Morgunblaðið - Sunnudagur - 20.06.2021, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 20.6. 2021
08.00 Uppskriftir fyrir svanga
birni
08.02 Laugardagsklúbburinn
08.05 Rita og krókódíll
08.10 Regnbogasögur
08.12 Ég er fiskur
08.14 Örstutt ævintýri
08.15 Veira vertu blessuð
08.17 Hæna Væna
08.22 Blíða og Blær
08.45 Monsurnar
08.55 Víkingurinn Viggó
09.05 Adda klóka
09.30 It’s Pony
09.50 K3
10.05 Mörgæsirnar frá Mada-
gaskar
10.25 Lukku láki
10.50 Ævintýri Tinna
11.10 Angry Birds Stella
11.20 Top 20 Funniest
12.00 Nágrannar
13.30 Friends
13.50 The Office
14.15 Supernanny
15.00 Impractical Jokers
15.20 Börn þjóða
15.55 Flipping Exes
16.40 First Dates
17.35 60 Minutes
18.26 Veður
18.30 Fréttir Stöðvar 2
18.40 Sportpakkinn
18.50 Ísland í dag
19.05 GYM
19.30 Race Across the World
20.35 Mr. Mayor
21.00 Keeping Faith
21.55 Brave New World
22.35 The Bold Type
23.25 Queen Sugar
ÚTVARP OG SJÓNVARP
Sjónvarp Símans
RÚV
Rás 1 92,4 . 93,5
Omega
N4
Stöð 2
Hringbraut
20.00 Sjá Suðurland – Þ. 1
20.30 Netnótan – Þ. 2
Endurt. allan sólarhr.
16.00 Trúarlíf
17.00 Times Square Church
18.00 Tónlist
18.30 Ísrael í dag
19.30 Jesús Kristur er svarið
20.00 Blönduð dagskrá
22.30 Gegnumbrot
20.00 Höldum áfram
20.30 Mannamál (e)
21.00 Suðurnesja-magasín
Víkurfrétta (e)
21.30 Höldum áfram (e)
Endurt. allan sólarhr.
11.15 The Block
12.20 Bachelor in Paradise
13.45 The Bachelorette
15.45 For the People
16.50 The King of Queens
17.10 Everybody Loves
Raymond
17.35 Ný sýn
18.05 Með Loga
19.05 The Block
20.10 Gudjohnsen
20.50 This Is Us
21.40 Black Monday
22.15 Gangs of London
23.15 Penny Dreadful: City of
Angels
00.15 Love Island
01.10 Ray Donovan
02.00 Love Life
02.30 MacGyver
03.15 Seal Team
06.55 Bæn og orð dagsins.
07.00 Fréttir.
07.03 Hringsól.
08.00 Morgunfréttir.
08.05 Á tónsviðinu.
09.00 Fréttir.
09.03 Svona er þetta.
10.00 Fréttir.
10.05 Veðurfregnir.
10.15 Bók vikunnar.
11.00 Guðsþjónusta í Árbæj-
arkirkju.
12.00 Hádegisútvarp.
12.20 Hádegisfréttir.
13.00 Sögur af landi.
14.00 Víðsjá.
15.00 Lestin.
16.00 Síðdegisfréttir.
16.05 Úr tónlistarlífinu:
Kammersveit Reykja-
víkur.
17.25 Orð af orði.
18.00 Kvöldfréttir.
18.10 Fólkið í garðinum.
18.50 Veðurfregnir.
18.53 Dánarfregnir.
19.00 Óskastundin.
19.40 Tímar í vindi.
20.35 Gestaboð.
21.30 Úr gullkistunni.
22.00 Fréttir.
22.05 Veðurfregnir.
22.10 Á reki með KK.
23.10 Frjálsar hendur.
24.00 Fréttir.
00.05 Næturútvarp Rásar 1.
07.15 KrakkaRÚV
07.16 Refurinn Pablo
07.21 Hið mikla Bé
07.44 Poppý kisukló
07.54 Kúlugúbbarnir
08.17 Klingjur
08.28 Kátur
08.30 Hvolpasveitin
08.53 Hrúturinn Hreinn
09.00 Úmísúmí
09.23 Robbi og Skrímsli
09.45 Eldhugar – Giorgina
Reid – vitavörður
09.49 Sjóræningjarnir í næsta
húsi
10.00 Unga Ísland
10.30 Skólahreysti
11.30 Tónaflóð um landið
12.55 Martin Clunes: Eyjar
Ameríku
13.40 Af fingrum fram
14.30 Erilsömustu borgir
heims
15.20 Popp- og rokksaga Ís-
lands
16.20 Eivör Pálsdóttir í Hörpu
17.35 Mömmusoð
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 KrakkaRÚV
18.01 Stundin okkar
18.25 Menningin – samantekt
19.00 Fréttir
19.25 Íþróttir
19.35 Veður
19.45 Sumarlandinn
20.20 Vigdís Finnbogadóttir
20.50 Við
21.50 Fúsi
23.25 Ófærð
9 til 13 100% helgi með Stefáni Valmundar Stefán
spilar góða tónlist og fer yfir valið efni úr morgun- og
síðdegisþáttum K100.
13 til 16 100% helgi með Þór Bæring Þór Bæring
og besta tónlistin á sunnudegi. Þór er góður að þefa
uppi það sem fjölskyldan getur gert sér til skemmt-
unar á sunnudögum.
16 til 18 Tónlistinn Topp40 Dj Dóra Júlía fer yfir 40
vinsælustu lög landsins á eina opinbera vinsældalista
Íslands sem er unninn í samstarfi við félag hljóm-
plötuframleiðenda.
Morgunþátt-
urinn Ísland
vaknar var í
beinni útsend-
ingu frá Egils-
stöðum og
ræddi þar við
Sigrúnu Jó-
hönnu Þráins-
dóttur, hót-
elstjóra á Hótel Valaskjálf. Sigrún rekur einnig Hótel
Hallormsstað ásamt veitingastöðunum Glóð og Di-
nernum ásamt föður sínum og bróður. Það er því nóg
að gera og segir Sigrún fjölskylduna ekki leggja það í
vana sinn að fara auðveldu eða ódýru leiðina í neinu.
„Við yfirleitt bara förum ekki þá leið að fara ódýru
leiðina. Við förum frekar „all inn“ og það var bara allt
lagt í þetta. Allar innréttingar og allt,“ segir Sigrún en
viðtalið má nálgast í heild sinni á K100.is.
Fara ekki ódýru leiðina
N
afnkunnir og vinsælir
drykkir, sykraðir sem
áfengir, hafa átt betri vik-
ur, en mikla athygli vakti þegar
knattspyrnustjarnan Cristiano Ro-
naldo frá Portúgal fjarlægði tvær
kókflöskur af borðinu fyrir framan
sig fyrir blaðamannafund á Evrópu-
meistaramótinu (EM). Daginn eftir
gerði Frakkinn Paul Pogba slíkt hið
sama, nema hvað flaskan sem hann
vildi ómögulega láta sjá sig með var
merkt bjórframleiðandanum Heine-
ken. Pogba er múslimi og lætur
áfengi aldrei inn fyrir sínar varir;
gilti þá einu að um óáfengan bjór var
að ræða.
„Vatn,“ sagði Ronaldo hátt og
snjallt á portúgölsku og lyfti plast-
flösku með slíkum vökva á loft. Auk
þess að sparka tuðru er hann svokall-
aður áhrifavaldur með 500 milljón
fylgjendur og samkvæmt fyrstu
fréttum voru hlutabréf í Coca Cola
skyndilega í frjálsu falli. Tapið sagt
nema um fjórum milljörðum banda-
ríkjadala, sem samsvarar um 484
milljörðum króna.
Mögulega var það þó ofmat. Þann-
ig greinir Gregori Volokhine, forseti
Meeschaert-fjármálaþjónustunnar í
New York, frá því í samtali við AFP-
fréttaveituna að hlutabréf í Coca
Cola hafi aðeins farið niður um 0,25%
þennan dag sem hafi verið í samræmi
við þróun Dow Jones-vísitölunnar.
Bakslagið sé því nær 500 milljónum
dala en ekki fjórum milljörðum og
alls ekki víst að nein ábyrgð liggi hjá
Ronaldo. „Ef ekki væri fyrir þennan
gjörning þá hefði ekki nokkur maður
veitt þessu athygli,“ segir Volokhine
en markaðsvirði Coca Cola nemur
325 milljörðum dala. Ekki reyna að
biðja mig, málabrautarstúdentinn, að
færa þá upphæð yfir í krónur!
Það breytir ekki því að margir
hafa borið lof á gjörðir leikmann-
anna; enda hafi þær snúist um heil-
brigði en ekki peninga. Það hverfist
víst ekki allt um þá í þessum heimi,
ótrúlegt en satt. Ronaldo er forfallið
heilsufrík og fyrirmynd milljóna ung-
menna um allan heim, þannig að ekki
kemur á óvart að lagðar séu við
hlustir þegar hann tekur til máls.
Eins og svo margir frægir íþrótta-
menn hefur Ronaldo auglýst allt
mögulegt og ómögulegt gegnum tíð-
ina, til að hafa fyrir salti í grautinn,
þar á meðal Coca Cola fyrir hálfum
öðrum áratug. Kominn á efri ár í
sportinu, hann er orðinn 36 ára, hef-
ur hann hins vegar öðlast aukið frelsi
til að tala frá eigin brjósti.
Í fullum rétti
„Svo virðist sem íþróttamenn séu að
endurheimta sína eigin rödd,“ segir
Simon Chadwick, prófessor við Em-
lyon-viðskiptaskólann í Frakkandi,
við AFP. „Þeir áskilja sér nú í aukn-
um mæli rétt til að tala og haga sér í
samræmi við sín eigin gildi, hvað
þeim finnst og eru að hugsa.“
Að dómi Chadwicks var stór-
stjarnan í reynd að lýsa yfir sjálf-
stæði sínu á téðum blaðamannafundi.
Hann túlkar gjörninginn með þess-
um orðum: „Sem einstaklingur er ég
í fullum rétti til að halda áfram með
líf mitt, óháð öllu því sem ég hef gert
áður. Mér er heimilt að skipta um
skoðun, breyta mínum gildum og
leggjast gegn vörum sem passa ekki
við það sem ég er og stend fyrir.“
Chadwick segir langdrægni sam-
félagsmiðla gefa slíkum andmælum
enn meira vægi. „Hvort sem það er í
net- eða raunheimum þá færirðu
bara það sem er fyrir þér eða hentar
þér ekki í burtu.“
Hvorki Coca-Cola né Heineken
vildu tjá sig við AFP en mótsstjóri
EM, Martin Kallen, sagði: „Tekj-
urnar frá styrktaraðilum eru mikil-
vægar fyrir mótið og evrópska knatt-
spyrnu yfirhöfuð.“ orri@mbl.is
Cristiano Ronaldo með
vatnsflöskuna góðu.
AFP
ÍÞRÓTTAMENN AÐ ENDURHEIMTA SJÁLFSTÆÐI SITT?
Sjálfur Ronaldo
kók af skarið
AFP
Hingað og ekki
lengra, gæti Paul
Pogba verið að segja.
Litirnir eru fjölmargir
og hægt að fá
sérblandaða hjá okkur.
HÁGÆÐA
VIÐARVÖRN FRÁ
SLIPPFÉLAGINU
Opið:
8-18 virka daga
10-14 laugardaga
Sími 588 8000
slippfelagid.is