Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Bi rt m eð fy rir va ra um pr en tv ill ur .H ei m sf er ði rá sk ilj a s 595 1000 sé rr ét ll ið tti a lk . t . Tenerife Verð frá kr. 99.900 16. júní í 7 nætur Hotel Gala aaaa Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Neysla kókaíns í Reykjavík jókst um ríflega helming frá því í febr- úar 2017 til apríl 2019, skv. mæl- ingum á magni fíkniefna í frá- rennslisvatni borgarinnar. Niðurstöður mælinganna voru inntak í dokt- orsritgerð sem Arndís Sue- Ching Löve varði við læknadeild heilbrigðisvís- indasviðs Há- skóla Íslands sl. föstudag. Kann- að var hvert var magn leifa af am- fetamíni, metamfetamíni, MDMA, kannabis og kókaíni sem skilst út með þvagi í frárennslisvatn, en rannsóknin náði frá 2017 fram á sumar 2020. Mest jókst magn kók- aíns en einnig sást aukning í notk- un amfetamíns og metamfetamíns. Rímar við tölur lögreglu Framkvæmd rannsókna þessara var með því móti að sýnum var reglulega safnað í samstarfi við Veitur og Verkís í skolphreinsi- stöðvum við Klettagarða og Ána- naust í Reykjavík. Hver sýnataka stendur yfir í sjö daga í röð og var framkvæmd í ellefu skipti frá því snemma árs 2017 fram á sumar 2020; það er rúmlega þrjú ár. Í ljós kom að kókaínneysla jókst á þessu tímaskeiði, alveg fram til ársins 2019. Áhrifa og takmarkana af völdum kórónuveirunnar fór að gæta í júní 2020 samkvæmt niður- stöðum. Til hliðsjónar við rann- sókninar voru hafðar tölur lögreglu frá umræddu tímabili um magn haldlagðra fíkniefna og gögn um vímuefnaakstur. Þær tölur lög- gæslunnar og svo niðurstöður sýna úr holræsunum rímuðu vel, að sögn Arndísar. Mælingar á frárennslissýnunum fóru fram á rannsóknarstofu í lyfja- og eiturefnafræði við Há- skóla Íslands. Þar er fullkominn búnaður til þessara rannsókna, en áður en til þeirra kemur þarf að hreinsa sýnin og styrkja svo mæl- anleg séu. Minni neysla í Covid „Aukning í neyslu kókaíns sást fram til ársins 2019, en dróst sam- an í júní 2020 um 60% í fyrstu bylgju faraldursins skv. niður- stöðum mælinganna. Kókaínmagn í skolpinu var um það bil 1.100 milli- grömm á dag á hverja þúsund íbúa í upphafi mælinga en hafði aukist í um það bil 2.700 milligrömm í apríl 2019. Minni notkun kókaíns í far- aldrinum gæti tengst því að flutn- ingsleiðir til landsins lokuðust að miklu leyti og afgreiðslutími skemmtistaða var takmarkaður svo eitthvað sé nefnt,“ segir Arndís. „Einnig sáum við vel hvernig neysla á ákveðnum fíkniefnum svo sem MDMA jókst mikið um helgar og í tengslum við viðburði á borð við Iceland Airwaves.“ Áreiðanleg aðferð Aðalmarkmið doktorsrannsókn- arinnar segir Arndís hafa verið að setja upp áreiðanlega greiningar- aðferð fyrir fíkniefni og lyfseðils- skyld lyf í frárennsli frá Reykjavík og meta notkun efnanna. Niðurstöður hafi verið bornar saman við aðrar Norðurlandaþjóðir ásamt öðrum vísum að fíkniefna- notkun, sem fyrr segir. Slík aðferðafræði geti veitt lögreglu, heilbrigðisstarfsfólki og öðrum mikilvægar upplýsingar sem nota megi til forvarna. Klóakmælingar staðfesta aukna neyslu á kókaíni - Sýni í þrjú ár vegna doktorsverkefnis - Leifar í þvaginu Morgunblaðið/Sigurður Bogi Skolphreinsistöð Sýni voru tekin við Klettagarða og Ánanaust í Reykjavík. Esther Hallsdóttir Karítas Ríkharðsdóttir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkis- ráðherra fór með sigur af hólmi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík um helgina. Guðlaugur Þór og Áslaug Arna Sigurbjörnsdótt- ir dómsmálaráðherra kepptu um leið- togasætið og var tvísýnt fram eftir kvöldi hvort þeirra myndi bera sigur úr býtum. Að lokum skildu 182 at- kvæði þau að í fyrsta sætið. Guðlaugur og Áslaug verða oddvit- ar hvort í sínu Reykjavíkurkjördæm- inu fyrir alþingiskosningar, en próf- kjörið var sameiginlegt fyrir Reykjavík norður og suður. „Það er nú fyrst og fremst bara mikið þakklæti fyrir þann stuðning sem ég fæ og sömuleiðis þakklæti til stuðningsmanna minna sem unnu nótt sem nýtan dag að framboði mínu,“ segir Guðlaugur Þór um við- brögð sín við niðurstöðunum. „Ég hef tekið þátt í mörgum prófkjörum en hef aldrei áður verið í þeirri stöðu að hafa ekki komist jafn mikið í próf- kjörsbaráttuna og ég vildi vegna að- stæðna, hvort sem það var norður- skautsráðið eða fríverslunar- samningur við Breta. Kosið um leiðtoga Það er náttúrlega verið að kjósa um það hver er í leiðtogasætinu. Það liggur alveg fyrir. Það fór ekkert á milli mála og það var tekist mjög á um það. Niðurstöðurnar eru óum- deildar. Manni er sýnt mikið traust með því að kjósa mann í efsta sætið,“ segir Guðlaugur aðspurður hvaða þýðingu kjörið hefur. Hann segist munu kjósa að vera áfram oddviti í Reykjavík norður. Guðlaugur varði kvöldinu með stuðningsmönnum sínum. „Við get- um orðað það þannig að það var ekk- ert sérstaklega leiðinlegt, eiginlega bara mjög gaman, með stuðnings- mönnunum. Við leyfðum okkur að gera okkur glaðan dag og jafnvel svo- lítið glaða nótt,“ segir Guðlaugur. Stolt af baráttunni „Þetta var hörð en skemmtileg barátta og það munaði að lokum ein- ungis 182 atkvæðum á fyrsta sætinu, það verður ekki mikið tæpara í svona stóru prófkjöri,“ segir Áslaug Arna. Hún segist stolt af sinni baráttu og þakklát fyrir þann mikla stuðning sem henni var sýndur. Úrslitin hafi verið viss vonbrigði. „Auðvitað, ef maður stefnir að einhverju þá langar mann að ná því. Á sama tíma sýnir þetta fyrst og fremst að ég átti skýrt erindi í það sæti sem ég óskaði eftir og mikinn stuðning í það. Ég get ekki annað en verið sátt við þessa góðu kosningu,“ segir hún. Ótrúlegur árangur nýliða Diljá Mist Einarsdóttir, hæstarétt- arlögmaður og aðstoðarmaður Guð- laugs í utanríkisráðuneytinu, hlaut afgerandi kosningu í þriðja sæti listans. Rúmlega þúsund atkvæðum munaði á henni og næsta manni. Diljá mun því verma annað sætið í öðru hvoru Reykjavíkurkjördæminu og stefnir hraðbyri á þingsæti með haustinu miðað við niðurstöður síð- ustu alþingiskosninga. Sjálfstæðisflokkurinn er með tvo þingmenn í Reykjavíkurkjördæmi suður og þrjá í Reykjavíkurkjördæmi norður á þessu kjörtímabili. Guðlaug- ur Þór segir árangur nýliðans ótrú- legan og fara þurfi marga áratugi aft- ur til að finna eitthvað sambærilegt. Þingmenn lutu í lægra haldi Hildur Sverrisdóttur, varaþing- maður og aðstoðarmaður ráðherra, lenti í fjórða sæti. Athygli vekur að Brynjar Níelsson, þingmaður flokks- ins, varð í fimmta sæti en hann hafði sóst eftir öðru sæti, sem gefur odd- vitasæti í öðru hvoru kjördæminu. Hann hefur sagt að hann ætli ekki að taka sæti á lista flokksins. Úrslitin séu talsverð vonbrigði en skilaboðin skýr og hann kveðji stjórnmálin sátt- ur. Sigríður Á. Andersen þingmaður hlaut sömuleiðis ekki hljómgrunn meðal kjósenda. Hún var ekki á með- al átta efstu frambjóðendanna en hafði líkt og Brynjar sóst eftir öðru sætinu. Hún er oddviti flokksins í Reykjavík suður á yfirstandandi kjörtímabili. Sigríður ætlar ekki að gera kröfu um sæti á lista flokksins fyrir alþingiskosningar en segist tilbúin til að leggja sjálfstæðisstefn- unni lið á öðrum vettvangi. Birgir Ármannsson, þingflokksfor- maður flokksins, bauð sig fram í ann- að til þriðja sæti en lenti í því sjötta. Hann lenti einnig í sjötta sæti í tveim- ur síðustu prófkjörum flokksins, árin 2016 og 2013. Hann ætlar að þiggja sætið. Líklegt þykir að Birgir færist upp í fimmta sætið á endanlegum lista vegna brotthvarfs Brynjars. Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson formaður kjörnefndar segist þó ekki vilja tjá sig um það að svo stöddu. Málið verði rætt á fundi kjörnefndar. Óháð því hvort hann vermir fimmta eða sjötta sætið verður Birgir í þriðja sæti í öðru hvoru kjördæminu, sem ætla má að sé baráttusæti. Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi varð í sjöunda sæti. Hann mun því skipa þriðja eða fjórða sætið í öðru hvoru kjördæminu, eftir því hvort hann verður færður upp um sæti. Friðjón R. Friðjónsson fram- kvæmdastjóri varð í áttunda sæti. Tillaga að listum kynnt í júní Kjörnefnd hefur þegar hafist handa við að vinna tillögu að endan- legum listum í Reykjavíkurkjördæm- unum. „Það er töluverð vinna fram undan, við þurfum að gera tillögur um samtals 44 einstaklinga í þessum tveimur kjördæmum,“ segir Vil- hjálmur, formaður kjörnefndar. Tillögur kjörnefndar verða af- greiddar á fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík. Vil- hjálmur segir að nefndin stefni að því að klára að vinna tillögurnar fyrir lok mánaðar. „Við reynum að vinna þetta í eins mikilli sátt og samlyndi og kost- ur er, það er mitt markmið,“ segir hann. „Niðurstöðurnar eru óumdeildar“ - Guðlaugur Þór sigraði Áslaugu Örnu í baráttunni um fyrsta sætið í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík - Nýliðinn Diljá Mist hlaut góða kosningu í þriðja sætið - Þingmenn lutu í lægra haldi Morgunblaðið/Sigurður Unnar Spenna Guðlaugur Þór og Áslaug Arna þegar tölur voru kynntar í Valhöll. Hraun byrjaði að flæða yfir vestari varnargarðinn á svæðinu fyrir ofan Nátthaga á laugardag. Rögnvaldur Ólafsson, aðstoðaryfirlögreglu- þjónn hjá almannavörnum, segir báða varnargarðana standa ennþá. Það gefi vísbendingar um að hönn- unin virki. Syðst í Geldingadölum hefur hraunið hækkað og lítið vant- ar upp á að það komist suður úr dalnum yfir skarðið og niður í Nátt- haga, að því er kemur fram á face- booksíðu Jarðsöguvina. Lítil viðbót af hrauninu gæti því lokað göngu- leið A og þar með aðgengi að gos- inu. „Við erum að skoða til lengri tíma hvaða ráðstafanir við getum gert, aðallega gagnvart Suður- strandarveginum, en það er engin niðurstaða komin,“ segir hann. Varðandi gönguleiðina segir hann að finna þurfi nýja leið ef það fer að flæða yfir til suðurs úr Geld- ingadal en ómögulegt sé að segja til um hvenær það gæti gerst. Gönguleiðin að gosinu gæti lokast alveg Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sjónarspil Gosstöðvarnar á föstudag. Arndís Sue- Ching Löve

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.