Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021
KYNIN
Í byrjun er vert að nefna að konurog karlar eru miklu meira lík enólík. Þetta á við um alla menn-
ingarheima. Þrátt fyrir það getur
munurinn haft áhrif á mikilvægar
ákvarðanir og útkomu í lífinu eins og
t.d. starfsvettvang og líðan.
Stærsti munurinn á konum og
körlum er að karlar eru ekki eins
samvinnuþýðir (meira keppnisskap,
harðari, efagjarnari, minni sam-
hygð, gagnrýnin hugsun, þrjóskir og
óháðir). Þessir eiginleikar skýra að
einhverju leyti að hlutfallið milli
karla og kvenna í ofbeldishneigð og
andfélagslegri hegðun er 15 á móti 1.
Karlmenn bera ábyrgð á 89% af
morðum og 99% af öllum kynferð-
isafbrotum. Karlar eru 75% allra
sem eru með ADHD og 80% af ein-
hverfum eru karlkyns.
Konur eru hærri í neikvæðum til-
finningum og skora hærra á per-
sónuleikanum taugaveiklun. Þær
upplifa meiri kvíða, tilfinningalegan
sársauka, pirring, sorg, vonbrigði og
sjálfsmiðaðar efasemdir og þetta eru
allt þættir sem gætu skýrt út af
hverju konur eru tvisvar sinnum lík-
legri en karlmenn til að upplifa
þunglyndi. Þær eru líka 75% líklegri
til að vera með anorexíu eða búlimíu.
Það er mikilvægt að nefna að
munurinn á milli kynjanna finnst oft
í öfgunum. Það er ekki meðal-
aggressífur/minna samvinnuþýður
karlmaður sem er í fangelsi. Ef þú
myndir draga karlmann og kven-
mann tilviljunarkennt úr samfélag-
inu og giska á að konan væri
aggressífari og minna samvinnuþýð
myndir þú hafa rétt fyrir þér í um
40% tilvika. En ef þú labbaðir inn í
herbergi með 100 aggressífustu ein-
staklingum í heimi væri nánast hver
einasti einstaklingur karlmaður.
Þannig að þó að konur og karlar séu
frekar lík en ólík getur munurinn
skipt máli.
Einn helsti sálfræðilegi munur á
körlum og konum er að karlar hafa
meiri áhuga á hlutum og konur meiri
áhuga á fólki. Þessi munur sést um
leið og barn kemur í heiminn. Ný-
fæddar stúlkur hafa tilhneigingu til
að horfa meira í andlit á fólki á
fyrsta degi lífsins en nýfæddir strák-
ar horfa meira á síma. Í bernsku,
strax við þriggja til átta mánaða ald-
ur, hafa stúlkur tilhneigingu til að
velja sér það að leika með dúkkur en
strákar velja sér bolta og bíla. Að
sama skapi sýndi rannsókn að 5-6
ára stelpur hafi tilhneigingu til að
teikna manneskjur, blóm og fiðrildi í
sterkum litum en strákar hafa til-
hneigingu til að velja að teikna hluti
eins og vopn, ferðatæki og teikna
með dimmari litum.
Þú hugsar eflaust að samfélags-
gerðin og menningin sé eina ástæð-
an fyrir þessum mun á áhuga en
rannsóknir benda á að svo virðist
ekki vera. Ef þú gefur öpum mögu-
leikann á að leika sér með bíla, bolta
eða dúkkur, þá velja kvenkyns apar
miklu frekar að leika sér með dúkku
en karlkyns apar velja að leika sér
með bíla eða bolta.
Bestu skýringar sem við höfum
fyrir muninum á milli kynjanna er
menning og líffræði. Þegar þú
minnkar áhrif menningar (með jafn-
réttissamfélögum), þá fáum við enn
skýrari mynd á áhrif líffræðinnar.
Fjöldi rannsókna sýnir að því jafn-
réttissinnaðara land, því meiri mun-
ur er á milli karla og kvenna í skap-
gerð og áhuga. Þetta hefur verið
rannsakað í þaula með meta-
analýsum, sem eru rannsóknir sem
taka saman rannsóknir og sjá heilt
yfir hvað rannsóknir á því sviði gefa
til kynna. Ástæðan fyrir að við erum
að benda á þessar rannsóknir er að
því jafnréttissinnaðra sem sam-
félagið er, því minni munur ætti að
vera á milli skapgerðar og áhuga
kvenna og karla en rannsóknir sýna
þveröfug áhrif.
Af hverju?
Öll persónuleg þróun á sér stað í
samspili milli gena, taugakerfis, at-
ferlis og umhverfis (líkamlegt og fé-
lagslegt). Rannsóknir sýna að testó-
sterón virðist skipta lykilmáli um
hvort einstaklingur upplifir sig sem
karlmaður eða kvenmaður. Heilinn
þróast í átt að karlkyni vegna áhrifa
testósteróns á þróun taugafrumna
eða í átt að kvenkyni vegna þess að
testósterón er ekki til staðar. Munur
í heilasvæðum karla og kvenna í
samspili við magn kynhormóna og
þeirra viðtaka í þróun og á fullorð-
insárum er sterklega tengt við mun
kynjanna á hegðun og andlegra
kvilla.
Rannsóknir sýna að tveir þættir
hafa meiri áhrif á karlmenn en kon-
ur. Það er virkni dópamíns og te-
stósteróns.
Dópamín: Það er meiri virkni af
taugaboðefninu dópamíni hjá mönn-
um. Það tengist fleiri þáttum eins og
sterkum áhuga eða ástríðu sem er
lykill að námi, árangri og vellíðan.
Dópamín veitir sterka ánægju-
tilfinningu þegar verðlaunum og
árangri er náð. Því er dópamín mót-
andi þáttur gagnvart ástríðumynd-
un.
Rannsóknir okkar hafa sýnt að
ástríðu megi líkja við stefnu örv-
arinnar á móti sviði/þema/færni þar
sem áhugi liggur. Menn hafa hærra
skor á ástríðuskala en konur. Menn
hafa einnig sterkara samband milli
ástríðu og þrautseigju en konur.
Konur hafa hærra skor á grósku-
hugarfari og þrautseigju og einnig
sterkara samband milli gróskuhug-
arfars og þrautseigju en menn.
Þrautseigja tengist sterkt sam-
viskusemi og sjálfsstjórn. Líkamleg
hreyfing eykur dópamín, það gerir
einning sterk ástríða. Þess vegna
ætti bæði hreyfing og þemu sem
kveikja áhuga að vera lyklar allt lífið.
Testósterón: Fræðimennirnir
Geschwind og Galaburda sýndu að
testósterónhormón, sem drengir
hafa að meðaltali 10 sinnum meira
af en stúlkur, getur haft áhrif á
þróun heilastarfsemi þeirra í fóst-
urlífinu. Þetta gerir drengi að
ýmsu leyti viðkvæmari en stúlkur.
Þetta er talin ein af meginskýr-
ingum þess að drengir eiga oftar í
erfiðleikum með málþróun, hrey-
fiþróun og lestur, það að drengir
greinast oftar með einhverfu og
ADHD. Aukið testósterón getur
þýtt meiri þörf fyrir áhættutöku og
hreyfingu. Styttri skóladagur og
styttri tímar, sem sagt kerfisbreyt-
ingar, er gífurlega mikilvægt til að
taka tillit til testósteróns. Það má
einnig segja að við ættum kannski
að endurskoða þá stefnu að láta
börn byrja í skóla sjö ára í stað sex
ára. Sem sagt fylgja í fótspor
Finna, sem eru meðal fremstu ríkja
heims hvað viðkemur árangri nem-
enda í PISA.
Karlar og konur eru lík en þau eru
líka ólík og sá munur getur skipt
máli, sérstaklega í öfgunum. Fleiri
glæpamenn verða karlar, fleiri verk-
fræðingar karlmenn, fleiri konur
greinast með þunglyndi og kvíða og
fleiri hjúkrunarfræðingar verða
kvenmenn. Það eru engar sannanir
sem benda á að samfélagsgerðin og
menningin hafi veruleg áhrif á kyn
og kynhegðun. Líffræðin virðist
skýra að hluta til muninn á milli
kynjanna.
Hermundur er prófessor við mennta-
vísindasvið Háskóla Íslands og Norsk-
atækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi,
Bergsveinn er fyrirlesari með MSc-gráðu í
jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði.
Eru karlar og konur ólík?
Vísindi og samfélag
Hermundur Sigmundsson hs@nu.is
Bergsveinn Ólafsson
Kynin eru um margt
lík en um leið ólík.
AFP
’
Einn helsti sál-
fræðilegi munur á
körlum og konum er að
karlar hafa meiri áhuga á
hlutum og konur meiri
áhuga á fólki. Þessi mun-
ur sést um leið og barn
kemur í heiminn.
síðde
gisþát
turin
n
Logi b
ergma
nn og
siggi g
unnar
s
Alla v
irka d
aga fr
á 16 -
18