Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 12
N
ú þegar þrír góðir
einstaklingar, ensk-
ir og dökkir á hör-
und, hafa orðið fyr-
ir heiftarlegum
árásum á samfélagsmiðlum eftir úr-
slitaleik EM er mál að linni! UEFA
og FIFA verða að fara að hætta
fyrirfram skipulögðum „mannaveið-
um“, þ.e. að dæma einn eða fleiri
einstaklinga til að verða sektarlamb
eða blóraböggull eins og þessi virtu
alheimssambönd hafa gert í áratugi.
Þau hafa það í hendi sér að EM
2020 verði síðasta skráða tilvikið um
slíkt aðkast eða einelti.“
Þetta segir Bragi V. Bergmann
sem sjálfur hefur velt fyrir sér
hvernig leiða eigi leiki á stórmótum
til lykta með öðrum og mannúðlegri
hætti. Braga er málið skylt en hann
var FIFA-dómari í 13 ár, frá 1991-
2003, en fór þá af lista vegna aldurs
en dæmdi í efstu deild til 2006.
Hann hefur verið eftirlitsmaður
dómara nær allar götur síðan og
setið í Dómaranefnd KSÍ í mörg ár
og er þar enn.
„Ef við lítum á mannkynssöguna,
virðast margir hafa unun af því að
sjá menn tekna af lífi, ætli þetta sé
ekki bara angi á því viðhorfi, en mér
hefur lengi verið umhugað um að
losna við þennan grimma þátt úr
knattspyrnunni. Ég dæmdi varla
leik í bikar öll árin mín í efstu deild-
um án þess að leikurinn færi í fram-
lengingu og gjarnan vítaspyrnu-
keppni. Fljótlega skaut
hugmyndinni að P-Play niður í koll-
inn á mér en ég lét hana gerjast ár-
um saman,“ segir Bragi en P-Play
er stytting á Penalty-Play eða Posi-
tive-Play eða Power-Play. „Það er
smekksatriði.“
Einföld en skilvirk breyting
En hvað er P-Play? Í því felst ein-
föld en mjög skilvirk breyting á nú-
verandi fyrirkomulagi. Ekki þarf að
breyta neinum lögum, aðeins
reglum og uppbyggingu leikjanna.
Breytingin yrði á þennan veg:
Skilji lið jöfn að loknum venjulegum
leiktíma verður fimm mínútna hlé,
líkt og þekkist í dag. Síðan fer fram
vítakeppni. Þegar úrslit liggja fyrir
í henni verður annað fimm mínútna
hlé. Að því loknu hefst framlenging.
Nái hvorugt liðið að knýja fram sig-
ur í henni þá gilda úrslitin úr víta-
keppninni.
Vítakeppni þykir gott sjónvarps-
efni og Bragi segir P-Play gera það
að verkum að meira verði um þær
og fyrir vikið aukist vinsældir
knattspyrnunnar. Þá aukist lík-
urnar á því að leiðinlegar og tíð-
indalausar framlengingar heyri sög-
unni til – liðið sem tapar
vítakeppninni verður að sækja til
sigurs. Og það besta og mannúðleg-
asta af öllu: Sá leikmaður sem
„klikkaði“ á lokaspyrnunni og liðs-
félagar hans hafa þrjátíu mínútur til
að bæta upp fyrir mistökin. Mis-
heppnuð vítaspyrna er ekki lengur
lokaaugnablik leiksins og brennandi
kastljósið beinist ekki að einum
blóraböggli. Liðið sem heild ber
ábyrgðina.
Hann segir pælinguna einnig
áhugaverða út frá markaðs-
sjónarmiði en hægt væri að koma
fyrir auglýsingatímum á undan og
eftir vítakeppninni. „Það var svo
sem ekki það sem rak mig af stað,
en hugmyndin getur sannarlega
verið verðmæt í þeim skilningi líka.“
Spurður hvort hann hafi ekki
áhyggjur af því að liðið sem vinni
vítakeppnina verði bara í skotgröf-
unum í framlengingunni, svarar
Bragi hiklaust neitandi. „Nei, ég hef
engar áhyggjur af því. Eins og regl-
urnar eru nú þá þorir hvorugt liðið
oftar en ekki að taka áhættu og þau
hanga bara á boltanum en yrði
þessu breytt þá yrði annað liðið að
gera það sem hlýtur að brjóta leik-
inn upp og auka hraðann.“
Hlutirnir fóru að gerast
Eftir að hann hætti að dæma fór
Bragi að leita leiða til að tryggja sér
einkaleyfi á hugmyndinni og komst
að því eftir langt ferli að það er nán-
ast ógerlegt að fá einkaleyfi á hug-
mynd þegar ekki er um neitt „pro-
duct“ að ræða. „Eftir að ég fékk
Ólaf Rúnar Ólafsson, lögmann og
fyrrverandi sveitarstjóra í Eyja-
fjarðarsveit, til að aðstoða mig, fóru
hlutirnir að gerast. Allir sem komu
að verkefninu skrifuðu undir yf-
irlýsingu um 100% trúnað og fram-
leiðsluferlið gat hafist. Geimstofan á
Akureyri, Ólafur Númason og Arn-
ar Sigurðsson, vann allt markaðs-
efni með mér, merki P-Play, bækl-
ing, bréfsefni o.s.frv. sem og
kynningarmyndband. Vilhjálmur,
sonur minn og vandræðaskáld, las
textann inn á myndbandið og
nokkrir aðrir komu að einstökum
þáttum,“ segir Bragi.
Knattspyrnusamband Evrópu,
UEFA, fékk P-Play pakkann í
hendur 2014 en á þeim tíma var
Michel Platini forseti sambandsins.
Þess má geta að honum brást sjálf-
um bogalistin í vítakeppni milli
Frakka og Brasilíumanna á HM í
Mexíkó 1986 og ætti því að tengja
við téðar tilfinningar, enda þótt
hans lið hafi farið með sigur af
hólmi þann daginn.
Platini sendi Braga þakkarbréf
þar sem hann staðfesti höfundarrétt
hans að P-Play. Í bréfinu kemur
fram að Platini hafi sent pakkann á
IFAB-nefndina – International Fo-
otball Assosiation Board – en hún
er sú „stofnun“ sem ein hefur heim-
ild til að breyta knattspyrnulögum
og -reglum. „Og þar situr P-Play
enn,“ segir Bragi en Platini þakkaði
honum sérstaklega fyrir áhuga hans
og þá alúð og tíma sem hann hefði
augljóslega lagt í verkefnið.
Platini settur af
Bragi var óheppinn að því leyti að
Platini var settur af örskömmu eftir
þetta vegna spillingarmála. „Senni-
lega hafa öll mál sem hann mælti
með og vildi fylgja eftir lent í
„neðstu hillunni“ hjá IFAB. Þar að
auki er IFAB-nefndin nær ein-
göngu skipuð Bretum, þ.e. Eng-
lendingum og Skotum, og ég er ekki
viss um að þeir vilji lifa með því að
einhver Íslendingur færi þeim
snilldarlausn á langvarandi vanda-
máli upp í hendurnar. Þessi lausn er
enn brýnni eftir að reglan um tvö-
falt vægi útivall-
armarka var felld
úr gildi nýverið.
Þar með fáum við
væntanlega enn
fleiri leiðinlegar
framlengingar, fleiri
vítaspyrnukeppnir
og fleiri sektarlömb
sem verða að bera
þunga byrði ævi-
langt,“ segir Bragi.
– Hefurðu rukkað
UEFA eitthvað um
frekari svör?
„Nei, það hef ég ekki
gert. Það er einmitt
ástæðan fyrir því að ég
kynni þessa hugmynd
loksins opinberlega – til
að fá umræðu um hana.
Falli hugmyndin í frjóa
jörð hlýtur UEFA að fá
veður af því. Umræðan
um galla vítakeppna er
mjög hávær úti um allan
heim núna – ekki síst á
Bretlandseyjum – en svo
gleymist þetta milli móta.“
Ekki hvort, heldur hvenær
Bragi er ekki í vafa um að P-Play
verði virkjað, það sé spurning um
hvenær en ekki hvort. Hann sér fyr-
ir sér að heppilegt yrði að byrja í
úrslitakeppnum yngri landsliða og
sjá hvort það gæfi ekki góða raun.
Það væri líka vel hægt að virkja P-
Play í lokakeppni HM á næsta ári.
„Við fáum fleiri vítaspyrnukeppn-
ir, fjörugar framlengingar og – um-
fram allt – að það verði ekki fleiri
sektarlömb á borð við ungu Eng-
lendingana þrjá, Mbappé, Olmo og
Morata, Svisslendingana þrjá og
auðvitað Gareth Southgate frá fyrri
tíma, sem var púað á á öllum leik-
völlum í Englandi í heilt ár á sínum
tíma eftir að hann klúðraði úr-
slitavítaspyrnu á EM 1996. Ég las
einu sinni að hann hefði íhugað að
leggja skóna á hilluna á þeim tíma-
punkti. Að létta byrðar þessara
manna er langstærsti ávinningurinn
af P-Play. Aumingja Southgate –
hann klúðraði aftur vítaspyrnu-
keppni fyrir Englendinga, nú af
varamannabekknum. Hversu sann-
gjarnt er það, að leggja slíkt á einn
mann tvívegis á ævinni?“
Hinn 19 ára gamli Bukayo Saka þarf að bera þann kross að hafa misnotað seinustu vítaspyrnu Englands í úrslitaleiknum
gegn Ítalíu á EM 2020. Bragi vill losna við þennan grimma hátt úr knattspyrnunni.
AFP
Fækkum sektarlömbum!
Nái hugmyndir Braga
V. Bergmann, sem hann
hefur kynnt fyrir
Knattspyrnusambandi
Evrópu, fram að ganga
myndi vítakeppni á
HM og EM fara fram
á undan framlengingu
í leikjum og úrslitin
aðeins gilda ef hvorugu
liðinu tekst að knýja
fram sigur. Ávinning-
urinn er augljós: Draga
myndi úr því að víta-
skyttur verði gerðar að
sektarlömbum.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
KNATTSPYRNA
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021
Dómaratríóið einbeitt á svip fyrir leik Danmerkur og Litháen í und-
ankeppni HM á Parken í Kaupmannahöfn þann 25. ágúst 1993. T.f.v.: Gísli
Björgvinsson, Bragi V. Bergmann og Sæmundur Víglundsson. Fjórði dóm-
ari var Guðmundur Stefán Maríasson. Danska þjóðin biðlaði til Michael
Laudrup, stærstu stjörnu sinnar, að gefa kost á sér í landsleikinn. Michael
hafði átt í deilum við Nielsen landsliðsþjálfara og spilaði t.d. ekki með
Dönum á EM árið áður, þegar Danmörk varð óvæntur Evrópumeistari.
Danmörk varð að vinna leikinn við Litháen til að tryggja sér sæti í loka-
keppni HM 1994. Skemmst er frá því að segja að Michael Laudrup varð
við áskoruninni, gaf kost á sér rúmri viku fyrir leik og spilaði í fyrsta
skipti við hlið yngri bróður síns, Brian Laudrup, í landsliðinu. Rúmlega 40
þúsund áhorfendur troðfylltu Parken og fögnuðu „týnda syninum“. Dan-
mörk vann 4-0 og tryggði sætið sitt á HM. Bragi segist enn muna þann gríð-
arlega hávaða sem var inni á leikvellinum. „Fjörutíu og eitt þúsund glaðir
Danir létu svo vel í sér heyra að ég þurfti að hafa mig allan við til að leik-
menn heyrðu í flautunni,“ segir hann. Þess má ennfremur geta að Bragi fékk
9,0 í einkunn frá eftirlitsmanni leiksins, hinum sænska Lars Åge Lagrell. „Ég
var býsna sáttur við þá glæsilegu einkunn og félagar mínar í teyminu fengu
líka toppeinkunn og umsögn.“
Bréf Michels Platinis,
þáverandi forseta UEFA,
til Braga 2014.