Fiskifréttir - 19.12.1997, Page 3
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
3
átta til níu milljónir króna. Það er
auðvitað fráleitt að greiða slíka
upphæð í ríkissjóð bara til þess að
skipin geti sinnt verkefnum sem
þeim bjóðast utan landhelginnar.
Helmingur
aflaverðmætisins utan
landhelginnar
Er við ræddum við Kristján
var Svalbakur EA á þorskveið-
um á Halamiðum og átti veiði-
ferðin að standa fram á Þorláks-
messu.
— Það er gaman að vera kom-
inn inn í landhelgina að nýju og
ekki spillir fyrir að veiðin er ág-
æt. Það er reyndar ekki sami
þéttleiki á þorskinum hér á Hal-
anum nú og verið hefur á sama
tíma undanfarin ár. Hér er engin
loðna og það er sennilega
ástæðan fyrir því að þorskurinn
þéttir sig ekki. Hins vegar kvört-
um við ekki. Við höfum verið að
taka um 20 tonn af þorski á sólar-
hring og reynum að fá þetta fimm
til átta tonn í holi. I sumum hefur
aflinn farið niður í um tvö tonn
en mest höfum við fengið um 15
tonna hol, segir Kristján en þess
má geta að á þeim þremur og
hálfa ári sem Svalbakur EA hef-
ur verið í íslenska flotanum hefur
skipið samtals verið 20 mánuði á
veiðum fyrir utan landhelgina.
— Mér telst til að um helming-
ur aflaverðmætisins á þessum
tíma hafi fengist utan landhelg-
innar. Við höfum verið á rækju-
veiðum á Flæmingjagrunni, þor-
skveiðum í Smugunni, á úthafsk-
arfaveiðum á Reykjaneshrygg og
nú síðast á úthafskarfa- og grá-
lúðuveiðum í grænlenskri land-
helgi, segir Kristján Halldórsson.
plastvörubretti, sem
falla að alþjóðlegum
flutningastöðlum og
eru sérhönnuð til nota
i matvælaiðnaði.
Einangruð ffiskiker
afýmsum stærðum;
hefðbundin eða
endurvinnanleg
ofurker.
Góðar vörur
-framleiddar undir ströngu gædaeftirliti
úr hráefnum sem eru alþjóðlega viður-
kennd tii nota í matvælaiðnaði.
BORGARPLAST
Sefgarðar1-3 • 170 Seltjarnarnes
Simi: 561 2211 • Fax: 561 4185
HF.
íslenskir markaðir
Allir markaðir Vikan 7.-13. des. 1997 Hæsta Lægsta Meðal- verð verð verð Tegund (kr/kg) (kr/kg) (kr/kg) Magn (kg)
Annar afli 292,00 30,00 78,31 4.946
Annar flatfiskur 46,00 23,00 38,62 289
Bland. 50,00 30,00 40,35 1.516
Blálanga 75,00 31,00 60,86 2.076
Djúpk. 75,00 75,00 75,00 815
Gellur 346,00 300,00 313,41 558
Grásl. 10,00 10,00 10,00 91
Hlýri 161,00 120,00 134,37 9.906
Hrogn 210,00 10,00 71,32 152
Karfi 96,00 5,00 70,10 31.977
Keila 78,00 10,00 60,70 50.649
Langa 110,00 15,00 78,05 27.164
Langlúra 112,00 70,00 96,77 5.467
Litli karfi 5,00 5,00 5,00 57
Lúða 750,00 100,00 555,43 5.205
Lýsa 42,00 5,00 37,03 2.320
Rækja 85,00 85,00 85,00 670
Steinb./ hlýri 145,00 118,00 132,85 2.093
Sandkoli 79,00 40,00 61,71 8.085
Skarkoli 159,00 50,00 124,84 24.645
Skata 135,00 115,00 131,46 525
Skrápfl. 70,00 10,00 50,09 5.399
Skötusel. 550,00 96,00 226,64 7.331
Steinb. 1.600,00 44,00 138,15 35.600
Stórkjafta 120,00 30,00 64,15 827
Sólkoli 325,00 100,00 196,28 1.116
Tindask. 50,00 5,00 8,42 21.502
Ufsi 80,00 30,00 70,74 108.895
Undm.f. 147,00 54,00 102,13 30.364
Svartfugl 75,00 17,00 20,90 4.048
Ýsa 147,00 40,00 109,33 191.173
Þorskal. 25,00 25,00 25,00 72
Þorskur 153,00 23,00 107,85 513.205
1.099.933
Hafnarey SFgerð út til skötusels og skrápflúruveiða:
240-300 krónur fyrir
kílóið af skötuselnum
— segir Jón Hafdal Héðinsson skipstjóri
Togbáturinn Hafnarey SF hefur á
undanförnum árum verið gerður
út til veiða á utankvótafiski hluta
úr ári og hefur áhöfn skipsins náð
athyglisverðum árangri á
þessu sviði. Að sögn Jóns
Hafdals Héðinssonar, skip-
stjóra og útgerðarmanns,
hefur einkum verið sótt í
skrápflúru, sem nú er
reyndar komin í kvóta, og
eins skötusel en mjög hátt
verð hefur lengst af fengist
fyrir skötuselinn á innlend-
aflinn orðið um tvö tonn í holi.
Algengur afli er þó jafnan ekki
meiri en 200-300 kíló í holi.
— Við höfum einkum lagt okk-
um og erlendum fiskmörkuðum.
- Við höfum verið að veiða um
120-130 tonn af skötusel á ári í fót-
reipistrollið og megnið af þeim afla
hefur fengist utan humarveiðitím-
ans, segir Jón en þess má geta að
oft fæst töluvert af skötusel sem
aukafli á humarveiðunum. Að
sögn Jóns hafa fengist upp í átta til
níu tonn af skötusel í róðri á und-
anförnum vikum og mestur hefur
Skötuselur
ur eftir skrápflúru fyrir utan skötu-
selinn en þessar fisktegundir veið-
ast jöfnum höndum hér alls staðar í
dýpunum við suðausturströndina.
Það hefur fengist þokkalegur
skrápflúruafli upp á síðkastið og
við erum þokkalega settir hvað
varðar kvóta vegna veiðireynsl-
unnar undanfarin ár, segir Jón en
samkvæmt upplýsingum hans hef-
ur skötuselsaflinn verið seldur
jöfnum höndum á íslensk-
um og erlendum fiskmörk-
uðum. Verðið hér heima
hefur lengst af verið um
200-240 krónur fyrir kflóið
en í Englandi hafa um 300
krónur fengist fyrir kflóið.
Hafnarey SF er eini bát-
urinn á Höfn, sem gagngert
hefur verið gerður út til
veiða á þessum utankvótategund-
um undanfarin ár, en upp á síð-
kastið hefur Steinunn SF einnig
stundað veiðar á umræddum teg-
undum.
Sjónvarp til
s j ó s .
SeaTel sjónvarpsloftnetin
ásamt móttökubúnaði
tryggja áreiðanlegt og
ótruflað gervihnatta-
sjónvarp fyrir skip á sjó.
SeaTel “TV at Sea” gefur möguleika á að ná hinum ýmsu
sjónvarpsrásum, nánast óháð staðsetningu skipsins.
ÍSMW? hf. Seaí ^Tel
Síðumúla 37 - 108 Reykjavík í sambandi við umheiminn
S. 568-8744 - Fax 568-8552