Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Qupperneq 2
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021
Ég sé þá ljóslifandi fyrir mér: Uli Stielike óhuggandi. Didier Six á grúfu
með andlitið falið í höndum sér. Maxime Bossis á hækjum sér og ör-
væntingin skín úr augunum. Þetta er fyrsta minning mín frá víta-
keppni á stórmóti í knattspyrnu. Þið eigið kollgátuna; Vestur-Þýskaland og
Frakkland í undanúrslitum á HM á Spáni 1982. Þetta var ógleymanleg upp-
lifun fyrir ungan pilt á Akureyri; ég er svei mér ekki frá því að þetta hafi ver-
ið í fyrsta skipti sem ég sá fullorðinn karlmann gráta. Slíkt var ekki algengt í
minni sveit. Til siðs var að bíta bara á jaxlinn. Hversu margar slíkar keppnir
hefur maður séð síðan? Og alltaf
finnur maður til með skyttunum sem
bregst bogalistin; Roberto Baggio í
úrslitaleik HM 1994, David Trezegu-
et í úrslitaleik HM 2006 og þannig
mætti lengi telja.
Auðvitað er sársaukinn misjafn
eftir því hversu vel maður tengir við
liðin sem eiga í hlut og ég verð að
viðurkenna að vítakeppnin í úrslita-
leik EM á Wembley er sú erfiðasta
sem ég hef upplifað um dagana.
Ástæðan er sú að mér þykir mjög
vænt um liðið sem tapaði og skytturnar sem brugðust, sér í lagi eina þeirra.
Góðu fréttirnar eru þær að það er greinilega enn þá líf í manni! Hinn 19 ára
gamli Bukayo Saka þurfti að axla mikla ábyrgð og fékk í kjölfarið yfir sig
mikla og óverðskuldaða drullu frá mönnum lítilla sanda og lítilla sæva. Mun
þó ekki láta það buga sig, svo sem lesa mátti í hjartnæmri færslu frá honum á
Twitter í vikunni, þar sem hann kallar meðal annars eftir því að forsvars-
menn samfélagsmiðla verði duglegri að moka flórinn sinn. Út með rasisma!
Mörgum er misboðið. Þeirra á meðal er Bragi V. Bergmann, fyrrverandi
milliríkjadómari í knattspyrnu, sem kynnir bráðáhugaverðar hugmyndir sín-
ar hér í blaðinu um að leiða jafna leiki á stórmótum til lykta með öðrum hætti
(bls. 12). Hvet ykkur öll til að kynna ykkur þær og ræða sem víðast.
Annars geri ég orð hins hugdjarfa Saka að mínum: Ástin vinnur alltaf!
Ástin vinnur alltaf!
Pistill
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
’
Vítakeppnin í úrslita-
leik EM á Wembley er
sú erfiðasta sem ég hef
upplifað um dagana.
Guðbjörn Jón Dagbjartsson
Bara morgunkorn, það sem er til.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
færðu þér
í morgun-
mat?
Patrekur Smári Bjarnason
Cheerios með Nesquik og rúsínum.
Árni Bragi Eyjólfsson
Ég fæ mér alltaf Cheerios með
jarðarberjum.
Rebekka Ösp Aradóttir
Ég fæ mér Cheerios.
Ritstjóri
Davíð Oddsson
Ritstjóri og
framkvæmdastjóri
Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri
og umsjón
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Segðu mér frá hljómsveitinni ykkar, Milkhouse.
Við stofnuðum hljómsveitina árið 2012 þegar við vorum í 10. bekk í
Hafnarfirði. Við vorum fyrst tvö til þrjú en svo bættist við hópinn
og við urðum fimm að lokum. Fyrst fluttum við bara ábreiður en
fórum svo að semja lög sjálf. Við fengum æfingaaðstöðu í Tónlist-
arskóla Hafnarfjarðar og gerðum lítið annað en að æfa saman á
þeim tíma.
En leiðir skildu á einhverjum tímapunkti, ekki
satt?
Jú, árið 2017 þegar við vorum flest að klára framhaldsskóla eða byrj-
uð í háskóla fóru nokkur okkar út til skiptináms og vorum við sjaldan
öll á landinu á sama tíma. Þá fórum við að gera tónlist sjálf eða með öðrum
hljómsveitum. Ég held að það hafi gert okkur gott því við höfðum verið
svo lengi saman í hljómsveitinni. Það sést á lögunum sem við gerum núna
að við höfum þroskast sem tónlistarmenn og orðið mun færari.
Hver var aðdragandinn að þessu nýja lagi og væntanlegri
plötu?
Covid hefur líklega haft einhver áhrif þar. Okkur leiddist og höfðum lítið að
gera og áttuðum okkur á því að við værum öll á landinu. Við fórum því í bústað
saman í haust og prufuðum alls kyns hluti. Allir komu með eitt lag til að sjá
hvernig það kom út.
Hvenær á platan að koma út?
Við stefnum á að hún komi út í haust en það er ekkert öruggt. Við erum að
reyna að gera þetta ekki í alltof miklu stressi og platan hefur stækkað í sniðum
þegar liðið hefur á.
Er platan svipuð fyrra efni sem komið hefur frá ykkur?
Já, ég held að hún hljómi nokkuð svipað. En þessi plata er kannski aðeins léttari
og við unnum að því að hafa lögin ekki of löng. Þetta er indírokk og stíllinn getur
verið rokkaður en líka hægur og fallegur. Ég held að það sé góð breidd á lög-
unum sem við gerum, þau eru poppuð og skemmtileg en líka dramatísk.
ANDRÉS ÞÓR
SITUR FYRIR SVÖRUM
Hægt og fallegt
indírokk
Forsíðumyndina tók
Eggert Jóhannesson
Hljómsveitin Milkhouse sendi frá sér nýtt lag og tónlistarmyndband á dögunum. Þá
er ný plata væntanleg. Andrés Þór Þorvarðarson er einn fimm meðlima sveitarinnar.
Morgunblaðið/Unnur Karen
Sími 555 3100 www.donna.is
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð
og hjartastuðtæki björguðu lífimínu
Ég lifði af
KRÍT
23. JÚLÍ - 03. ÁGÚST
VERÐ FRÁ:
10 daga frí á grísku eyjunni Krít.
Innifalið í verði: Beint flug, innritaður farangur,
handfarangur og íslenskri fararstjórn.
95.900 KR.
*Á MANN M.V. 2 FULLORÐNA OG 1 BARN
WWW.UU.IS | HLÍÐASMÁRI 19 | 585 40000 | INFO@UU.IS
BEINT
FLUG