Morgunblaðið - 07.06.2021, Side 32

Morgunblaðið - 07.06.2021, Side 32
Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í Reykjavík um verslunarmannahelgina en hætta þurfti við hátíðina í fyrra vegna Covid-19. Margir vinsælustu tónlistarmenn landsins koma fram á hátíðinni, m.a. Bríet, Emmsjé Gauti, GDRN, gugusar, Hipsumhaps, Mammút, Reykja- víkurdætur og Teitur Magnússon. Á opnunarkvöldi há- tíðarinnar munu Birgitta Haukdal og hljómsveitin Mos- es Hightower snúa bökum saman. Að vanda fer aðal- tónleikadagskráin fram innandyra, í Gamla bíói og á efri hæð Röntgen. Á útisvæði verða svo lista- og fata- markaðir ásamt plötusnúðum og veitingasölu. Innipúkinn snýr aftur í miðbæinn Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is María Anna Þorsteinsdóttir, ís- lenskukennari í Tækniskólanum, hefur skrifað og gefið út ríkulega myndskreytta bókina Litli-Skygnir í sveitinni og fæst hún í Eymundsson Austurstræti og Eymundsson Kringlunni. „Þetta eru minn- ingar mínar úr sveitinni, sem er nánast orðin hluti af byggð höfuðborgar- svæðisins, þjóð- legur fróðleikur og kímnisaga í þeim tilgangi að sýna hvernig landslagið hefur breyst,“ segir hún. Móðurafi hennar og -amma, Krist- inn Einarsson, kaupmaður í versl- uninni K. Einarsson og Björnsson á Laugavegi, og Ella Marie Petersen- Proustgaard Rasmussen Einarsson, kölluð Mollý, keyptu land norðan- megin við Elliðavatn 1941, kölluðu það Litla-Skygni, reistu þar sumar- bústað í veglausu landinu og breyttu urð og möl í gróðurvin næstu 20 árin. Þar eyddu þau löngum stundum með fjölskyldunni á sumrin og þar sem varla var stingandi strá fyrir 80 ár- um mátti til dæmis fá 173 kg af rifs- berjum, 12 kg af jarðarberjum, eitt kg af sólberjum og tólffalda upp- skeru af kartöflum 1961. Heimurinn í sveitinni „Þetta var ævintýraveröld,“ rifjar María Anna upp. Afi hennar hafi komið úr sveit en hann hafi ekki vilj- að vera bóndi og því hafi landið ekki verið venjuleg sveit. Hann hafi ekki verið gefinn fyrir hefðbundin dýr í sveitum og haft ímugust á kindum, sem hann kallaði svín, vegna þess að þær eyðilögðu allan gróður á svip- stundu. Vöxtur trjánna hafi hins vegar verið hans ær og kýr og hann hafi mælt hæð þeirra samviskusam- lega á hverju ári. „Honum var líka mjög annt um alla fugla, skráði niður allar tegundir í landinu, hvar fugl- arnir verptu og hvað mörgum eggj- um, hver fann hreiðrin og hvað margir ungar komust upp.“ Til að byrja með þurfti að reisa skjólveggi til að gróðurinn gæti dafnað. Kristinn lærði ensku, þýsku og dönsku í Verzlunarskólanum og var heimsborgari. Hjónin ferðuðust víða erlendis og hann sá mörg stór- menni sem og undur veraldar í hill- ingum. „Hann flutti hluta heimsins heim í sveitina og blómagarðar hans, Töfragarðurinn, Edengarðurinn og Blómsturvellir, báru þess merki,“ segir María Anna. Kennileiti eins og Kalifornía, Villta vestrið, Honólúlú, Herkúles, Ormurinn langi, Píramíd- inn, Panamaskurður, Broadway og Champs-Élysées hafi líka átt að end- urspegla hluta af því merkilegasta í veröldinni. „Gosbrunnurinn átti að vera eins og í Versölum en segja má að Evrópa og ævintýrin hafi verið honum ofarlega í huga. Amma var vön gróðri og görðum frá Kaup- mannahöfn en var meira fyrir blóm og salat en tré.“ Kristinn var stórhuga kaupmaður, seldi leikföng, postulín og kristal og auk þess vefnaðarvöru í versluninni Dyngju. „Hann keypti mikið inn frá Þýskalandi, þar sem hann þekkti vel til, gerði oft góð kaup og var slung- inn í viðskiptum en til þess var tekið að aldrei féll á hann víxill, hann borgaði alltaf á réttum tíma og fór vel með alla hluti.“ Í því sambandi nefnir hún að í stað þess að kaupa nýtt hlið til þess að hafa í sveitinni hafi hann notað gamalt hlið, sem hafði verið við hús þeirra á Lauga- vegi 25. „Það mátti ekki minna vera fyrir stóru amerísku bílana hans en rétt slapp til.“ Ævintýraveröld sem var - María Anna Þorsteinsdóttir með bók um minn- ingar úr sveit Ljósmynd/Rúnar Elberg Indriðason Í sveitinni María Anna Þorsteinsdóttir við hliðið góða í Norðlingaholti. Kaupmannshjónin Ella Marie, kölluð Mollý, og Kristinn Einarsson. www.husgagnahollin.is Sími: 558 1100 ÚTSALA Allt að50% afsláttur SUMAR www.husgagnahollin.is V E F V E R S L U N RICHMOND Hringlaga borðstofuborð úr olíuborinni eik með fisk- beinamynstri á borðplötu. Stærð: Ø120 x 76,5 cm 59.994 kr. 99.990 kr. AFSLÁTTUR 40% ÚTSALA RIA 2ja og 3ja sæta sófar 2ja sæta 69.993 kr. 99.990 kr. 3ja sæta 76.993 kr. 109.990 kr. AFSLÁTTUR 30% ÚTSALA EVA SOLO Tekanna 7.495 kr. 14.990 kr. AFSLÁTTUR 50% ÚTSALA LENE BJERRE Skrautkerti verð frá 1.352 kr. 1.690 kr. AFSLÁTTUR 20% ÚTSALA BROSTE Vasar 3.495 kr. 6.990 kr. AFSLÁTTUR 50% ÚTSALA MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ 158. DAGUR ÁRSINS 2021 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 739 kr. Áskrift 7.982 kr. Helgaráskrift 4.982 kr. PDF á mbl.is 7.077 kr. iPad-áskrift 7.077 kr. Þór frá Þorlákshöfn er kominn með undirtökin í einvíg- inu við Stjörnuna í undanúrslitum Íslandsmóts karla í körfuknattleik eftir stórsigur í þriðja leik liðanna í Þor- lákshöfn í gærkvöld, 115:92. Staðan er nú 2:1 fyrir Þór og liðin mætast í fjórða sinn í Garðabæ á miðvikudags- kvöldið. »27 Þór með undirtökin eftir stórsigur ÍÞRÓTTIR MENNING

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.