Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.07.2021, Blaðsíða 14
14 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021 ✝ Ingibjörg Beck fæddist 4. ágúst 1925 á Reyðarfirði. Hún lést á Hrafn- istu í Hafnarfirði 28. júní 2021. Foreldrar henn- ar voru Eiríkur Beck, fæddur á Sómastöðum í Reyðarfirði, 15.1. 1876, d. 9.7. 1950, og Margrét Guð- mundsdóttir Beck, fædd á Papós í Lóni, 25.1. 1891, d. 20.5. 1982. Ingibjörg átti einn albróður, Pál Þóri Beck, f. 1921, d. 2018, og einn bróður samfeðra, Emil Friðrik Beck, f. 1906, d. 1925. Ingibjörg giftist 4. ágúst 1951 Steingrími Bjarnasyni, f. 11.12. 1919, á Eskifirði, d. 30.8. 1997. Foreldrar hans voru Bjarni Jak- ob Marteinsson, f. 14.11. 1884 á Signý Pála, f. 7.4. 2002, og Hanna Steina Yin, f. 15.4. 2004. Ingibjörg ólst upp í Seylu á Reyðarfirði hjá foreldrum sín- um. Hún gekk í barnaskóla Reyðarfjarðar og fór síðan til Reykjavíkur í Ingimarsskólann í tvo vetur og stóð hugur hennar til frekara náms. Vegna að- stæðna sem hún réð ekki við þurfti hún að hverfa frá námi og fara heim til Reyðarfjarðar. Þar vann hún í Kaupfélagi Hér- aðsbúa, við fiskvinnslu og önnur verkamannastörf. Hún og Stein- grímur festu kaup á æskuheim- ili hennar þegar þau giftu sig og bjuggu þar fyrstu 15 árin er þau byggðu sér hús við Eyrarstíg á Reyðarfirði þar sem þau bjuggu meðan Steingrímur lifði. Eftir andlát hans flutti hún í Kópavog og bjó þar ein í sinni íbúð þar til í febrúar síðastliðinn er hún flutti á Hrafnistu í Hafnarfirði. Útför Ingibjargar fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag, 21. júlí 2021, klukkan 14. Fáskrúðsfirði, d. 3.2. 1982, og Gunn- hildur Steinsdóttir, f. 6.6. 1886 í Reyð- arfirði, d. 9.2. 1968. Ingibjörg og Steingrímur eign- uðust þrjá syni: 1) Eiríkur Beck, f. 30.12. 1951, d. 6.7. 2014. 2) Bjarni, f. 12.3. 1953, kvæntur Ellen Rósu Jones, f. 8.1. 1953. Sonur Bjarna af fyrra hjónabandi er Magnús Þór, f. 15.5. 1975, kvæntur Auði Dóru Franklín, f. 26.7. 1981. Dætur þeirra eru Rósa María, f. 27.5. 2007, Silvía Rán, f. 4.8. 2009 og Katla Rut, f. 8.9. 2016. 3) Páll Grétar, f. 25.1. 1965, kvæntur Kristjönu Erlen Jóhannsdóttur, f. 10.8. 1965. Þeirra börn eru: Uni Dagur Anand, f. 4.1. 2001, Stúlla. Ég trúði ekki að mamma kærastans væri kölluð þessu skrítna gælunafni fyrr en ég heyrði aldraða móður hennar ávarpa hana. Ég hélt að kærast- inn og vinurinn væru að gera at í mér. Þetta var fyrir næstum fjörutíu árum og ég, 16 ára stelpukrakkinn, í fyrstu heim- sókninni minni til Stúllu, Stein- gríms og Palla kærasta. Ég reyndi líka eins og ég gat að missa af hádegismatnum fyrsta daginn, gat ekki hugsað mér að fólkið fengi þá mynd af mér að ég væri einhver gikkur. Við áttum eftir að hlæja oft að þessum fyrstu kynnum. Stúlla og Stein- grímur umvöfðu mig með elsku sinni og hlýju allt frá fyrsta degi. Þau sáu fljótt að okkur Palla var alvara með sambandinu okkar og hjálpuðu okkur „krökkunum“ eins og þau gátu við að stíga fyrstu skrefin inn í fullorðinslífið. Það var alltaf gott að vera hjá Stúllu og Steingrími og upplifa þá ró og umhyggju sem ein- kenndi þau. Það var líka gaman að ferðast með þeim. Við fórum í tjaldferðalög á staði sem ég hafði ekki einu sinni heyrt um, einu sinni stýfðum við kalt lambalæri með smjöri úr hnefa inni í bíl af því það rigndi úti og í annað skipti vöknuðum í snjó. Þetta var allt saman ævintýri fyrir mér. Stúlla missti Steingrím og það var sárt. Hún kom suður tveimur árum seinna og skapaði sér fal- legt heimili í nýju íbúðinni sinni í Lækjasmáranum. Við höfðum áhyggjur af því hvernig líf henn- ar yrði án Steingríms, en hún kom okkur sífellt á óvart með sjálfstæði sínu og aðlögunar- hæfni. Sjálfri sér nóg og ekkert fyrir það að láta hafa fyrir sér stóð hún keik og átti gott tuttugu og eitt ár í Lækjasmára. Tuttugu árum eftir fyrstu kynni okkar Stúllu varð hún „amma Dúlla“ þegar við eignuð- umst börnin okkar þrjú með stuttu millibili. Þá má segja að ég hafi kynnst henni upp á nýtt. Hún var yndisleg amma sem þótti jafn vænt um börnin mín og mér sjálfri og fannst allt merkilegt sem þau sögðu og gerðu, alveg eins og mér. Þá sá ég betur hvað við höfðum líka sýn á lífið og ræddum þau mál oft og mikið. Hún var stolt af okkur fyrir að setja börnin okkar í forgang í líf- inu á meðan þau voru lítil og hún var afar stolt af þeim. Árlegu ferðalögin okkar austur á firðina okkar fallegu eru ógleymanlegar minningar. Mamma, amma, börnin þrjú, hýsi og hamstur, haldið upp á 85 ára afmæli í hýs- inu og þessum fína félagsskap með frosna súkkulaðiköku úr vegasjoppu með kaffinu. Stúlla Ingibjörg Beck ✝ Soffía G. Jó- hannsdóttir fæddist 28. júní 1931 á Siglufirði. Hún lést á Landspít- alanum við Hring- braut 11. júlí 2021. Foreldrar hennar voru Björn Jóhann Aðalbjörnsson, frá Máná í Úlfsdölum í Fljótum, f. 31.3. 1906, d. 15.5. 1966, og Petrína Friðbjörnsdóttir, frá Efstakoti á Dalvík, f. 28.7. 1895, d. 15.5. 1989. Systkini Soffíu voru: Friðbjörn Hólmfreð, f. 1928, d. 1935, Jón Heiðar, f. 1933, d. 1933, Anna Bára, f. 1935, d. 2014, og Hólmfríður Jóna, f. 1937. Soffía giftist Jóni G. Hjálm- arssyni 22.11. 1952. Jón var fædd- ur 30.12. 1922 í Vestmanna- eyjum, d. 31.8. 2014. Foreldrar hans voru Hjálmar Jónsson, f. 5.6. 1899 á Bólstað í Mýrdal, d. 25.7. 1968, og Guðbjörg Einara Helga- dóttir, f. 16.10. 1898 á Gili í Fljót- um í Skagafirði, d. 23.6. 1958. Börn þeirra Soffíu og Jóns eru: 1) mundur Hjálmar 2.2. Íris Ósk, f. 1986, maki er Ásgeir Elvar Guðnason, börn: Elva Karen, Arnar Bjarki og Heiðdís Erla 2.3. Einar Jón, f. 1997. 3) Hafdís, f. 25.8. 1962, maki er Georg Kulp. Börn : 3.1. Helena, f. 1983, maki er Andri H. Oddsson, börn: Emelía Mist, Viktoría Von, og Al- exander Máni. 3.2. Jóhann Páll, f. 1989, maki er Erla Rún Þórhild- ardóttir, börn: Marín Húna og Bjarmi Snær. 3.3. Georg Ingi, f. 1994. 4) Kristrún, f. 18.2. 1973, maki er Ólafur Fannar Vigfús- son, börn: 4.1. Vigfús Máni, f. 2003, og 4.2. Sindri Jón, f. 2007. Soffía fæddist og ólst upp á Siglufirði og stundaði þar ýmis störf. Hún útskrifaðist úr Gagn- fræðaskóla Siglufjarðar árið 1946, giftist 1952, Jóni Hjálm- arssyni (d. 2014) og hófu þau bú- skap á Siglufirði en fluttust til Reykjavíkur 1954. Soffía starf- aði m.a. hjá Þvottahúsinu Fönn, á saumastofu Kleppsspítalans en starfaði lengst af í mötuneyti á aðalskrifstofu Olíufélagsins hf., að Suðurlandsbraut 18. Sauma- skapur skipaði stóran sess hjá Soffíu og með vinnu saumaði hún alla tíð mikið fyrir fjölskyld- una, vini og ættingja. Útför Soffíu G. Jóhannsdóttur fer fram frá Áskirkju í dag, 21. júlí 2021, klukkan 13. Jóhann Pétur, f. 8.5. 1953, maki Kristín Salóme Steingríms- dóttir, börn: 1.1. Soffía Guðrún, f. 1973, maki er Hans Júlíus Þórðarson. Barn Soffíu frá fyrri sambúð er Snær Jó- hannsson. Börn Soffíu og Júlíusar: Salóme og Þóra Andrea. 1.2. Re- bekka, f. 1978, maki er Jóhannes Kolbeinsson, börn þeirra eru Bryndís, Jóhann Bergur og Ás- björn Daði. 1.3. Gunnar Örn, f. 1982, maki er Tinna Rós Finn- bogadóttir, Börn Gunnars frá fyrri sambúð; Júlía Kristey og Kristján Bjarki. Börn Gunnars og Tinnu eru Benedikt Helgi og Hörður Bogi. 1.4. Hörður Þór, f. 1991, maki: Ása Hulda Odds- dóttir, barn þeirra er Hugrún Lea. 2) Einar Hjálmar, f. 22.11. 1957, maki er Erla J. Erlings- dóttir, börn: 2.1. Jón Gunnsteinn, f. 1980, maki er Guðrún Jóns- dóttir, barn þeirra er Guð- Ástkær móðir mín, Soffía Guð- rún Jóhannsdóttir, hefur kvatt þessa jarðvist og víst er að henn- ar verður sárt saknað og hennar skarð vandfyllt. En góðar minn- ingar ylja. Mamma fæddist á Siglufirði og ólst þar upp, oft við kröpp kjör eins og títt var á þeim árum. Skólaganga mömmu var ekki löng en hugur hennar og langanir voru að komast í hús- mæðraskóla en fjárhagslegar að- stæður urðu þess valdandi að ekkert varð úr þeim draumum. Sem barn dvaldi móðir mín á sumrin hjá ættingjum sínum í Efstakoti við Dalvík og það kom alltaf sérstakt blik í auga þegar þessi tími var rifjaður upp, þær minningar skipuðu stóran sess í hjarta hennar. Foreldrar mínir hófu búskap á Siglufirði og eign- uðust þau þar sitt fyrst barn, þann sem þessar línur ritar. Þau fluttust til Reykjavíkur 1954, fyrst í Efstasund en síðar í Skipa- sund 35, þar sem þau bjuggu í 45 ár. Mörg dýrmæt minningabrot á ég í huga mínum þegar ég fór með mömmu norður til Siglu- fjarðar til ömmu og afa sem þar bjuggu þá enn. Mynd af mömmu að salta síld í tunnu á síldarplani greyptist í huga barnsins sem þótti þessi hamagangur á sílda- plönunum með ólíkindum. Það var mikið fjör á Siglufirði á þess- um árum. Handavinna var móður minni mjög hugleikin og eftir að hafa farið á sníðanámskeið varð ekki aftur snúið; saumaskapur og prjónverk lék í höndum hennar. Með fram annarri vinnu saumaði hún föt og prjónaði peysur á okk- ur systkinin, ættingja og vini. Það var mikil hátíð í bæ þegar græna Husqarna-saumavélin var keypt fyrir 60 árum og fylgdi hún mömmu til æviloka. Móðir mín var sterk persóna, félagslynd, glaðlynd og jákvæð með afbrigð- um. Aldrei sá ég hana skipta skapi. Hún hafði einstaka hæfi- leika til að laða að sér fólk og oft Soffía Guðrún Jóhannsdóttir Helga Skúladóttir ✝ Helga Skúladóttir fæddist í Urð- arteigi í Beru- firði 19. október 1944. Hún lést á Sjúkrahúsinu í Neskaupstað 2. júlí 2021. Útför Helgu fór fram í Norð- fjarðarkirkju 13. júlí 2021. Meira á: https://mbl.is/andlat Minningar á mbl.is ✝ Pétur Kristjánsson fæddist í Reykja- vík 29. desember 1944. Hann lést á Landspítalanum 4. júlí 2021. Foreldrar Pét- urs voru hjónin Kristján Þorsteins- son, f. 1. nóvember 1899, d. 9. ágúst 1993, og Kristín Bjarnadóttir, f. 8. mars 1902, d. 24. september 1969. Bræður Péturs voru Bjarni, f. 1. apríl 1932, d. 28. maí 1999, og Þorsteinn, f. 23. júní 1936, d. 3. júlí 2012. Eftirlifandi sambýliskona Péturs er Ásgerður Birna Björnsdóttir. Pétur giftist Ingibjörgu Fríðu Ragnarsdóttur hinn 11. mars 1967. Þau skildu. Börn Péturs og Ingibjargar eru: 1) Ragnar Már, f. 1968, maki An- nelise Larsen-Kaasgaard. Son- ur Ragnars er Sverrir Pétur, f. 1994. 2) Kristín, f. 1971, maki Finnbogi Karlsson. Börn þeirra eru, Auður f. 1993, sambýlis- maður Guðjón, sonur þeirra er Ragnar Bogi, Bjarki Freyr, f. 1999, og Jón Arn- ar, f. 2006. 3) Guð- rún, f. 1976, maki Baldur M. Einars- son. Börn þeirra eru Hekla Maren, f. 2001, Kristey Bríet, f. 2006, og Einar Bragi, f. 2009. Pétur var með meistarapróf bæði í útvarpsvirkjun og raf- eindavirkjun og starfaði stærstan hluta ævinnar hjá Reykjavíkurborg, þar sem hann sá lengst af um hljóðkerf- ismál hjá borginni. Einnig starfaði hann við jarð- skjálftamælingar, hjá Heyrnar- og talmeinastöð Íslands, á radí- óverkstæðum og þá vann hann sjálfstætt við uppsetningar á loftnetum ásamt viðgerðum á útvörpum og sjónvörpum. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Til besta míns Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín Birna. Það er alltaf sárt að missa einhvern sem maður elskar. Þótt ég hafi lengi vitað í hvað stefndi hjá föður mínum þá var það samt svo sárt og erfitt þeg- ar kallið kom. Pabbi var búinn að vera veikur lengi, var meðal annars í nýrnavél þrisvar sinn- um í viku í rúm 5 ár en slíkt tekur sinn toll. Krabbinn bank- aði líka upp á hjá honum síð- ustu ár en unnið var að því að halda meininu í skefjum. Þrátt fyrir veikindin var lífsvilji pabba mikill. Hann vildi vera hjá fólkinu sínu, sjá það þrosk- ast og dafna og taka þátt í lífi þeirra sem voru honum nán- astir. Hann barðist eins og hetja fyrir tilveru sinni á þess- ari jörð en varð að lokum að láta í minni pokann. Þótt ég sé sorgmædd yfir fráfalli pabba gleðst ég um leið yfir því að hann sé laus úr viðjum veik- inda sinna. Núna veit ég að hann er kominn í sumarlandið fagra, til foreldra sinna og bræðra. Þau eru öll sameinuð á ný og eflaust komin í fjörugar samræður yfir góðum kaffi- bolla og kökusneið. Það eru margar hlýjar og góðar minningar sem koma upp í huga minn á þessari kveðju- stund. Þær mun ég ávallt varð- veita í hjarta mínu. Pabbi var hjálpsamasti maður sem ég þekki, hann vildi allt fyrir fólkið sitt gera. Hann lagði sig fram við að gleðja aðra og láta fólk- inu í kringum sig líða vel. Það er góður eiginleiki að mínu mati. Við pabbi áttum margar góð- ar samverustundir og ég minn- ist sérstaklega þeirra stunda sem við áttum á íþróttamótum úti um allt land þegar ég var yngri. Pabbi var yfirleitt að setja upp hljóðkerfi á þessum mótum og ég að keppa í hlaupi, langstökki, hástökki eða öðrum greinum frjálsra íþrótta. Hann var kletturinn minn þarna og stuðningsmaður númer eitt, hvatti mig áfram til að gera mitt besta og stóð á hliðarlín- unni mér til halds og trausts. Þá fór ég á fjölda tónleika, fót- boltaleikja og alls konar við- burða með honum og systkinum mínum, enda þurfti alltaf að hafa tæknimann á slíkum við- burðum sem gat séð um að hljóðkerfið virkaði. Þar var fað- ir minn í essinu sínu. Þegar börnin mín fóru svo að stunda sínar íþróttir og áhuga- mál mætti faðir minn oft á mót- in eða sýningarnar sem þau tóku þátt í eða spurði út í gengi þeirra þar. Hann vildi upplifa með þeim og var alltaf svo stoltur af barnabörnunum sín- um. Fyrir það verð ég ávallt þakklát. Fyrsta og eina barna- barnabarn pabba fæddist svo í júní í fyrra. Það má með sanni segja að litli drengurinn hafi orðið gimsteinninn hans. Pabbi fékk það hlutverk að halda á honum undir skírn og það sem hann ljómaði á þeirri stundu. Þegar ég kom og heimsótti pabba á spítalann undir það síð- asta spurði hann alltaf fregna af litla langafadrengnum sínum. Ég sýndi honum myndir og myndbönd af litla kút og faðir minn brosti út að eyrum við upplifunina. Þær stundir voru afar fallegar og ég er svo ánægð að hafa fengið að eiga þær með honum. Takk fyrir samveruna elsku pabbi minn og góða ferð til nýrra heimkynna. Minningin um þig mun lifa með mér að ei- lífu. Þín dóttir, Kristín. Heimspekingurinn Gunnar Dal segir í einu ljóða sinna: „Ástin er dýrust gjafa Guði frá.“ Pétur Kristjánsson sem við kveðjum nú hitti ástina sína í systur minni Birnu fyrir rúm- um fjórtán árum. Hjá honum var það ást við fyrstu sýn. Hann þreyttist aldrei á að dásama hana. „Fallegust,“ sagði hann. Þegar ég hitti þau fyrst ljómuðu þau eins og ung- lingar. En þau voru engin ung- lömb, það tók þau fáar vikur að ákveða sambúð. „Það er ekki eftir neinu að bíða,“ sögðu þau í kór. Við tók skemmtilegur tími, ferðalög innanlands og utan. Þau heimsóttu okkur Dónald í Grímsey og settu upp hringa á heimskautsbaug. Þau áttu sér uppáhaldsstað að heimsækja; Reykholt í Borgarfirði, en Pét- ur átti rætur að rekja til Skorradals og átti kærar minn- ingar þaðan. Þau flugu og sigldu um heiminn, ýmist ein eða með börnum og góðum vin- um. Pétur, þessi mikli tækja- og tæknimaður, var alltaf með myndavélina tilbúna. Tók ótelj- andi myndir af Birnu sinni, fjöl- skyldunni, fólki og stöðum. Pét- ur var líka einlægur unnandi íslenska fánans og vildi veg hans sem mestan. Dýrmætar minningar. Systir mín ánægð og þau bæði. Pétur einstakt ljúfmenni, sem vildi öllum gott gera, en líka mikill höfðingi sem hafði gaman af að veita og gefa. Já, gleðin góða við völd. Lífið okkar á sér margar hliðar. Pétur, þessi stóri sterki tveggja metra maður, hafði glímt við alvarleg veikindi en náð sér að fullu. Bera tók á veikindum hjá Pétri á ný. Björt stóðu þau saman í því stóra verkefni sem fljótlega setti þeim skorður og gaf þeim mis- þunga daga. Bæði lögðu þau sig fram af fullum krafti, allt snerist um betri líðan fyrir Pétur. Systir mín, öflug eins og hún er, gerði allt sem í hennar valdi stóð til að maðurinn hennar næði heilsu og lífið létt- ist. Inn á milli komu margir góðir dagar með sólskini og ís- bíltúrum. Og nú hefur hann kvatt, prúðmennið Pétur. Hann er farinn í ferðina sem bíður okkar allra. Á þessari stundu viljum við Dónald þakka Pétri af alhug elskuleg kynni árin öll. Það var notalegt að vera í návist hans. En fallegast af öllu finnst mér sambandið þeirra, ástin sem þeim var gefin, ef til vill þegar þau áttu síst von á að hún myndi banka upp á. Já, ástin er sannlega dýrust gjafa Guði frá eins og segir í ljóðinu hans Gunnars Dal. Guð blessi minn- ingu Péturs Kristjánssonar. Góða ferð góði vinur. Helga Mattína Björnsdóttir, Dalvík. Kæri Pétur. Við þökkum þér kærlega fyrir þessi ár, sem þú varst hluti af fjölskyldu okkar. Þú gladdir okkur með hlýju þinni og þægilegri nærveru – en þú gladdir okkur mest með hamingjunni og gleðinni sem geislaði af ykkur mömmu, þeg- ar þið voruð saman. Kærar þakkir fyrir allt og allt. Hvíldu í friði og við minn- umst þín með eftirfarandi ljóði Jóhannesar úr Kötlum: Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. Loks beygði þreytan þína dáð, hið þýða fjör og augnaráð; sú þraut var hörð – en hljóður nú í hinsta draumi brosir þú. Svo hvíl þig, vinur, hvíld er góð, – vor hjörtu blessa þína slóð og Borgarfjörður þrýstir þér í þægum friði að brjósti sér. Björn, Margrét Helga, Guðbjörg og Vilhjálmur Þór Vilhjálmsbörn, makar þeirra, börn og barnabörn. Pétur Kristjánsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.