Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 24

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021 FERÐALÖG Þ au Jordi Haro, Ester Servat og Jordi Cuenca voru stödd hér á landi nýverið til að kynna Andorra sem áfangastað fyrir ferða- þyrsta Íslendinga. „Við viljum átta okkur á því hvernig þið starfið og hvernig þjóð Íslendingar eru,“ segir Haro sem er fulltrúi ferðamálastjóra í Andorra. „Það er mikilvægt fyrir okkur að vita hvernig fólkið er í land- inu sem við bjóðum til okkar svo við getum undirbúið okkur vel. Þannig fá gestir bestu upplifunina af An- dorra.“ Haro segir að farið hafi verið að skipuleggja ferðir frá Íslandi til An- dorra árið 2019 en áætlað sé að fjölga ferðamönnum héðan sem koma til landsins næsta vetur. Hér á landi býður ferðaskrifstofan Tripical upp á ferðir til Andorra. „Okkur finnst við eiga mikið sameiginlegt með Íslend- ingum,“ segir Haro. „Þjóðfélagið, menningin og hvernig ferðamanna- iðnaðinum er háttað.“ Ekki bara skíðasvæði Andorra er smáríki í Pýreneafjöll- unum við landamæri Frakklands og Spánar. Þar búa rúmlega 76 þúsund manns á 468 ferkílómetra svæði sem þýðir að landið er minna en svæðið sem Reykjavík og Mosfellsbær leggja undir sig. Höfuðborg landsins heitir Andorra la Vella og er í rúm- lega þúsund metra hæð yfir sjávar- máli. Til landsins koma rúmlega 8 milljónir ferðamanna á ári hverju, flestir þeirra frá Frakklandi og Spáni. Andorra er þekktast fyrir skíða- brekkur sínar og stærstur hluti ferðamanna kemur á veturna. „En fólk kemur þangað líka til að versla og njóta náttúrunnar þar sem 90% af landsvæðinu er hrein náttúra,“ segir Haro en góðar aðstæður eru til bæði fjalla- og götuhjólreiða sem og fjall- göngu á sumrin. Þar sem landið er svo lítið og auð- velt að fara á milli staða, segir Haro ferðamenn geta nýtt sér allt það sem í boði er í Andorra. Fólk skíði til dæmis einn daginn en fari svo í versl- unarferð þann næsta en söluskatta- lög eru hagstæð í Andorra og því hægt að gera góð kaup þar. Þá er einnig að finna framúrskarandi mat- arhefð í Andorra þar sem áhrifa frá Frakklandi og Spáni gætir. Finnur ekki fyrir kuldanum Sólardagar á meðalári í Andorra eru um 300 en því hefur skíðafólk ekki átt að venjast á öðrum vetrar- áfangastöðum. Þótt aðstæður séu oftast góðar til skíðaiðkunar í brekk- um landsins er stundum nauðsynlegt að framleiða snjó og þannig er hægt að tryggja að snjór sé á 68% skíða- svæðanna frá lokum nóvembermán- aðar út skíðatímabilið. „Veðurfarið er mjög gott því það eru áhrif frá Miðjarðarhafinu sem valda því að það er mjög þurrt líkt og hér á Íslandi og því finnur maður ekki eins mikið fyrir kuldanum,“ seg- ir Servat sem starfar fyrir Grandval- ira-skíðasvæðið, eitt af þremur skíða- svæðum landsins. Paradís fyrir utan borgirnar Á sumrin, eðli málsins samkvæmt, er ekki hægt að halda skíðavæðum landsins opnum og því hafa flestir ferðamenn komið á veturna. Síðustu árin hefur hins verið gert meira í því að laða ferðamenn að landinu á sumr- in. „Við breytum skíðabrekkum okk- ar í fjallahjólaleiðir á sumrin,“ segir Cuenca en hann starfar fyrir Vall- Nord-skíðasvæðið. Hann segir mik- inn uppgang í hjólreiðum í landinu en tvær dagleiðir í Frakklandshjólreið- unum þetta árið voru hjólaðar í An- dorra, ein endaði og önnur hófst þar. Margt annað er hægt að gera í An- dorra á sumrin og nefnir Servat að níu holu golfvöllur sé starfræktur á Grandvalira-svæðinu á sumrin í ein- stöku landslagi í um 2.000 metra hæð. Enginn alþjóðlegur flugvöllur er í Andorra svo þeir sem fara þangað komast leiðar sinnar á bíl. Ferða- menn frá Íslandi fljúga flestir til Barcelona, í þriggja klukkutíma fjar- lægð, og keyra þaðan á bílaleigubíl eða taka rútu. „Þegar komið er út fyrir þær litlu borgir sem eru í Andorra ertu í para- dís,“ segir Haro og bætir við að ósnert náttúra Andorra skapi mjög rólegt andrúmsloft sem ferðamönn- um líki vel við. Mörgum skíðabrekkum Andorra er breytt í fjallahjólaleiðir á sumrin. Horft yfir bæina Soldeu og El Tarter. Þá sést Avet-brekkan þar sem skíðað er á heimsbikarmóti. Löndin eiga mikið sameiginlegt Til smáríkisins Andorra ferðast nú sí- fellt fleiri Íslendingar. Þangað fer skíðafólk á veturna og hjólreiða- fólk, göngugarpar og aðrir náttúruunnendur á sumrin. Sólardagar eru um 300 á ári og landið hefur upp á margt að bjóða. Böðvar Páll Ásgeirsson bodvarpall@mbl.is Jordi Haro, að ofan til vinstri, Ester Servat, að neðan fyrir miðju, og Jordi Cuenca, að ofan til hægri. Andorrur, hópur kvenna sem kunna að njóta, sést hér í skíðaferð í Andorra. Boðið er upp á skemmtilegar hjólaleiðir á sumrin í Andorra. Ljósmynd/Grandvalira

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.