Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.07.2021, Blaðsíða 28
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.7. 2021
LESBÓK
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ÿ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ÿ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ÿ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
MYRKVA RÚLLUGARDÍNUR
UMPÓLUN Íslandsvinurinn Ed Sheeran, sem þekktur
er fyrir silkimjúka poppslagara sína, hefur ábyggilega
komið mörgum í opna skjöldu þegar hann útilokaði
ekki, í samtali við breska blaðið The Sun, að hann ætti
eftir að snúa sér að dauðamálmi í framtíðinni. „Ég var á
bólakafi í dauðamálmi sem krakki. Ég hlustaði á Cradle
of Filth, Slipknot og allt það. Ég er ekki að segja að ég
sé þess umkominn að taka skrefið inn í þann heim en ég
lærði þessi riff á gítarinn á sinni tíð. Ég hef svo sem ekki
velt þessu fyrir mér – en væri þó alls ekki á móti því að
skapa eitthvað af þessu tagi,“ sagði Sheeran. Dani Filth,
forsprakki Cradle of Filth, greip þessa pælingu strax á
lofti á samfélagsmiðlum og Corey Taylor, söngvari
Slipknot, hefur lýst aðdáun sinni á Sheeran opinberlega.
Á leið í dauðamálminn? Ed Sheeran á
Laugardals-
vellinum.
Morgunblaðið/Kristinn M.
ALDUR Þegar írska leikkonan Fiona Shaw
hafði lagt leikhúsið í Bretlandi að fótum sér
og búin að leika í áhugaverðum kvikmyndum
þar í landi blasti við að stefna skónum næst til
Hollywood. Við komuna þangað litu menn
snöggt á hana, rannsakandi augum. „Þú ert
mjög gömul!“ Shaw brá að vonum í brún og
hugsaði með sér: „Fjandakornið, þetta er
slæmt!“ Enda var hún ekki nema 28 ára. Í
framhaldinu fékk hún hlutverk í kvikmynd-
inni Three Men and a Little Lady, lék úrillan
kennara. „Sú mynd rústaði kvikmyndaferli
mínum gjörsamlega,“ segir Shaw í samtali
við The Guardian og skellir upp úr.
Þú ert mjög gömul, 28 ára!
Írinn Fiona Shaw er vinsæl sjónvarpsleikkona.
AFP
Aisling Bea lék oft „fyndna pabbann“.
Stutt frá spaug-
inu í sorgina
FEÐUR Írski uppistandarinn og
leikkonan Aisling Bea heldur því
fram í samtali við breska blaðið In-
dependent að margir kvenkyns
uppistandarar eigi það sameigin-
legt að hafa alist upp án föður á
heimilinu; þeir hafi annaðhvort ver-
ið látnir eða látið sig hverfa. „Vís-
indamenn, lítið á það sjálfir. Ég hef
ekki tíma til þess,“ segir Bea sem
sjálf missti föður sinn aðeins
þriggja ára að aldri. Komst þó ekki
að því fyrr en áratug síðar að hann
hefði svipt sig lífi. Hún ólst upp með
fimm systrum og kveðst oft hafa
tekið að sér hlutverk „fyndna pabb-
ans“. Í samtalinu kemur einnig
fram að margir Írar líti ekki á spé
og sorg sem andstæður, heldur
þrífist þetta tvennt hlið við hlið.
Það er svo margt sem maður
sér ekki fyrir í þessu lífi.
Hver hefði til dæmis búist
við því að Turbo, tíunda breiðskífa
Judas Priest, ætti eftir að rata á
fóninn hjá mér í vikunni? Nú súpa
ugglaust margir hveljur enda er
Turbo langumdeildasta breiðskífa
breska málmbandsins goðsagna-
kennda og hleypti illu blóði í marga
á sinni tíð, ekki síst hörðustu aðdá-
endur bandsins. Mér er í fersku
minni að vér málmhausar að norðan
vorum einu sinni fyrir ofboðslega
mörgum árum spjaldaðir af koll-
egum okkar hér syðra fyrir að nefna
skífuna á nafn, hvað þá hafa hlustað
á hana oftar en einu sinni.
Judas Priest hafði skipað sér í
forystusveit málmsins á öndverðum
níunda áratugi síðustu aldar með
plötum á borð við British Steel,
Screaming for Vengeance og
kannski sérstaklega Defenders of
the Faith. Tónlistin var þung, þétt
og framsækin og Priest þótti hafa
fundið sinn eina sanna tón. U-
beygjan á Turbo, sem kom út 1986,
Rob Halford í essinu sínu á
tónleikum með Judas Priest
árið 2019. Kappinn verður
sjötugur í næsta mánuði.
Kynferðisleg
ögrun og
guðlast
Siðferði í dægurlagatextum var mjög í deiglunni í
Bandaríkjunum um miðjan níunda áratuginn eins
og Judas Priest og fleiri listamenn fengu að kenna
á þegar þeir lentu á lista yfir 15 viðbjóðslög.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Tipper Gore, síðar varaforsetafrú, átti aðild að nefndinni sem passa átti upp á
siðgæði í dægurtónlist og vernda börn og ungmenni um miðbik 9. áratugarins.
AFP
Vatnaskil urðu í lífi Robs Halfords, söngvara Judas Priest, árið sem
Turbo kom út, 1986. Hann þurrkaði sig upp. Halford er samkyn-
hneigður en var ekki kominn út úr skápnum á þessum tíma; um-
boðsmönnum og útgefendum bandsins þótti það óráðlegt með til-
liti til vinsælda og plötusölu. Halford gekkst ekki opinberlega við
kynhneigð sinni fyrr en 1998, í frægu viðtali á sjónvarpsstöðinni
MTV. Það þótti mikil dirfska enda er álíka erfitt fyrir málmlista-
menn að koma út úr skápnum og karla í boltaíþróttum. Halford
talar enn þá um sjálfan sig sem „eina
hommann í þungamálminum“.
Halford reyndist þungbært að leyna
kynhneigð sinni enda kallaði það yfir
hann mikið helsi sem leiddi til þung-
lyndis, depurðar og ofneyslu áfengis og
lyfja. Hann lenti að lokum á vegg og rit-
aði sig inn í meðferð í ársbyrjun 1986 og
hefur verið edrú síðan. Féll ekki þótt
hann yrði fyrir miklu áfalli skömmu síð-
ar þegar ástmaður hans fyrirfór sér.
Ástmaðurinn fyrirfór sér