Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 13

Morgunblaðið - 21.06.2021, Síða 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021 Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Handabandið, sem var sett til hliðar þegar kórónuveirufaraldurinn brast á, gæti verið að koma inn úr kuld- anum nú þegar verið er að draga úr samkomutakmörkunum víða um heim og æ fleiri eru bólusettir. Það vakti að minnsta kosti athygli í síðustu viku, þegar Joe Biden Bandaríkjaforseti og Vladimír Pútín Rússlandsforseti hittust í Genf í Sviss, að þeir tókust innilega í hend- ur. Nokkrum dögum fyrr, á leið- togafundi G7-ríkjanna í Cornwall, heilsuðust Biden og aðrir leiðtogar hinsvegar með því að slá olnbog- unum saman. En þótt kófinu virðist vera að létta hikar fólk við takast í hendur. Í Bandaríkjunum hefur flestum sam- komutakmörkunum verið aflétt og þeim sem hafa fengið bólusetningu er sagt að þeir þurfi ekki að bera grímur. En margir Bandaríkjamenn fara þó mjög varlega. Í mörgum verslunum og fyrirtækjum eru við- skiptavinir enn hvattir til að bera grímur og vinir og kunningjar heils- ast með því að veifa en takast ekki í hendur. Bandarískir viðmælendur AFP- fréttastofunnar segjast ekki heilsa ókunnugum með handabandi og faðmlög og kossar í kveðjuskyni koma ekki til greina. William Mart- in, 68 ára gamall lögfræðingur, seg- ist til dæmis ekki munu taka í hönd- ina á neinum fyrr en hann meti það svo að það sé óhætt „og það getur engin ríkisstjórn ákveðið hvenær það er óhætt,“ bætir hann við. Litakerfi Sum bandarísk fyrirtæki og stofn- anir hafa tekið upp einskonar lita- kerfi, mismunandi lit armbönd og með þeim geta starfsmenn, gestir og viðskiptavinir gefið til kynna hvort þeir vilji heilsa með handabandi. Jack Caravanos, prófessor í New York-háskóla, segir hins vegar að ekki sé mikil ástæða til að óttast að kórónuveiran berist á milli fólks með handaböndum. Hann segir að veiran sem veldur Covid-19- sjúkdómnum smitist einkum með ögnum sem berast í lofti en mun síð- ur með snertingu. „Hins vegar smitast kvef, inflú- ensa og margir aðrir smitsjúkdómar með snertingu og því gæti það haft jákvæð áhrif á almannaheilsu ef handabönd leggjast af.“ Aldrei aftur handabönd? Margir sérfræðingar hafa lýst svipaðri skoðun. „Ég held að við ættum aldrei aftur að takast í hend- ur, ef ég á að vera heiðarlegur,“ sagði Anthony Fauci, forstjóri bandarísku Ofnæmis- og smit- sjúkdómastofnunarinnar, á síðasta ári þegar faraldurinn var kominn á flug. Handabönd eru siður sem full- orðnir kenna börnum sínum en sú hefð kann nú að hafa rofnað. Aðrar tegundir kveðja, svo sem að veifa, hneigja sig eða slá saman krepptum hnefum, hafa á síðustu misserum leyst handabandið af hólmi. „En það er mikil eftirsjá að handabandinu,“ segir Patricia Na- pier-Fitzpatrick, stofnandi Eti- quette-skólans í New York. „Handa- bönd sýna innri mann, þau eru hluti af líkamstjáningunni. Þegar maður snertir einhvern er það yfirlýsing um að maður treysti honum, segi: Ég ætla ekki að vinna þér mein.“ Faraldurinn hefur valdið miklum breytingum á daglegu lífi fólks, hugsanlega varanlegum. En Allen Furr, prófessor í félagsfræði hjá Auburn-háskóla, segist búast við að handabandið snúi aftur. „Það er svo mikilvæg athöfn í okkar menningu,“ segir hann. Harmaljóð handa- bandsins kveðið - Vangaveltur eru um að þessi athöfn heyri sögunni til AFP Sögulegt handaband Þeir Joe Biden og Vladimír Pútín tókust í hendur þegar þeir hittust á leiðtogafundi í Genf í Sviss í síðustu viku. Tíu manns, þar á meðal níu börn, lét- ust í 18 bíla árekstri í Alabama-ríki í Bandaríkjunum á laugardag. Á meðal látinna voru átta stúlkur á aldrinum fjögurra til 17 ára en þær voru í rútu á vegum Tallapoosa County Girls Ranch sem er aðsetur fyrir stelpur sem hafa orðið fyrir of- beldi eða vanrækslu. Í öðrum bíl lést maður og níu mán- aða gömul dóttir hans. Fimm aðrir slösuðust í slysinu en áverkar þeirra eru ekki lífshættuleg- ir að sögn lögreglustjóra á svæðinu. „Þetta leit hræðilega út,“ sagði lögreglustjórinn og bætti við að þetta hefði verið versta umferðar- slys sem hann hefði nokkru sinni orðið vitni að. Talið er líklegt að hitabeltisstorm- urinn Claudette hafi valdið slysinu og að bifreiðarnar hafi runnið til í mikilli bleytu á veginum og þannig hafi ökumenn misst stjórn á bifreið- um sínum. Þá hefur hitabeltislægðin valdið miklum flóðum og hvirfilbyljum sem um helgina gjöreyðilögðu marga tugi heimila í Alabama. Tvö önnur dauðsföll 24 ára gamall maður og þriggja ára gamall drengur létust einnig í Alabama síðastliðinn laugardag þeg- ar tré féll á hús þeirra rétt fyrir utan borgina Tuscaloosa. Auk þess stend- ur yfir leit að manni í Birmingham, Alabama, sem kann að hafa verið hrifsaður burt af flóðinu. Ríkisstjóri Alabama, Kay Ivey, skrifaði á Twitter að dagurinn hefði verið „sorglegur dagur fyrir ríkið okkar“. Þá eyðilagði hvirfilbylur 50 heimili í Escambia-fylki við ríkismörk Flór- ída. Níu börn létust í 18 bíla árekstri - Hitabeltisstorm- urinn Claudette lík- lega valdur að slysinu REUTERS Dennis Hitabeltisstormurinn Denn- is yfir Bandaríkjunum árið 2005. Bandaríkin undirbúa nú nýjar refsi- aðgerðir á hendur Rússum fyrir að hafa næstum því orðið Alexei Na- valní, stjórnandstæðingi Pútíns, að bana, en eitrað var fyrir honum í ágúst í fyrra með taugaeitrinu novi- chok. Navalní situr nú í fangelsi í Rúss- landi en hann var handtekinn í janúar á flugvellinum í Moskvu þegar hann sneri aftur til Rússlands eftir dvöl á sjúkrahúsi í Berlín í Þýskalandi þar sem hann hafði dvalið til að jafna sig eftir eitrunina. Navalní segir eitr- unina hafa verið skipulagða af ráða- mönnum í Moskvu. Fréttastofa AFP greinir frá því að stjórnamálasamband Rússlands og Bandaríkjanna hafi versnað eftir að Joe Biden varð forseti Bandaríkjanna í janúar. Ætla ekki að halda sér til hlés Þjóðaröryggisráðgjafi Bidens, Jake Sullivan, segir Bandaríkin nú þegar hafa beitt Rússa refsiaðgerð- um vegna eitrunar Navalnís. „Við fengum stuðning frá banda- mönnum okkar í Evrópu til þess að beita sameiginlegum refsiaðgerðum á hendur Rússum fyrir að hafa notað taugaeitur á þeirra eigin ríkisborg- ara,“ sagði Jake Sullivan við CNN- fréttastofuna og bætti við: „Við erum að undirbúa víðtækari refsiaðgerðir á hendur Rússum. Við höfum sýnt það að við ætlum ekki að halda okkur til hlés.“ Rússar segjast einnig munu grípa til aðgerða Rússar vara við því að þeir muni grípa til sambærilegra aðgerða. „Lögmæt viðbrögð frá okkur hafa alltaf fylgt ólöglegum refsiaðgerðum Bandaríkjanna,“ sagði fulltrúi utan- ríkisráðuneytis Rússlands, Maria Zakharova. Anatoly Antonov, sendiherra Rúss- lands í Bandaríkjunum, sagði refsiað- gerðirnar ekki vera það sem Banda- ríkjamenn gáfu í skyn á leiðtoga- fundinum í Genf í Sviss í síðustu viku en Biden og Pútín sóttust eftir því að minnka spennuna milli ríkjanna. Antonov sagði það ómögulegt að koma á stöðugleika á milli ríkjanna, þegar refsiaðgerðir á hendur Rússum væru yfirvofandi. Hann kallaði því frekar eftir samtali á milli ríkjanna tveggja. Pútin hefur neitað því að koma illa fram við andstæðinga sína en margir áberandi gagnrýnendur hans hafa verið drepnir í Rússlandi í valdatíð hans og fjölmiðlar þar í landi mega lítið sem ekkert tjá sig. gunnhildursif@mbl.is AFP Andstæðingur Navalní situr nú í fangelsi í Rússlandi en hann var handtek- inn nú í janúar á flugvellinum í Moskvu þegar hann sneri aftur til Rússlands. Nýjar refsiaðgerð- ir gegn Rússum - Beita aðgerðunum vegna eitrunar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.