Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 07.06.2021, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 2021 Menningarfélag Akureyrar skorar á Akureyrarbæ, Sam- tök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra og menntamála- ráðuneytið að taka í samstarfi með okkur stóra stökkið og stefna á að Akureyri verði Menningar- höfuðborg Evrópu. Forsendur þessa er auðvitað blómlegt menningarlíf á Akureyri sem hefur styrkst og eflst á undanförnum árum. Glæsilegir og traustir innviðir hafa byggst upp með Menningarhúsinu Hofi og endurbótum á Listasafninu á Akureyri, auk þess sem hér er fjöldi annarra tónleika- og sam- komustaða þar sem fram fer gróskumikil og vönduð starfsemi. Kraftmikið menningarlíf gæðir bæjarbraginn lífi, hér má finna metnaðarfulla grasrótarstarfsemi á sama tíma sem hér eru reknar mikilvægar menningarstofnanir sem stuðla að atvinnumennsku í listum. Hingað kemur fólk til að setjast að og vinna að list sinni í frjóu og fallegu umhverfi Akur- eyrar. Á Akureyri hefur orðið til yfir- gripsmikil sérfræðiþekking og reynsla í að standa fyrir stórum menningarviðburðum. Með því að stefna að því að verða Menningar- höfuðborg Evrópu færum við auk- inn kraft og framþróun inn í menningarlífið á Akureyri sem nær langt út fyrir bæjarfélagið og í raun um allt land. Ísland og Akureyri fengju aukna innlenda og alþjóðlega athygli og umfjöll- un. Markmiðið í sjálfu sér yrði lyftistöng fyrir menningarlífið í landinu, en reynsla annarra borga segir að fjárfestingar á svæðinu aukist í kjölfarið sem og að inn- viðir styrkist enn frekar. Þetta markmið færir Akureyri og nærsveitum einnig tækifæri til að rýna í sína sögu og menningar- arf ásamt hlutverki þess í ís- lensku og erlendu samhengi. Möguleikar lista- og menningar- stofnana, sem og fyrirtækja á svæðinu, til erlends samstarfs aukast til muna. Akureyri og Norðurland allt fær tækifæri til að vera stórhuga og máta sig við erlenda og innlenda kollega. Þjóðarópera Íslands með aðsetur á Akureyri Að þessu sögðu er einboðið að finna fyrirhugaðri Þjóðaróperu heimili í Menningarhúsinu Hofi. Þannig væri hægt að nýta þekk- ingu, yfirbyggingu og félag sem þegar er fyrir hendi og láta stærstan hluta fjármagnsins renna beint í listræna fram- leiðslu. Það yrði hagur fyrir Þjóð- aróperuna að hafa aðsetur í Hofi og nýta samlegðaráhrifin af ann- arri starfsemi Menningarfélags Akureyrar, en sýningar óper- unnar færu fram bæði á Akureyri og í Reykjavík í samstarfi við fleiri menningarstofnanir. Innan Menningarfélags Akureyrar er rekin sinfóníuhljómsveit, alþjóð- legt kvikmyndatónlistarverkefni, leikhús og menningar- og ráð- stefnuhús. Í Hofi er fyrirmynda- raðstaða varðandi tæknibúnað, þar er stórt leiksvið þar sem hægt er að koma tilkomumiklum leikmyndum fyrir og aðstaða fyrir hljómsveit í gryfju. Þessi hug- mynd samrýmist minnihlutaáliti nefndar um Þjóðaróperu að ein- hverju leyti. Með rekstri Þjóðaróperu á Akureyri er verið að efla menn- ingarstarf á Íslandi öllu, það stuðlar að aukinni atvinnu fyrir fagfólk í listum auk afleiddra starfa. Það styrkir Akureyri sem atvinnusvæði og hjálpar til við að anna hinni miklu eftirspurn eftir störfum í atvinnumennsku í list- um á Íslandi. Það er mikilvægt að dreifa ábyrgð á framleiðslu menning- arverðmæta til að tryggja fjöl- breytta menningarflóru og efla nýsköpun og þróun. Nú þegar er menningarvald Íslands á litlum bletti í Reykjavík og á fárra höndum. Akureyri sem Menning- arhöfuðborg Evrópu og staðsetn- ing Þjóðaróperu á Akureyri yrði þarna mikilvægt mótvægi. Akureyri Menningar- höfuðborg Evrópu Eftir Þuríði Helgu Kristjánsdóttur og Evu Hrund Einarsdóttur Eva Hrund Einarsdóttir » Akureyri og Norður- land allt fær tæki- færi til að vera stórhuga og máta sig við erlenda og innlenda kollega. Höfundar eru framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Menningarfélags Akureyrar. Þuríður Helga Kristjánsdóttir Tvö ár í röð hefur menntamálaráðu- neytið varið hundr- uðum milljóna króna til sumarnáms í fram- halds- og háskólum landsins. Verulegur hluti þeirra fjármuna rennur til nám- skeiðahalds á vegum endur- og símennt- unarstofnana háskólanna, sem bjóða upp á námskeið í beinni sam- keppni við námsframboð einkarek- inna fræðslufyrirtækja. Námskeið, sem áður kostuðu tugi þúsunda, hafa verið boðin á 3.000 krónur. Það geta einkarekin fræðslufyr- irtæki engan veginn keppt við og hafa misst veruleg viðskipti vegna þessarar niðurgreiddu samkeppni á vegum ríkisins. Fræðslufyr- irtæki hafa orðið fyrir tvöföldu áfalli í heimsfaraldrinum; fyrst bitnuðu samkomutakmarkanir hart á rekstrinum, svo efndi ríkið til samkeppni við þau. Félag atvinnurekenda hefur lýst skilningi á því að komið sé til móts við nemendur háskóla og atvinnu- leitendur með sumarnámi. Félagið hefur hins vegar andmælt harð- lega niðurgreiðslu á samkeppn- isrekstri endurmenntunardeild- anna og krafið menntamálaráðherra svara um málið. Hinn 17. maí síðastliðinn sendi Samkeppniseftirlitið menntamálaráðuneytinu bréf, í framhaldi af kvörtun FA, og mælt- ist til þess að ráðuneytið legði fyr- irframmat á samkeppnisleg áhrif ráðstafana eins og niðurgreiðslu á sumarnáminu. Sama dag ítrekaði FA erindi sitt til mennta- málaráðherra, sem sent var 13. apríl. Svarið barst nú um mán- aðamótin og má lesa það á vef FA. Sir Humphrey svarar FA spurði ráðuneytið einmitt hvort það hefði lagt mat á áhrif fyrirkomulags ríkisstyrkjanna á samkeppni á fræðslumarkaði. Svar ráðuneytisins gæti hafa verið sam- ið af Sir Humphrey, ráðuneytis- stjóranum útsmogna í brezku gam- anþáttunum Já ráðherra, en hann var sérfræðingur í að þvæla mál með merkingarlausu skriffinnsku- tuði. Í svarinu segir þannig: „Eitt af skilgreiningaratriðum hugtaksins ríkisaðstoð er að hún getur aðeins verið veitt aðilum sem selja vöru eða þjónustu á markaði, þ.e. sinna efnahagslegri starfsemi. Af hálfu stjórnvalda er lagt er [svo] til grundvallar að starfsemi háskóla, þar á meðal umrædd námsúrræði, falli undir almanna- þjónustu sem er ekki af efnahags- legum toga og fjárveit- ingar til þeirra geta þannig ekki falið í sér ríkisaðstoð.“ Þetta er makalaust bull. Endurmennt- unardeildir háskól- anna – sem óumdeilt er að fengu einhverja tugi milljóna af því fé sem rann til háskól- anna vegna sum- arnámsins – selja ein- mitt þjónustu á markaði, þ.e. námskeið fyrir almenning eins og þau sem nú eru auglýst á 3.000 krónur, í beinni samkeppni við sambærileg námskeið hjá einkareknum fræðslufyrirtækjum. Sá sem ekki áttar sig á að í niðurgreiðslum á slíkri starfsemi felst inngrip í fræðslumarkaðinn er reyndar ekki líklegur til að skilja bréfið frá Samkeppniseftirlitinu. Enginn misskilningur Ráðuneytið heldur áfram og segir Félag atvinnurekenda haldið þeim misskilningi að sumarnám- skeiðunum sé aðallega beint að al- menningi, en staðreyndin sé að 80% nemenda í sumarnáminu í fyrra hafi verið innritaðir í ein- ingabært nám. FA hefur ekki mis- skilið neitt. Það eru 20 prósentin sem út af standa sem gagnrýni fé- lagsins beinist að, fólkið sem fór (eðlilega) frekar á námskeið fyrir almenning, niðurgreitt af ríkinu, en að sækja þjónustuna til fyr- irtækjanna sem endurmennt- unarstofnanirnar keppa við. Ráðuneytið telur sig ekki geta svarað spurningu FA um hversu mikið af fjármununum rann til endurmenntunarstofnana háskól- anna. Þó er vitað að a.m.k. sumir skólarnir hafa veitt ráðuneytisfólki upplýsingar um það. Þannig fékk t.d. Endurmenntun Háskóla Ís- lands 22,5 milljónir króna sumarið 2020 af því fé sem rann til HÍ. Ráðuneytið getur heldur ekki svarað því hvernig niðurgreiðslur skiptust á nemendahópa, þ.e. nem- endur skólanna, atvinnuleitendur eða fólk sem féll undir hvorugan fyrrnefnda hópinn. Almennt virðist ráðuneytið hafa afskaplega litlar upplýsingar um það hvernig skól- arnir vörðu fé skattgreiðenda, sem er umhugsunarefni út af fyrir sig. Ekki of seint að leita lausna Ráðuneytið reynir þannig að þæfa málið með annars vegar aug- ljósum útúrsnúningum og hins vegar með því að afla ekki þeirra upplýsinga sem FA fór fram á. Við Lilju Dögg Alfreðsdóttur menntamálaráðherra leyfi ég mér að segja: Nei ráðherra, það er ekki svona sem hið opinbera svarar fyr- irtækjum sem hafa mátt una því í miðri kórónuveirukreppu að ríkið fer í niðurgreidda samkeppni við þau. Það er enn ekki of seint að leita lausna til að rétta samkeppn- isstöðu einkarekinna fræðslu- fyrirtækja. FA og aðildarfyrirtæki þess hafa margoft lýst sig reiðubú- in í það samtal og eru það áfram. Eftir Ólaf Stephensen Ólafur Stephensen » Það er ekki svona sem hið opinbera svarar fyrirtækjum sem hafa mátt una því í miðri kórónuveirukreppu að ríkið fer í niðurgreidda samkeppni við þau. Höfundur er framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda. Nei ráðherra Mikil breyting hefur orðið á aldurssamsetn- ingu þjóðarinnar á undanförnum árum. Fæðingartíðni hefur lækkað en meðalaldur hækkað og eldri borg- urum fjölgað verulega. Samkvæmt upplýs- ingum frá Hagstof- unni teljast um það bil 45.000 manns vera eldri borgarar hér á landi. Þessi stóri hópur er hins vegar verulega sundurleitur með ólíka hagsmuni, mismunandi skoðanir, þarfir og langanir. Þegar rætt er opinber- lega um þennan stóra og ört vax- andi hóp ber mest á umræðu um lífeyrismál og þær skerðingar sem eldri borgarar hafa verið neyddir til þess að sæta og stöðu hjúkr- unarheimila. Um er að ræða brýn og alvarleg mál sem samt hafa ekki fengið þá athygli á Alþingi sem eðlilegt má teljast. Það þarf að taka af festu á málum þessa stóra hóps. Heildstæð stefna í málefnum eldri borgara Þær kynslóðir, sem mynda hóp eldri borgara, hafa lagt mikið á sig til að byggja upp það velsældar- þjóðfélag og þann þjóðarauð sem við njótum í dag. Sú uppbygging hefur ekki orðið til af sjálfu sér heldur með eljusemi og óbilandi trú á að hægt væri að stefna hátt. Hver og einn hefur lagt sitt fram, á sinn hátt, til að rekstur samfélags- ins gangi. Á tyllidög- um er stundum á þetta minnst og um það fjallað en orðum þurfa að fylgja athafn- ir. Það þarf að móta heildstæða stefnu í málefnum eldri borg- ara. Hér er um að ræða risavaxið þjóð- félagsverkefni sem ekki má ýta til hliðar. Ljóst er að þarfir fólks eru mjög mis- munandi og lausnir þurfa að vera einstaklingsmiðaðar. Einfalda þarf flókið og sundurleitt lagaumhverfi í málefnum eldri borgara og gera það skilvirkara. Forræðishyggja hins opinbera í garð eldri borgara þarf að víkja fyrir frelsi þeirra. Eldri borgarar hafa unnið sér inn sín réttindi án þeirrar áhengju að þurfa að hætta atvinnu. Þeir þurfa, og eiga, að geta notið afraksturs athafna sinna og starfa. Eldri borg- arar eiga að fá að njóta hæfileika sinna og tækifæra á vinnumarkaði án þess að þeim sé hegnt fyrir það með of miklum skerðingum, sem virka sem hemill á athafnasemi og lífsánægju. Aldur er afstæður Við þurfum að finna nýjar leið- ir á nýjum tímum til þess að brúa bilið sem aldraðir standa frammi fyrir þegar kemur að því að búseta í heimahúsi er orðin erfið en dvöl á hjúkrunarheimili er ekki endilega sá kostur sem helst ætti að líta til. Mest um vert er að við áttum okkur á því að aldur er afstæður og ekki hægt að setja sömu viðmið fyrir þennan stóra og ólíka hóp. Gleymum því ekki að allir vilja verða aldraðir en fáir vila vera aldraðir. Hár aldur á að vera lífs- gæði en ekki baggi á samfélag- inu. Að vilja verða aldraður en ekki vera aldraður Eftir Sigþrúði Ármann » Þær kynslóðir, sem mynda hóp eldri borgara, hafa lagt mikið á sig til að byggja upp það velsældarþjóðfélag og þann þjóðarauð sem við njótum í dag. Sigþrúður Ármann Höfundur er lögfræðingur og fram- kvæmdastjóri. Frambjóðandi í 3. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suð- vesturkjördæmi Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.