Fiskifréttir - 19.12.1997, Page 7
FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997
7
Þrír af eigendum Ásdísar ST ásamt vélstjóranum. (F.v.) Birgir Pétursson
stýrimaður, Bjarki Guðlaugsson vélstjóri, Ingvar Pétursson skipstjóri og
Benedikt Pétursson sem er skipstjóri á Ásbjörgu ST og framkvæmdastjóri
útgerðarinnar Myndir/Fiskifréttir: Snorri Snorrason
Breytingarnar á Ásdísi ST 7:
Kostnaður áætlaður
um 45 millj. króna
— segir ingvar Pétursson skipstjóri
og einn útgerðarmanna skipsins
— Við höfum verið með skipið a innfjarðar- og uthafsrækjuveiðum og á
því verður engin breyting. Hins vegar höfum við nú möguleika á að nýta
skipið einnig til dragnótarveiða og við getum sótt lengra og erum ekki eins
bundnir af veðráttunni og við höfum verið fram að þessu, segir Ingvar
Pétursson, skipstjóri og einn útgerðarmanna Ásdísar ST 7, í samtali við
Fiskifréttir.
Ásdís ST er í eigu fjögurra
Hólmvíkinga, bræðranna Ingvars,
Benedikts og Birgis Péturssona og
Daða Guðbjörnssonar. Þeir gera
einnig út Ásbjörgu ST og hafa
skipin bæði verið gerð út til rækju-
veiða undanfarin ár. Að sögn
Ingvars nemur áætlaður kostnaður
vegna breytinganna á Ásdísi ST
um 45 milljónum króna og hann
segir skipið eins og nýtt eftir breyt-
ingarnar.
Næst verður skipt um
aðalvél og skrúfubúnað
- Það var orðið löngu tímabært
að ráðast í þessar breytingar. Við
áttum orðið í erfiðleikum með að
stunda innfjarðarrækjuveiðarnar,
hvað þá að sækja í úthafsrækjuna
hér utarlega í Húnaflóa, í Skaga-
fjarðardýpi og í utanverðum
Skjálfandaflóa. Það voru vandræði
með fríborðið en með því að
hækka þilfarið um 50 sentímetra
þá ættu þær áhyggjur að vera að
baki, segir Ingvar.
Ásdís ST er nú með tvo og hálf-
an kvóta á innfjarðarrækjuveiðun-
um í Húnaflóa og á yfirstandandi
vertíð samsvarar það um 132 tonn-
um. Úthafsrækjukvóta útgerðar-
innar hefur verið skipt jafnt á milli
Ásdísar ST og Ásbjargar ST og í ár
koma um 120 tonn af úthafsrækju í
hlut hvors skips.
Ingvar segir ekki ráðið hvort
farið verði með Ásdísi ST á drag-
nótarveiðar hluta úr ári en mögu-
leikinn sé fyrir hendi. Togvindurn-
ar tvær koma í stað einnar eldri
vindu og er skipið nú mun betur í
stakk búið til þess að takast á við
allar togveiðar.
— Okkur langaði til þess að
skipta einnig um aðalvél til þess að
auka við togaflið en sú framkvæmd
verður að bíða betri tíma. Þá verð-
ur jafnframt skipt um skrúfu og
gírbúnað, segir Ingvar.
Mikil fiskgengd í
Húnaflóa
Að sögn Ingvars hefur innfjarð-
arrækjuveiðikvótinn í Húnaflóa
verið skertur og til marks um það
nefnir hann að kvóti bátsins á sl.
fiskveiðiári hafi verið tæp 190 tonn
á móti rúmlega 130 tonnum nú.
— Það hefur verið mikið af fiski
í Húnaflóa í sumar og menn óttast
að þessi mikla fiskgengd komi til
með að halda rækjustofninum
niðri. Það er a.m.k. óvarlegt að
búast við því að kvótinn verði auk-
inn á næstunni en við vonum að
ekki verði hrun í stofninum, segir
Ingvar en hann upplýsir að auk
rækjuveiðanna hafi þeir fjórmenn-
ingarnir verið með annan bátinn á
línuveiðum á meðan línutvöföld-
unarinnar naut við.
Ingvar sagðist vonast til þess að
hægt yrði að sigla Ásdísi ST norður
til Hólmavíkur nú um miðja vik-
una en úr því sem komið væri færi
skipið ekki til veiða fyrr en eftir
áramót.
— Við notum tímann til þess að
undirbúa okkur fyrir rækjuveið-
arnar og aflanum löndum við hjá
Hólmadrangi á Hólmavík, sagði
Ingvar Pétursson að lokum.
Dalshraun 13 • 220 Hafnarfjörður • Sími 565 8584 • Fax 565 8542
SKIPSTJÓRASTÓLL
Tvær qERÖÍR:
• NOR-SAP 1 500 FyRÍR stærrí skip
• NOR-SAP 1000 FyRÍR bÁTA
• NOR-SAP qólFbRAUTÍR
ÓsliUIVI ÚTqERð OCP
Rafstöð
SlAMFORD
ÁhöFiv tíI hAMÍNqju
Eð ÁSDÍSI ST 77
JIurAjt ER UMboðsAðílÍ FyRÍR eFtÍR'
Faranúí bÚNAð sem vaUnn var í skipið.
F.C. WILSON ENC. hjÁlpARvÉlAR
MARINE ALUMINIUM
bRÚARqluqqAR
NOR'PRO skipshuRð'iR
TRIO'VINC huRÖARskRÁR oq Lásar
NYBORC LoFTblÁsARAR
NEWACE STAMFORD raFaLar
AILaR qERðÍR aF skÍpSRÚðuþuRRkuM
Frá HEPWORTH MARINE
MarAft ehf.
SKIPA OG VÉLAHLUTIR