Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 8

Morgunblaðið - 21.07.2021, Page 8
8 FRÉTTIR Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 ENGINN ÐBÆTTUR SYKUR ENGIN ROTVARNAREFNI 85% TÓMATPÚRRA VI Ýmsir flokkar segjast nú fyrir kosningar vilja kasta því sem vel hefur reynst og taka í staðinn upp eitthvað annað. Sjálf stjórn- arskráin er það sem sumir vilja setja á bálið og segja að í staðinn eigi að taka upp „nýju stjórnar- skrána“, en eins og öllum má nú vera kunnugt er hún ekki til og hefur aldrei verið. Hún er inn- antómt tal, í besta falli slagorð eða áróðursbragð. - - - Annað sem ein- hverjir flokkar vilja fórna í hömlu- lausum atkvæða- veiðum sínum er ís- lenska krónan, sem komið hefur þjóð- inni úr fátækt í fremstu röð lífs- gæða og hvað eftir annað rétt efna- haginn við þegar á hefur bjátað. - - - Viðreisn hefur þetta á stefnuskrá sinni enda hluti af því trúboði flokksins að þjóðin skuli ganga Brussel-valdinu á hönd. En það er eins með evruna og stjórnarskrána, byltingarframboðunum gengur illa að útfæra hugmyndir sínar. - - - Eitt grundvallaratriði við slíka breytingu er á hvaða gengi skuli skipt. Þessu hefur Viðreisn verið treg til að svara en einn fram- bjóðandi flokksins sagði þó í viðtali í Dagmálum að þetta mundi skýrast fyrir kosningar. Þegar varafor- maður flokksins var inntur eftir þessu, einnig í Dagmálum, var ljóst að honum þótti svar meðframbjóð- anda síns heldur spaugilegt og veitti ekki skýrt svar. - - - Nú er hugmyndin svo sem hlægi- leg, en þó er lágmarkskrafa að þeir sem leggja til að kasta krón- unni svari því skýrt á hvaða gengi það yrði gert. Sigmar Guðmundsson Skortur á svörum STAKSTEINAR Daði Már Kristófersson Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ Hraun frá gígnum í Geldingadölum hefur aðallega streymt austur í Meradali að undanförnu. Lítið hefur bæst við hraunið í Nátthaga. Þorvaldur Þórðarson, prófessor í eldfjallafræði við HÍ, telur að hraunflæðið sé svipað og verið hef- ur. Hraun streymi undir yfirborðinu þótt lítið virð- ist um að vera í sjálfum gígnum. Hann segir að takturinn í gosinu hafi haldist nokkuð jafn. Ummál gígsins er miklu meira nú en þegar strókavirknin var sem mest. Öflugir og breiðir strókar sjást nú þegar mest gengur á. Ferlið virðist ráðast mest af kvikustrókavirkninni. Þorvaldur segir að hún sé keyrð áfram af hluta gassins sem er í það stórum blöðrum eða bólum að þær rísa óháð öðru flæði. Stóru blöðrurnar fara hraðar upp en annað flæði og búa til þá hrynjandi og óróa sem mælist frá eldgosinu. Gasdreifingarspá Veðurstofu Íslands í gær gerði ráð fyrir SV-átt við gosstöðvarnar fram eftir degi í dag. Mengun frá eldgosinu mun því berast austur í Ölfus. Þegar líður á kvöldið snýst til sunn- anáttar. Lítilsháttar mengun getur borist yfir höf- uðborgarsvæðið upp úr kl. 22.00. gudni@mbl.is Hraunið streymir í Meradali - Lítið bætist við í Nátt- haga - Stórar gasbólur Morgunblaðið/Vefmyndavél mbl.is Eldgosið Hraunið hefur streymt á yfirborðinu og undir því. Mest virðist renna í Meradali. Þröstur Guðbjarts- son, leikari og leik- stjóri, lést á líknar- deild Landspítalans í Kópavogi 17. júlí síðastliðinn, 68 ára að aldri. Þröstur fæddist 23. október 1952 í Bolungarvík, sonur Kristínar Ólafs- dóttur og Guðbjarts Þóris Oddssonar. Þröstur kemur úr stórum systkinahópi en eftirlifandi al- systkini hans eru sjö og þrjú hálfsystkini. Hann ólst upp í Bolungarvík til níu ára aldurs, en þá flutti fjöl- skyldan til Reykjavíkur. Þröstur var svo í sveit í Máskeldu í Saurbæ í Dalasýslu til 15 ára ald- urs. Hann gekk í Barnaskóla Bol- ungarvíkur, var í Austurbæjar- skólanum, einn vetur í Reykja- skóla í Hrútafirði og lauk sveinsprófi í bakaraiðn frá Iðn- skólanum í Reykjavík árið 1973. Þröstur stundaði nám við Leik- listarskólann Sál í einn vetur og útskrifaðist síðan frá Leiklistar- skóla Íslands 1978. Hann vann sem leikari og leik- stjóri hjá Þjóðleik- húsinu, Borgar- leikhúsinu, Leikfélagi Akur- eyrar og fleiri leik- húsum og leik- hópum. Urðu hlutverkin um 50 talsins en einna þekktastur er hann fyrir kvikmynd Óskars Jónas- sonar, Sódóma Reykjavík, þar sem hann fór með hlutverk Ella. Þá lék hann í mynd Egils Eðvarðs- sonar, Agnesi. Einnig má nefna sjónvarpsþætti eins og Dagvaktina og Heimsendi. Þröstur var leikstjóri hjá mörg- um áhugaleikfélögum víða um land, fyrst á Hvammstanga árið 1980. Hann setti á svið um 80 leik- sýningar. Einnig leikstýrði hann hjá leikfélögum framhaldsskóla víða um land og kenndi á leiklist- arnámskeiðum. Þröstur var ókvæntur og barn- laus. Útför hans verður frá Hafn- arfjarðarkirkju mánudaginn 26. júlí klukkan 13. Andlát Þröstur Guðbjartsson, leikari og leikstjóri

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.