Morgunblaðið - 07.06.2021, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021
• Verð frá: 250.000 m/vsk.
• Stærðir 3-600 persónueiningar
• Ekkert rafmagn
• Meira en 2ja þrepa hreinsun
• Verð frá 510.000 m/vsk.
• Stærðir 3-1500 persónueiningar
• Rafræn vöktun (valkvæmt)
• Getur hreinsað eColi allt að 99,9%
INNIFALIÐ Í VERÐI
ANAEROBIX HREINSIVIRKI
með síu yfir 90% hreinsun
ONE2CLEAN HREINSISTÖÐ
allt að 99% hreinsun
• Þægilegar í uppsetningu og lítið viðhald
• Fyrir sumarhús, heilsárshús, hótel o.fl.
• Engar siturlagnir – fyrirferðarlítil
• Mikið pláss fyrir seyru
• CE vottað
• Uppfylla kröfur til hreinsunar á viðkvæmum
svæðum t.d við Þingvallavatn
• Afhending á verkstað innan
100km frá Reykjavík
• Drengöng með gátlúgu sem tryggja að vökvi
komist óhindrað út í jarðveg
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þetta verður áhugavert mót fyrir
margra hluta sakir og ég get ekki
neitað því að ég er orðinn spennt-
ur,“ segir Guðmundur Benedikts-
son, knattspyrnusérfræðingur og
sjónvarpsmaður.
Evrópumótið í
knattspyrnu
karla hefst á
föstudaginn.
Mótinu var frest-
að í fyrrasumar
vegna kórónu-
veirunnar og
veiran sú setur
talsverðan svip á
mótið. Takmark-
aður fjöldi áhorf-
enda verður til að mynda leyfður á
leikjum og ýmsar varúðarráðstaf-
anir hafa verið undirbúnar ef smit
koma upp.
Mótið verður haldið í ellefu lönd-
um í álfunni og því er stemningin
nokkuð önnur en fólk á að venjast.
Við Íslendingar verðum því miður
að sætta okkur við að vera ekki á
meðal þátttökuþjóða. Það kemur þó
ekki í veg fyrir að mótið verði veisla
fyrir knattspyrnuáhugafólk og vel
þess virði að setja sig í stellingar.
Þannig eru margir þegar búnir að
festa kaup á treyjum með sínum
uppáhaldsliðum og búast má við að
þétt verði setið á börum yfir
stærstu leikjunum.
Treyjur Englands og
Frakklands vinsælar
„Þetta hefur verið að aukast
hægt og rólega að undanförnu og
sérstaklega í síðustu viku,“ segir
Benedikt Bjarkason, verslunarstjóri
í Jóa útherja í Ármúla, þar sem
mikið úrval er af landsliðstreyjum
liðanna á EM.
„Við höfum óneitanlega fundið
fyrir minni spennu nú en á síðustu
tveimur stórmótum. Þá var allt
brjálað vegna þess að Ísland var
með, við vorum með opið um kvöld
og röð sem náði upp í Síðumúla. Nú
er þetta aðeins rólegra en er smám
saman að aukast,“ segir hann.
Benedikt segir að lítið seljist af
treyjum Íslands þessa dagana. Það
séu helst erlendir ferðamenn sem
kaupi þær. Íslendingarnir bítast
hins vegar um treyjur stærstu Evr-
ópuþjóðanna. „Við erum með treyj-
ur Frakklands, Englands, Þýska-
lands, Portúgals, Hollands, Spánar,
Belgíu, Noregs og Svíþjóðar. Ekki
dönsku treyjuna. Hún er frá
Hummel og við höfum ekki fengið
hana.“
Hann segir að þrjár treyjur skeri
sig úr í vinsældum. „Af Norður-
landaþjóðunum er sænska treyjan
vinsælust enda þykir hún flottust.
Mest selst hins vegar af ensku
treyjunni í fullorðinsstærðum og
þeirri frönsku í barnastærðum.
Krakkarnir eru hrifnir af Mbappe
en enska heimatreyjan er svo stíl-
hrein að unglingarnir nota hana
sem tískuflík. Við erum að fá fólk
hingað inn sem hefur aldrei spilað
fótbolta sem kaupir hana.“
Stýrir ítarlegri umfjöllun
Allir leikir mótsins verða sýndir á
Stöð 2 Sport og mun Guðmundur
leiða umfjöllun stöðvarinnar. Annað
væri sjálfsagt óeðlilegt eftir að
hann sló í gegn með lýsingum sín-
um frá leikjum Íslands á mótinu
2016 og varð í kjölfarið eins konar
þjóðargersemi. „Við byrjum um-
fjöllun okkar í kvöld með upphit-
unarþætti og hitum upp öll kvöld
fram að opnunarleiknum á föstu-
dag. Í þáttunum förum við yfir riðl-
ana með sérfræðingum okkar sem
báðir hafa reynslu af því að und-
irbúa lið fyrir leiki á EM. Þetta eru
þeir Ólafur Kristjánsson og Freyr
Alexandersson sem voru meðal
njósnara fyrir íslenska landsliðið
fyrir EM 2016. Þeir munu rýna í
liðin og leggja mat á líklega sig-
urvegara í riðlunum,“ segir Guð-
mundur.
Guðmundur segir að ítarleg um-
fjöllun verði dag hvern um leikina
meðan á mótinu stendur. Þrír leikir
eru á dag í riðlakeppninni og hitað
verður upp fyrir hvern þeirra. Á
hverju kvöldi verður svo uppgjörs-
þáttur með Guðmundi og Helenu
Ólafsdóttur. „Óli og Freyr verða
með okkur alla keppnina og svo
bætast fleiri við, bæði kunnugleg
andlit og ný,“ segir Guðmundur
sem kveðst aðspurður ekki eiga von
á því að Stöð 2 Sport sendi fulltrúa
út á mótið. Hugmyndir hafi verið
uppi þess efnis en aðstæður vegna
kórónuveirunnar geri það erfitt.
Svíður að Ísland sé ekki með
Sjálfur telur Guðmundur að erfitt
sé að spá um hvaða lið beri sigur úr
býtum á EM í ár. „Það eru reyndar
fjölmörg lið sem vekja athygli mína
og telja sig kannski geta unnið
þetta. Frakkland, Spánn og Þýska-
land eru þjóðir sem gera alltaf
kröfu um að vinna stórmót. Eng-
land gerir það nú líka þrátt fyrir að
hafa ekki alltaf efni á því. Það gæti
þó kannski verið komið að Englend-
ingum núna. Svo gætu Portúgalar,
Belgar og Ítalir líka komið sterkir
inn. Ég held að við séum með nokk-
uð margar þjóðir sem ætla sér
stóra hluti. Svo svíður manni alltaf
að skoða riðilinn sem við áttum að
vera í. Það rífur upp gömul sár að
sjá meðalsterkt ungverskt lið þarna
með þessum sterku liðum, það
finnst mér óþolandi.“
Guðmundur er að endingu beðinn
að nefna þá leikmenn sem hann tel-
ur að gætu skarað fram úr á
mótinu. „Það er eitthvað sem fær
mig til að halda að ef Harry Kane
verður heill heilsu þá verði hann
markakóngur. Ég er því miður
samt ekki sannfærður um að Eng-
lendingar vinni keppnina. Ég ætla
annars að tippa á að Karim Ben-
zema verði maður mótsins. Eftir
fimm ára útlegð úr franska landslið-
inu kemur hann með aukaorku og
mun sýna að hann er meðal lang-
bestu framherja í heimi.“
Mestur áhugi á Englandi og Frakklandi
- Spennan magnast fyrir EM sem hefst á föstudaginn - Mikill áhugi á landstreyjum í Jóa útherja
- Krakkar vilja frönsku treyjuna en sú enska er tískuflík hjá ungmennum - Gummi Ben. spenntur
Morgunblaðið/Eggert
Vinsældir Benedikt Bjarkason hjá Jóa útherja með varatreyju Þýskalands
og treyju Englands en þær njóta mikilla vinsælda nú í aðdraganda EM.
Tillaga um sameiningu fjögurra
sveitarfélaga í Austur-Húnavatns-
sýslu, Blönduósbæjar, Húnavatns-
hrepps, Skagabyggðar og Sveitar-
félagsins Skagastrandar, var felld í
atkvæðagreiðslu sem efnt var til á
laugardag. Blönduósbúar voru
áfram um sameiningu. Um 90%
íbúa þar greiddu atkvæði með til-
lögunni og um 57% þeirra sem
kusu í Húnavatnshreppi. Í dreif-
býlinu í Skagabyggð voru 29 á móti
sameiningu en 24 fylgjandi. Um
70% þeirra sem kusu á Skaga-
strönd voru á móti sameiningu.
Í Húnavatnshreppi virðist vera
áhugi á að halda vegferðinni áfram
og stefna á sameiningu við Blöndu-
ós. „Ég held að við eigum að halda
starfinu áfram og stefna á viðræð-
ur um sameiningu við Blönduósbæ,
en þangað sækjum við alla þjón-
ustu og störfum með bænum í ýms-
um verkefnum. Með sameiningu
mætti ná fram tugmilljóna króna
sparnaði á ýmsum sviðum, svo sem
í rekstri grunnskóla,“ segir Stein-
grímur Ingvarsson á Litlu-Giljá,
formaður kjörstjórnar í sveitarfé-
laginu, í samtali við Morgunblaðið í
gær.
Afdráttarlaust
í Þingeyjarsýslum
Á Norðurlandi eystra var á laug-
ardag kosið um sameiningu í Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, sveitarfélag-
anna Þingeyjarsveitar og
Skútustaðahrepps, öðru nafni Mý-
vatnssveit. Fyrirliggjandi tillaga
um sameiningu var samþykkt af-
dráttarlaust á báðum stöðum. Í
Þingeyjarsveit sögðu 286 já eða um
66% en 146 voru á móti eða 33,3%.
Í Mývatnssveit var stuðningur við
sameiningu meiri. Þeir sem sögðu
já þar voru 159, eða 67,7%, en 71
sagði nei, eða 30,2%.
Í Þingeyjarsveit og Skútustaða-
hreppi búa samtals 1.323 manns.
Margvíslegt samstarf hefur verið
með sveitarfélögunum, en formleg
sameining tekur gildi eftir kosn-
ingar í maí næstkomandi.
Sveitarfélagið nýja verður eitt
það víðfeðmasta á landinu; nær frá
Fnjóskadal í vestri og í austri ligg-
ur línan við Jökulsá á Fjöllum. Í
norðri er eyðibyggðin í Flatey á
Skjálfanda útvörður en í suðri er
markalínan á Sprengisandi og inni
á miðjum Vatnajökli. sbs@mbl.is
Felldu tillöguna
- Tillaga um sameiningu fjögurra sveit-
arfélaga í A-Hún. felld - Áhugi í Húna-
vatnshreppi á viðræðum við Blönduós
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Skagaströnd Áhugi íbúa á samein-
ingu sveitarfélaga reyndist lítill.
Allir leikir á EM í knattspyrnu
verða sýndir á Stöð 2 Sport að
þessu sinni. Að því er fram kem-
ur á heimasíðu stöðvarinnar eru
EM-leikirnir innifaldir í Sport-
pakkanum svokallaða. Sá pakki
kostar tæpar átta þúsund krón-
ur á mánuði. Ekki er nóg að vera
með minni pakkann, annaðhvort
Stöð 2 Sport Erlent eða Stöð 2
Sport Íslands, heldur þarf að
kaupa þann stóra. Þá er hægt
að kaupa sérstaka áskrift að EM
fyrir tæpar sjö þúsund krónur.
Pakkinn á
sjö þúsund
SÝNT Á STÖÐ 2 SPORT
Guðmundur
Benediktsson