Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Side 8
KNATTSPYRNA
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021
M
illjónir manna um heim allan
fylgdust agndofa með
dramatískum myndum í
beinni útsendingu sjón-
varps frá Parken á laugar-
daginn var og margfalt fleiri sáu eða lásu um
málið í fréttum enda fóru tíðindin eins og eldur
í sinu um heiminn. Til allrar hamingju tókst
viðbragðsaðilum á vettvangi að koma Christi-
an Eriksen, 29 ára leikmanni danska landsliðs-
ins, merkilega hratt til lífs aftur og er líðan
hans eftir atvikum góð. Sannarlega lán í óláni
að þetta skyldi gerast að viðstöddu slíku fjöl-
menni og fagfólki en ekki meðan hann var einn
heima.
Annar stálheppinn knattspyrnumaður er
Fabrice Muamba sem fór í hjartastopp í leik
með Bolton Wanderers gegn Tottenham Hot-
spur í ensku bikarkeppninni árið 2012, aðeins
23 ára að aldri. Eins og með Eriksen þá fylgd-
ust margar milljónir manna með því gerast í
beinni sjónvarpsútsendingu. Mun lengri tíma
tók að koma Muamba aftur til lífs en hjarta
hans sló ekki í 78 mínútur. Læknar beggja liða
og hjartasérfræðingur úr röðum áhorfenda
hlúðu heillengi að Muamba á vellinum áður en
hann var fluttur á sjúkrahús. Hjartastuðtæki
var margbeitt, bæði á vellinum og í sjúkrabíln-
um. Á endanum tókst mönnum að fá hjartað til
að slá og var leikmanninum haldið sofandi í
öndunarvél næstu daga. Tveimur dögum síðar
var hjartað farið að slá eðlilega án aðstoðar og
Muamba ekki lengur í lífshættu enda þótt
ástand hans væri áfram alvarlegt. Fjórum
dögum eftir áfallið staðfesti læknir að með-
ferðin gengi vonum framar og Muamba ætti
góða möguleika á að lifa eðlilegu lífi. Mánuði
síðar var hann útskrifaður af spítalanum með
bjargráð en að öðru leyti heilbrigður. Muamba
lagði þó skóna á hilluna að læknisráði um
haustið en hefur verið viðloðandi knattspyrnu
síðan; nú sem unglingaþjálfari hjá Rochdale.
Arfgengur sjúkdómur
Ekki hafa allir verið svona heppnir. Þekktasta
dauðsfallið sem borið hefur að með þessum
hætti er án efa Marc-Vivien Foé, 28 ára gamall
landsliðsmaður Kamerún, sem hneig niður
seint í leik gegn Kólumbíu í undanúrslitum
álfukeppninnar árið 2003 í Lyon í Frakklandi.
Eins og með Eriksen og Muamba urðu fjöl-
margir vitni að því atviki í beinni útsendingu
sjónvarps. Mönnum var strax ljóst að alvara
væri á ferðum og þeir sem sáu gleyma aldrei
líflausum líkama Foés liggjandi á vellinum. Til
að byrja með var hlúð að honum á staðnum en
þegar það bar ekki árangur var leikmaðurinn
borinn af velli á börum, þar sem menn freist-
uðu þess að hnoða hann og blása í hann lífi í 45
mínútur. Foé var úrskurðaður látinn skömmu
eftir komuna á sjúkrahús. Tvær krufningar
þurfti til að finna dánarorsökina sem var arf-
gengur hjartasjúkdómur, hjartavöðvakvilli,
sem veldur því að hjartað stækkar og eykur
líkurnar á skyndidauða við mikla áreynslu.
Síðar kom fram að Foé hafði verið slappur
fyrir leikinn og þjálfari Kamerúns, Winfried
Schäfer, hafði áform um að taka hann af velli
nokkrum mínútum áður en hann hneig niður
vegna þess að honum fannst hann orðinn
þreyttur. Foé mátti ekki heyra á það minnst;
hann ætlaði sér að ljúka leiknum.
Þrátt fyrir andmæli leikmanna var ákveðið
að úrslitaleikurinn milli Kamerúns og Frakk-
lands skyldi fara fram og ógleymanlegt er hóf-
stillt fagn Thierrys Henrys, sem gerði gull-
mark fyrir Frakka í framlengingu, þegar hann
drúpti höfði og benti til himins. Fyrirliðar lið-
anna, Marcel Desailly og Rigobert Song, tóku
svo í sameiningu á móti bikarnum. Samstaða,
eining og virðing, eins og hún gerist best í
knattspyrnu.
Foé var leikmaður í háum gæðaflokki og lék
með Lens og Lyon í Frakklandi og West Ham
United og Manchester City á Englandi.
121 tilvik á öldinni
Andlát Foés í miðjum kappleik er alls ekkert
einsdæmi; bara á þessu ári eru tvö skráð tilvik,
samkvæmt Wikipediu, þar sem atvinnuknatt-
spyrnumaður hefur látist af völdum hjarta-
stopps, Brasilíumaður og Króati, báðir 24 ára.
Þá lést 33 ára Jamaíkumaður í apríl eftir að
hafa liðið út af í leik en dánarorsök liggur ekki
fyrir. Fjórða dauðsfallið á árinu er 23 ára
Egypti sem gleypti tungu sína í leik.
Þrjú dauðsföll voru skráð í fyrra og jafn-
mörg í hittifyrra, fjögur 2018 og sjö 2017, mest
AFP
Hvorki fyrstur né seinastur
Heimsbyggðin var slegin óhug um liðna helgi vegna atviksins þegar Christian Eriksen, landsliðsmaður Dana
í knattspyrnu, fór í hjartastopp í miðjum landsleik gegn Finnum í Kaupmannahöfn á EM. Hér er fráleitt um
einangrað atvik að ræða í sparkheimum. Fjölmargir hafa fallið frá með áþekkum hætti.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Áhyggjufullir leikmenn danska
landsliðsins slá skjaldborg um
Christian Eriksen á Parken
um síðustu helgi.
Idriss Kameni og Rigobert Song hlýða á þjóð-
söng Kamerún fyrir úrslitaleikinn í álfukeppn-
inni 2003 með flennistóra mynd af nýlátnum
Marc-Vivien Foé fyrir framan sig.
AFP
Spánverjinn Antonio Puerta studdur af velli eft-
ir að hafa hnigið niður í leik með Sevilla gegn
Getafe árið 2007. Hann fór aftur í hjartastopp í
klefanum og skömmu síðar var hann allur.
AFP