Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 16

Morgunblaðið - 16.07.2021, Side 16
16 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 16. JÚLÍ 2021 Jóna og Gunnar kynntust í Sand- gerði. Nú voru þau ásamt vina- hjónum sínum, Beggu og Sigga, í ár- legri leikhúsferð, að sjá „Sölumaður deyr“ í Borgarleikhúsinu. Þessar leikhúsferðir byrjuðu 1970, þegar þau fóru saman í Iðnó að sjá „Þið munið hann Jörund“. Jóna og Begga unnu við snyrtingu og pökkun í frystihúsi Miðness, en Gunnar og Siggi voru hásetar á Elliða GK. Siggi innmúraður Sandgerðingur. Þær bjuggu í verbúðinni og Gunnar var líka með herbergi þar. Að venju voru þau mætt tveimur tímum fyrir sýningu á Kringlu- krána, til að borða saman, spjalla um gömlu tímana og hvað hefði á daga þeirra drifið frá því síðast. Gunnar er sá eini enn vinnandi, en hin komin í faðm lífeyrissjóða og Tryggingastofnunar með eftirlaun og ellilaunin. Jóna fór eins og henn- ar var von og vísa að tala um skerð- ingarnar á ellilífeyrinum. Begga og Siggi voru vel meðvituð um það ranglæti. „Ég segi nú stundum að þetta sé jafn heimskulegt og ef þeir hefðu ákveðið að lækka tímakaupið okkar á sínum tíma um 45% af því sem við fengum í nýtingar- og pökkunar- bónus í frystihúsinu.“ Beggu var heitt í hamsi. „Alþingismennirnir okkar eru skrýtin hjörð. Alveg eins og bónuskerfið hefði verið eyðilagt ef einhverjar svona kúnstir hefðu verið framkvæmdar, þá munu þess- ar skerðingar á ellilífeyrinum eyði- leggja eðlilegan framgang og traust almennings á lífeyrissjóðakerfinu. Það er engin leið að fólk sætti sig við svona misbeitingu og ranglæti til langframa. Þetta er ekkert annað en Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Alþingismennirnir okkar eru skrýtin hjörð Frá maí fram í nóv- ember 2020 létust 35 þúsund fleiri Banda- ríkjamenn á aldrinum 15-64 ára úr öðru en Covid en í meðalári. Svipuð leitni var víða um lönd. Andlátin eru talin tengjast frestun læknisþjónustu og geðheilbrigði. Engin slík greining hefur farið fram hér- lendis en upplýsingar um andlát má finna í tilraunatölfræði Hag- stofunnar. Andlát yngri en 55 ára eru mjög óvenjuleg. Frá lokum júní 2020 fram yfir fyrstu 9 vikur 2021 (8,5 mánuðir) hafa 33 fleiri látist á þessum aldri en meðaltal þeirra þriggja til fjögurra ára á undan sem tilraunatölfræðin nær til. Þar af urðu 26 umframandlát bara frá júnílokum fram í sept- ember (3 mánuðir), sem er 54% aukning og samsvarar einu viðbót- arandláti þriðja hvern dag. Með- alaldurinn var ekki nema 38 ár. Til samanburðar er meðalaldur þeirra 29 Íslendinga sem látist hafa úr Covid um 85 ár. Mælt í töpuðum lífárum er skaði þessara andláta sem mögulega má rekja til sótt- varnaaðgerða orðinn tífaldur á við skaða sjúkdómsins Covid-19. Lyfjaslysið Í september 2020 sagði sótt- varnalæknir að tryggja yrði að bóluefnin væru örugg og með góða virkni. Í lok árs varð Ísland samt fyrst þjóða til að bólusetja öll elli- heimilin, aðeins tveimur dögum eftir að bóluefnið kom til landsins. Engar mælingar voru þá til um virkni eða öryggi bóluefnanna fyr- ir svo hrumt fólk. 17 dögum síðar var búið að tilkynna sjö andlát tengd bólusetningunni sem er ein versta útkoma í heiminum. Í gögn- um sem keypt voru frá Hagstof- unni sést að andlátum eldri en 85 ára þessa 17 daga fjölgaði um 20% miðað við meðaltal síðustu fjög- urra áramóta á undan. Þetta eru 10,5 fleiri andlát en meðaltalið og 4 fleiri en mest hafði orðið fram að þessu. Asinn við þróun Covid- bóluefnanna olli því að stokkið var yfir mörg þróunarskref og próf- unum seinkað. Meðal þeirra voru dýraprófanir á eiturvirkni. Nú liggja niðurstöður þessara prófana fyrir og þær eru ekki uppörvandi. Tengisprotinn sem er í öllum bólu- efnunum er eitraður og veldur alls konar blóðrás- arkvillum (https:// tinyurl.com/fbj8cvkd) og skaða í heila tilrauna- dýranna (https:// europepmc.org/article/ ppr/ppr319676). Enn fremur sýndu dýra- prófanir á Pfizer- bóluefninu að nanó- agnir bóluefnisins dreifa sér um allan líkamann og safnast í háum styrk í milta, lif- ur, nýrnahettum og eggjastokkum (https:// tinyurl.com/n9wy2t8e). Eiturvirknin skýrir fjölda aukaverkana sem fylgja bóluefn- unum. Í dag hafa um 2.000 aukaverkanir verið tilkynntar og þar af 100 alvarlegar og 26 dauðsföll. Líklega er þetta veruleg vantalning því eftirfylgni skráninga vantar og miðað við ísr- aelska greiningu eru andlátin í dag orðin 45. Vandamálin vaxa 20. febrúar 2020 kom út skýrsla tveggja sænskra sérfræðinga sem fóru hörðum orðum um stöðu mála á bráðamóttöku Landspítalans. Á hverjum degi voru 30 sjúklingar látnir bíða í yfir 24 klst. áður en þeir voru fluttir til meðferð- ardeildar. Þetta þótti þeim stór- hættulegt skipulagsleysi sem tíðk- aðist ekki annars staðar. Lagt var til bann við að sjúklingar mættu bíða lengur en 6 klst. á bráðadeild- inni áður en leyst yrði úr þeirra málum. Nú einu og hálfu ári síðar hefur ekkert gerst og margt versn- að ef marka má neyðarkall þúsund lækna um ófremdarástandið á spít- alanum. Covid-aðgerðir hafa haft mikil áhrif á þetta ástand. Skaðinn vegna Covid-aðgerða innan spít- alans er því miklu margslungari en nokkurn órar fyrir og heilsu og lífi fjölda manns hefur verið fórnað með því að bregðast ekki við ráð- gjöfinni. Lækning sem er verri en sjúkdómurinn Eitt stærsta vandamál við beit- ingu sóttvarnaaðgerða er að skaði aðgerða er varla metinn. Slíkt mat er aðeins gert í gegnum gleraugu gerandans (sóttvarnayfirvalda) sem getur eftir á vinsað út óþægi- legar upplýsingar. Án eftirlits er engin ábyrgð og án ábyrgðar held- ur ekkert aftur af öfgum aðgerð- anna. Sjálfrannsóknir sóttvarna- yfirvalda eru því ógagnsæjar og þær litlu upplýsingar sem gefnar eru eru vandlega skammtaðar. Hundrað Eftir Jóhannes Loftsson » Skaði sótt- varnaað- gerða er marg- faldur á við skaða Covid-19. Jóhannes Loftsson Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is FC 7 Premium Skeifan 3 • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is • rafver@rafver.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.