Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Síða 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021
F
ornleifafundur í Fagradal er
með þeim merkari sem orðið
hafa í Skaftafellssýslu, að
sögn Þórðar Tómassonar, fyrrver-
andi safnvarðar Skógasafns. Um er
að ræða blágrýtisstein sem búið er
að höggva til og er hann talinn líkja
eftir skipi. Ekki hefur verið auðvelt
að höggva í steininn en hann vegur
mörg tonn. Þá er margt á huldu um
tilurð steinsins.
Bjarni Benediktsson, formaður
Sjálfstæðisflokksins, hafnaði í efsta
sæti í prófkjöri flokksins í Suðvest-
urkjördæmi. Þingmennirnir Jón
Gunnarsson, Bryndís Haralds-
dóttir og Óli Björn Kárason röð-
uðust í næstu sæti. Arnar þór Jóns-
son héraðsdómari varð fimmti.
Síðasta þingi kjörtímabilsins lauk
um liðna helgi. Ræðukóngur varð
Birgir Þórarinsson, Miðflokki,
heildarræðutími hans var einn dag-
ur, þrjár klukkustundir, 20 mínútur
og sex sekúndur. Alls tók Birgir 324
sinnum til máls.
Áfram var bólusett í gríð og erg í
Laugardalshöllinni og Ragnheiður
Ósk Erlendsdóttir, framkvæmda-
stjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslu
höfuðborgarsvæðisins, hafði orð á
því að töluvert meira væri um yfirlið
hjá yngri kynslóðinni en þeirri eldri.
Sjaldséður fugl, klifurskríkja, skaut
upp kollinum á Snæfellsnesi. Þetta
er aðeins í fjórða sinn sem sú ágæta
tegund heiðrar okkur með nærveru
sinni. Eins gott að Snæfellingar læsi
ketti sína nú inni.
Karlmaður á þrítugsaldri varð fyrir
stunguárás í Hafnarstræti í Reykja-
vík aðfaranótt sunnudags.
Elsti Íslendingurinn, Dóra Ólafs-
dóttir úr Eyjafirði, er komin á topp
tíu yfir elsta fólk á Norðurlöndum.
Hún er 108 ára og 348 eða 349 daga
gömul, eftir því hvort þú ert að lesa
þetta blað á laugardegi eða sunnu-
degi.
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn var
haldinn hátíðlegur á mánudag. Mikil
þörf er á að fjölga blóðgjöfum, að
sögn kunnugra.
Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, 18 ára
kylfingur úr GR, braut blað í ís-
lenskri golfsögu um helgina þegar
hún komst alla leið í úrslit Opna
breska áhugamannamótsins, fyrst
Íslendinga.
. . .
Landsvirkjun og hafnaryfirvöld í
Rotterdam hafa lokið við forskoðun
varðandi möguleika á að flytja út
grænt vetni frá Íslandi. Lands-
virkjun segir tæknina vera fyrir
hendi.
Hannes Hilmarsson fjárfestir hef-
ur greitt metverð fyrir þakíbúð í
Skuggahverfinu, 365 milljónir
króna. Íbúðin er á tveimur hæðum
og með henni fylgja rúmgóðar svalir
og þakgarður.
Fannir vetrarins ná enn upp á miðja
veggi skálans í Hrafntinnuskeri
sem er við Laugaveginn svonefnda.
Gunnar Birgisson, verkfræðingur,
fyrrverandi alþingismaður og bæj-
arstjóri í Kópavogi og Fjallabyggð,
er látinn, 73 ára að aldri.
Á þriðjudag gengu í gildi nýjar regl-
ur um takmarkanir á samkomum
innanlands. Reglurnar eru í sam-
ræmi við minnisblað sóttvarna-
læknis frá 10. júní og kveða á um
rýmkun almennra fjöldatakmarkana
úr 150 í 300 manns.
Kortavelta erlendra ferðamanna
hérlendis var 95% hærri í maí síðast-
liðnum en í maí í fyrra.
. . .
Flest bendir til þess að ráðlagður
heildarafli í þorski verði á næstu ár-
um í lægri kantinum. Ráðgjöf Haf-
rannsóknastofnunar fyrir þorsk
vegna fiskveiðiársins 2021/2022
lækkaði um 13% frá síðustu ráðgjöf
en hefði lækkað um 27% ef ekki væri
fyrir jöfnunarákvæði í aflareglu.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, er að
læknisráði komin í tímabundið veik-
indaleyfi til 28. júní.
Bæjarstjórn Hornafjarðar hefur
samþykkt að jökultunga eða tota
sem myndast hefur út frá Svínafells-
jökli í Öræfum fái örnefnið Dyr-
hamarsjökull og vísað því til stað-
festingar mennta- og
menningarmálaráðherra.
Gras hefur sprottið illa á Suður-
landi vegna kulda og þurrka í vor og
almennt kaldari tíðar að undanförnu
en venjulegt er. Matthías Ragn-
arsson, bóndi á Guðnastöðum í
Austur-Landeyjum, hóf þó slátt í
vikunni. Sló montblettinn, eins og
hann tekur sjálfur til orða. Það er
fjögurra hektara tún heima við
bæjarhús.
Breski auðmaðurinn Sir Jim Rat-
cliffe mun persónulega fjármagna
byggingu fjögurra nýrra veiðihúsa á
Norðausturlandi á næstu miss-
erum. Fjárfestingin nemur minnst
fjórum milljörðum króna.
Þegar nokkrir dagar voru liðnir frá
því fyrstu kórónuveirusmitin á
Landakoti, greindust í október síð-
astliðnum varð „upplausnar-
ástand“ á spítalanum. Þetta kemur
fram í niðurstöðum rannsóknar
embættis landlæknis á hópsýkingu
sem kom upp á spítalanum. Hóp-
smitið er sagt alvarlegasta atvik
sem upp hefur komið í sögu heil-
brigðisþjónustu hérlendis. Spít-
alinn er í meginefnum sammála
niðurstöðunni.
Á þriðja tug kvartana og ábendinga
vegna breytinga á fyrirkomulagi
leghálsskimana hafa borist embætti
umboðsmanns Alþingis.
Fyrsta skóflustungan var tekin að
1.1000 fermetra viðbyggingu
flugstöðvarinnar á Akureyrar-
flugvelli.
Kærunefnd útboðsmála hefur ógilt
samning Reykjavíkurborgar við
Orku náttúrunnar (ON) vegna
hleðslustöðva. Því er ON óheimilt að
selja orku á 200 stöðvum.
Sjálfsmynd, 34. hljóðversplata
Bubba Morthens, er komin út.
Eiður Smári Guðjóhnsen, aðstoð-
arlandsliðsþjálfari karla í knatt-
spyrnu, er kominn í tímabundið leyfi
frá störfum, en mun snúa aftur með
landsliðinu í verkefnum haustsins.
. . .
Eimskip hefur undirgengist sátt við
Samkeppniseftirlitið og greiðir 1,5
milljarða króna í stjórnvaldssekt
vegna alvarlegs brots á samkeppnis-
lögum.
Ekkert hefur miðað í kjaradeilu sjó-
manna, að Guðmundar Helga Þór-
arinssonar, formanns VM.
Bygging hátæknisorporkustöðvar
í Helguvík er meðal verkefna sem
kynnt voru á ráðstefnunni „Sjálfbær
framtíð Suðurnesja“.
Nærri 60% barna á Vestfjörðum í 8.
til 10. bekk sofa í sjö klukkustundir
eða minna á hverri nóttu. Þetta kom
fram í kynningu embættis lands-
læknis á lýðheilsuvísum fyrir árið
2021. Marktækur munur er á svefni
ungmenna á Vestfjörðum sam-
anborið við landið allt þar sem um
45% sofa í sjö klukkustundir eða
minna.
Ekki hefur hærra hlutfall íbúða á
höfuðborgarsvæðinu selst yfir
ásettu verði frá upphafi mælinga.
Þetta kemur fram í mánaðarskýrslu
hagdeildar Húsnæðis- og mann-
virkjastofnunar fyrir júní.
Aðeins verður hægt að fá fjölnota
poka í Vínbúðunum frá mánaða-
mótum.
. . .
Samtök ferðaþjónustunnar vona
að sóttkví við komuna til landsins
verði afnumin fljótlega.
Bjarni Benediktsson, fjármála- og
efnahagsráðherra, segir nýafstaðið
hlutafjárútboð Íslandsbanka hafa
heppnast einkar vel og að mikið
ánægjuefni sé að sjá áhuga bæði al-
mennra og erlendra fjárfesta á ís-
lenskum banka. Stjórnarandstaðan
er ekki eins hrifin.
Ólöf Nordal myndlistarmaður var
útnefnd borgarlistamaður Reykja-
víkur 2021.
Mannréttindadómstóll Evrópu
hefur vísað frá kæru Ólafs Ólafs-
sonar vegna skýrslu rannsóknar-
nefndar Alþingis um aðkomu
Hauck og Aufhauser að einkavæð-
ingu Búnaðarbankans.
Söguleg eftirspurn er eftir veislu-
búnaði á landinu.
Smávægileg jarðskjálftahrina
mældist við Högnhöfða suður af
Langjökli. Ekki var um stóra jarð-
skjálfta að ræða og því ekki talið að
hætta stafaði af þeim að svo stöddu.
Maður lést í fjórhjólaslysi á Mýrum
í Borgarfirði.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráð-
herra velti því upp í ávarpi á hátíð-
arathöfn á Austurvelli á 17. júní
hvort heimsfaraldur kórónuveir-
unnar hefði gert Íslendinga að meiri
þjóð en þeir hafa lengi verið.
Anna Þóra Sæþórsdóttir hefur
verið kjörin forseti Ferðafélags Ís-
lands, fyrst kvenna.
Loksins eru hlýindi í kortunum.
Talaði í meira
en sólarhring
Unga kynslóðin gerði sér glaðan dag vítt og breitt um landið á þjóðhátíðardaginn, þrátt fyrir fjöldatakmarkanir.
Morgunblaðið/Jón Helgi Pálmason
12.06.-18.06.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Alþingi er komið í sumrafrí. Framundan eru kosningar undir lok september.
Morgunblaðið/Eggert
Verið velkomin
í sjónmælingu
Hamraborg 10, Kópavogi, sími 554 3200
Opið: Virka daga 9.30–18, laugardaga 11-14