Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 4

Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Parque Santiago Apartments Ameríska ströndin TENERIFE 23. - 30. júní Flug og vinsæl fjölskyldu íbúðagisting á besta stað verð frá 78.900kr. á mann miðað við 2 fullorðna og 2 börn www.sumarferdir.is | info@sumarferdir.is | 514 1400 Innifalið: Flug, gisting, innritaður farangur og handfarangur Gunnhildur Sif Oddsdóttir gunnhildursif@mbl.is Að sögn Magnúsar Gottfreðssonar, sérfræðings í smitsjúkdómum á Landspítalanum og prófessors við Háskóla Íslands, hefur langvarandi vörn gegn endursýkingu af Covid-19 verið rannsökuð töluvert hér á landi. Fyrstu niðurstöður rannsóknar voru birtar í New England Journal of Medicine í október síðastliðið haust og er sú rannsókn enn í gangi. Rannsóknin byggðist á mótefna- mælingum hjá 30.576 einstaklingum á Íslandi. „Þær niðurstöður sýndu að mót- efnasvarið var al- mennt séð mjög gott og virtist vera meira lang- varandi en fólk hafði áhyggjur af í byrjun. Síðan mun tíminn leiða í ljós hversu löng vörnin er,“ segir Magnús og bætir við: „Það er náttúrlega bara eitt og hálft ár síðan fyrstu sjúklingarnir smituðust þannig að það tekur auð- vitað tíma að átta sig á því hvernig þetta þróast.“ Kröftugra mótefnasvar hjá bólusettum Magnús segir þó að mótefnasv- arið gegn broddprótíninu virðist vera kröftugra hjá þeim sem eru bólusettir heldur en hjá þeim sem hafi fengið náttúrulega sýkingu. „Það er ástæðan fyrir því að menn eru að mæla með svona örv- unarskammti af bóluefninu eftir að fólk hefur fengið Covid,“ segir Magnús og bendir á að í raun og veru sé það kannski ekki fyllilega ljóst hver mótefnavörnin verði eftir lengri tíma. „Það náttúrlega skiptir líka máli að við náttúrulega sýkingu myndar líkaminn mótefni gegn fleiri þáttum veirunnar, ekki bara gegn brodd- prótíninu þannig að það verður svo- kallað samsett mótefnasvar, alls konar mótefni sem myndast,“ segir Magnús og bendir á að það sé kannski ekki alveg hægt að stilla þessu upp og mæla magn mótefna gegn broddprótíninu annars vegar eftir náttúrlega sýkingu og hins veg- ar eftir bólusetningu. „Þetta er að- eins flóknara en það.“ Þá segir Magnús að bólusetning þeirra sem hafi sýkst af Covid sé að hans mati skynsamleg varrúðarráð- stöfun og bætir við: „Svo kemur í ljós hversu miklu það breytir að gefa fólki aftur bóluefni eftir að það hefur fengið Covid.“ Bólusett með Janssen og Pfizer Á vefsíðu embættis landlæknis segir að komið sé að því að bjóða þeim sem hafa sögu um Covid eða mótefni gegn SARS-CoV-2 bólu- setningu til að efla vörn gegn endur- sýkingu. Bólusett verður með bólu- efnunum Janssen og Pfizer. Þá segir að mælt sé með því, ef innan við þrír mánuðir eru frá stað- festri Covid-sýkingu, að beðið verði með bólusetninguna þar til að þeim tíma liðnum. Bólusettir með meira mótefnasvar - Sérfræðingur í smitsjúkdómum segir bólusetningu þeirra sem hafa sýkst af Covid-19 skynsamlega varúðarráðstöfun - Hér á landi verður þeim sem hafa sýkst af Covid-19 boðin bólusetning Magnús Gottfreðsson Logi Sigurðarson Unnur Freyja Víðisdóttir Ríkisskattstjóri segir að heildar- hluthafalisti félaga á vef embættis- ins verði tekinn út eins fljótt og unnt er. Persónuvernd ákvarðaði sl. föstudag að birting hluthafalista á opnu vefsvæði Skattsins væri ólög- mæt. „Við héldum auðvitað að þetta væri í samræmi við lögin. Nú þegar Persónuvernd er búin að gefa sitt álit þá munum við að sjálfsögðu fara eftir því. Þannig að ég á ekki von á öðru en að við munum fara í það að taka þetta út. Persónuvernd gaf mánuð í það að klára það verkefni. Ég held að það sé bara fínt. Ef nið- urstaðan er sú að þetta sé ekki í samræmi við lagaheimildir þá er auðvitað eðlilegt að laga það eins fljótt og hægt er,“ segir Snorri Ol- sen ríkisskattstjóri. Lagastoðin ekki nógu sterk Ákveðið var að birta heildarhlut- hafalista félaga vegna breytingar á lögum um birtingu ársreikninga á opinberu vefsvæði. Ríkisskattstjóri óskaði eftir áliti Persónuverndar í febrúar til þess að ganga úr skugga um að nægilega sterkur lagagrund- völlur væri fyrir birtingu listans. Edda Símonardóttir, sviðstjóri hjá Skattinum, segir það vera atvinnu- vega- og nýsköpunarráðuneytið sem þurfi að taka ákvörðun um það hvort eigi að breyta lögum til þess að þessi birting verði heimil. „Við sendum beiðni í febrúar og þetta var niðurstaðan. Lögin tóku gildi í janúar svo við þurftum að birta þennan lista þá. Auðvitað er það alveg ljóst samkvæmt þessu áliti að lagastoðin er ekki nægilega sterk,“ segir Edda. Hún segir úrskurðinn ekki hafa komið sér á óvart. „Auðvitað erum við að biðja um álit vegna þess að við vildum vera viss. Þá er auðvitað alltaf einhver vafi í huga manns og þetta gat þá farið á báða vegu. En það eru greinilega gerðar mjög ríkar kröfur af hálfu Persónuverndar sem er auðvitað hið besta mál. Ef pólitíkin hefur áhuga á því að birta þessi gögn eins og ég held að vilji löggjaf- ans hafi verið, þá verður að renna sterkari stoðum undir þessi ákvæði.“ Ekki nægilega skýrt Í úrskurði Persónuverndar er lögð áhersla á að lagagrundvöllurinn fyrir birtingu á þessum lista sé ekki nægilega skýr og samrýmist þess vegna ekki persónuverndarlögum. Í úrskurði Persónuverndar segir: „Persónuvernd komst að þeirri nið- urstöðu að 4. mgr. 109. gr. laga um ársreikninga væri ekki nægilega skýrt orðuð til að fela í sér fullnægj- andi lagastoð fyrir vinnslunni og að birting upplýsinga um hlutafjáreign einstaklinga samrýmist þannig ekki persónuverndarlögum.“ „Við héldum að þetta væri í samræmi við lögin“ - Skattinum gert að fjarlægja heildarhluthafalista af vefnum Morgunblaðið/sisi Lagaumhverfi Skatturinn birti heildarhluthafalista félaga. Eins og sést á myndinni hér til hliðar er bygging Húss íslensk- unnar við Arngrímsgötu í Reykja- vík langt á veg komin. Húsið kem- ur til með að hýsa fjölbreytta starfsemi Stofnunar Árna Magn- ússonar í íslenskum fræðum og Ís- lensku- og menningardeild Háskóla Íslands. Að sögn Antons Arnar Schmid- hauser, verkefnastjóra hjá Fram- kvæmdasýslu ríkisins, er nú unnið að því að setja upp glugga og ganga frá húsinu. Auk þess er vinna innan dyra komin á fullt. Þá segir Anton að framkvæmd- irnar séu samkvæmt upphaflegri rekstraráætlun en að uppsteypan, sem lauk um áramótin síðustu, hafi verið heldur á undan áætlun. Áætlað er að húsið verði tilbúið um mitt næsta ár eða í júlí 2022. Þó segir Anton að Árnastofnun ætli sér ekki að flytja strax inn í húsið enda þurfi að nást ákveðið raka- jafnvægi í húsinu svo það henti handritunum. Byggingin langt á veg komin Morgunblaðið/Unnur Karen

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.