Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Síða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021
LÍFSSTÍLL
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
fastus.is
• Mjög auðvelt og fljótlegt í notkun
• Tilbúið til matreiðslu á 3-5 mínútum
• Afkastamikið og öflugt
• Mjög góð hitastýring á kolum
• Ytra byrði hitnar ekki
• Færanlegt á meðan það er í notkun
• Innra byrði má fara í uppþvottavél
• Taska fylgir
• Mikið úrval aukahluta
STÓRSNIÐUGT GRILL
Í GARÐINN, Á PALLINN EÐA Í FERÐALAGIÐ
SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á FASTUS.IS/LOTUSGRILL
Tókýó. AFP. | Flæðandi foss gerður
úr ljósi fellur á stein á meðan glóð-
arrós lýsist upp í ljósi, sem hríslar
um hana. Þetta er meðal þess, sem
ber fyrir augu á stafrænni listsýn-
ingu í japönskum skógi sem opnuð
var á föstudag.
Á sýningunni eru innsetningar úr
ljósi þar sem sjá má blóm í fullum
blóma, risakarfa og hefðbundna let-
urskrift eftir að dimma tekur og
skapa umhverfi sem virðist vera af
öðrum heimi á sýningu þar sem há-
tækni blandast náttúrunni.
Sýningin verður í fjöllum Kyushu
í suðurhluta Japans og er nýjasta
afurð listahópsins teamLab.
Hópurinn er þekktur um allan
heim fyrir töfrandi sýningar þar
sem fara saman myndir og hljóð í
vandlega hönnuðu rými.
„Stundum heldur fólk að stafræn
list og náttúran séu í algerri and-
stöðu hvor við aðra,“ sagði Takashi
Kudo, félagi í teamLab, við AFP á
kynningu á sýningunni í Tókýó þar
sem þar sem gefið var sýnishorn af
því hvernig sýningin myndi líta út.
„En um leið erum við á því að auð-
velt sé að blanda saman hinu staf-
ræna og náttúrunni vegna þess að
okkar „málning“ er ljós. Þannig að
við eyðileggjum ekki náttúruna, við
málum hvorki á trén eða steinana
… allt hverfur á daginn.“
Sýningin er í almenningsgarði,
sem rennur saman við ævafornan
skóg á Saga-svæðinu í grennd við
Nagasaki.
Skynjarar faldir í glóðarrós-
arunnum virkjast þegar fólk gengur
hjá og senda ljósgeisla, sem líkjast
eldflugum, í gegnum laufþykknið í
kring.
Á yfirborði tjarnar birtast af-
strakt línur úr fjólubláu, gulu og
grænu ljósi líkt og endurspeglun af
laufþykni neontrjáa fyrir ofan.
Og í yfirgefnu baðhúsi birtast
skær fyrirbæri í gólfinu í mótstöðu
við myrkrið inni og úti.
Kudo segir að sýningin, sem
nefnist „teamLab: skógur þar sem
guðir lifa“, muni hjálpa fólki að læra
að meta fegurð náttúrulegs um-
hverfis. „Laufin - þau virðast bara
vera græn en fyrir okkur eru þau
skjár.“
AFP
Flæðandi
ljós