Morgunblaðið - 21.06.2021, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 21. JÚNÍ 2021
Smiðjuvegi 34 • gul gata Kópavogi • biljofur@biljofur.is
Viðgerðir // Bilanagreining // Varahlutir // Smurþjónusta
Sérhæfð þjónusta fyrir
544 515
1
tímapantan
ir
Rótgróið fyrirtæki, starfrækt frá 1992
Bíljöfur ehf er stoltur aðili að kynna aðgerðir ríkisstjórnarinnar
ALLIR VINNA sem felur í sér endurgreiðslu á VSK
af vinnulið einkabifreiða
Í grein Stefáns Svavarssonar, Salt-
fiskur, vín og skemmdir ávextir, er
fjallað um viðskiptasamband Ís-
lands og Spánar í 200 ár. Hér er
birt brot úr henni.
Ísland og Spánn Francos
[...] Á meðan á borgarastríðinu
stóð var vinstristjórn Framsóknar-
og Alþýðuflokks við völd, Stjórn
hinna vinnandi stétta. Jafnvel þótt
samúð flokksmanna Alþýðuflokks
hafi verið hjá spænska lýðveldinu
hafði það engin áhrif á tilraunir
íslenskra stjórnvalda til að endur-
vekja saltfiskmarkaðina á Spáni
fyrr en við lok
borgarastyrj-
aldarinnar.
Íslenskir fulltrú-
ar reyndu allt
fram á sumar
1936 að ná sam-
bandi við
spænska
embættismenn
vegna viðskipta-
mála, þótt óróinn
á Spáni færi sívaxandi. Opinber
fiskifulltrúi Íslands, Helgi P.
Briem, sat í Barcelona þar til hon-
um var ekki lengur til setunnar
boðið og hann flúði yfir landamær-
in til Frakklands um leið og styrj-
öldin braust út.
Helgi fiskifulltrúi var sendur
tvisvar aftur til Spánar árið 1938, í
hvort sinn til andstæðra fylkinga.
Í janúar fór hann til Barcelona,
sem enn var undir stjórn lýðveld-
isins, til þess að reyna að inn-
heimta útistandandi skuldir sem
íslenskir fiskútflytjendur áttu á
Spáni og kanna söluhorfur. Í
skýrslum sem hann sendi til
Íslands lýsti hann aðstæðum í
borginni sem mátti þola sífelldar
árásir sprengjuflugvéla og her-
skipa uppreisnarmanna. Baráttu-
þrek borgarbúa var að þrotum
komið eftir eins og hálfs árs styrj-
öld og engin tök voru á að inn-
heimta skuldir né selja saltfisk til
borgarinnar. Fimm mánuðum síðar
fór Helgi til yfirráðasvæðis Fran-
cos í sömu erindagjörðum. Fyrst
um sinn vildu uppreisnarmenn
ekki veita Helga inngöngu í landið
nema gegn því að Ísland viður-
kenndi Franco sem leiðtoga Spán-
ar. Fram að því höfðu aðeins 11
ríki viðurkennt stjórn Francos,
ekkert þeirra lýðræðisríki. Ísland
hefði getað viðurkennt Spán miðað
við þáverandi skipan utanríkismála
en landið hafði skuldbundið sig til
að fylgja hinum Norðurlöndunum í
þessu máli. Samkvæmt skýrslum
fiskifulltrúans voru ráðamenn
Francos ekki fráhverfir því að eiga
í viðskiptum við Ísland á ný, en
aðeins með vöruskiptum og gegn
því að ríkisstjórn Íslands viður-
kenndi stjórn Francos án skilyrða.
Önnur Evrópuríki sem ekki höfðu
viðurkennt Spán áttu reyndar þeg-
ar í viðskiptum við þann hluta
Spánar sem Franco réð yfir. Upp-
reisnarmenn bentu á að þessi ríki
seldu þeim vörur sem þá skorti, en
saltfisk mætti flokka sem óþarfa
vöru. Ef Íslendingar kærðu sig um
að reyna að koma saltfiski til
þeirra yrðu þeir að gjöra svo vel
að slíta samkomulaginu við
Norðurlöndin og viðurkenna
Francostjórnina opinberlega.
Íslenska ríkisstjórnin gekk ekki
að þessum skilyrðum uppreisnar-
manna. Í mars 1939 fór Helgi
ásamt fulltrúa frá Sölusambandi
íslenskra fiskframleiðenda (SÍF)
aftur til yfirráðasvæðis Francos.
Aðeins var tímaspursmál hvenær
styrjöldinni lyki með sigri upp-
reisnarmanna, sem vildu nú ekki
einu sinni veita Íslendingunum
áheyrn nema íslenska ríkisstjórnin
viðurkenndi stjórn Francos. Þrátt
fyrir mikinn þrýsting af hálfu
útgerðarmanna og fiskútflytjenda
beið ríkisstjórnin með það og gaf
út sameiginlega viðurkenningu
með hinum Norðurlöndunum. Rétt
eins og í bannmálinu 18 árum áður
nýttu Spánverjar sér aðstöðumun
ríkjanna þegar kom að viðskiptum
til að ná sínu fram í utanríkis-
málum. Uppreisnarmenn Francos
hefðu ekki getað sett stærri ríkj-
um eins og Noregi eða Bretlandi
þessi skilyrði þar sem þeir fluttu
inn vörur sem þörf var á frá þess-
um löndum. Spánverjar vissu vel
að Íslendingar þurftu meira á við-
skiptunum að halda en þeir. Því
var borðleggjandi fyrir embættis-
menn Francos að þrýsta á Íslend-
inga til að reyna að fá formlega
viðurkenningu frá evrópsku lýð-
ræðisríki. Ríkisstjórnin stóð þó
fast á sínu og flýtti sér ekki að
veita Francostjórninni viðurkenn-
ingu þótt það hefði mögulega liðk-
að fyrir viðskiptum.
Þegar borgarastríðinu lauk árið
1939 hvarf Spánn fljótt úr hugum
manna þar sem bæði ráðamenn og
almenningur höfðu um annað að
hugsa eftir að síðari heimsstyrj-
öldin braust út. Þegar Þjóðverjar
hernámu Danmörku í apríl 1940
urðu Íslendingar að taka utanrík-
ismál í eigin hendur. Íslenska
utanríkisráðuneytið ákvað að
stofna embætti sendifulltrúa í
Madríd, en fram að því hafði
aðeins verið stofnað sendiráð í
Bandaríkjunum og sendifulltrúi
var skipaður í Lundúnum. Spán-
verjar svöruðu aftur á móti aldrei
beiðni íslensku ríkisstjórnarinnar
og sendifulltrúaefni Íslands fékk
meira að segja ekki landvistarleyfi
á Spáni þegar á reyndi. Við her-
nám Breta mánuði síðar féllu þess-
ar tilraunir um sig sjálfar. Efna-
hagur Íslands vænkaðist hratt á
stríðsárunum og spænskur
saltfiskmarkaður skipti því mun
minna máli en áður.
[…] En eftir seinni heimsstyrj-
öld riftu Bretar hagstæðum við-
skiptasamningi við Ísland og digur
gjaldeyrisforði landsins tæmdist
fljótt. Íslensk stjórnvöld voru einn-
ig undir miklum þrýstingi af hálfu
íslenskra útgerðarfélaga og fisk-
útflytjenda sem kröfðust aðstoðar
við að hefja viðskipti við Spán á
ný.
Fljótlega kom í ljós að Spánverj-
ar myndu ekki taka viðskipti við
Ísland í mál nema ríkin tækju upp
formlegt stjórnmálasamband og
Íslendingar skipuðu sendiherra í
Madríd einir Evrópuþjóða. Nokkru
síðar, þegar Spánverjar áttuðu sig
á hversu fast Íslendingar sóttu
viðskipta- og stjórnmálasamband,
kröfðust þeir einnig þess að Ísland
styddi málstað Spánar í atkvæða-
greiðslu á allsherjarþingi Samein-
uðu þjóðanna vorið 1949. Íslend-
ingar höfðu greitt atkvæði gegn
Spáni á allsherjarþinginu aðeins
nokkrum mánuðum áður og því
voru Spánverjar enn að reyna að
hafa áhrif á utanríkisstefnu
Íslands með viðskipti að vopni.
Íslenska utanríkisþjónustan var
afar fáliðuð á þessum tíma og
skorti óháða ráðgjöf þegar kom að
því að ákveða hvort ganga skyldi á
bak fyrri orða og veita Spáni
Francos stuðning. Íslenskir ráða-
menn fengu aðeins skýrslur um
ástand mála á Spáni frá umboðs-
mönnum útgerðarfélaga og fisk-
útflytjenda sem áttu hagsmuna að
gæta við að gera sem mest úr
ágæti þess að stofna til viðskipta-
samninga við Spán. Margir hátt-
settir íslenskir embættis- og ráða-
menn á þessum tíma, svo sem
Ólafur Thors ráðherra og Thor
Thors fastafulltrúi Íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum, höfðu auk
þess náin tengsl við útgerðina.
Því varð niðurstaðan sú að
Ísland greiddi atkvæði til stuðn-
ings Spánverjum á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna í maí 1949,
fyrst Evrópuþjóða utan Grikklands
og Tyrklands og í andstöðu við
helstu bandalagsþjóðir. Fengu
Spánverjar í raun meiri stuðning
en þeir höfðu beðið Íslendinga um
í skiptum fyrir óljós loforð um við-
skipti. Íslendingar máttu aftur á
móti sæta ákúrum frá Bretum og
Norðurlöndunum fyrir að ganga úr
skaftinu gegn Spáni. Þetta átak
Spánverja gagnvart Íslendingum
var vissulega hluti af stærri her-
ferð. Franco og stjórn hans reyndi
á árunum eftir 1945 að breiða yfir
stuðning sinn við möndulveldin í
seinni heimsstyrjöld. Þrátt fyrir
þessi endurskrif sögunnar fyrirleit
almenningur í þeim löndum sem
Franco vildi vingast við bæði hann
og stjórn hans og alltaf kraumaði
undir sú krafa að honum yrði kom-
ið frá völdum. Ef frá eru talin
Sovétríkin töldu stórveldin það þó
ekki þjóna hagsmunum sínum að
stjórn Francos færi frá. Umheim-
inum stafaði ekki hætta frá Spáni
og ráðamenn í Bandaríkjunum og
Bretlandi óttuðust annað borgara-
stríð eða upplausn sem gæti leitt
til aukinna áhrifa Sovétríkjanna á
Spáni. Tíðarandinn snerist að lok-
um Franco í vil. Eftir því sem ótti
vesturveldanna við uppgang
kommúnisma magnaðist, því álit-
legri bandamaður varð Franco og
einangrun Spánar var því smám
saman aflétt. Spánn gerði til að
mynda varnarsamning við Banda-
ríkin árið 1953 og árið 1955 fékk
Spánn aðild að Sameinuðu þjóð-
unum.
Hvað Ísland varðaði þá urðu
vonir um hagstæð viðskipti við
Spán fljótlega að engu. Eini
áþreifanlegi árangurinn af stuðn-
ingi Íslands við Spán var að hluti
af innflutningskvóta á saltfiski sem
ætlaður var Norðmönnum var tek-
inn af þeim og færður Íslend-
ingum. Í viðræðum um viðskipti
þjóðanna árið 1949 gerðu Íslend-
ingar vöruskiptasamning sem átti
eftir að gilda lítið breyttur næsta
áratuginn, en samkvæmt honum
var enginn saltfiskur fluttur til
Spánar án þess að spænskar vörur
yrðu fluttar til Íslands á móti.
Íslendingum var nú vandi á hönd-
um, því óvíst var að þeir hefðu not
fyrir þær vörur sem Spánverjar
gætu selt þeim á móti. Tveggja
manna sendinefnd fór frá Íslandi
til Spánar árið 1949 til að kynna
sér hvaða vörur voru í boði og
töldu tvímenningarnir að helst
væri hægt að flytja inn ávexti,
kork, skó og vefnaðarvöru. Vör-
urnar þóttu dýrari og af lakari
gæðum en svipaðar vörur frá öðr-
um löndum. Til þess að örva út-
flutning á saltfiski hvöttu íslenskir
ráðamenn og fiskútflytjendur
almenning og heildsala til að
kaupa sem mest frá Spáni og lof-
uðu gæði spænskra vara jafnvel
gegn betri vitund. Á meðan bárust
íslenskum blöðum og eftirlitsstofn-
unum kvartanir vegna pantana
sem bárust seint og illa,
skemmdra ávaxta og vefnaðarvöru
sem rifnaði milli handanna á fólki.
Hagsmunir sjávarútvegs voru að
vísu látnir ganga fyrir og á tíma-
bili fluttu Íslendingar inn langmest
allra þjóða af spænskum vörum
miðað við höfðatölu. […]
Aftur á móti kunnu Íslendingar
vel að meta utanlandsferðir til
Spánar sem Ferðaskrifstofa rík-
isins efndi til árið 1952 í því skyni
að efla viðskipti landanna. Í fyrstu
ferðinni var siglt um norðurströnd
Spánar og kostaði fargjald á ódýr-
asta farrými aðeins sem samsvar-
aði rúmu mánaðarkaupi verka-
manns á þessum tíma. Ferðin sló í
gegn og fleiri skipulagðar ferðir
fylgdu í kjölfarið sem vöktu mikla
athygli og vel var látið af. Fyrir-
lestrar og myndasýningar voru
jafnan auglýstar í dagblöðum
næstu misserin þar sem ferða-
langar sögðu frá ævintýrum sínum
á Spáni. Ferðasögur birtust auk
þess reglulega í blöðunum. Þegar
frumkvöðlar eins og Guðni Þórðar-
son í Sunnu og Ingólfur Guð-
brandsson hófu að selja Spánar-
ferðir í lok 6. og í upphafi 7.
áratugarins má segja að hið opin-
bera hafi undirbúið markaðinn
tryggilega. Ímynd Spánar hafði
jafnframt breyst á örfáum árum.
Sjaldan var minnst á ófrjálsa
alþýðu Spánar undir hælnum á
einræðisherranum Franco, heldur
dreymdi flesta um að upplifa lífs-
ins lystisemdir við Miðjarðarhaf.
(Tilvísunum er sleppt.)
Saltfiskur, vín og skemmdir ávextir
Bókarkafli | Í bókinni
Á fjarlægum ströndum,
sem Erla Erlendsdóttir
og Kristín Guðrún
Jónsdóttir ritstýra, er
safn greina eftir fjórtán
höfunda, sem snúast
um margvísleg tengsl
Íslands og Spánar
í tímans rás.
Morgunblaðið/Ómar
Viðskiptahagsmunir Íslendingar studdu Spán Francos á vettvangi Sameinuðu þjóðanna í von um gott veður fyrir
salfisksölu. Enn er Bacalao Islandia í metum á Spáni eins og sjá má á LaBoqueria-markaðnum í Barcelona.