Morgunblaðið - 21.06.2021, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021
21. júní 2021
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 123.03
Sterlingspund 170.65
Kanadadalur 99.45
Dönsk króna 19.687
Norsk króna 14.232
Sænsk króna 14.31
Svissn. franki 133.81
Japanskt jen 1.1165
SDR 175.67
Evra 146.4
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 177.5784
Hrávöruverð
Gull 1792.35 ($/únsa)
Ál 2427.5 ($/tonn) LME
Hráolía 73.0 ($/fatið) Brent
Þýski sportbílaframleiðandinn
Porsche, dótturfélag Volkswagen-
samsteypunnar, hefur efnt til sam-
starfs við þýska fyrirtækið Custom-
cells um framleiðslu á afkastamiklum
rafhlöðum fyrir rafmagnsbíla.
Að sögn Reuters mun Porsche fjár-
festa fyrir marga tugi milljóna evra í
nýrri rafhlöðuverksmiðju sem mun
geta skaffað rafhlöður í um það bil
1.000 bíla ár hvert. Eiga rafhlöðurnar
að hafa meiri orkuþéttni en þær raf-
hlöður sem í boði eru í dag sem þýðir
bæði að hleðslutími styttist til muna
og að minna hráefni þarf til að fram-
leiða rafhlöðurnar borið saman við
hefðbundnar bílarafhlöður með sömu
hleðslugetu. Loks á sú tækni sem
Customcells hefur þróað að lækka
framleiðslukostnað sem ætti að skila
sér í lægra verði á rafbílum. Reuters
greinir frá að evrópskir bílaframleið-
endur leiti núna allra leiða til að vera
minna háðir framboði asískra raf-
hlöðuframleiðenda og stefnir
Volkswagen að því að byggja nokkrar
rafhlöðuverksmiður í Evrópu á kom-
andi misserum og árum. Keppast
bílarisarnir við að auka hlut rafbíla í
framleiðslu sinni til að gerast ekki
brotlegir við æ strangari reglur Evr-
ópusambandsins sem miða að því að
minnka útblástur frá bílaumferð.
ai@mbl.is
Porsche fjárfestir í rafhlöðuframleiðanda
AFP
Orka Unnið hörðum höndum í
verksmiðju Porsche í Stuttgart.
- Evrópskir bílaframleiðendur vilja
vera minna háðir rafhlöðum frá Asíu
ur faraldurinn bitnað af miklum
þunga á þeim löndum sem reiða sig
mjög á ferðaþjónustugeirann. Önnur
bylgja smita gengur núna yfir
Indónesíu en seinni bylgja í Malasíu
náði hámarki í byrjun júnímánaðar og
virðist núna í rénun.
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Tony Fernandes, forstjóri lággjalda-
flugfélagsins AirAsia, reiknar með að
fluggeirinn verði kominn í samt horf á
næsta ári samhliða því að fleiri ríki
opna landamæri sín á ný til að hleypa
ferðamönnum inn.
AirAsia er eitt af stærstu lág-
gjaldaflugfélögum heims, stofnað í
Malasíu árið 1993 og með dótturfélög
víðsvegar um SA-Asíu. Flugfélagið
hefur verið í örum vexti á undanförn-
um árum og er nú þegar með 96 flug-
vélar í sinni þjónustu og með meira en
360 nýjar vélar til viðbótar pantaðar.
Í viðtali sem malasíska ríkisfrétta-
stofan Bernama birti á laugardag
kallaði Fernandes eftir því að stjórn-
völd vönduðu til verka nú þegar von
er á að dregið verði úr smitvörnum og
landamæri opnist á ný, svo að takast
mætti að halda hvers kyns röskunum
í lágmarki þegar flugsamgöngur
komast aftur á skrið.
Ríkjum SA-Asíu hefur gengið mis-
vel að glíma við kórónuveiruna og hef-
Taíland leiðir opnanir
Í Taílandi róa stjórnvöld að því öll-
um árum að hleypa ferðamönnum
inn eins fljótt unnt er og verður byrj-
að á Phuket í SV-hluta landsins. Frá
og með 1. júlí munu fullbólusettir
ferðamenn frá vissum löndum geta
heimsótt Phuket án þess að sæta
sóttkví en aðrir ferðalangar þurfa að
dvelja á sóttkvíarhóteli á eigin
kostnað fyrstu 14 dagana eftir kom-
una til landsins. Þurfa ferðamenn að
hafast við á Phuket-eyju í að lág-
marki 14 daga áður en þeir ferðast til
annarra áfangastaða innan Taílands.
Er búið að bólusetja um 60% íbúa
Phuket, en á landsvísu er hlutfallið
5%. Til stendur að opna landið allt
með svipuðum hætti snemma í októ-
ber og þannig lina raunir þeirra
landsmanna sem hafa tekjur sínar af
ferðamönnum en að sögn Bloomberg
myndar ferðaþjónusta um það bil
fimmtung af landsframleiðslu Taí-
lands.
„Við getum ekki dregið það að
opna landið þar til allir hafa verið
fullbólusettir með tveimur sprautum
eða þar til heimurinn er laus við veir-
una,“ sagði Prayut Chan-o-cha, for-
sætisráðherra Taílands, um ástand-
ið. „Við verðum að vera reiðubúin að
lifa við vissa áhættu og reyna að
halda [áhættunni] við ásættanleg
mörk svo að fólk geti byrjað að vinna
og eiga í sig og á.“
„Getum ekki dregið það að opna“
AFP
Skortur Drengur í fátækrahverfi í Bangkok með matargjöf frá lúxusveit-
ingastað. Hrun ferðaþjónustunnar hefur farið illa með taílenska hagkerfið.
- Bylgja smita í Indónesíu og Malasíu en Taíland stefnir á að opna landið upp á
gátt með haustinu - Stjórnandi AirAsia spáir eðlilegu ástandi á næsta ári
Ítölsk stjórnvöld munu hýsa fund
atvinnumálaráðherra G20-ríkjanna
í næstu viku og hyggjast nota
tækifærið til að hvetja til strangari
reglna um „gigg“-hagkerfið svo-
kallaða. Vísar hugtakið til þess að
vaxandi hópur fólks vinnur fyrir
sér með ýmiss konar verktöku
frekar en sem fastlaunaðir starfs-
menn.
Verkalýðsfélög hafa haldið því
fram að gigg-hagkerfið grafi und-
an réttindum launþega og hafi nei-
kvæð áhrif á launaþróun. Aðrir
hafa bent á að sá sveigjanleiki sem
fylgi því að taka að sér ýmis smá-
verkefni í verktöku hjálpi launþeg-
um að afla sér aukatekna enda sé
enginn hörgull á fólki sem vill t.d.
gerast sendlar í hjáverkum fyrir
þau fjölmörgu heimsendingarforrit
sem hafa komið fram á sjónarsvið-
ið á undanförnum árum, eða aka
farþegum á milli staða fyrir skutl-
þjónustur á borð við Uber.
Reuters greinir frá því að fyrr á
þessu ári hafi framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins byrjað undir-
búning nýrra reglna sem ætlað er
að auka réttindi fólks í gigg-hag-
kerfinu. Sum Evrópulönd hafa
þegar tekið af skarið og t.d. úr-
skurðaði hæstiréttur Bretlands
fyrr á árinu að fólk sem tæki að
sér farþegaakstur í verktöku í
gegnum Uber ætti rétt á lág-
markslaunum, og spænskur dóm-
stóll úrskurðaði síðasta haust að
sendlar matarheimsendingarfyrir-
tækis flokkuðust í reynd sem laun-
þegar en ekki verktakar. ai@mbl.is
AFP
Þjónusta Sendill Deliveroo í París
sækir pöntun. Gigg-hagkerfið hefur
vaxið hratt og valdið núningi.
Vilja koma böndum
á „gigg“-hagkerfið
- Vaxandi deilur á
Vesturlöndum um
verktöku í hjáverkum
STUTT
« Stjórn Festi
hf. hefur ákveð-
ið að hefja
framkvæmd
endurkaupa á
hlutafé félags-
ins. Er þetta
gert í samráði
við niðurstöðu
aðalfundar sem haldinn var í mars
þar sem stjórn var veitt heimild til að
kaupa fyrir hönd félagsins allt að
10% af hlutafé og lækka útgefið
hlutafé sem því nemur.
Í tilkynningu sem send var fjöl-
miðlum á sunnudag kemur fram að
stjórn Festi hyggist kaupa að há-
marki rösklega tvær milljónir eigin
hluta eða sem nemur 0,65% af út-
gefnu hlutafé. Verður að hámarki
430 milljónum króna varið til
endurkaupanna.
Kaupin verða framkvæmd í áföng-
um og nema að hámarki 250.000
hlutum á dag. Munu endurkaup sam-
kvæmt þessari áætlun hefjast í dag,
mánudag, og standa yfir til 30. júlí
nema skilyrði um hámarkskaup verði
uppfyllt fyrir þann tíma. Umsjón með
framkvæmd endurkaupaáætlunar-
innar er í höndum markaðsviðskipta-
sviðs Íslenskra fjárfesta hf.
Undir starfsemi Festi falla rekstur
Bakkans vöruhúss, raftækjaverslunin
Elko, matvöruverslanakeðjan Krónan
og olíufélagið N1. ai@mbl.is
Festi hefur endurkaup