Fiskifréttir - 08.01.1988, Side 11
föstudagur 8. janúar
11
Fréttir lll
Samið um smíði sex skipa i Portúgal:
Tvö til Hríseyjar og fjögur til Hafnar
RE. Óvíst er hve stóran rækju-
kvóta þessi skip fá en fyrirhugað er
að úthluta rækjukvóta í samræmi
við aflaviðmiðun undanfarinna
ára.
Vélar og tæki
Svo vikið sé nánar að tækjum og
tólum um borð í Hákoni ÞH, þá
má nefna að skipið er knúið 3000
hestafla Bergen Diesel - BRM 6
aðalvél (2205 kw - við 750 snún-
inga á mínútu) en hjálparvélar eru
tvær af gerðinni Cummins, 400
kwa hvor. Rafalar eru af gerðinni
Leroy Somer og framleiðir öxul-
rafallinn 1500 kwa við 1500 snún-
inga á mínútu. Gír og skrúfubún-
aður, þar með talinn skrúfuhring-
ur, er frá Ulstein en þess má geta
að skrúfan er 3.3 metrar í þvermál.
Sérstakur stöðuleikabúnaður er
einnig í skipinu og er hann fram-
leiddur hjá Ulstein.
Öflugur vindubúnaður
Allur vindubúnaður um borð í
Hákoni ÞH er frá Norwinch ef
nótavindan, sem er af Triplex-
gerð er undanskilin. Togvindurnar
eru tvær og er hvor um sig 30.5
tonna. Grandaravindur eru fjórar,
hver 9.7 tonna en gilsavindur tvær
jafn stórar. Þilfarskranar eru frá
Hydralift, 1.5 tonna og 2.5 tonna.
Fiskidæla er frá Rapp.
Af öðrum búnaði má nefna
Atlas og JRC - radara og berg-
málsmæla, JRC - plotter, Kaijo
Denki - sónar, Koden miðunar-
stöð og 2 Raynav Loran C - tæki.
Gyró - kompás og sjálfstýring er
frá Robertson og talstöðvar frá
Sailor. Aflamælar eru frá Scan-
mar.
Verksmiðjan
Rækjuverksmiðjan um borð í
Hákoni er frá Carnitech og líkt og
um borð í Pétri Jónssyni RE, eru
tvær rækjuflokkunarvélar um
borð. Auk venjulegrar fram-
leiðslulínu fyrir rækju er sérstök
„Japanslína" í verksmiðjunni í
rúmgóðu vinnslurýminu. Vogir
eru þrjár talsins og eru þær frá
POLS. Frystitækin samanstanda
af lausfrysti og plötufrystum og er
lausfrystirinn sem fryst getur 15
tonn af rækju á sólarhring, afrakst-
ur samvinnu Carnitech og Kværn-
er Kulde. Það er svo síðarnefnda
fyrirtækið sem á heiðurinn af
plötufrystunum en í þeim er hægt
að frysta samtals 15.2 tonn af rækju
á sólarhring. Heildarfrystigetan er
því rúm 30 tonn á sólarhring.
Rúmmál frystilesta er um 400 rúm-
metrar og eru þær sérstaklega út-
búnar til þess að taka við loðnu
þegar ekki er verið að veiða rækju
eða bolfisk.
Skipstjóri á Hákoni PH er Odd-
geir Jóhannsson frá Grenivík, 1.
stýrimaður er Hinrik Hringsson og
yfirvélstjóri er Sigurður Þorláks-
son. I skipinu eru íbúðir fyrir 23
skipverja í fimm eins manns klef-
um og níu tveggja manna klefum.
Öll aðstaða fyrir áhöfn er eins og
best verður á kosið, rúmgóð og
vistleg setustofa auk mjög góðrar
hreinlætisaðstöðu.
Samningar hafa tekist um smíði
sex skipa fyrir Islendinga í Portúg-
al. Skipin verða u.þ.b. 160 brúttó-
rúmlestir og er verð þeirra um 163
milljónir króna. Fjögur skipanna
fara til útgerðarfyrirtækja á Höfn í
Hornafirði en tvö skip fara til
Borgar hf. í Hrísey.
Þetta mál hefur átt sér nokkurn
aðdraganda en íslenska fyrirtækið
Nidana hf. hefur haft milligöngu
um kaupin, enda umboðsaðili
portúgölsku skipasmíðastöðvar-
innar hér á landi. Samið hefur
verið um það að Ráðgarður hf.
muni hanna skipin og sjá um allar
verklýsingar en Ráðgarður sá jafn-
framt um samningsgerðina fyrir
hönd íslensku kaupendanna.
Fyrirtækin sem samið hafa um
kaup á skipum í Portúgal eru þessi:
Borgey hf., Auðunn hf., Þinganes
hf. og Einir hf. á Höfn í Hornafirði
og Borg hf. í Hrísey sem fest hefur
kaup á tveimur skipum. Fiskifrétt-
ir hafa áður greint frá áhuga
Ferskfiskútflutningur frá ís-
landi til Bretlands jókst um 10% að
magni til á síðasta ári ef miðað er
við árið 1986. A sama tíma dróst
ferskfiskútflutningur til Þýska-
lands saman um 5%. Verðmæta-
aukningin á Bretlandsmarkaði
varð 22% í ísl. krónum talið en
16% ef miðað er við ensk sterlings-
pund. I Þýskalandi varð verð-
mætaaukningin 10% í ísl. krónum
talið en 8% samdráttur ef miðað er
við þýsk mörk.
Þetta eru helstu niðurstöður
sem lesa má út úr skýrslu LIU um
ferskfiskútflutninginn á sl. ári.
Alls voru flutt út rúm 88 þúsund
tonn af ferskum fiski með skipum
og gámum til helstu viðskiptalanda
okkar á þessu sviði, Bretlands og
V- Þýskalands á sl. ári og er það
5% aukning þegar á heildina er
litið. Auk þess var flutt út nokkuð
magn til annara landa.
Ef litið er á Bretland þá voru
flutt þangað rúmlega 61 þúsund
tonn á sl. ári að verðmæti rúmir 3.7
milljarðar ísl. króna. Meðalverð á
kíló ef miðað er við allar tegundir,
var 61.09 kr. og er það 12% hækk-
un í krónum talið frá árinu á und-
an. Alls voru flutt út rúmlega 36
þúsund tonn af þorski á þennan
markað og var meðalverð á kíló,
60.27 kr. Meðalverð á ýsu var
69.44 kr. og 66.02 kr. á kola. Er
verðhækkunin á ýsunni 25% og
35% á kolanum, þrátt fyrir tals-
verða magnaukningu. Alls voru
flutt tæplega 43 þúsund tonn af
fiski með gámum til Bretlands á
árinu en rúm 18 þúsund tonn með
Hornfirðinga en útgerðarfyrirtæk-
ið í Hrísey bættist síðar í hópinn.
Það gerir nú út tvö skip, Eyborg
fiskiskipum. Meðalverð á kíló úr
gámum er 61.34 kr. en 59.32 kr. úr
skipum.
Til Þýskalands voru alls flutt
tæplega 27 þúsund tonn af íslensk-
um ferskfiski á árinu og er það
e.t.v. meira en hægt var að búast
við eftir „ormafárið" margfræga.
Verðmæti útflutningsins nam rúm-
Nokkur eftirvænting ríkir nú í
upphafi vetrarvertíðar um það
hvort helstu fiskvinnslufyrirtækin
á Suðurnesjum fari með fisk af bát-
um sínum inn á fiskmarkaðina eða
semji beint við sjómenn um verð-
lagningu. Að minnsta kosti eitt
stórt útgerðar- og fiskvinnslufyrir-
tæki í Grindavík, Þorbjörn hf.,
hefur ákveðið að setja allan fisk af
bátum sínum inn á markað í jan-
úarmánuði til reynslu.
Eiríkur Tómasson hjá Þorbirni
hf. staðfesti þetta í samtali við
Fiskifréttir og sagði að þetta hefði
verið niðurstaðan af viðræðum
fyrirtækisins við sjómenn á bátum
þess, en Þorbjörn hf. gerir út fimm
báta. „Við erum fyrst og fremst
spenntir að sjá hvort þessi nýjung
leiði til bættra samskipta og að við
fáum betri fisk til vinnslu, auk þess
sem markaðurinn veitir okkur
greiðslutryggingu fyrir þann fisk
sem við seljum öðrum“, sagði
Eiríkur og bætti við: „Ef menn
EA og ísborg EA, 148 og 55 tonna
skip. Öll Hornafjarðarskipin
verða útbúin til alhliða veiða, þ.e.
um 1.3 milljarði ísl. króna. Meðal-
verð á kíló í ísl. krónum var 50.06
kr. og er það 9% hækkun frá árinu
á undan. Helsta tegundin, karfi,
seldist fyrir 50.79 kr. að jafnaði
hvert kíló og er það 10% hækkun.
Aðrar tegundir vega minna en þó
er rétt að benda á að meðalverð á
ufsa var 49.11 kr. og er það 15%
þora ekki að takast á við nýjungar
verður engin framþróun“.
Ekki er ljóst ennþá, hvort önnur
stór fiskvinnslufyrirtæki í Grinda-
vík gera slíkt hið sama. Björgvin
Ekki skortir áhuga síldarsalt-
enda og útgerðarmanna á því að
sækja og salta sfldina sem leyft
verður að veiða vegna síðbúinna
óska Sovétmanna um 30 þúsund
tunnur af sfld til viðbótar við áður-
gerðar pantanir. Að sögn Síldar-
útvegsnefndar hafði 21 síldarsalt-
andi á Austfjörðum af þeim 24 sem
söltuðu á haustvertíðinni lýst
áhuga á að taka þátt í þessu verk-
efni. Ennfremur stóð til að kanna
nú í vikunni síld við Eldey í því
skyni að salta hana í Grindavík, en
þegar þetta er skrifað er ekki vitað
hvort af þessu verður.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
á línu-, neta-, tog- og nótaveiðar
en ekki er frágengið með útbúnað
Hríseyjarskipanna tveggja.
hækkun frá fyrra ári. „Ormafárið“
umrædda virðist aðallega hafa
bitnað á gámaútflutningnum því
hann dregst verulega saman á
meðan skipin halda sínum hlut.
Aðeins rúm 9 þúsund tonn voru
flutt út með gámum og er gáma-
fiskurinn um 12% verðminni en
skipafiskurinn.
Gunnarsson hjá Fiskanesi hf.
sagði í samtali við Fiskifréttir, að
ekki hefði verið mótuð stefna í
málinu ennþá, enda veiðar rétt að
hefjast eftir áramótin.
veitt 14 bátum leyfi til síldveiða nú í
janúar og tóku leyfin gildi kl. 18
hinn 5. janúar. Þessir bátar eru:
Akurey SF, Heiðrún EA, Björg
Jónsdóttir ÞH, Steinunn SF, Þorri
SU, Sæljón SU, Vísir SF, Sigurður
Ólafsson SF, Geir goði GK, Sig-
þór ÞH, Vonin KE, Haukafell SF,
Arney KE og Sif SH. Bátarnir fá
400 tonn hver og eru tveir þriðju af
því dregnir frá væntanlegum kvóta
sömu báta á haustvertíðinni 1988.
Samkvæmt upplýsingum að austan
hefur orðið vart síldar í Reyðar-
firði og víðar á Austfjörðum og
telja menn að ekki verði erfiðleik-
ar að ná þeirri sfld sem má veiða.
Ferskfiskútflutningur 1987:
Meðalverð hækkaði um 12% í Bretlandi
— en if#ti 9% í Þýskalandi ef miðað er við ísl. krónur
Þorbjörn hf. setur allan
sinn fisk á markað
Mikill áhugi á síldinni
L