Morgunblaðið - 21.07.2021, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021
Akrýlsteinn
• Yfirborðsefni sem endist og upplitast ekki
• Viðhaldsfrítt, slitsterkt og hitaþolið
- endalausir möguleikar
• Auðvelt að þrífa og gera við
Gylfaflöt 6-8, 112 Reykjavík | Sími 587 6688 | fanntofell.is
ER PLANIÐ SKÍTUGT?
Fáðu tilboð í s: 577 5757
GÖTUSÓPUN
ÞVOTTUR
MÁLUN
www.gamafelagid.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
gefið grænt ljós á að Herkastalanum
í Kirkjustræti verði breytt úr gisti-
heimili í hótelíbúðir. Herkastalinn er
sögufrægt hús í miðbæ Reykjavíkur.
Hjálpræðisherinn rak þar sam-
komu- og gistihús í eina öld en ekki
hefur verið starfsemi í húsinu síðan
árið 2017.
Það er félagið Kastali fasteigna-
félag ehf., Katrínartúni 2, sem sendi
umsóknina til Reykjavíkurborgar.
Húsið er fjórar hæðir og er gert ráð
fyrir hótelíbúðum á öllum hæðum. Á
fyrstu hæð verður ein hótelíbúð
ásamt móttöku, aðstöðu fyrir starfs-
fólk og geymsla. Þá verður lyftu
komið fyrir þar sem nú er suður-
stigahús. Inngangur fyrir húsið
verður sá sami og áður, þ.e. frá
Kirkjustræti.
Breytingar utanhúss verða þær,
auk lyftunnar, að skipt verður um
glugga og verða þeir í anda upp-
runalegu glugga hússins.
Það var niðurstaða verkefnastjóra
skipulagsfulltrúa að gera ekki skipu-
lagslegar athugasemdir við erindið.
Vegna sögu hússins, sem og skrán-
ingu þess sem gistihúss, sé fyrst og
fremst um að ræða nýtt fyrir-
komulag á sams konar rekstri. Áætl-
uðum hámarksfjölda gesta fækkar
úr 95 í 71 miðað við síðasta útgefna
rekstrarleyfi frá júní 2017.
Húsið Kirkjustræti 2 er betur
þekkt sem Herkastalinn, eða Kast-
alinn. Húsið er sögufrægt en það
hýsti Hjálpræðisherinn frá bygg-
ingu hússins þangað til það var selt
árið 2016. Hjálpræðisherinn hefur
sem kunngt er byggt nýjan Her-
kastala við Suðurlandsbraut.
Herkastalinn er friðaður
Kirkjustræti 2 er byggt árið 1916
eftir teikningum Einars Erlends-
sonar og er fyrsta stórvirki hans í
steinsteypu. Eftir breytingarnar
verður það 4.211 fermetrar. Húsið
nýtur aldursfriðunar og því þurfti að
leita leyfis hjá Minjastofnun Íslands.
Stofnunin hefur heimilað breytingar
á húsinu, samkvæmt uppdráttum
T.ark frá 8. júní 2021. Breyting á
þaki vegna lyftustokks hafi ekki
áhrif á ásýnd frá götu. Þá verði end-
urnýjun glugga í upprunlegri mynd
mikil bót fyrir útlit hússins og bygg-
ingalist. Minjastofnun óskar eftir að
fá teikningar af gluggum til skoð-
unar og samþykktar þegar þær
liggja fyrir.
Í árslok 2015 tók Hjálpræðisher-
inn ákvörðun um að setja Herkast-
alann á sölu. Nýir eigendur höfðu
áform um að breyta húsinu í hótel,
en þau áform náðu ekki fram að
ganga. Árið 2017 keypti fasteigna-
félagið Heild, sem var á vegum
Gamma verðbréfasjóða, eignina.
Eignin var enn á ný sett á sölu árið
2019.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Herkastalinn Veglegt steinsteypt hús sem setur mikinn svip á miðborgina.
Hótelíbúðir í
Herkastalann
- Síðast var starfsemi í húsinu 2017
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
ÞARFTU AÐ LÁTA GERA VIÐ?
Karítas Ríkharðsdóttir
karitas@mbl.is
Heimildir til strandveiða hafa verið
auknar um 1.171 tonn af þorski fyrir
yfirstandandi strandveiðitímabil.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarút-
vegs- og landbúnaðarráðherra, hef-
ur þegar gefið út reglugerð um það.
Um er að ræða óráðstafað magn
sem kom til á skiptimarkaði í skipt-
um fyrir makríl og fleiri tegundir.
Með aukningunni er heildarmagn
veiðiheimilda í þorski á strandveið-
um orðið 11.171 tonn og samtals
12.271 af óslægðum botnfiski.
Hefðu stöðvað strandveiðar
um miðjan ágúst
„Hinn 19. júlí 2021 sl., að loknum
42 veiðidegi, var heildarafli á strand-
veiðum alls um 7.870 tonn, þar af um
7.280 tonn af þorski,“ segir í tilkynn-
ingu.
Að meðaltali hefur heildarafli á
veiðidag verið tæp 190 tonn. Að
óbreyttu hefði því þurft að stöðva
strandveiðar um miðjan ágúst.
Aukningin á einnig að jafna stöðu
milli veiðisvæða.
Heimildir til
strandveiða auknar
- Rúm þúsund tonn af þorski í viðbót
Strandveiðar Auknar heimildir
eiga að duga til veiða út ágúst.