Fiskifréttir - 02.11.1984, Side 2
2
föstudagur 2. nóvember
AHabrögdm
Frekar tregt
um land allt
Yesturland
Á Akranesi lönduðu þrír togarar
22. október. Haraldur Böðvarsson
landaði 166 tonnum eftir 9 daga og
var aflinn 46 tonn þorskur, 62 tonn
karfi, 8 tonn ýsa og 39 tonn ufsi.
Skipaskagi landaði 102 tonnum
einnig eftir 9 daga og var aflinn 13
tonn þorskur, 26 tonn ýsa og 45
tonn karfi. Þá landaði Krossvík
140 tonnum af blönduðum fiski
eftir 9-10 daga. Nokkuð góðurýsu
afli hefur verið hjá smábátum að
undanförnu og ennfremur hefur
afli síldarbáta af Skaganum verið
góður. Hins vegar hefur afli snur-
voðabáta verið tregur eða um 2-3
tonn á dag en mest 6 tonn af
rauðsprettu og sandkola.
Mjög lélegt fiskirí hefur verið
hjá dragnótabátum frá Ólafsvík
eða um 1-2 tonn á dag af kola.
Togarinn Jökull landaði í síðustu
viku 40 tonnum af blönduðum afla
eftir 6 daga á veiðum. Einn bátur
er byrjaður á netum en hefur
fengið lítinn sem engan afla. Ótíð
hefur verið hjá minni bátum í
Ólafsvík.
Trollbáturinn Farsæll landaði 8
tonnum í síðustu viku á Grundar-
firði. Þann 28. október landaði
togarinn Runólfur 140 tonnum af
blönduðum afla eftir viku á veið-
um.
Vestfirðir
Á Patreksfirði voru það nær ein-
göngu línubátar sem lönduðu í
síðustu viku. Þrymur sem er stór
línubátur var með um 7-8 tonn í
róðri. Þá var Vestri með um 9 tonn
í róðri og Brimnes með um 6 tonn.
Aflinn var stór og góður þorskur
en einnig nokkuð af ýsu og lúðu.
Tveir smábátar sem reru í síðustu
viku fengu lítinn afla eða 200-300
kg á dag.
Á Tálknafirði lönduðu tveir
línubátar í síðustu viku, María
Júlía og Geir. Voru þeir með um
7-8 tonn í róðri af ágætis þorski.
Togarinn Tálknfirðingur var vænt-
anlegur heim úr siglingu þegar
þetta var ritað.
Sölvi Bjarnason landaði þann
25. október á Bíldudal 65 tonnum
af karfa, þorski og ufsa eftir 6 daga
en togarinn fór beint á veiðar
þegar hann kom heim úr söluferð.
Nú er búið að frysta um 350 tonn
af smokkfiski á Bíldudal.
Á Þingeyri landaði togarinn
Sléttanes þann 21. október 77
tonnum eftir 6 daga og var aflinn
blandaður. Þá landaði hann aftur
þann 29. október 80 tonnum eftir
6 daga veiðiferð og skiptist aflinn
til helminga í þorsk og grálúðu.
Litlir línubátar hafa fengið ágætis
afla þegar gefið hefur eða uppí 2
tonn í róðri. Togarinn Framnes er
um þessar mundir á rækjuveiðum.
Á Flateyri landaði togarinn
Gyllir þann 22. október 61 tonni
eftir 5 daga og var helmingur
aflans þorskur. Þá landaði togar-
inn aftur þann 28. október 45
tonnum og var uppistaðan grá-
lúða. Línubáturinn Ásgeir Torfa-
son hefur verið með um 6-8 tonn
í róðri.
Á Suðureyri landaði Elín Þor-
bjarnardóttir þann 26. október um
70 tonnum af þorski og kola eftir
8-9 daga veiðiferð. Sæmilegur afli
hefur verið hjá smábátum á færi og
línu.
Á Bolungarvík lönduðu báðir
togararnir í síðustu viku. Dagrún
landaði þann24. októberllOtonn-
um af blöndðuum fiski eftir 8-9
daga veiðiferð. Heiðrún landaði
23. október 60 tonnum af blönduð-
um fiski. Línuafli hefur verið góð-
ur og hefur Jakob Valgeir, sem er
stór línubátur, fengið um 9-10
tonn í róðri og allt uppí 11.5 tonn.
Minni bátar, sem verið hafa á
færum, hafa fengið sæmilegan afla
í djúpinu og komist í 8-900 kg yfir
daginn. Talsvert er síðan hætt var
að taka á móti smokkfiski en alls
var tekið á móti 400 tonnum á
Bolungarvík. Rækjuveiðiskipið
Sólrún kom inn þann 27. október
með um 30 tonn sem fékkst á
Dhornbanka á 12-13 dögum.
Hjá Norðurtanganum á ísafirði
landaði Guðbjartur tvívegis í vik-
unni. Þann 23. október landaði
hann 66 tonnum og 28. október 30
tonnum. Aflinn var blandaður í
bæði skiptin. Afbragðsgóður afli
hefur verið hjá línubátum frá ísa-
firði og er það mál manna að það
sé fyrst og fremst að þakka góðri
beitu en hér er að sjálfsögðu átt
við smokkfisk. Hjá íshúsfélaginu
landaði Júlíus Geirmundsson þann
28. október 86 tonnum af mest-
megnis þorski. Guðbjörg er nú í
slipp í Þýskalandi eftir söluferð.
Á Hólmavík landaði Hólma-
drangur 126 tonnum af heilfrystum
karfa og grálúðu eftir 3 vikur á
veiðum. Aflaverðmæti var 5 millj.
Karfi var 68 tonn og grálúða 54
tonn. Rækjubátar eru nú nýbyrj-
aðir á rækjuveiðum.
Norðurland
Á Sauðárkróki landaði Hegranes
þann 28. október 120 tonnum af
ýsu og ufsa eftir 13 daga. Rækju-
veiði gengur ágætlega á Skagafirði,
en eins og víðast hvar mega bát-
arnir aðeins veiða ákveðinn
skammt.
Á Skagaströnd komu báðir tog-
ararnir inn þann 28. október vegna
slæms veðurs á miðunum. Arnar
landaði 60 tonnum af blönduðum
afla eftir 8 daga og Örvar landaði
70 tonnum eftir 13 daga. Afli
Örvars skiptist til helminga í flök
og heilfrystan fisk og var afla-
verðmætið u. þ. b. 3.6 miljónir.
Rækjubátar eru nú að hefja veið-
ar.
Á Siglufirði ver nánast ekkert
um að vera. Einn línubátur land-
aði þar 8-9 tonnum.
Togari þeirra Þórshafnarbúa var
á veiðum í síðustu viku. Þar fengu
2 litlir línubátar 2-4 tonn í róðri
þegar ógæftir hömluðu ekki veið-
um.
Á Húsavík landaði rækjutogar-
inn Júlíus Havsteen 25. október 10
tonnum af rækju og 1.7 tonnum af
þorski og grálúðu. Þrír minni bátar
voru hvor um sig með um 15 tonn
eftir vikuna eða um 3 tonn í róðri.
Sáralítill afli hefur verið hjá smá-
bátum. Á Grenivík landaði
Núpur, sem er stór línubátur, 61
tonni þann 24. oktober og var
aflinn mest þorskur. Afli hjá 5-6
minni bátum var 33 tonn eftir
vikuna sem verður að teljast mjög
gott.
Tveir togarar lönduðu á Akur-
eyri í síðustu viku. Svalbakur land-
aði 147 tonnum eftir 11 daga og
var aflinn blandaður. Heildarverð-
mæti aflans var um 1.5 millj. Þá
landaði Sléttbakur þann 26. okt-
óber 79 tonnum, einnig af
blönduðum fiski, eftir 8 daga og
var verðmæti aflans 816.000.
Vestmannaeyjar
Undanfarið hefur mikið af loðnu
borist hér á land, en alls eru komin
hingað 10.600 tonn og er loðnan
nú mjög góð til vinnslu.
Mikil áta hefur verið í síldinni
og er hún því lítt veiðanleg.
Tvílembingarnir Álsey og
Suðurey lönduðu 22 tonnum af
þorski í vikunni og Þórunn Sveins-
dóttir og Bylgja lönduðu 61 tonni
af þorski.
Veður hefur hamlað veiðum
togaranna. Sindri landaði 61 tonni
af karfa og ufsa hinn 22. október.
Breki landaði 157 tonnum af karfa
og ufsa hinn 24. október. Vest-
mannaey landaði 90 tonnum af
þorski 25. október og Smáey land-
aði 50 tonnum af þorski 27. okt-
óber.
Afli troll og trillubáta hefur
verið mjög tregur að undanförnu.
I.G.
Suðurnes
Góð síldveiði hefur verið hjá bát-
um sem leggja upp frá Grindavík
og því mikið um að vera í síldar-
söltuninni þar. Hjá línubátum hef-
ur afli verið fremur tregur eða
2.5-3 tonn í róðri en þó komust
einstaka bátar í 6 tonn í vikunni.
í Sandgerði lönduðu tveir troll-
bátar 26. október, Elliði og Jón
Gunnlaugsson. Elliði landaði 16
tonnum og Jón 22 tonnum. Uppi-
staðan í afla þeirra var þorskur.
Stóri línubáturinn, Víðir II, sem
rær með 90 bjóð hefur fengið uppí
9.5 tonn í róðri en minni bátar
hafa fengið mest 3 tonn. Þrír
togarar lönduðu í vikunni. Björg-
vin landaði 123 tonnum þann 25.
október og sama dag landaði
Sveinn Jónsson 101 tonni. Afli
þeirra beggja var karfi og ufsi sem
fékkst á 7 dögum. Þá landaði
Haukur 22. október 77 tonnum af
þorski, ýsu og kola eftir 10-12
daga.
í Keflavík landaði Bergvík 27.
október 152 tonnum af mestmegn-
is karfa eftir rúma viku á veiðum.
Reykjavík
Fremur fáir togarar lönduðu í
Reykjavík í síðustu viku enda
mjög margir í söluferð erlendis
eða í slipp. Hjá Bæjarútgerð
Reykjavíkur landaði Ottó N. Þor-
láksson 22. október 229 tonnum
eftir 8-9 daga. Aflinn var 150 tonn
karfi og 80 tonn ufsi. Þá landaði
Hjörleifur þann 25. október 109
tonnum eftir 8 daga. Þar af voru
71 tonn karfi, 17 tonn þorskur og
11 tonn ufsi.
Hjá ísbirninum landaði Ásgeir
23. október 145 tonnum eftir 13
Tilkynnmg
Frá Fiskveioasjóði íslands
Umsóknir um lán á árinu 1985 og endur-
nýjun eldri umsókna.
Um lánveitingar úr Fiskveiðasjóði Islands á árinu 1985 hefur
eftirfarandi verið ákveðið:
1. Vegna framkvæmda í fiskiðnaði
Engin lán verða veitt til byggingaframkvæmda nema hugsan-
leg viðbótarlán vegna bygginga, sem áður hafa verið veitt
lánsloforð til, eða um sé að ræða sérstakar aðstæður að mati
sjóðsstjómar.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins, þar með talið hagræðingarfé
hrekkur til, verður lánað til véla, tækja og breytinga, sem hafa
í för með sér bætt gæði og aukna framleiðni.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiða-
sjóðs liggur fyrir.
2. Vegna fiskiskipa.
Eftir því sem fjármagn sjóðsins hrekkur til verður lánað til
skipta á aflvél og til tækjakaupa og endurbóta, ef talið er nauð-
synlegt og hagkvæmt.
Framkvæmdir skulu ekki hafnar fyrr en lánsloforð Fiskveiða-
sjóðs liggur fyrir.
3. Endumýjun umsókna.
Allar umsóknir vegna óafgreiddra lána þarf að endumýja.
Gera þarf nákvæma grein fyrir hvemig þær framkvæmdir
standa sem lánsloforð hefur verið veitt til.
4. Umsóknarfrestur.
Umsóknarfrestur er til 15. desember 1984.
5. Almennt.
Umsóknum um lán skal skila á þar til gerðum eyðublöðum,
ásamt þeim gögnum og upplýsingum, sem þar er getið, að öðr-
um kosti verður umsókn ekki tekin til greina (eyðublöð fást á
skrifstofu Fiskveiðasjóðs Islands, Austurstræti 19, Reykjavík,
svo og í ýmsum bönkum og sparisjóðum utan Reykjavíkur).
Umsóknir er berast eftir tilskilinn umsóknarfrest verða ekki
teknar til greina við lánveitingar á árinu 1985 nema um sé að
ræða ófyrirséð óhöpp.
Reykjavík 16. október 1984.
Fiskveiðasjóður íslands.
daga og var langmestur hluti aflans
karfi eða 131 tonn. Tveir dragnóta
bátar lönduðu hjá ísbirninum í
vikunni. Aðalbjörg landaði 8 tonn-
um og Guðbjörg landaði 7
tonnum. Aflinn var ufsi.