Morgunblaðið - 21.07.2021, Side 23
ÍÞRÓTTIR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. JÚLÍ 2021
_ Kolbeinn Sigþórsson, sóknarmaður
Gautaborgar og íslenska landsliðsins í
knattspyrnu, hefur verið útnefndur
leikmaður umferðarinnar í sænsku úr-
valsdeildinni af sjónvarpsstöðinni
Discovery+. Kolbeinn lék mjög vel þeg-
ar Gautaborg sigraði Mjällby 3:2 á
sunnudaginn. Hann skoraði fyrsta
mark liðsins og lagði upp hin tvö.
Gautaborg komst upp í sjöunda sæti
deildarinnar með sigrinum.
_ Aganefnd KSÍ úrskurðaði í gær sex
leikmenn úrvalsdeildar karla í fótbolta
í eins leiks bann fyrir að safna fjórum
gulum spjöldum í deildinni í sumar.
Kjartan Henry Finnbogason, leik-
maður KR, leikur ekki með liðinu gegn
Fylki á mánudaginn kemur. Orri
Sveinn Stefánsson verður ekki í vörn
Fylkis af sömu ástæðu. FH leikur án
Péturs Viðarssonar gegn ÍA á sunnu-
daginn og Jón Gísli Eyland Gíslason
verður ekki með Skagamönnum. Þá
verður KA án Dusan Brkovic gegn
Leikni á sunnudag og Víkingur úr
Reykjavík án Erlings Agnarssonar
gegn Stjörnunni á sunnudaginn kem-
ur. Þá er Hólmfríður Magnúsdóttir úr
Selfossi komin í bann í úrvalsdeild
kvenna og spilar ekki gegn Breiðabliki
á laugardaginn.
_ Íslenska U20 ára liðið í karlaflokki í
körfubolta beið lægri hlut fyrir Finn-
um, 65:86, í fyrsta leik á Norður-
landamótinu í þessum aldursflokki
sem hófst í Tallinn í Eistlandi í gær.
Júlíus Orri Ágústsson og Dúi Þór
Jónsson skoruðu 13 stig hvor, Ástþór
Svalason níu og Styrmir Snær Þrast-
arson og Veigar Páll Alexandersson
sex stig hvor. Íslensku strákarnir
mæta Eistlandi í öðrum leik sínum í
dag.
_ Enska knattspyrnufélagið Everton
fékk í gær tvo nýja leikmenn í sínar
raðir og báða án greiðslu því þeir voru
lausir undan samningum við sín félög.
Kantmaðurinn Andros Townsend, sem
á 13 landsleiki að baki fyrir Englands
hönd, er kominn til Everton frá Crystal
Palace og bosníski markvörðurinn
Asmir Begovic kemur frá Bourne-
mouth. Hann hefur leikið 63 landsleiki
fyrir Bosníu og á að veita Jordan Pick-
ford keppni um markmannsstöðuna.
_ Sandra Nabweteme, landsliðskona
Úganda í knattspyrnu, er komin til
fyrstudeildarliðs FH í láni frá Þór/KA.
Hún skoraði þrjú mörk í sjö leikjum
fyrir Akureyrarliðið í úrvalsdeildinni en
var aðeins tvisvar í byrjunarliðinu. Tvö
markanna skoraði Sandra þegar hún
kom inn á sem varamaður og tryggði
Þór/KA 2:1 sigur gegn Tindastóli á
Sauðárkróki.
_ Deane Williams,
enski körfuboltamað-
urinn sem lék með
Keflavík tvö síð-
ustu keppnis-
tímabil, er
genginn til
liðs við
Saint-Quentin
í frönsku B-deild-
inni. Williams, sem er
24 ára gamall fram-
herji og kom úr há-
skólaliði Augusta í
Bandaríkjunum, setti
mikinn svip á Kefla-
víkurliðið og var
valinn besti er-
lendi leikmaður
deildarinnar í
vetur.
Eitt
ogannað
Körfuknattleiksmaðurinn Ægir
Þór Steinarsson hefur gert sam-
komulag við San Sebastián Gipuz-
koa frá Baskalandi á Norður-Spáni.
Félagið leikur í næstefstu deild
spænska körfuboltans. Ægir fer til
spænska liðsins frá Stjörnunni þar
sem hann hefur verið frá árinu
2018. Landsliðsbakvörðurinn skor-
aði 18 stig, tók fimm fráköst og gaf
átta stoðsendingar í 32 leikjum með
Stjörnunni á síðustu leiktíð. Ægir
þekkir vel til spænska körfuboltans
því hann lék með Huesca, Burgos
og Castello frá 2016 til 2018.
Ægir spilar
aftur á Spáni
Morgunblaði/Arnþór Birkisson
Baskaland Ægir Þór Steinarsson
fer til San Sebastian í þetta sinn.
Elvar Már Friðriksson, landsliðs-
maður í körfuknattleik, er farinn
frá Siauliai í Litháen eftir vel
heppnað tímabil þar og gengur í
staðinn í raðir Antwerp Giants í
Belgíu. Elvar var valinn besti leik-
maður litháísku deildarinnar síð-
asta vetur. Antwerp Giants hafnaði
í þriðja sæti í Belgíu á síðasta tíma-
bili og hefur oft náð langt í Evr-
ópukeppni, var m.a. í Evrópubik-
arnum síðasta vetur. Liðið er á leið
í nýja sameiginlega deild Belga og
Hollendinga, BNXT-deildina, sem
fer af stað í haust.
Elvar Már á
leið til Belgíu
Ljósmynd/FIBA
Belgía Elvar Már Friðriksson fer
frá Siauliai til Antwerp Giants.
HEIMKOMA
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
Ragnar Sigurðsson, einn reyndasti
landsliðsmaður Íslands í knatt-
spyrnunni fyrr og síðar, er kominn
heim eftir fjórtán ár í atvinnu-
mennsku og hefur samið við Fylki
til hálfs annars árs.
Þar með bætist enn einn reynslu-
boltinn við í úrvalsdeildina en hann
er sjötti leikmaðurinn sem snýr
heim á síðustu tólf mánuðum eftir
langan feril erlendis. Sennilega
hafa aldrei jafnmargir þrautreyndir
íslenskir fótboltamenn leikið á sama
tíma í efstu deild hér á landi.
Frá miðju sumri 2020 hafa Egg-
ert Gunnþór Jónsson (FH), Matt-
hías Vilhjálmsson (FH), Arnór
Smárason (Val), Kjartan Henry
Finnbogason (KR) og Theódór
Elmar Bjarnason (KR) allir komið
heim og gengið til liðs við íslensk
félög. Með Ragnari eru þetta sex
leikmenn sem hafa spilað samtals
meira en 2.000 deildaleiki á ferl-
inum.
Á undan þeim hafa komið heim
leikmenn á borð við Kára Árnason
(Víkingi), Birki Má Sævarsson (Val)
og Hannes Þór Halldórsson (Val),
og Ragnar hittir nú í deildinni sex
af þeim sem tóku þátt í EM-
ævintýrinu með honum í Frakk-
landi sumarið 2016, þá Hannes,
Birki Má, Kára, Theódór Elmar,
Ingvar Jónsson (Víkingi) og Hauk
Heiðar Hauksson (KA).
Meistari í tveimur löndum
Ragnar lék síðast í deildinni með
Fylki árið 2006 en hann hefur síðan
leikið með Gautaborg í Svíþjóð,
Köbenhavn í Danmörku (tvisvar),
Krasnodar, Rubin Kazan og Rostov
í Rússlandi, Fulham á Englandi og
Rukh Lviv í Úkraínu. Hann varð
sænskur meistari með Gautaborg
árið 2007 og danskur meistari með
Köbenhavn árið 2013.
Hann er kominn í hóp leikja-
hærri atvinnumanna Íslands en
Ragnar hefur leikið 375 deildaleiki
á ferlinum og þar af 337 leiki er-
lendis.
Hann hefur þó lítið spilað í hálft
annað ár því frá ársbyrjun 2020 og
til dagsins í dag hefur Ragnar að-
eins leikið sex deildaleiki í Dan-
mörku og Úkraínu, ásamt þremur
landsleikjum fyrir Íslands hönd.
Enn einn reynslubolti heim
- Ragnar til Fylkis - Sá sjötti sem
snýr heim á einu ári eftir langan feril úti
Morgunblaðið/Árni Torfason
Árbærinn Ragnar Sigurðsson lék síðast með Fylkismönnum árið 2006 og
hér á hann í höggi við Tryggva Guðmundsson í leik gegn FH.
Aron Snær Friðriksson markvörður Fylkis var besti leikmaðurinn í 13. um-
ferð úrvalsdeildar karla í fótbolta að mati Morgunblaðsins. Aron átti afar
góðan leik með Fylki gegn FH í Kaplakrika á sunnudagskvöldið, varði
hvað eftir annað mjög vel en náði þó ekki að forða Árbæjarliðinu frá 1:0
ósigri. Hann fékk tvö M fyrir frammistöðu sína og það fékk reyndar einnig
markvörður FH, Gunnar Nielsen.
Sex leikmenn eru valdir í fyrsta sinn í lið umferðarinnar, þar á meðal
tveir Skagamenn eftir sigurinn óvænta á Val. Höskuldur Gunnlaugsson
fyrirliði Breiðabliks og Sævar Atli Magnússon fyrirliði Leiknis eru hins
vegar báðir í liði umferðarinnar í fjórða sinn á tímabilinu. vs@mbl.is
13. umferð
í Pepsi Max-deild karla 2021
Hversu oft leikmaður
hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
23-4-3
Aron Snær Friðriksson
Fylkir
Kwame Quee
Víkingur R.
Nikolaj Hansen
Víkingur R.
Sindri Snær
Magnússon
ÍA
Höskuldur
Gunnlaugsson
Breiðablik
Björn Daníel
Sverrisson
FH
Kjartan Henry
Finnbogason
KR
Hjalti Sigurðsson
Leiknir R.
Dusan Brkovic
KA
Sævar Atli Magnússon
Leiknir R.
Elias Tamburini
ÍA
2
3
3
4
4
Aron bestur í 13. umferðinni
Valsmenn freista þess að komast í
riðlakeppni Evrópudeildar karla í
handknattleik í haust, en til þess
þurfa þeir að byrja á að sigra króat-
íska liðið Porac í fyrstu umferðinni.
Porac hafnaði í þriðja sæti í Kró-
atíu í vetur, á eftir tveimur bestu
liðum landsins, PPD Zagreb og
Nexe.
Komast þarf í gegnum tvær um-
ferðir í undankeppni til að vinna
sér sæti í riðlakeppninni en þar
verður leikið frá og með október.
Sjö íslensk lið fara í Evrópumót
félagsliða í vetur, fjögur karlalið og
þrjú kvennalið.
_ Íslandsmeistarar KA/Þórs
mæta Istogu frá Kósóvó í Evrópu-
bikar kvenna. Istogu komst í gegn-
um eina umferð í þessari keppni í
fyrra en var síðan slegið út af hvít-
rússnesku liði með sjö mörkum
samtals.
_ Valur mætir Bekament Buko-
vica frá Serbíu í Evrópubikar
kvenna.
_ ÍBV mætir PAOK Saloniki frá
Grikklandi í Evrópubikar kvenna.
_ Selfoss mætir Koprivnice frá
Tékklandi í 1. umferð Evrópubik-
ars karla og sigurliðið mætir Je-
ruzalem Ormoz frá Slóveníu í 2.
umferð. Koprivnice endaði í 7. sæti
í Tékklandi í vetur.
_ Haukar mæta Parnassos Stro-
volu frá Kýpur í 2. umferð Evrópu-
bikars karla.
_ FH mætir SKA Minsk í 2. um-
ferð Evrópubikars karla. SKA end-
aði í öðru sæti í Hvíta-Rússlandi í
vetur, á eftir yfirburðaliðinu Mesh-
kov Brest.
Karlalið Vals hefur keppni strax í
lok ágúst en hin íslensku liðin spila
ekki fyrr en í október.
Valur mætir þriðja
sterkasta liði Króata
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Meistarar Valsmenn tryggðu sér
Íslandsmeistaratitilinn í júní.