Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti í síðustu viku að það áformaði að kaupa fimmtán hljóðfráar farþegaþotur af sprota- fyrirtækinu Boom Supersonic sem ætlar að framleiða slíkar flugvélar. Segja fyrirtækin að stefnt sé að því að taka fyrstu vélarnar í notkun árið 2029. Hljóðfráar farþegaþotur hafa ekki verið notaðar frá árinu 2003 þegar síðustu Concorde-þotunni var lagt. Samningur United og Boom er um að flugfélagið kaupi flugvélar af gerðinni Overture þegar þær upp- fylla skilyrði United um öryggi, virkni og sjálfbærni, að því er kemur fram í sameiginlegri fréttatilkynn- ingu frá fyrirtækjunum. Samkomulag fyrirtækjanna er um kaup á 15 vélum og möguleika á að United kaupi 35 vélar til viðbótar. Ekki kom fram í tilkynningunni hvað flugvélarnar eigi að kosta. Sérfræðingar sem AFP-frétta- stofan ræddi við lýstu nokkrum efa- semdum um að þessi áform verði að veruleika, einkum þar sem tíma- ramminn sé nokkuð þröngur. Mörgu ósvarað „Þetta er áhugaverð hugmynd en mörgum spurningum er ósvarað,“ sagði Michel Merluzeau, sérfræð- ingur hjá ráðgjafarfyrirtækinu AIR, sem áætlar að þróun og smíði nýrrar farþegaflugvélar sem uppfylli kröfur eftirlitsstofnana geti kostað á bilinu 10-15 milljarða dala, jafnvirði 1.200 til 1.800 milljarða króna sem svarar til um helmings af landsframleiðslu Íslands á ári. Segir Merluzeau raunhæfara að reikna með að flugvélin verði ekki tilbúin fyrr en á tímabilinu frá 2035 til 2040. Overture-flugvélin sem Boom áformar að smíða á að geta flogið tvöfalt hraðar en þær farþegaflug- vélar sem nú eru almennt í notkun. Flugtíminn milli New York og Lond- on gæti þá til dæmis orðið þrjár og hálf klukkustund. Þá fullyrðir Boom að kolefnisspor flugvélanna verði ekkert því þær verði knúnar með endurnýjanlegri orku. Hljóðfráu Concorde-farþegaflug- vélarnar voru teknar í notkun á átt- unda áratug síðustu aldar en þeim var lagt árið 2003, aðallega vegna mikils kostnaðar við að uppfylla um- hverfiskröfur. Einnig vó flugslys árið 2000, þegar Concordevél frá Air France fórst í París og 113 manns létust, þungt þegar ákvörðun var tekin um að hætta rekstri vélanna. Concorde-vélarnar gátu flogið á rúmlega tvöföldum hljóðhraða og því fylgdi mikill hvellur þegar þær fóru gegnum hljóðmúrinn. Það var ekki fyrir hvern sem var að taka sér far með þessum vélum því flugsætin voru dýr, og aðeins tvö flugfélög, British Airways og Air France, buðu upp á flugferðir með Concorde. En nú eru flugvélaframleiðendur, bæði í Bandaríkjunum og fleiri lönd- um, að skoða möguleika á að fram- leiða hljóðfráar flugvélar á ný því fram hafa komið ný og léttari bygg- ingarefni og hreyflar með nýrri hönnun. Peter McNally, sérfræðingur hjá Third Bridge, segir að hraðskreiðari flugvélar kunni að höfða til fólks sem þarf að ferðast mikið í viðskipta- erindum. „Lykillinn að rekstri United, American Airlines og Delta er viðskiptaferðir og flug á löngum vegalengdum,“ segir hann. Boom Supersonic, sem var stofn- að árið 2014, hefur til þessa náð að afla 270 milljóna dala hlutafjár hjá fjárfestum, að sögn talsmanns Boom, jafnvirði um 33 milljarða ís- lenskra króna. Blake Scholl, forstjóri og annar stofnandi Boom, sem áður starfaði hjá netsölunni Amazon, hefur sagt að áformin um hljóðfráa farþega- flugvél eigi að mæta kröfum neyt- enda í sífellt samtengdari heimi. „Saga Concorde er saga ferðar sem er hafin en henni er ekki lokið – og við viljum taka þátt í því ferða- lagi,“ sagði hann á ráðstefnu sem haldin var árið 2018 í tengslum við Farnborough-flugsýninguna. Synda gegn straumi Jon Ostrower, ritstjóri flug- tímaritsins Air Current, sagði á Twitter í síðustu viku að þessi flug- vélapöntun United markaði tíma- mót. „Síðast þegar United pantaði hljóðfráa flugvél höfðu menn ekki enn stigið fæti á tunglið,“ sagði Ostrower. „Nú rúmlega hálfri öld síðar leggur United á ný áherslu á hraða og syndir á móti straumi síð- ustu áratuga þar sem einkum hefur verið horft á lág fargjöld.“ Bandaríska sprotafyrirtækinu Aerion, sem einnig stefndi á að framleiða hljóðfráar farþegaþotur, var lokað í maí þegar flugvéla- framleiðandinn Boeing hætti við að fjárfesta í því. Dave Calhoun, for- stjóri Boeing, sagði á blaðamanna- fundi að áform félagsins hefðu ekki reynst raunhæf í ljósi markaðs- aðstæðna. AFP Frumkvöðull Blake Scholl forstjóri Boom segir sögu Concorde ekki lokið. Boom Supersonic/AFP Hljóðfrá Tölvuteikning sem Boom Supersonic hefur birt sýnir Overture-farþegaflugvél í litum United Airlines. Ætla í gegnum hljóðmúrinn á ný - Flugfélagið United og sprotafyrirtækið Boom semja um nýja hljóðfráa farþegflugvél Meira en 100 fyrrverandi forsætis- ráðherrar, forsetar og utanríkis- ráðherrar eru meðal þeirra 230 ein- staklinga sem hafa kallað eftir því að G7-ríkin borgi tvo þriðjuhluta af þeim 66 milljörðum dollara sem þarf til að bólusetja tekjulægri lönd gegn Covid-19. Í bréfi sem Guardian hefur undir höndum segir að leiðtogar Bret- lands, Bandaríkjanna, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu, Japans og Kan- ada verði að gera 2021 að þáttaskil- um í alþjóðlegu samstarfi. Færri en 2% þeirra sem búa sunnan Sahara hafa verið bólusett við Covid en hins vegar hafa 70% Breta fengið að minnsta kosti einn skammt. Meðal þeirra sem hafa skrifað undir bréfið eru Gordon Brown og Tony Blair, fyrrverandi forsætis- ráðherrar Bretlands, Ban Ki Moon, fyrrverandi aðalritari Sameinuðu þjóðanna, og Mary Robinson, fyrr- verandi forseti Írlands. Þau færa rök fyrir því að fjárfestingin sé nauðsyn- leg til að stöðva útbreiðslu nýrra af- brigða. „Á árinu 2020 mistókst al- þjóðlegt samstarf en 2021 getur haft í för með sér nýja tíma. Enginn er öruggur fyrir Covid fyrr en allir, alls staðar, eru öruggir,“ segir í bréfinu. AFP Áskorun Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Breta, vill að G7-ríkin borgi. Vilja að G7 borgi hluta bóluefnanna - Enginn öruggur fyrr en allir eru það

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.