Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Qupperneq 14

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Qupperneq 14
VIÐTAL 14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021 Enginn er óhultur Nokkuð hefur verið um frásagnir af nauðung- arvinnu á svæðinu. „Eitt vitnið talaði um verk- smiðju þar sem fólk vann fyrir launum sem voru ekki næg til að mæta matarkostnaði,“ segir Audrey. „Kínverska ríkið segir búðirnar vera settar á fót til að sporna við fátækt. En fólk sem fer í þessar búðir er meðal annars efnað fólk og menntafólk; fólk sem glímir ekki við fátækt og þarf ekki á hjálp að halda.“ Í fjölmiðlum hefur verið nokkuð um frá- sagnir af fólki sem flytur til annarra landa frá Xinjiang og hafi verið svipt frelsi sínu þegar það snýr aftur til síns heima af einhverjum ástæðum. „Ung kona sem bar vitni fyrir dóm- stólnum hafði flutt til Egyptalands, gifst og eignast þríbura. Hún sneri aftur heim til að fá hjálp við að ala upp börnin hjá foreldrum sín- um. Hún var handtekin og börnin hennar tekin frá henni,“ segir Audrey og á þar við frásögn Mihrigul Tursun. Hún var handtekin og tveggja mánaða gamlir þríburar hennar teknir frá henni. Eftir tvo mánuði fékk hún að hitta börnin því eitt þeirra var veikt. Það dó stuttu seinna. Þá segir Tursun að börn hennar hafi öll verið skorin upp á hálsi og gefinn matur í gegnum slöngu. Hún náði að lokum að koma sér til Bandaríkjanna með börnin tvö eftir- lifandi. Fjöldanauðganir „Við höfum heyrt sögur af fóstureyðingum sem framkvæmdar eru gegn vilja konunnar sem á í hlut,“ segir Audrey. Hún nefnir hjúkr- unarfræðing sem vann þar sem þessar fóstur- eyðingar eru gerðar. Þær séu oft gerðar mjög seint á meðgöngunni. „Hún segist hafa heyrt börn gráta inni í herberginu þar sem fóstur- eyðingin er framkvæmd en aldrei séð barn koma þaðan lifandi út.“ Af vitnisburðinum fyrir dómstólnum að dæma verður földi Úígúra í Xinjiang, bæði kvenna og karla, fyrir kynferðislegu ofbeldi. „Við höfum heyrt að stelpur séu teknar í burt á nóttunni og skilað í miklu uppnámi. Við höfum einnig heyrt frá konum sem sjálfum hefur ver- ið nauðgað. Þá höfum við heyrt af kynferð- islegu ofbeldi gagnvart karlkyns föngum,“ segir Audrey. „Það var mat eins sérfræðingsins sem kom fyrir dómstólinn að stundaðar væru fjölda- nauðganir í búðunum. Konur sem hafa verið í búðunum tala um nauðganir sem daglegt brauð.“ Audrey segir stóru spurninguna vera hverj- ir taki ákvarðanirnar sem liggja að baki ástandinu. „Hve hátt fer þetta? Sum vitni hafa sagt að ákvarðanir varðandi það sem er í gangi hljóti að vera teknar á hæstu valdastigum rík- isins. Þetta sé ekki eitthvað sem geti farið fram einungis á lægri stigunum,“ segir Aud- rey. „Ég er dáin“ Um 12 milljónir Úígúra búa í Xinjiang og hef- ur kínverska ríkið sagt að 1,3 milljónir hafi far- ið í gegnum búðir þess. „Aðrir vilja meina að allt að þrjár milljónir fólks séu í þeim eða hafi farið þar í gegn,“ segir Audrey. Audrey segir erfitt að meta hve margir bíði bana í búðum Kínverja en segir þetta: „Vitni segja að fólk hverfi á kvöldin án þess að koma aftur. Aðstæðurnar sem við höfum heyrt af eru sláandi. Nánast enginn matur, engin klósett- aðstaða og bara fata úti í horni í herbergj- unum.“ Fjöldi þeirra sem deyja í búðunum er þó að- eins ein birtingarmynd þess hryllings sem sagður er fara þar fram. „Pyntingarnar sem fólk segist verða fyrir. Fólk segir: „Ég er dá- in/n. Líkami minn er hér en ég er dáin/n eftir hafa farið í gegnum þetta.““ Þá nefnir Audrey að fjöldi fanga hafi sagt frá því að hafa verið skornir upp gegn vilja sín- um og líffæri þeirra notuð í líffæragjöf. „Við vitum að í Kína eru sjúkrahús sem sérhæfa sig í líffæragjöf og í Kína er ferðamannaiðnaður sem byggir á líffæragjöf.“ Byggja búðir neðanjarðar Hvert er markmið kínverskra stjórnvalda með þessum aðgerðum? „Í vitnisburði sérfræðinga er talað um menningarlegt þjóðarmorð og þvingaða aðlög- un að menningu Kínverja. Við höfum ekki plagg sem segir hvað vakir fyrir stjórnvöldum í Kína. En við höfum loftmyndir sem sýna fjölgun búða, sumir segja jafnvel að verið sé að byggja búðir neðanjarðar, og það er hægt að rýna í þessi sönnunargögn.“ Hver hafa svör kínverskra stjórnvalda verið við öllum þessum ásökunum? „Ég held að stjórnvöld hafi ekki svarað þessum ásökunum með mótrökum heldur ann- aðhvort hunsað þær eða neitað án þess að setja fram sönnunargögn sem styðja mál þeirra.“ Þá hafa stjórnvöld réttlætt tilvist búðanna með orðræðu um hryðjuverkaógn á svæðinu. „Þau segja þetta fólk vera hryðjuverkamenn og fólk er sett í búðirnar fyrir meint ráða- brugg um hryðjuverk. Jafnvel fyrir að hafa rangar stjórnmálaskoðanir, eins og lög- reglumaðurinn sem bar vitni hjá okkur sagði,“ segir Audrey. Í höndum annarra að túlka niðurstöðuna Alþýðuveldið Kína er aðili að Sáttmálanum um þjóðarmorð en með því skilyrði að ekki er hægt að draga ríkið fyrir Alþjóðadómstólinn í Haag. Því er brugðið á það ráð að setja á fót óháðan dómstól, sem vegna heimsfaraldursins er aðeins skipaður Bretum, til að kveða upp úr um hvort kínverska ríkið hafi gerst sekt um þjóðarmorð. Það er svo í höndum ríkja, al- þjóðastofnana, einkaaðila og einstaklinga til hvaða aðgerða verður gripið í kjölfar dóms dómstólsins sem kveðinn verður upp í desem- ber að öllum líkindum. Audrey segir muninn á skýrslu Amnesty International um glæpi gegn Úígúrum og öðrum minnihlutahópum múslima og dómn- um vera þann að öllum sé velkomið að hlýða á vitnisburð þeirra sem koma fyrir dóminn en ekki endilega þeirra sem skýrslan er byggð á. „Þá er Amnesty þekkt sem stofnun sem berst fyrir mannréttindum en dómstóllinn er samsettur af hlutlausum aðilum,“ bætir hún við. „Niðurstöðunni sem dómstóllinn kemst að er ekki hægt að líkja við það þegar eitt ríki sakar annað um þjóðarmorð. Við höfum boðið öllum að koma og bera vitni fyrir dóm- stólnum, þar á meðal kínverska ríkinu sem hefur neitað að gera svo,“ segir Audrey. „Niðurstaðan verður sameiginleg meðal meðlima dómstólsins og hafin yfir skyn- samlegan vafa.“ ’ Hún segist hafa heyrt börn gráta inni í her- berginu þar sem fóstur- eyðingin er framkvæmd en aldrei séð barn koma þaðan lifandi út. Úígúrar samankomnir fyrir ut- an Id Kah-moskuna í Kashgar í Xinjiang-héraði þar sem miklar hömlur eru á trúariðkun. AFP Úígúrar biðjast fyrir í mosku í Hotan í Xinji- ang-héraði í Kína. AFP

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.