Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Side 17
Kjósandinn hefur væntingar og er oftast fremur að
horfa til framtíðar en fortíðar. En hafi flokkur eða
flokkar ofboðið kjósandanum, eins og Samfylking og
Vinstri grænir gerðu svo rækilega kjörtímabilið
2009-2013, þá verður þörfin til að rassskella pólitíska
óþurftarmenn öllu öðru yfirsterkari.
Annað er sláandi við fyrrnefnda könnun. Úrslitin
sem hún málar sýnir að smáflokkager gæti orðið yfir-
þyrmandi á þingi á næsta kjörtímabili.
Þeir sem eru fyrirferðarmiklir umsagnarmenn um
stjórnmál eru langoftast allir úr sama skipsrúmi. Þeir
virðast flestir áhugamenn um að smáflokkar um sér-
visku fái góðan framgang í kosningum. Það er hrein
undantekning ef gagn er af slíku.
Yrðu úrslit kosninganna í sama dúr og könnunin þá
er augljóst að marga flokka þyrfti til að koma saman
ríkisstjórn. Jafnvel þótt stærsti flokkurinn, Sjálf-
stæðisflokkurinn, ætti sæti í ríkisstjórn eftir kosn-
ingar, þá þyrftu samt fjórir flokkar að koma að henni!
Það liggur í augum uppi að það er ekki í anda eða
þágu Sjálfstæðisflokksins að taka þátt í eða leiða
slíka ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lengst
af verið táknmynd stöðugleika í íslenskum stjórn-
málum. Frá því eru þó ný og gömul frávik. Klofn-
ingur í flokknum fyrir 40 árum endaði með því að for-
maður Sjálfstæðisflokksins leiddi stjórnar-
andstöðuna og varaformaður sama flokks leiddi
ríkisstjórnina! Þetta hljómar helst eins og að Sjálf-
stæðisflokkurinn hefði orðið allsráðandi í landinu frá
febrúar 1980 og næstu rúm þrjú árin þar á eftir. En
þessi ömurleikatími flokksins sýndi um leið að yrði
þungavigtarflokkur landsins úr leik þá stæðu líkur til
að þjóðarhagur yrði stórlega laskaður.
Enda fór það svo að verðbólgan í landinu var á ekki
lengri tíma en þetta komin yfir 80 prósent á árs-
grundvelli og komin í 120% miðað við þá þrjá mánuði
sem verstir urðu. Í kjölfarið varð óhjákvæmilegt að
stíga harkalega á neyðarbremsur efnahagslífsins.
Komu slíkar aðgerðir misjafnt niður á almenningi
eins og vænta mátti og réð mestu hvar einstakling-
arnir voru staddir í hringekjunni þegar dregið var úr
hraða hennar með valdi. Foringjar þeirra flokka sem
að þessu stóðu töldu að fórna mætti flestu til að ná að
eyðileggja yfirburðastöðu Sjálfstæðisflokksins, sem
var yfirskrift og undirstrikun þessa verknaðar. Það
var skiljanlegt mat þeirra að enginn flokkur kæmist
óskaddaður út úr annarri eins gjörningahríð og þess-
ari. Það flokkast sennilega undir pólitískt kraftaverk
að slík ráðagjörð, eða eftir atvikum samsæri, fór út
um þúfur.
Að lokum fór þó svo að þeir sem sköpuðu skilyrði
þessa pólitíska óskapnaðar höfðu ekki úthald. Meg-
inástæða þess var að þeir sem réðu ekki við sig eða
stóðust hina miklu pólitísku freistingu að gefa Sjálf-
stæðisflokki högg sem yrði hans dauðahögg, var að
ofsaleg og stjórnlaus verðbólgan stefndi landinu í
öngþveiti. Meirihlutastuðningur hvarf frá stjórninni
og óróleiki var orðinn mikill í stjórnarflokkunum báð-
um. Flokksmenn óttuðust að tilraunin sem öllu mátti
fórna fyrir, að kljúfa Sjálfstæðisflokkinn, var að
verða „búmerang“ sem stefndi á flokka þeirra. Og í
ljós var komið að límið í Sjálfstæðisflokknum var
sterkt. Hann myndi því að lokum koma standandi
niður.
Eru skilaboð í könnuninni
til formanns VG?
Að lokum er óhjákvæmilegt að nefna eitt atriði könn-
unarinnar sem óneitanlega kemur á óvart. Það er út-
koma Vinstri grænna, flokks forsætisráðherrans.
Hann er eini stjórnarflokkurinn sem tapar þar
merkjanlegu fylgi á meðan að Sjálfstæðisflokkur og
Framsókn halda sínu, þótt fylgi hvorugs flokks, og þá
Sjálfstæðisflokks sérstaklega, sé ekkert til að hrópa
húrra fyrir.
Vinstri grænir myndu samkvæmt niðurstöðunni
tapa 4 þingsætum af 11. Yrði þetta raunveruleikinn
gæti VG ekki gert kröfu til embættis forsætisráð-
herra, og enda umdeilanlegt hvort að flokkurinn geti
gert slíka kröfu hvort sem er.
Og óneitanlega væri hæpið að VG teldi sér stætt á
af innanflokksástæðum að sækjast eftir ríkisstjórnar-
sæti við þessar aðstæður.
Það hefur legið í lofti, sem mat sem hafið sé yfir
vafa, að Katrín Jakobsdóttir njóti mikils persónulegs
fylgis og það langt út fyrir flokkinn. Ýmsar mælingar
hafa bent í þá átt. En yrðu úrslit kosninga eitthvað
svipuð þessum í tilviki VG væri staða þess flokks
gjörbreytt frá því sem áður var.
En undirstrika verður að allar þessar vangaveltur
hafa enn mjög takmarkað gildi vegna aðstæðna sem
áður voru raktar.
Kjósendur voru teknir í rúminu í sinni sumarvímu.
Þeir eru langfæstir komnir í pólitíska gírinn og vilja
sjálfsagt fá að vera lausir við hann í nokkrar vikur
enn.
Þegar næst verður kannað er ekki ósennilegt að
kjósendur verði öðruvísi upplagðir þegar þeir svara
sambærilegum spurningum.
Könnunin, sem birt var í gær, er eins og fyrr sagði
næsta einstök.
Það verður því spennandi að fylgjast með næstu
könnun. Þá mun verða runnið upp fyrir kjósendum að
kjörkassinn er skammt undan og þegar krossaður
seðillinn hefur runnið niður um rifu hans verður ekk-
ert aftur tekið, jafnvel ekki næstu fjögur árin.
Morgunblaðið/Eggert
’
Það hefur legið í lofti, sem mat sem
hafið sé yfir vafa, að Katrín Jakobsdóttir
njóti mikils persónulegs fylgis og það langt út
fyrir flokkinn. Ýmsar mælingar hafa bent í þá
átt. En yrðu úrslit kosninga eitthvað svipuð
þessum í tilviki VG væri staða þess flokks
gjörbreytt frá því sem áður var.
18.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 17