Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Síða 12
N ú þegar þrír góðir einstaklingar, ensk- ir og dökkir á hör- und, hafa orðið fyr- ir heiftarlegum árásum á samfélagsmiðlum eftir úr- slitaleik EM er mál að linni! UEFA og FIFA verða að fara að hætta fyrirfram skipulögðum „mannaveið- um“, þ.e. að dæma einn eða fleiri einstaklinga til að verða sektarlamb eða blóraböggull eins og þessi virtu alheimssambönd hafa gert í áratugi. Þau hafa það í hendi sér að EM 2020 verði síðasta skráða tilvikið um slíkt aðkast eða einelti.“ Þetta segir Bragi V. Bergmann sem sjálfur hefur velt fyrir sér hvernig leiða eigi leiki á stórmótum til lykta með öðrum og mannúðlegri hætti. Braga er málið skylt en hann var FIFA-dómari í 13 ár, frá 1991- 2003, en fór þá af lista vegna aldurs en dæmdi í efstu deild til 2006. Hann hefur verið eftirlitsmaður dómara nær allar götur síðan og setið í Dómaranefnd KSÍ í mörg ár og er þar enn. „Ef við lítum á mannkynssöguna, virðast margir hafa unun af því að sjá menn tekna af lífi, ætli þetta sé ekki bara angi á því viðhorfi, en mér hefur lengi verið umhugað um að losna við þennan grimma þátt úr knattspyrnunni. Ég dæmdi varla leik í bikar öll árin mín í efstu deild- um án þess að leikurinn færi í fram- lengingu og gjarnan vítaspyrnu- keppni. Fljótlega skaut hugmyndinni að P-Play niður í koll- inn á mér en ég lét hana gerjast ár- um saman,“ segir Bragi en P-Play er stytting á Penalty-Play eða Posi- tive-Play eða Power-Play. „Það er smekksatriði.“ Einföld en skilvirk breyting En hvað er P-Play? Í því felst ein- föld en mjög skilvirk breyting á nú- verandi fyrirkomulagi. Ekki þarf að breyta neinum lögum, aðeins reglum og uppbyggingu leikjanna. Breytingin yrði á þennan veg: Skilji lið jöfn að loknum venjulegum leiktíma verður fimm mínútna hlé, líkt og þekkist í dag. Síðan fer fram vítakeppni. Þegar úrslit liggja fyrir í henni verður annað fimm mínútna hlé. Að því loknu hefst framlenging. Nái hvorugt liðið að knýja fram sig- ur í henni þá gilda úrslitin úr víta- keppninni. Vítakeppni þykir gott sjónvarps- efni og Bragi segir P-Play gera það að verkum að meira verði um þær og fyrir vikið aukist vinsældir knattspyrnunnar. Þá aukist lík- urnar á því að leiðinlegar og tíð- indalausar framlengingar heyri sög- unni til – liðið sem tapar vítakeppninni verður að sækja til sigurs. Og það besta og mannúðleg- asta af öllu: Sá leikmaður sem „klikkaði“ á lokaspyrnunni og liðs- félagar hans hafa þrjátíu mínútur til að bæta upp fyrir mistökin. Mis- heppnuð vítaspyrna er ekki lengur lokaaugnablik leiksins og brennandi kastljósið beinist ekki að einum blóraböggli. Liðið sem heild ber ábyrgðina. Hann segir pælinguna einnig áhugaverða út frá markaðs- sjónarmiði en hægt væri að koma fyrir auglýsingatímum á undan og eftir vítakeppninni. „Það var svo sem ekki það sem rak mig af stað, en hugmyndin getur sannarlega verið verðmæt í þeim skilningi líka.“ Spurður hvort hann hafi ekki áhyggjur af því að liðið sem vinni vítakeppnina verði bara í skotgröf- unum í framlengingunni, svarar Bragi hiklaust neitandi. „Nei, ég hef engar áhyggjur af því. Eins og regl- urnar eru nú þá þorir hvorugt liðið oftar en ekki að taka áhættu og þau hanga bara á boltanum en yrði þessu breytt þá yrði annað liðið að gera það sem hlýtur að brjóta leik- inn upp og auka hraðann.“ Hlutirnir fóru að gerast Eftir að hann hætti að dæma fór Bragi að leita leiða til að tryggja sér einkaleyfi á hugmyndinni og komst að því eftir langt ferli að það er nán- ast ógerlegt að fá einkaleyfi á hug- mynd þegar ekki er um neitt „pro- duct“ að ræða. „Eftir að ég fékk Ólaf Rúnar Ólafsson, lögmann og fyrrverandi sveitarstjóra í Eyja- fjarðarsveit, til að aðstoða mig, fóru hlutirnir að gerast. Allir sem komu að verkefninu skrifuðu undir yf- irlýsingu um 100% trúnað og fram- leiðsluferlið gat hafist. Geimstofan á Akureyri, Ólafur Númason og Arn- ar Sigurðsson, vann allt markaðs- efni með mér, merki P-Play, bækl- ing, bréfsefni o.s.frv. sem og kynningarmyndband. Vilhjálmur, sonur minn og vandræðaskáld, las textann inn á myndbandið og nokkrir aðrir komu að einstökum þáttum,“ segir Bragi. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, fékk P-Play pakkann í hendur 2014 en á þeim tíma var Michel Platini forseti sambandsins. Þess má geta að honum brást sjálf- um bogalistin í vítakeppni milli Frakka og Brasilíumanna á HM í Mexíkó 1986 og ætti því að tengja við téðar tilfinningar, enda þótt hans lið hafi farið með sigur af hólmi þann daginn. Platini sendi Braga þakkarbréf þar sem hann staðfesti höfundarrétt hans að P-Play. Í bréfinu kemur fram að Platini hafi sent pakkann á IFAB-nefndina – International Fo- otball Assosiation Board – en hún er sú „stofnun“ sem ein hefur heim- ild til að breyta knattspyrnulögum og -reglum. „Og þar situr P-Play enn,“ segir Bragi en Platini þakkaði honum sérstaklega fyrir áhuga hans og þá alúð og tíma sem hann hefði augljóslega lagt í verkefnið. Platini settur af Bragi var óheppinn að því leyti að Platini var settur af örskömmu eftir þetta vegna spillingarmála. „Senni- lega hafa öll mál sem hann mælti með og vildi fylgja eftir lent í „neðstu hillunni“ hjá IFAB. Þar að auki er IFAB-nefndin nær ein- göngu skipuð Bretum, þ.e. Eng- lendingum og Skotum, og ég er ekki viss um að þeir vilji lifa með því að einhver Íslendingur færi þeim snilldarlausn á langvarandi vanda- máli upp í hendurnar. Þessi lausn er enn brýnni eftir að reglan um tvö- falt vægi útivall- armarka var felld úr gildi nýverið. Þar með fáum við væntanlega enn fleiri leiðinlegar framlengingar, fleiri vítaspyrnukeppnir og fleiri sektarlömb sem verða að bera þunga byrði ævi- langt,“ segir Bragi. – Hefurðu rukkað UEFA eitthvað um frekari svör? „Nei, það hef ég ekki gert. Það er einmitt ástæðan fyrir því að ég kynni þessa hugmynd loksins opinberlega – til að fá umræðu um hana. Falli hugmyndin í frjóa jörð hlýtur UEFA að fá veður af því. Umræðan um galla vítakeppna er mjög hávær úti um allan heim núna – ekki síst á Bretlandseyjum – en svo gleymist þetta milli móta.“ Ekki hvort, heldur hvenær Bragi er ekki í vafa um að P-Play verði virkjað, það sé spurning um hvenær en ekki hvort. Hann sér fyr- ir sér að heppilegt yrði að byrja í úrslitakeppnum yngri landsliða og sjá hvort það gæfi ekki góða raun. Það væri líka vel hægt að virkja P- Play í lokakeppni HM á næsta ári. „Við fáum fleiri vítaspyrnukeppn- ir, fjörugar framlengingar og – um- fram allt – að það verði ekki fleiri sektarlömb á borð við ungu Eng- lendingana þrjá, Mbappé, Olmo og Morata, Svisslendingana þrjá og auðvitað Gareth Southgate frá fyrri tíma, sem var púað á á öllum leik- völlum í Englandi í heilt ár á sínum tíma eftir að hann klúðraði úr- slitavítaspyrnu á EM 1996. Ég las einu sinni að hann hefði íhugað að leggja skóna á hilluna á þeim tíma- punkti. Að létta byrðar þessara manna er langstærsti ávinningurinn af P-Play. Aumingja Southgate – hann klúðraði aftur vítaspyrnu- keppni fyrir Englendinga, nú af varamannabekknum. Hversu sann- gjarnt er það, að leggja slíkt á einn mann tvívegis á ævinni?“ Hinn 19 ára gamli Bukayo Saka þarf að bera þann kross að hafa misnotað seinustu vítaspyrnu Englands í úrslitaleiknum gegn Ítalíu á EM 2020. Bragi vill losna við þennan grimma hátt úr knattspyrnunni. AFP Fækkum sektarlömbum! Nái hugmyndir Braga V. Bergmann, sem hann hefur kynnt fyrir Knattspyrnusambandi Evrópu, fram að ganga myndi vítakeppni á HM og EM fara fram á undan framlengingu í leikjum og úrslitin aðeins gilda ef hvorugu liðinu tekst að knýja fram sigur. Ávinning- urinn er augljós: Draga myndi úr því að víta- skyttur verði gerðar að sektarlömbum. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is KNATTSPYRNA 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021 Dómaratríóið einbeitt á svip fyrir leik Danmerkur og Litháen í und- ankeppni HM á Parken í Kaupmannahöfn þann 25. ágúst 1993. T.f.v.: Gísli Björgvinsson, Bragi V. Bergmann og Sæmundur Víglundsson. Fjórði dóm- ari var Guðmundur Stefán Maríasson. Danska þjóðin biðlaði til Michael Laudrup, stærstu stjörnu sinnar, að gefa kost á sér í landsleikinn. Michael hafði átt í deilum við Nielsen landsliðsþjálfara og spilaði t.d. ekki með Dönum á EM árið áður, þegar Danmörk varð óvæntur Evrópumeistari. Danmörk varð að vinna leikinn við Litháen til að tryggja sér sæti í loka- keppni HM 1994. Skemmst er frá því að segja að Michael Laudrup varð við áskoruninni, gaf kost á sér rúmri viku fyrir leik og spilaði í fyrsta skipti við hlið yngri bróður síns, Brian Laudrup, í landsliðinu. Rúmlega 40 þúsund áhorfendur troðfylltu Parken og fögnuðu „týnda syninum“. Dan- mörk vann 4-0 og tryggði sætið sitt á HM. Bragi segist enn muna þann gríð- arlega hávaða sem var inni á leikvellinum. „Fjörutíu og eitt þúsund glaðir Danir létu svo vel í sér heyra að ég þurfti að hafa mig allan við til að leik- menn heyrðu í flautunni,“ segir hann. Þess má ennfremur geta að Bragi fékk 9,0 í einkunn frá eftirlitsmanni leiksins, hinum sænska Lars Åge Lagrell. „Ég var býsna sáttur við þá glæsilegu einkunn og félagar mínar í teyminu fengu líka toppeinkunn og umsögn.“ Bréf Michels Platinis, þáverandi forseta UEFA, til Braga 2014.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.