuss, Elliði Vignisson, og Gestur Þór Kristjáns- son forseti bæjarstjórnar taka á móti forsetahjónunum. Því næst verða fiskeldisstöðvar Laxa og Landeldis heimsóttar. Þegar komið er í Þor- lákshöfn verða Guðni og Eliza við- stödd vorhátíð grunnskóla bæjarins. Eftir hádegi heimsækja forseta- hjónin hafnarskrifstofur Þorláks- hafnar þar sem kynnt verða framtíð- aráform um stækkun hafnarinnar. Að því loknu verður dagdvöl eldri borgara við Egilsbraut heimsótt. Forsetahjónin kynna sér starfið þar, þiggja kaffi og spjalla við viðstadda, sem margir eru frumbyggjar í bæjar- félaginu. Síðasti viðkomustaður forseta- hjónanna í heimsókn þessari er Hjallakirkja í Ölfusi, sögufrægur staður skammt frá Þorlákshöfn. For- maður sóknarnefndar, Hjörleifur Brynjólfsson, tekur á móti gestunum og segir frá staðnum. Forseta- heimsókn í Ölfus í dag Guðni Th. Jóhannesson - Skóli, fiskeldi og kirkja heimsótt Snekkjan A, sem lónað hefur fyrir utan ýmsa staði landsins síðustu vikurnar, er nú komin til Reykjavíkur og var í gær úti á sundunum. Frá- bært sjónarhorn að snekkjunni er frá listaverk- inu Sæfarinu, þar sem margir voru í gær og virtu fyrir sér þetta stóra fley sem er 143 metra langt, 25 metra breitt og möstrin þrjú hátt í 100 metra há. Fyrst sást skúta þessi við Akureyri, en hefur einnig lónað við Húsavík, Ísafjörð og Keflavík. Hin snekkjan sem nú er fyrir utan Reykjavík, nærri A, er Le Grand Bleu sem er eign rússneska ólígarkans Eugenes Shvidlers. Sú er 113 metrar á lengd og meðal stærri glæsisnekkja sem siglt er um öll heimsins höf. Glæsisnekkjur á sundunum við Reykjavík Morgunblaðið/HJ Skrautbúin skip fyrir landi, rétt eins og listaskáldið góða orti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.