Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Side 6

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Side 6
VETTVANGUR 6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021 Þá eru ferðamenn farnir að streyma til Íslands á nýjan leik. Á sinn hátt er skemmti- legt að fá aðkomufólk til að skoða landið og kynnast undrum þess. Þá er ég sannfærður um, og þreytist aldrei á að segja, að ferðamennskan hefur orðið til þess að örva Íslend- inga til að huga betur að menningu sinni og sögulegri arfleifð. Söfn hafa mörg vissulega verið lengi til fyr- irmyndar en önnur síður. Þau hafa hins vegar tekið framförum samhliða auknum ferðamannastraumi enda rækt lögð við að gera þau sem best úr garði. Aðstandendur margra safna hér á landi hafa sýnt mikla hug- kvæmni að þessu leyti. Síðan er sumt sem aldrei fangaði athygli heima- manna, ef til vill vegna nálægð- arinnar, nú orðið öllum sýnilegt. Ferðamanni, sem fer dagsferð um heimabyggðina, er sýnt sitthvað sem við, sem þar búum, höfðum hreinlega ekki komið auga á en þykir nú mikið til koma. Allt skapar þetta grósku að ógleymdri mat- armenningunni sem einnig fær inngjöf við ferða- mennskuna. Það gera líka borg og bæir, stórir og smáir. Allt iðar af lífi sem fylgir margmenni á faraldsfæti. Atvinnulífið glæðist og margir sem voru tekjulausir, nánast bjarg- arlausir, fá nú dregið björg í bú. En þarna erum við líka farin að nálgast dekkri hliðar ferðmennsk- unnar sem óneitanlega eru mjög dökkar. Fjöldinn getur orðið of mik- ill, meira að segja alltof mikill, nánast yfirþyrmandi og offors og græðgi „gestgjafans“ að sama skapi. Hann vill draga meiri björg í bú en gott er. Og nú er okkur sagt að hægt sé að græða meira, aðeins ef við erum tilbúin að fórna íslenskunni. Nýleg könnun á vegum ferðaþjónustunnar sýni að annað borgi sig ekki en að láta íslenskuna víkja fyrir ensku, og sé svo komið að meirihluti ferðaþjón- ustufyrirtækja noti bara ensku og telji að þannig eigi það að vera. Starfsfólk sem ráðið sé til starfa geti ekki talað íslensku og ferðamennirnir skilji ekki tungumál landsmanna. Ís- lenskuna þurfi því að láta flakka, sorrí, auglýsa verði á ensku og tala á ensku. Að sjálfsögðu verði þetta líka að ganga yfir Íslendinga enda segja skýrsluhöfundar það nú vera algeng- ara en hitt að Íslendingar þurfi að panta mat og hótel á ensku. Þetta er sem sagt reikningurinn sem Íslendingum er gert að greiða fyrir gróðann. Gjaldið er tungan. Ég er náttúrlega ekki ferðaþjón- ustuaðili en ég ferðast um Ísland og er annt um íslenska tungu og menn- ingu og áskil mér því rétt til þess að hafa á þessu skoðun. Og hún er þessi. Gerum allt sem við getum til að sporna gegn þessari þróun og til fyrirtækja í ferðaþjón- ustu leyfi ég mér að beina hvatning- arorðum framkvæmdastjóra Sam- taka atvinnulífsins fyrir fáeinum misserum, Halldórs Benjamíns Þor- bergssonar, að nota íslenskuna í heit- um fyrirtækja, í auglýsingum og samskiptum almennt. Þegar við förum til náms eða starfa erlendis erum við flest, ef ekki öll, fljót að læra nóg til að geta tjáð okkur, þó ekki sé nema lítið. Finnst það gott og gam- an. Við erum ekk- ert ein um þetta. Ég dáist að öllu því fólki sem hing- að er komið og gerir einmitt þetta, talar til okk- ar á íslensku. Læt- ur sig hafa það að tala málið bjagað framan af. „Ekki tala svona hátt pabbi,“ sögðu börnin mín þegar við bjuggum í Danmörku um skeið, komum í búð þar sem ég talaði mína dönsku. Börnin voru viðkvæm fyrir því að pabbi talaði ekki alveg eins og allir aðrir gerðu. Svo hlógum við bara að þessu. Auðvitað er þetta hægt. Leti og metnaðarleysi í ferðaþjónustu má ekki verða þess valdandi að íslensk- unni verði fórnað; að hún verði gjalda megin á reikningnum þegar ferða- mennskan er gerð upp. Sannið til, erlendu fólki sem hing- að kemur til starfa þykir gaman að geta talað íslensku – nákvæmlega eins og okkur þykir þar sem við er- um gestkomandi um alllangt skeið. Ég vorkenni engum útlendingi að læra að segja, má bjóða þér reikning- inn, í stað þess að segja: Would you like to have the bill? Þann reikning vil ég helst ekki þurfa að greiða. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Má bjóða þér reikninginn ’ Auðvitað er þetta hægt. Leti og metn- aðarleysi í ferðaþjón- ustu má ekki verða þess valdandi að íslenskunni verði fórnað; að hún verði gjalda megin á reikningnum þegar ferð- mennskan er gerð upp. Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@ogmundur.is Britney Spears þótti hafa orðið nokkuð ágengt í tilraunum sínum til að losna undan forræði föður síns þegar dómari í Los Angeles ákvað á miðvikudag að henni væri frjálst að ráða sér lögmann að eigin vali. Spears var svipt lögræði árið 2008 og hefur faðir hennar, Jamie Spears, farið með öll hennar mál síðan. Nýr lögmaður Spears heitir Mat- hew Rosengart og eru leikstjórinn Steven Spielberg og leikarinn Sean Penn meðal fyrri skjólstæðinga hans. Kvaðst Rosengart myndu leggja inn lögræðiskröfu fyrir hönd Spears eins fljótt og honum væri auðið. Lagði hann um leið til að faðir henn- ar drægi sig einfaldlega í hlé af sjálfsdáðum og furðaði sig á að hann hefði ekki gert það nú þegar. Spears er nú 39 ára gömul. Hún varð heimsfræg á táningsaldri. Árið 2007 brotnaði hún saman og árið eft- ir fékk faðir hennar forræði yfir henni. Hún byrjaði brátt að koma fram á ný og gaf út þrjár plötur eftir það. Í janúar 2019 tilkynnti hún hins vegar að hún væri hætt að koma fram þar til annað yrði tilkynnt. Fyrr í sumar kom hún fram og lýsti þeim hremmingum, sem hún hefði gengið í gegnum undir forræði föður síns. Hún hefði ekki fengið að fjar- lægja getnaðarvörn og verið neydd til að taka lyf, sem hefðu þau áhrif að henni liði eins og hún væri drukkin. Þá hefði henni verið hótað lögsókn hætti hún að koma fram og hefði ekki fengið að aka eigin bíl. Lögræðisbarátta Spears hefur vakið mikla athygli og nýtur hún stuðnings víða. Nokkrir þeirra komu saman í vikunni við Lincoln-minnis- varðann í Washington og hélt einn þeirra á lofti skilti með áletruninni Frelsið Britney. Skipuleggjandi við- burðarins sagði að útifundurinn snerist ekki bara um Britney Spears, heldur bæri mál hennar því vitni að fara þyrfti ofan í saumana á því hvernig lögræðismálum af þess- um toga væri háttað í Bandaríkj- unum. AFP Áfangasigur Spears

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.