Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Qupperneq 4
FRÉTTIR VIKUNNAR
4 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021
Staðan í efnahagslífinu dag er um
margt eftirsóknarverð og henni meg-
um við ekki tapa. Efnahagsmálin
hljóta því að verða áhersluatriði í
kosningabaráttu haustsins, að dómi
Halldórs Benjamíns Þorbergs-
sonar, framkvæmdastjóra Samtaka
atvinnulífsins.
Óslétt akbraut er teygjanlegt hug-
tak, að mati Úrskurðarnefndar í vá-
tryggingamálum.
Umferðarspá verkfræðistofunnar
Mannvits gerir ráð fyrir því að árið
2044 hafi umferð um Reykjanes-
braut aukist um nær 165% og verði
þá orðin um 52 þúsund ökutæki á sól-
arhring.
Ekkert bendir til þess að eldgosið í
Geldingadölum sé í rénun. Það á sér
ekki hliðstæðu í þeim eldgosum sem
hafa orðið á Íslandi eftir að menn
fóru að fylgjast með þeim með vís-
indalegum hætti og nákvæmum
mælitækjum, segir Magnús Tumi
Guðmundsson prófessor.
Hulda Þórhallsdóttir var jarðsungin
við fallega athöfn frá Húsavík-
urkirkju 11. júlí. Útförin fór fram á
sunnudegi þar sem Hulda hefði átt
100 ára afmæli þann dag hefði hún
lifað.
Laxveiðimenn hafa munninn fyrir
neðan nefið, eins og við þekkjum. Það
staðfesti Ólafur Ágúst Haraldsson,
sem hafði umsjón með barnadögum í
Elliðaánum um liðna helgi. Sagði
hann veiðina hafa gengið frábærlega
og góð stemning væri við bakkann.
„Og áin er malbikuð af laxi,“ bætti
hann við.
Þórunn Egilsdóttir alþingismaður
lést á föstudagskvöld fyrir rúmri
viku, 56 ára að aldri, eftir langvinna
baráttu við krabbamein.
Heldur hefur dregið úr fækkun í
Þjóðkirkjunni á þessu ári.
Fyrstu 10 dagar júlímánaðar voru
hlýir og er þetta raunar hlýjasta júlí-
byrjun aldarinnar um landið norð-
austan- og austanvert og á miðhá-
lendinu. Hiti náði 20 stigum á landinu
20 daga í röð. Segja þurfti fólki fyrir
sunnan þessi tíðindi tvisvar.
Gunnari Egilssyni, kaupmanni í
versluninni Árborg í Skeiða- og
Gnúpverjahreppi, finnst hann
stundum þekkja hálfa þjóðina enda
sveitasjoppa miðlæg stofnun.
. . .
Ferðamenn halda áfram að leggja
leið sína til landsins. Í júní voru er-
lendir brottfararfarþegar 42.600
talsins, samkvæmt talningu Ferða-
málastofu og Isavia. Eru það sjöfalt
fleiri en á sama tíma í fyrra.
Gert er ráð fyrir að heildarkostnaður
við nýbyggingar Landspítalans á
Hringbraut muni nema 79,1 millj-
arði króna. Kostnaðarmatið hljóðaði
upp á 62,8 milljarða króna árið 2017,
uppfært til verðlags í desember síð-
astliðnum, og munar því 16,3 millj-
örðum króna.
Af þeim flugfélögum sem fljúga til
Kaupmannahafnar og London,
tveggja vinsælla áfangastaða Íslend-
inga, býður Play lægstu fargjöldin.
Eiríkur Sigurðarson, fyrrverandi
bóndi, er nú á leið sinni hringinn um
landið. Ekki liggur okkar manni þó á
en fararkosturinn er Belarus-
dráttarvél frá árinu 1967.
Farþegar á leið sinni úr landi í gegn-
um Flugstöð Leifs Eiríkssonar geta
ekki innritað sig í flugið sjálfvirkt,
hvort sem er á netinu eða í þar til
gerðum innritunarvélum ein-
hverjum til mæðu.
Tilkynningum um vinnuslys við
vinnslu landbúnaðarafurða fjölgaði
talsvert árið 2020, samkvæmt upp-
lýsingum frá Vinnueftirlitinu. Þær
fóru úr rúmlega 70 í 100.
Hvorki hafa Lyfjastofnun Íslands
borist tilkynningar um hjartavöðva-
bólgu né gollurshúsbólgu í kjölfar
bólusetningar gegn Covid-19.
Framtíð Hamborgarabúllunnar er í
uppnámi eftir að skipulagsfulltrúi
Reykjavíkur tók jákvætt í ósk lóðar-
hafa Ofanleitis 14 um að hann láti
vinna frumdrög að tillögu að fyrir-
komulagi breyttrar uppbyggingar á
lóðinni. Verslingum er brugðið enda
stutt að fara í hádeginu.
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur III
er nú auglýst til sölu hjá J. Gran &
Co. AS skipamiðlara í Bergen í
Noregi. Ásett verð er 4,5 milljónir
evra eða tæpar 660 milljónir króna.
Lögreglumenn og hjúkrunarfræð-
ingar náðu að endurlífga mann sem
fór í hjartastopp í vörslu lögreglu á
Selfossi. Hann var útskrifaður heill
heilsu.
Eigendur tveggja byggingarlóða á
Hlíðarenda hafa óskað eftir leyfi fyr-
ir 350-390 íbúðum á lóðunum í stað
atvinnuhúsnæðis sem átti að vera
samtals 35 þúsund fermetrar.
Athafnahjónin Aron Einar Gunn-
arsson og Kristbjörg Jónasdóttir
hafa gengið til liðs við fulltrúa Kola-
portsins en fram undan er umbreyt-
ing þess í Hafnarþorpið.
Forseti Íslands kvaddi íslensku
ólympíufarana á Bessastöðum.
Ekki þurfti að ræsa út aukastarfslið
en keppendurnir eru aðeins fjórir.
Þar af voru tveir fjarverandi.
Fjórir laumufarþegar voru um borð í
súrálsskipinu sem kom til hafnar í
Straumsvík 8. júlí. Þeir höfðu ekki
hugmynd um hvert förinni var heitið.
En voru óheppnir að lenda ekki aust-
ur á fjörðum, í ljósi veðurs.
Hafdís Karlsdóttir viðskiptafræð-
ingur var nýverið kjörin forseti Evr-
ópusambands soroptimista.
„Nýju stjórnarskrána er hvergi að
finna,“ segir Kristrún Heimisdóttir
lögfræðingur því ferlið allt var svo
gallað frá upphafi til enda.
Læknafélag Íslands hefur skipað
starfshóp til að fara yfir breytingar
sem gerðar hafa verið á skipulagi og
framkvæmd skimunar á leghálsi síð-
astliðið ár og aðdraganda þeirra.
. . .
Síðustu bólusetningarnar fóru fram í
Laugardalshöllinni á miðvikudaginn
og fékk Svandís Svavarsdóttir heil-
brigðisráðherra þá seinni skammt
sinn af bóluefni AstraZeneca.
Baráttunni við kórónuveiruna er þó
fráleitt lokið en smitum fjölgaði er
leið á vikuna og nýr kafli gæti verið
að hefjast, að mati Þórólfs Guðna-
sonar sóttvarnalæknis, sem hvetur
til varfærni.
Gríðarlegar hækkanir hafa einkennt
hlutabréfamarkaðinn frá upphafi
kórónuveirufaraldursins.
Viðunandi farveg vantar fyrir þol-
endur til þess að leita réttar síns, að
mati Helga Gunnlaugssonar, af-
brotafræðings og prófessors.
Bitvargurinn lúsmý hefur numið ný
svæði á Íslandi, að sögn Náttúru-
fræðistofnunar. Ekki dugar víst að
hækka í gamla Loverboy-slagar-
anum Turn Me Loose til að losna við
óværuna.
Pólski flugherinn undirbýr nú brott-
för flugsveitar til Íslands til að gæta
loftrýmis Íslendinga.
Efnisneysla Íslendinga er sú þriðja
mesta í Evrópu, samkvæmt nýjum
gögnum frá Eurostat, hagstofu Evr-
ópusambandsins.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur hefur
heimilað hækkun Pfaff-hússins.
. . .
Ríkisstjórnin félli ef kosið yrði nú,
samkvæmt nýrri könnun MMR í
samstarfi við mbl.is og Morgun-
blaðið. Það gerist þrátt fyrir að hún
njóti meirihlutastuðnings, en 55%
svarenda segjast styðja ríkisstjórn-
ina.
Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins
hefur lagt fram kæru á hendur
frönsku netversluninni Sante SAS,
systurfyrirtæki hennar, Santewines
ehf. og eiganda beggja fyrirtækja,
Arnari Sigurðssyni.
Vígahnötturinn sem sprakk yfir Ís-
landi í byrjun júlí með tilheyrandi
drunum á Suðurlandi var líklega sjö
metrar að þvermáli og sprakk um
það bil 15 kílómetrum norðaustur af
Þingvöllum.
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur
verið úrskurðaður látinn eftir að
hafa orðið undir steini við vinnu sína í
Reykjanesbæ á miðvikudag.
Bólusetningu lok-
ið en enn og aftur
bólar á pestinni
Síðustu bólusetningarnar fóru fram í Laugardalshöllinni á miðvikudaginn og fékk Svandís Svavarsdóttir heilbrigðis-
ráðherra þá seinni skammt sinn af bóluefni AstraZeneca. Smitum fer nú fjölgandi á ný á Íslandi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
10.07.-16.07.
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
fyrir heimilið
Sendum
um
land
allt
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
Fallegar vörur
Stóll á snúningsfæti í ítölsku nautsleðri
75 cm á breidd
Verð frá 139.000 kr.
Loksins fáanlegir aftur,
í mörgum litum