Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Síða 21

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Síða 21
18.7. 2021 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 21 TÍMAVÉLIN Smáratorgi 1, 201 Kóp., s. 588 6090, vl@verkfaeralagerinn.is Verkfæralagerinn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Ennþá meira úrval af listavörum Listverslun.is H eimildir getur borið að með ýmsum hætti, það þekkjum við sem vinnum á fjölmiðlum. Þannig leit fylgd- armaður ferðamanna inn til Vel- vakanda á Morgunblaðinu, daginn eftir að seinna stóra skemmti- ferðaskipið var hér um mitt sumar 1961, og lagði inn eftirfarandi hug- leiðingar: „Nú stendur sá tími hæst sem ferðamenn koma til landsins. Allar þjóðir keppast um að hæna til sín ferðamenn með öllu hugsanlegu móti, og sá gjaldeyrir sem ferða- menn koma með, er að verða æ ríkari þáttur í lífi ótal þjóða og liggur í því sambandi næst við að líta til frændþjóðanna á Norð- urlöndum, en einnig í Alaska hefur ferðamannastraumur orðið ein helzta tekjulind ríkisins og það á aðeins fáum áratugum. Hér á landi er vitanlega við ýmsar aðstæður að etja sem erfitt er að ráða við, t.d. óstöðugleika í veðurfari, en annað er meira á valdi okkar sjálfra. Hér veður uppi margskonar skilnings- leysi á þessum málum.“ Fylgdarmaðurinn nefndi eitt ljóst dæmi: „Lystiskipin, sem hing- að koma eru með mörg hundruð farþega, sem standa aðeins við hálfan sólarhring eða svo. Obbinn af þessu fólki ferðast fyrst og fremst til þess að láta fara vel um sig um leið og það fer vítt yfir. Það hefur mjög takmarkaðan áhuga fyrir menningu eða sögu viðkom- andi þjóða. Það tekur mýgrút af myndum, sem það sýnir seinna kunningjum sínum eða á fé- lagsheimilum og man þá oft óljóst af hverju eða hvaðan myndirnar eru. Þegar það segir ferðasögu sína, metur það ferðalagið fyrst og fremst eftir því hvort það hafi farið notalega um það, ef allt hefur gengið snurðulaust, er það ánægt og ferðin hefur verið vel heppnuð, og eðlilega því betur heppnuð sem ánægjan og skemmtunin hefur ver- ið meiri.“ Skilur ekki þess háttar Hins vegar ef eitthvað hefur komið flatt upp á það og valdið óþæg- indum, setur það sinn stimpil á við- komandi stað, að sögn fylgd- armannsins. Og svo hlóð okkar maður í og dró hvergi af sér. Rétt- ast að stúkumenn taki hér fyrir augun. „Þannig munu ótrúlega margir af slíkum túristum muna það eitt úr Íslandsferð að hér er ódrekk- andi vatnssull, sem innlendir kalla bjór, ógerningur að fá kokteil á undan mat í svokölluðu beztu hót- elum utan bæjarins eða létt vín með máltíð. Þetta fólk er vana- bundið hófsemdarfólk og skilur ekki þvílíkar ráðstafanir. Það getur smakkað áfengi án þess að verða drukkið. Það er sæmilega sið- menntað og lítur á víndrykkju sem þægilega örvun til félagslyndis og gleði. Viðhorf þeirra skapast ekki af ofstækisfullri dýrkun eða afneit- un. Það er hvorki drykkjusjúkling- ar eða fyrrverandi drykkjusjúk- lingar. Það hefur lært að fara með vín líkt og menn hafa lært að um- gangast eld án þess að brenna sjálfa sig. Og það spyr: hvernig stendur á svona reglugerðum?“ Er nema von að maðurinn spyrji? Erfitt að viðurkenna Og hverju á að svara? velti fylgd- armaður ferðamanna fyrir sér í þessu samtali við Velvakanda – sem þegar hér er komið sögu var orðinn vel vakandi. „Þröngsýni og einstrengingshátt er erfitt að viðurkenna í eigin fari eða að Íslendingar standi á lægra menningarstigi en aðrar þjóðir. Náttúrlega eru alls staðar til vand- ræðafólk, sem neytir áfengis sér til skaða og vansæmdar, en hér er tæplega meira af því fólki en ann- ars staðar og ekki getur það mótað svo viðhorf almennings. En svo er það hinn hópurinn, sem kann ekki eða treystir sér ekki að umgangast áfengi og vill því láta þennan van- mátt sinn bitna á öðru fólki. Því ekki er nóg með að það neiti sér sjálft um vín, það vill með lagaboð- um banna öðrum að njóta þess. Það gildir sama um það og um karlinn sem konan hjó í augað á, að hann vildi láta banna hænsna- rækt.“ Eftir þennan snarpa útúrdúr vék fylgdarmaðurinn aftur að ferða- mönnum og sagði dæmið einfalt: „Fyrsta skilyrðið er að vita hvað þeir vilja og síðan að veita þeim það eftir því sem tök eru á. Ef það tekst illa eða ekki fara þeir óánægðir, koma ekki aftur og vara aðra við reynzlu sinni. Það stoðar lítið þó að reynt sé að ginna þá með auglýsingum til landsins, ef þeir kunna illa við sig þegar hingað er komið, ef þeir verða hér að fara á mis við daglegu lífsþægindi, sem í öllum öðrum löndum eru talin sjálfsögð og engum dettur lengur í hug að deila um.“ Fylgdarmaðurinn klykkti út með því að vísa í skrif erlendrar blaða- konu sem skrifað hafði langa grein um Ísland veturinn áður í víðlesið tímarit í Bandaríkunum og lýst því yfir að daglegt líf hér væri með fá- dæmum óþjált og einstrengings- legt. „Og þetta kom henni því meir á óvart sem hún kunni ágætlega við einstaklinga og fólk sem hún kynntist. Á yfirborðinu ríkir hér enn einhver kurfsháttur frá dögum niðurlægingarinnar, þegar menn máttu hvorki standa né sitja vegna boða og banna, en við höfum sagt skilið við þá tíma og allt sem þeim fylgdi. Íslendingurinn í dag er orð- inn heimsborgari, og óttast ekki að lifa frjálsmannlegu lífi eins og aðr- ar þjóðir. Kurfshátturinn er eins og svitalykt sem menn þvo af sér og umfram allt er ekki útflutnings- vara.“ Við þurfum oftar að fá fylgd- armenn ferðamanna í heimsókn hingað á ritstjórnina! Ferðamenn við Gullfoss árið 1978. Engum sögum fer af vínveitingum þeim til handa. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Skemmtiferðaskip fyrir utan Reykjavíkurhöfn árið 1979, talsvert eftir ádrepu fylgdarmanns ferðamanna. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Kurfshátturinn er eins og svitalykt Fylgdarmaður ferðamanna sem drap niður fæti á ritstjórn Morgunblaðsins sumarið 1961 hafði sitthvað við ferðaþjónustuna hér á landi að athuga, svo sem forneskjulega afstöðu til áfengis sem ferðamenn þyrsti í. Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.