Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Qupperneq 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Qupperneq 20
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021 KYNIN Í byrjun er vert að nefna að konurog karlar eru miklu meira lík enólík. Þetta á við um alla menn- ingarheima. Þrátt fyrir það getur munurinn haft áhrif á mikilvægar ákvarðanir og útkomu í lífinu eins og t.d. starfsvettvang og líðan. Stærsti munurinn á konum og körlum er að karlar eru ekki eins samvinnuþýðir (meira keppnisskap, harðari, efagjarnari, minni sam- hygð, gagnrýnin hugsun, þrjóskir og óháðir). Þessir eiginleikar skýra að einhverju leyti að hlutfallið milli karla og kvenna í ofbeldishneigð og andfélagslegri hegðun er 15 á móti 1. Karlmenn bera ábyrgð á 89% af morðum og 99% af öllum kynferð- isafbrotum. Karlar eru 75% allra sem eru með ADHD og 80% af ein- hverfum eru karlkyns. Konur eru hærri í neikvæðum til- finningum og skora hærra á per- sónuleikanum taugaveiklun. Þær upplifa meiri kvíða, tilfinningalegan sársauka, pirring, sorg, vonbrigði og sjálfsmiðaðar efasemdir og þetta eru allt þættir sem gætu skýrt út af hverju konur eru tvisvar sinnum lík- legri en karlmenn til að upplifa þunglyndi. Þær eru líka 75% líklegri til að vera með anorexíu eða búlimíu. Það er mikilvægt að nefna að munurinn á milli kynjanna finnst oft í öfgunum. Það er ekki meðal- aggressífur/minna samvinnuþýður karlmaður sem er í fangelsi. Ef þú myndir draga karlmann og kven- mann tilviljunarkennt úr samfélag- inu og giska á að konan væri aggressífari og minna samvinnuþýð myndir þú hafa rétt fyrir þér í um 40% tilvika. En ef þú labbaðir inn í herbergi með 100 aggressífustu ein- staklingum í heimi væri nánast hver einasti einstaklingur karlmaður. Þannig að þó að konur og karlar séu frekar lík en ólík getur munurinn skipt máli. Einn helsti sálfræðilegi munur á körlum og konum er að karlar hafa meiri áhuga á hlutum og konur meiri áhuga á fólki. Þessi munur sést um leið og barn kemur í heiminn. Ný- fæddar stúlkur hafa tilhneigingu til að horfa meira í andlit á fólki á fyrsta degi lífsins en nýfæddir strák- ar horfa meira á síma. Í bernsku, strax við þriggja til átta mánaða ald- ur, hafa stúlkur tilhneigingu til að velja sér það að leika með dúkkur en strákar velja sér bolta og bíla. Að sama skapi sýndi rannsókn að 5-6 ára stelpur hafi tilhneigingu til að teikna manneskjur, blóm og fiðrildi í sterkum litum en strákar hafa til- hneigingu til að velja að teikna hluti eins og vopn, ferðatæki og teikna með dimmari litum. Þú hugsar eflaust að samfélags- gerðin og menningin sé eina ástæð- an fyrir þessum mun á áhuga en rannsóknir benda á að svo virðist ekki vera. Ef þú gefur öpum mögu- leikann á að leika sér með bíla, bolta eða dúkkur, þá velja kvenkyns apar miklu frekar að leika sér með dúkku en karlkyns apar velja að leika sér með bíla eða bolta. Bestu skýringar sem við höfum fyrir muninum á milli kynjanna er menning og líffræði. Þegar þú minnkar áhrif menningar (með jafn- réttissamfélögum), þá fáum við enn skýrari mynd á áhrif líffræðinnar. Fjöldi rannsókna sýnir að því jafn- réttissinnaðara land, því meiri mun- ur er á milli karla og kvenna í skap- gerð og áhuga. Þetta hefur verið rannsakað í þaula með meta- analýsum, sem eru rannsóknir sem taka saman rannsóknir og sjá heilt yfir hvað rannsóknir á því sviði gefa til kynna. Ástæðan fyrir að við erum að benda á þessar rannsóknir er að því jafnréttissinnaðra sem sam- félagið er, því minni munur ætti að vera á milli skapgerðar og áhuga kvenna og karla en rannsóknir sýna þveröfug áhrif. Af hverju? Öll persónuleg þróun á sér stað í samspili milli gena, taugakerfis, at- ferlis og umhverfis (líkamlegt og fé- lagslegt). Rannsóknir sýna að testó- sterón virðist skipta lykilmáli um hvort einstaklingur upplifir sig sem karlmaður eða kvenmaður. Heilinn þróast í átt að karlkyni vegna áhrifa testósteróns á þróun taugafrumna eða í átt að kvenkyni vegna þess að testósterón er ekki til staðar. Munur í heilasvæðum karla og kvenna í samspili við magn kynhormóna og þeirra viðtaka í þróun og á fullorð- insárum er sterklega tengt við mun kynjanna á hegðun og andlegra kvilla. Rannsóknir sýna að tveir þættir hafa meiri áhrif á karlmenn en kon- ur. Það er virkni dópamíns og te- stósteróns. Dópamín: Það er meiri virkni af taugaboðefninu dópamíni hjá mönn- um. Það tengist fleiri þáttum eins og sterkum áhuga eða ástríðu sem er lykill að námi, árangri og vellíðan. Dópamín veitir sterka ánægju- tilfinningu þegar verðlaunum og árangri er náð. Því er dópamín mót- andi þáttur gagnvart ástríðumynd- un. Rannsóknir okkar hafa sýnt að ástríðu megi líkja við stefnu örv- arinnar á móti sviði/þema/færni þar sem áhugi liggur. Menn hafa hærra skor á ástríðuskala en konur. Menn hafa einnig sterkara samband milli ástríðu og þrautseigju en konur. Konur hafa hærra skor á grósku- hugarfari og þrautseigju og einnig sterkara samband milli gróskuhug- arfars og þrautseigju en menn. Þrautseigja tengist sterkt sam- viskusemi og sjálfsstjórn. Líkamleg hreyfing eykur dópamín, það gerir einning sterk ástríða. Þess vegna ætti bæði hreyfing og þemu sem kveikja áhuga að vera lyklar allt lífið. Testósterón: Fræðimennirnir Geschwind og Galaburda sýndu að testósterónhormón, sem drengir hafa að meðaltali 10 sinnum meira af en stúlkur, getur haft áhrif á þróun heilastarfsemi þeirra í fóst- urlífinu. Þetta gerir drengi að ýmsu leyti viðkvæmari en stúlkur. Þetta er talin ein af meginskýr- ingum þess að drengir eiga oftar í erfiðleikum með málþróun, hrey- fiþróun og lestur, það að drengir greinast oftar með einhverfu og ADHD. Aukið testósterón getur þýtt meiri þörf fyrir áhættutöku og hreyfingu. Styttri skóladagur og styttri tímar, sem sagt kerfisbreyt- ingar, er gífurlega mikilvægt til að taka tillit til testósteróns. Það má einnig segja að við ættum kannski að endurskoða þá stefnu að láta börn byrja í skóla sjö ára í stað sex ára. Sem sagt fylgja í fótspor Finna, sem eru meðal fremstu ríkja heims hvað viðkemur árangri nem- enda í PISA. Karlar og konur eru lík en þau eru líka ólík og sá munur getur skipt máli, sérstaklega í öfgunum. Fleiri glæpamenn verða karlar, fleiri verk- fræðingar karlmenn, fleiri konur greinast með þunglyndi og kvíða og fleiri hjúkrunarfræðingar verða kvenmenn. Það eru engar sannanir sem benda á að samfélagsgerðin og menningin hafi veruleg áhrif á kyn og kynhegðun. Líffræðin virðist skýra að hluta til muninn á milli kynjanna. Hermundur er prófessor við mennta- vísindasvið Háskóla Íslands og Norsk- atækni- og vísindaháskólann í Þrándheimi, Bergsveinn er fyrirlesari með MSc-gráðu í jákvæðri sálfræði og þjálfunarsálfræði. Eru karlar og konur ólík? Vísindi og samfélag Hermundur Sigmundsson hs@nu.is Bergsveinn Ólafsson Kynin eru um margt lík en um leið ólík. AFP ’ Einn helsti sál- fræðilegi munur á körlum og konum er að karlar hafa meiri áhuga á hlutum og konur meiri áhuga á fólki. Þessi mun- ur sést um leið og barn kemur í heiminn. síðde gisþát turin n Logi b ergma nn og siggi g unnar s Alla v irka d aga fr á 16 - 18

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.