Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 02.07.2021, Blaðsíða 13
AFP Litrík hátíð var haldin í Kína í gær er fagnað var aldar- afmæli kínverska Kommúnistaflokksins með athöfn á Torgi hins himneska friðar í Peking. Mökkur af dúfum setti sinn svip á samkomuna. Hátíðarræðuna flutti Xi Jinping forseti og hrósaði hann framgangi landsins allt frá niðurlægingu nýlendutímans og til stórveldis. Vitn- aði hann djúpt í sögu Kína til að minna þjóðernissinna heima fyrir og andstæðinga erlendis á þjóð hans – og ris hans sjálfs til valdamesta manns Kína. agas@mbl.is Aldarafmæli Kommúnistaflokksins FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 IB ehf | Fossnes A | 800 Selfoss | ib.is Nánari upplýsingar ib.is Ábyrgð og þjónusta fylgir öllum nýjum bílum frá IB Sími 4 80 80 80 25 ára reynsla INNFLUTNINGUR AF NÝJUM OG NOTUÐUM BÍLUM VERKSTÆÐI VARAHLUTIR Ágúst Ásgeirsson agas@mbl.is Frumbyggjaþjóð í Kanada segist hafa fundið líkamsleifar 182 manns til viðbótar við 751 lík sem fannst í fyrri viku og 215 sem uppgötvuðust í maí sl. Leifarnar fundust í gær við land- areign fyrrverandi heimavistarskóla í Bresku-Kólumbíu. Þau eru langflest af börnum en fulltrúar frumbyggja- þjóðarinnar sögðu of snemmt að segja hvort þau væru af fyrrverandi nemendum skólans. Talið er að börn- in hafi tilheyrt Ktunaxa-þjóðinni og verið á bilinu 7-15 ára. Hinir óhugnanlegu líkfundir í fjöldagröfum hafa valdið ólgu um allt Kanada. Var m.a. hvatt til þess að þjóðhátíðardeginum 1. júlí yrði aflýst. Fulltrúar frumbyggja segja að gera megi ráð fyrir því að fleiri grafir af þessu tagi eigi eftir að finnast. „Mað- ur er aldrei nógsamlega undirbúinn fyrir eitthvað sem þetta,“ sagði Jason Louie, indjánaforingi af þjóðinni Ktu- naxa. Sumar leifar lágu grunnt, eða aðeins á eins metra dýpi. Við rann- sóknirnar hefur verið beitt tækni sem gerir kleift að sjá ofan í jarðlögin. Í maí fundust 215 lík barna frum- byggja Kanada í ómerktum gröfum í Kamloops í Bresku-Kólumbíu. Þá skýrðu leiðtogar frumbyggjaþjóðar- innar Cowessess frá fundi 751 líks, mestmegnis barna, við lóð grafreits á lóð annars skóla í Marieval í fylkinu Saskatchewan. Grafirnar ómerktu sem geymdu 182 manns fundust á svæði skammt frá skóla í Cranbrook í Bresku-Kól- umbíu sem kenndur var við kaþólska trúboðsreglu heilagrar Efgeníu. Kaþólska kirkjan rak hann frá 1912 og fram á áttunda áratug 20. aldar. Skólinn var einn rúmlega 130 heima- vistarskóla sem börnum var skylt að sækja. Kostaði kanadíska stjórnin reksturinn á 19. og 20. öldinni í þeim tilgangi að neyða æskumenni úr röð- um frumbyggja til að samlagast hinni nýju herraþjóð. „Það er afar erfitt mál og flókið að staðfesta hvort um er að ræða leifar nemenda Efgeníuskól- ans eður ei,“ sagði í tilkynningu leið- toga frumbyggjaþjóðanna. Fundur fjöldagrafanna á sér stað á sama tíma og Kanada reynir að svara samviskuþrautum vegna arfleifðar heimavistarskólanna. Síðasta lík- fundinn ber nánast upp á Kanada- daginn 1. júlí en þann dag 1867 sam- einuðust þrjár breskar nýlendur svo úr varð Dominion Kanada, sem er eldra heiti á landi í breska heimsveld- inu sem hafði eigin heimastjórn. Frumbyggjar hafa margir hverjir aldrei viðurkennt Kanadadaginn og hafa slíkar tilfinningar aukist fremur en hitt. Hátíðarhöldum aflýst Bæjar- og sveitarstjórnir víða um landið höfðu aflýst hátíðarhöldum og styttur af fólki sem tengdist heima- vistarskólunum verið skemmdar eða fjarlægðar um land allt. Loks hafa átta kaþólskar kirkjur í hverfum frumbyggja brunnið með grunsam- legum hætti frá því grafirnar fundust. Rannsakar lögreglan brunana sem íkveikju vegna þeirrar miklu reiði sem ólgar undir niðri. Auk þessa hef- ur fjöldi kirkna verið skemmdur og þær ataðar út í rauðri málningu. Hef- ur almenningur krafist þess að Frans páfi biðjist opinberlega afsökunar á ofbeldinu sem átti sér stað gagnvart börnum frumbyggja í kaþólsku heimavistarskólunum. Justin Trudeau forsætisráðherra sagði um líkfundina að þeir hefðu „knúið okkur til umhugsunar um hið sögulega og viðvarandi óréttlæti sem frumbyggjar eru beittir“. Baðst hann afsökunar á „skaðlegri stjórnar- stefnu“ vegna skólanna. Hann hvatti Kanadamenn til sátta og fordæmdi eyðilegginguna sem hef- ur átt sér stað. „Skemmdarverk á til- beiðslustöðum eru óviðunandi og þeim verður að linna. Við verðum að vinna saman til að bæta úr því sem hefur farið úrskeiðis. Hver og einn hefur hlutverki að gegna.“ Ásamt fulltrúum frumþjóðanna hvatti hann Frans páfa til að biðjast afsökunar á framferði skólanna. AFP Minningarstund Hundruð manna sóttu kyrrðarstund við eina af fjöldagröf- unum sem fundist hafa í Bresku-Kólumbíu í Kanada síðustu daga og vikur. Enn fleiri lík finnast í Kanada - Líkfundirnir óhugnanlegu hafa valdið mikilli ólgu - Vilja afsökunarbeiðni páfa Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO, segir að kórónuveirusmit í Evrópu séu að færast aftur í aukana og þró- unin undanfarnar 10 vikur sé því að snúast við. „Aukning smita nam 10% í síðustu viku og eru meiri sam- gangur fólks, ferðalög og fækkun að- haldsaðgerða meginskýringin,“ sagði æðsti maður WHO í Evrópu, Hans Kluge. Í skýrslu sóttvarnastofnunar ESB, ECDC, í gær álítur hún að delta-afbrigði kórónuveirunnar geti verið allsráðandi á ESB-svæðinu við ágústlok, eða 90% tilfella nýsmits. Kluge varaði við því að umskiptin ættu sér stað samhliða vaxandi veldi hins bráðsmitandi delta-afbrigðis. Þess varð fyrst vart á Indlandi og sagði Kluge að það myndi í einni svipan geta yfirtekið alpha-afbrigðið, sem fyrst fannst í Englandi. Kluge sagði bólusetningar ekki hafa verið nógu hraðar til að bjóða upp á nauðsynlega vernd. Komið hefur í ljós að núverandi bóluefni veita vörn gegn delta-afbrigðinu. Að sögn Kluge er meðaldreifing bólu- settra á Evrópusvæði WHO 24%. Helmingur gamals fólks og starfs- manna heilbrigðisþjónustunnar er enn óvarinn. „Þetta er óásættanlegt og langt frá þeirri 80% dreifingu meðal fullorðinna sem nauðsynleg er talin,“ sagði Kluge. Kórónuveirufaraldurinn hefur lát- ið mjög til sín taka í Rússlandi síð- ustu daga. Þriðja daginn í röð skýrðu yfirvöld frá nýju meti dauðs- falla af völdum veirunnar. Létust 672 í gær, 669 í fyrradag og 652 á þriðjudag. Orsök þessa er hröð framrás delta-afbrigðisins og skortur á bólusetningum. agas@mbl.is AFP Bólupassi Bóluefnaskírteini ESB var tekið í notkun í gær. - Kórónuveirusmitum fjölgar á ný í Evrópu - 10% aukning Umskipti til hins verra Lögregla skaut táragasi að fólki í Istanbúl í gær sem mótmælti umdeildu brott- hvarfi Tyrkja frá sáttmála sem mið- ar að því að draga úr ofbeldi gegn konum og heim- ilisofbeldi. Recep Tayyip Erdogan fékk yfir sig skæðadrífu gagnrýni úr öllum heimshornum í mars er hann til- kynnti að Tyrkir hefðu ákveðið að segja sig frá sáttmálanum, sem kenndur hefur verið við Istanbúl. Kom úrsögnin til framkvæmda í gær. Þessu var mótmælt víða í landinu í gær og var andrúmsloftið spennu þrungið er lögregla hugðist halda mótmælendum frá Taksim-torginu í Istanbúl. Ruddist fólkið gegn veg- artálmum þrátt fyrir ítrekaðar aðvar- anir lögreglunnar. Á endanum lauk öllu friðsamlega. Sáttmálinn er frá 2011 og hafa 45 lönd staðfest hann auk ESB. Sam- kvæmt honum ber löndum að setja í refsilöggjöf sína sérstök ákvæði um glæpi, þar á meðal nauðganir og um- skurn kvenna. Með ákvörðun sinni freistar hann þess að fá stuðning íhaldsafla og þjóðernishópa til að sitja enn um sinn að völdum sem staðið hafa í 18 ár. Réttindasamtök segja að ákvörðun Erdogans kalli meiri hættu yfir tyrk- neskar konur, en ofbeldi gegn þeim hefur verið ærið áður. TYRKLAND Segja sig frá sátt- mála gegn ofbeldi Recep Tayyip Erdogan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.