Morgunblaðið - 02.07.2021, Side 17

Morgunblaðið - 02.07.2021, Side 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. JÚLÍ 2021 Kringlan 4-12 | s. 577-7040 | www.loccitane.is Verbena hinn fullkomni sumarilmur Við erum almenn- ingur, þau okkar í Reykjavík sem fara um 80% ferða sinna yfir árið á bílum. Um er að ræða skattgreið- endur og kjósendur, sem kusu ítrekað yfir sig stjórnmálafólk, sem er harðákveðið í að breyta hugsunum og ákvörðunum okkar. „Við þurfum að breyta því hvernig við hugs- um,“ segir forsætisráðherrann. Borgarstjórnin vill líka breyta hegð- un þegnanna að sínu skapi með þvingunum og skattpíningu. Þarfir almennings Hvað kom fyrir sjálfstæðan vilja fólks, löngun til þess að fylgja sann- færingu sinni og kjósa pólitíkusa sem styðja við þann lífsstíl sem kjósandinn kýs sér sjálfur? T.d. að nota nýlega nýorkubílinn sinn til að komast allra sinna ferða á skjótan hátt og stytta þannig vinnuvikuna, ef yfirvöld standa sig og halda vega- kerfinu skilvirku. Hví samþykkir al- menningur að vegakerfið og skatt- peningar þeirra verði þeim Þrándur í Götu og miðist við þarfir 4% þegn- anna sem ferðast með Strætó yfir árið? Borgarlínan er þvílíkt yfirskot til þess að þjónusta þessi 4% að það tekur engu tali. Almenningsvagnar Bílar eru almenn- ingsvagnar, ekki strætó, sem er fyrir þröngan sérhóp. Ef einhver þarf að breyta hugsun einhvers þá er það almenningur að breyta hugsun pólitík- usa um það hvernig þeir þjóni flestum þegnum sem best. Þá loks væri hlustað á 80 prósentin, ekki bara 4 prósentin sem hafa sóað milljörðum króna í Strætó nú þegar og stefna í 100-200 milljarða króna með Borg- arlínunni. Við erum almenningur Eftir Ívar Pálsson Ívar Pálsson »Ef einhver þarf að breyta hugsun ein- hvers þá er það almenn- ingur að breyta hugsun pólitíkusa um það hvernig þeir þjóni flest- um þegnum sem best. Höfundur er viðskiptafræðingur með útflutningsfyrirtæki. Fyrir skemmstu fannst mér ég sjá ein- hvers staðar haft eftir Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur ráðherra að henni fyndist unga fólkið vera úr tengslum við sjávarútveginn, sem ég held að sé rétt ályktun hjá henni. Spyrja má af hverju. Að mínu mati eru ástæðurnar fleiri en ein og vafalít- ið ekki allar auðgreindar. Ein er trúlega sú að umræðan um sjávar- útveginn hefur breyst alveg gríð- arlega á nokkrum tugum ára frá því að vera umræða um fjöregg og stolt þjóðarinnar og helstu og nán- ast einu gjaldeyrisskapandi at- vinnugrein hennar í að vera hýsill svikahrappa sem eru að ráðskast með þessa sameiginlegu auðlind okkar sjálfum sér og sínum til auðsöfnunar, Samherjamálið er þar sjálfstæður kapítuli sem ég ætla ekki að fjalla um né hafa skoðun á. Tvö fullkomin systurskip bætast í flotann Fyrir skemmstu komu tvö ný fullkomin systurskip til landsins, Vilhelm Þorsteinsson EA og Börk- ur NK. Skip sem kosta hvort um sig tæpa sex milljarða, eða alls um 12 milljarða. Var komu þessara fullkomnustu skipa í eigu lands- manna gefinn mikill gaumur? Ekki að mínu mati. Landsbyggð- armiðillinn N4 á Akureyri fjallaði ítarlega um Vilhelm en lítið sem ekkert um Börk. Þjóðarmiðillinn okkar RÚV fjallaði eitthvað um bæði skipin en ekki að neinu gagni að mér fannst. Voru tekin viðtöl tvo æðstu yfirmenn skipanna sem bera einir ábyrgð, samkvæmt lög- um, skipstjórann og yfirvélstjór- ann? Var greint frá nöfnum yf- irvélstjóranna? Nei, fyrir því var ekki haft. Minnir að ég hafi séð viðtal við skipstjórann á Vilhelm á N4 og einhverja aðra í áhöfninni á þeim miðli en minni skil voru gerð komu Barkar til landsins. Af hverju finnst mér að það þurfi að gera starfi yfirvélstjórans á skipi með öllum þeim fjölbreytta búnaði sem þar er um borð meiri og betri skil en gert var? Það er m.a. vegna þessa: Alþjóðlegar kröfur Það tekur 10 ár að öðlast rétt- indi til þess að sinna þessu starfi, sem skiptist í fimm ára stíft bók- nám sem komið er á háskólastig, m.a. í Danmörku, og um tveggja ára nám á viðurkenndu vélaverk- stæði sem lýkur með sveinsprófi. Að þessu loknu tekur við þriggja ára siglingatími sem vélstjóri á skipum með tilgreindum vélbún- aði. Hér er um alþjóðlegar kröfur að ræða undir eftirliti Alþjóðasigl- ingamálastofnunarinnar. Um tíma stóð styr um námið hjá okkur, fyrst og fremst námslengdina, þá- verandi forysta LÍÚ, með lög- mann samtakanna í forystu, var svo blönk í fræðunum að halda því fram að hér væri um alíslenska námslínu að ræða setta fram af annarlegum hvötum sem engar skýringar fengust að vísu á. Það var ekki fyrr en fenginn var pró- fessor við Háskóla Íslands til þess að bera námið og námslengdina saman við danska vélstjóranámið sem þessi einsöngur lögmannsins hljóðnaði; niðurstaðan leiddi í ljós að íslenska vélstjóranámið var styttra ef eitthvað var. Mín skoð- un er sú að þessi atlaga lögmanns- ins að starfsheiðri vélstjóra hafi leitt af sér neikvæða umræðu í samfélaginu um störf þessara manna og verið sjávarútveginum sem atvinnugrein síst til fram- dráttar og þegar tímar liðu fyrst og fremst opinberað hvað mál- flutningurinn var galinn og inni- stæðurýr. Mat fjölmiðla á mikilvægi starfa Við heyrum og les- um um að þessi eða hin/hinn hafi skipt um starfsvettvang eða verið ráðin/n til ákveðinna ábyrgð- arstarfa svo sem sem ráðuneytisstjóri eða skrifstofustjóri í ein- hverju ráðuneytanna, svo ekki sé nú minnst á störf í banka eða sjóði af einhverju tagi. Ráðning í þessi störf telst til tíðinda þótt ég átti mig ekki alveg á ábyrgðinni sem fylgir þeim. Minnist þess ekki að einstaklingar sem hafa orðið berir að mistökum hafi t.d. goldið fyrir með missi starfsréttinda enda ekki um nein eiginleg starfsréttindi að ræða hvað varðar flest þessi störf þótt þar sé krafist háskólagráðu af ein- hverju ákveðnu tagi eins og stund- um kemur fram. Menntunar sem nýtist í starfi. Hefur einhver rekist á frétt sem greinir frá því að þessi eða hinn skipstjórinn eða yfirvélstjórinn hafi skipt um starf, verið ráðinn af einu skipi yfir á annað? Ég minn- ist þess ekki þótt við séum að tala um skip/vinnustað sem kostar allt að sex milljörðum og dregur ár- lega að landi verðmæti sem geta numið allt að tveimur milljörðum króna. Vinnustað þar sem raf- magnsframleiðslan er um sex megavött til eigin þarfa sem svar- ar til orkunotkunar um 3.000 manna byggðarlags hjá okkur. Nei, fjölmiðlarnir telja bírókra- tíuna fréttnæmari, hverjir sinna hinum ýmsu störfum hjá hinu op- inbera, t.d. skrifstofustjórn og stjórn ráðuneyta svo ekki sé nú minnst á hin helgu vé mammons; stjórnunarstörf í fjármálageir- anum þar sem sérfræðingar með margar gráður rýna í herlegheitin. Eðlilega bliknar starf yfirvélstjór- ans í þeim samanburði, hans hlut- verk er bara að reyna eins og kostur er að trygga að allur flókni vélbúnaðurinn í um sex milljarða króna skipi skili sínu, sem er for- senda þess að allir gáfumennirnir hafi eitthvert efni að vinna úr. Hin helgu vé bírókratíunnar Eftir Helga Laxdal » Gera menn sér grein fyrir því að raf- orkunotkunin um borð getur numið allt að sex megavöttum sem svarar til heildarnotkunar um 3.000 manna sveitarfé- lags? Höfundur er vélfræðingur og fyrrv. forseti Norræna vélstjórasambands- ins. punkta60@gmail.com Helgi Laxdal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.