Skólablaðið - 01.11.1973, Side 4
Þá er Skólablaðið enn lagt af
stað út í lífsbaráttuna. Rit-
dómurinn, sem birtist í þessu blaði,
er ótvíræð sönnun þess, að höfundur
hefur lesið blaðið, og lagt sig mjög
fram um að vera trúverðugur og sjálf-
um sér samkvæmur í gagnrýni sinni.
Tel ég honum vel hafa tekizt.
Síðasti ritdómur þótti mér hálfgerð
hrákasmíð, með fullri virðingu fyrir
höfundunum. En nú kemur glöggt fram,
að höfundur tekur verkefni sitt al-
varlega, og hann rækir hlutverk rit-
dómarans hið bezta. Mættu ýmsir
draga nokkurn lærdóm þar af.
Hlutur skólaskáldanna þótti mér
lítill og léttvægur í síðasta
fblaði. Einhver krefeti virðist nú
hlaupinn í andagiftina. Ég vonast
til þess, að jafna megi nokkuð það
hlutfall, sem verið hefur milli
skáldskapar og stjórnmálalegra skrifa,
því oft vilja stjórnmálaskrifin verða
nokkuð þreytandi. Það er ekki hvað
sízt vegna þess, að svo virðist, sem
vinstri menn telji sig einir þess
umkomna að flytja fagnaðarerindið.
Þykir mér lítið leggjast fyrir þá
hægri menn ef þeir láta deigann síga.
Seint er fullreynt.
Á sjöttabekkjarkvöldinu hvísl-
aði vinur minn að mér þessari
vísu, sem hann sagði vera um mesta
kvennagull skólans:
Þó þig vanti vit og þrek
veiztu vel af hinu,
þú ert einslags apótek
ætlað kvenfólkinu.
Ekki vill neinn nafngreina þennan
gæðamann, en heyrzt hefur, að eitt-
hvað hafi hann verið viðriðinn
kosningar í stjórn Framtíðarinnar.
Ekki veit ég hversu mörgum er
kunnugt um útkomu ljóðabókar eftir
Böðvar Guðmundsson: BURTREIÐ ALEX-
ANDERS, sem út kom 1972.. Þar er
margt skemmtilegt að finna, sem vel
sýnir fjölhæfni Böðvars, enda ægir
hér ýmsu saman’ gamanljóðum, fjöl-
breytilegum líkingum og hatrömmum
ádeilulj óðum:
sameinuðu þjóðirnar veittu siðberanum
lúkasi elíasi 1000 000$ styrk
til að bæta siðferði mannkynsins
og hann hóf þegar störf og skrifaði
margar bækur um siðund og rétthygð
til að bæta siðferði mannkynsins
í réttu hlutfalli við 1000 000$ styrk
sem sameinuðu þjóðirnar veittu sið-
beranum
lúkasi elíasi þegar hann hóf störf
í réttu hlutfalli við siðund og rétt-
hygð
sín sjálfs mannkynsins alls og sam-
einuðu þjóðanna.
Þá er bráðskemmtilegt kvæði um
þann fræga feld, sem þorgeir brúkaði
þegar hann þurfti að hugsa hvað mest.
Þetta kvæði er með afbrigðum skemmti-
legt. Getur fyrst um upphaf feldsins:
Af Skjöldu var hann skorinn
skammdegiskvöld í janúar.
Skjalda dó úr doða
daginn eftir að hún bar.
Hún var nár úr nautshúsi borin.
1 lífi og dauða ljúf hún var
og lék sér þar
sem gróa grös á vorin.
Þá er sagt frá því hversu menn
verkuðu feldinn og þá getið þess,
er Þorgeir keypti feldinn af
prangara einum af tilviljin,
rétt í þann mund er kristni var
upp tekin. Svo kom þar, að Þor-
geir þurfti að brúka feldinn:
Þorgeir feldinn þrífur
Þorgeir skríður undir hann.
Hugsar harðla kátur:
Hér skal koma yfir mann
úrskurður sem endanlega blívur.
Dægur tvö er sagt með sann
að svitinn rann
og böggluðu feldinn bífur.
VÖGGUKVÆÐI RÓTTÆKRAR MÓÐUR:
Enn syng ég gamalt stef við þinn sæng-
urstokk í kvöld
er sólin rennur langt að fjallabaki
um þá sem sitja sléttir og slóttugir
við völd
og sleppa aldrei neinu fantataki.
Morðingjar heimsins og myrkraverka-
her
munu reyna að draga úr þér kjarkinn
en gleymdu því samt aldrei að meira
en maklegt er
að á mörgum þeirra höggvist sundur
barkinn.
Þeir eiga glæstar hallir þeir eiga
lúxusbí1
þeir eiga meir en nóg til hnífs og
skeiðar
þeir kæfa okkur í táragasi og kalla
okkur skríl
þeir koma okkar vandræðum til leiðar.
Morðingjar heimsins og myrkravarka—
her
munu eflaust pína þig til dauða
en gleymdu því samt aldrei að meira
en maklegt er
að úr þeim mörgum vætli blóðið
rauða.
Svo segi ég að lokum fyrst sólin hni-
gin er
og svefnsins engill strýkur þér um
hvarma
að margan góðan drenginn þeir myrtu
þar og hér
og margur hlaut að dylja sína harma.
Morðingjar heimsins og myrkraverka-
her
myrða okkur líka einhvern veginn
en gleymdu því samt aldrei að meira
en maklegt er
að af mörgum þeirra væri skjátan
flegin.
Þessi brofcakenndu dæmi úr bók
Böðvars Guðmundssonar ættu að
færa heim sannin um það, að vissulega
er hér um að ræða athyglisverða og
skemmtilega lesningu. Vona ég svo að
einhver hafi gagn og gaman af.
Eitthvað er að losna um það and-
lega svefnþorn, sem stungið var
öllum nemendum skólans í fyrra og árið
þar áður. Má það gleggst merkja af
aukinni þátttöku í félagsstarfssemi-
nni. Vonandi verður samstarfið far-
sælt milli frammámanna og forsvars-
manna hinna einstöku deilda félaganna,
því svo virðist, sem þessi vetur muni
um margt verða prófsteinn á grundvoll
þeirrar umfangsmiklu félagsstarfssemi,
sem fram fer í skóla þessum. Skulum
við vona, að enn sem fyrr megi M.R.
gnæfa yfir aðra skóla með sínu blóm-
lega og fjölskrúðuga félagslífi.
MIKILL ER SKERFUR MÁLADEILDANNA TIL
SKÓLABLAÐSINS.
Reykjavík, 27. okt. '73
Haraldur G. Blöndal
6.-C.
L' IT10ibo e 9 1 ZlUtMi.
/ E & ÆTLAi *,€>
'<l SlíOi-A A(-|pJÍ©A-
wÉi»-8(t'|6í5l’sM'Al-A-
a f en.ru-
Aé PA R.A,'( o M-B-TU-
, >->»/
IKJ F06AR '£6
Mikið er skrai'að og skrifað um þessar
mundir.Meðan menn sleikja sólina fyrir
botni Miðjarðarhafs í blóði,sitjum við
fyrir framan imbakassann og hverfum
margar mílur i gegnum rökkrið.Sumir
hitta Nixon að máli, aðrir taka í hendina
á Guðna og nokkrir hugsa um Kalla Matt.
-En slikt gera ekki aðrir en djúpt hugs-
andi menn og séní, eins og Arni CTH.
En svo við tökum málin föstum tökum,þá
tökum við tökin á tökunum á málunum.
Bresnéf og Kekkonen hittast á trúarráð-
stefnu í Moskvu þessa dagana.Þar verður
persónu trú kynnt fyrir blaðamönnum. Má
þar nefna Elínu Pálmadóttur og Eddu
Andrésdóttur.Munu þær slðan drekka augn-
dropa.
Gulrót með gleraugu gerði sér að góðu
að vera brún.Stafsetningarverkefni
þykja erfið einkum og sér í lagi sams-
konar og þegar setan réði rikjum.Mál-
fundafélagið Framtíðin er 91 árs.
Til hamingju almáttki áss.Hornklofar
finnast í orðabókum og heita þá klof-
horn.Slík horn eru klofinn af klofum
þótt bratt sé og líta það margir horn-
auga.
Allir fallast á , að einhver tímann
tekur allt endi. Þannig er þá ekki
aðeins spursmál,heldur einnig knýjandi
spurning hvers vegna heimurinn brosir
aðeins fyrir konum, en lokar fagnandi
örmum sínum er karlpeningurinn nálgast
úr m'8 - e9.Nikkólina nautnatröll.
þETTA ERu.
SA
t»JÓ& í CWAd AP
STAdPi'. þctAR
(3Ú HBLou-ie.
H/ÍTÍÐ
PA6<- p.( 14.0107
þ'A M iwMiTix ÞESS
M6Ö ST oí-TÍ AT>
'ISLAUP ed
1.1 MUR-'1 6S6A/0-M
í.þ.SrARtTAR
'ISUA A/O v/io
HÚÐ aNWARR-A
þj'oBA AÐ BÆTTRl
AM lA/fiJH
Aí-LÍ A1AK/WQjWS-
PUBUSHED AS A PUBLIC SERVICE IN COOPERATION WITH THE NATIONAL SOCIAL WELFARE ASSEMBLY,
COORDINATING ORGANIZATION FOR NATIONAL HEALTH, WELFARE AND RECREATION AGENCIES OF THE U. S.
-c 190 BY NATIONAl PEPIUUICAI PU8LICATUJfJS i»C
Sumir segja að veturinn sé kominn en að
aðrir segj Gyðjur haustsins heilsa dögi-
unum. Kennarinn minn heilsaði mér ekki
í gær- ergo, veturinn kom í gær.
Eg ætlaði að leysa sparimerkin min út
á morgun.Eg týndi veskinu minu í gærkvöld
Eg safna frímerkjum og sel brjóstahaldara
Leikrit. Lífið stuttur leikþáttur
eftir E.Pá.
1. þáttur
-Mamma: Ast þú kökuna Pétur?
2. þáttur.
Pétur:Hvað er ást mamma?
ý.þáttur.
Mamma:Ert'að rífa kjaft?
Og hvað er lífið án okkar yndæla skóla.
Án guðna og óla jó.
Er það ekki eins og bill an bensíns
í Bandaríkjunum.
Jæja elsku líf nú kveð ég þig
En að síðustu ætla ég að senda línu til
stúlkunnar sem aldrei hefur tíma fyrir
smásamtal.
Þegar tárin falla
oní botn hugdjúpsins
bánka minningarnar
og ég lýk upp
dyrum
brosa þinna.
4.þáttur.
Pétur: Schlacthof 5
5-þáttur.
Mamma:Fyrirgefðu ég heyrði ekki hvað þú
sagðir, ég er með banana í eyrunum.
ENDIR.
Kalli Matt Kalli Matt
Karl V. Matthíasson Karl Valur.