Fiskifréttir


Fiskifréttir - 19.12.1997, Qupperneq 12

Fiskifréttir - 19.12.1997, Qupperneq 12
12 FISKIFRÉTTIR föstudagur 19. desember 1997 Þorskanótin Mlliiili | Þorskur í haug fyrir utan Fiskiðjuna í Vestmannaeyjum á vertíð 1965 Nígeríumarkaður og nýir saltfiskmarkaðir björguðu miklu Gunnar segir að eini verulegi ókosturinn, sem hann hafi séð við þorskanótaveiðarnar, hafi verið hve illa mönnum gekk að gera nægileg verðmæti úr öllum aflan- um í landi. — Á þessum árum var greitt sama verð fyrir allan þorsk og það skipti engu máli hvort hann var aðeins nokkurra tíma gamall eða tveggja eða þriggja nátta netafisk- ur. Allt var verðlagt eins. Við vor- um örugglega alltaf með betri fisk en netabátarnir á þessum árum en vandinn fólst í því að þorskurinn, sem veiddist í nótina, var í sumum tilvikum hrein viðbót við þann mikla afla sem netabátarnir komu með að landi. Menn höfðu komist upp með það að vinna besta neta- fiskinn í salt en síðan var lélegasti fiskurinn hengdur upp í skreið fyrir Nígeríumarkað. Verðið á skreiðinni var það hátt að menn þurftu litlar áhyggjur að hafa af því þótt fiskurinn væri dreginn tveggja eða þriggja nátta. Þetta var afleitt fyrirkomulag og það var ekki fyrr en að Nígeríumarkaðurinn dalaði að verðlagningu aflans var breytt með tilkomu ferskfiskmatsins, segir Gunnar Magnússon. Tómas Þorvaldsson segir það rétt að menn hafi komist upp með að nýta lélegasta fiskinn í skreið vegna þess hve Nígeríumarkaður- inn var sterkur um þessar mundir en einnig hafi verið hægt að nýta lélegan þorsk til saltfiskverkunar eftir að samdráttar fór að gæta í skreiðarsölunni og verðin lækk- uðu. — Þegar menn sáu að Nígeríu- markaðurinn datt niður var mikið átak gert í því að finna nýja mark- aði fyrir saltfisk og efla þá sem fyrir voru. M.a. fórum við út í að selja saltfisk til Suður-Ameríku og eins vildi svo vel til að það vantaði salt- fisk á Portúgalsmarkaði. Mig minnir að veiðar Portúgala við Nýfundnaland hafi brugðist og það var því stór markaður fyrir stóran og bragðmikinn saltfisk í Portúgal. Gamla fólkið í Portúgal, sem þá var og nú er komið undir græna torfu, vildi gulan og feitan saltfisk með sterku bragði. Yngri kynslóð- ir hafa hins vegar smám saman horfið frá neyslu á þessum fiski og nú vill unga fólkið í Portúgal og víðar helst aðeins tandurhvítan og bragðlítinn saltfisk, segir Tómas Þorvaldsson. Kapphlaup við tímann að koma fískinum í salt Einar Sigurjónsson, sem var framkvæmdastjóri Isfélags Vest- mannaeyja á þessum árum, segir að sér hafi oft verið hugsað til þess hvernig í ósköpunum menn fóru að því að vinna allan þennan afla. í góðum páskahrotum á árunum upp úr 1960 voru þess dæmi að 2000-2500 tonn af þorski bærust á land á vertíðarsvæðinu öllu og Ein- ar segist muna eftir því að einn daginn hafi Vinnslustöðin fengið um 600-700 tonn af þorski og þá hafi ísfélagið tekið á móti 300-400 tonnum og Hraðfrystistöðin hafi verið með svipað magn. Þennan eina dag tóku stóru fyrírtækin í Eyjum því á mótí 1300-1400 tonn af þorski til vinnslu. — Það var talinn aulafiskur hér í Eyjum þegar 80-90 fiskar voru í tonninu. Nótafiskurinn var enn stærri og það var ekki óalgengt að 50-60 fískar væru f tonninu. Frysti- húsin hér voru öll með eina til tvær Baader flatníngsvélar af stærstu gerð en það þýddi ekkert að reyna að fletja stærsta nótaþorskinn í þeím. Baader hafðí sent menn hingað tii Eyja gagngert til þess að hanna vélar tíl þess að ráða við stóra netaþorskínn á vertíðunum en við nótaþoskinn réðu þær ekki. Ég var með 10-12 karla í að hand- fletja og þegar mest var að gera var unnið frá klukkan sjö á morgnana og langt fram yfir miðnætti. Nóta- þorskurinn var sérstaklega við- kvæmur f vinnslu enda var hann oftast úttroðinn af loðnu. Allur afiínn kom óslægður að landi og það var kapphlaup víð tímann að koma fiskinum í salt. Þorskurinn flóði um öll gólf vinnslustöðvanna og oftar en ekki þurftí að geyma Stærsti hrygningarþorskurinn: Réttdræpur vegna þess að hann væri að deyja úr elli — segir Hilmar Rósmundsson í Vestmannaeyjum og vísar til ummæla Jóns Jónssonar fiskifræðings — Það var voðalegur urgur í mörgum Eyjamönnum vegna þorskanótaveiðanna. Mikið af aflanum var mjög stór hrygna sem menn voru ósáttir við að verið væri að veiða. Stóra hrygn- an virðist hafa haldið sig meira frá botninum en hængurinn og smærri hrygnurnar og við náð- um þessum fiski ekki í netin nema á nokkrum ákveðnum blettum. Með þorskanótinni var hins veg- ar hægt að sópa henni upp, segir Hilmar Rósmundsson skipstjóri og fyrrum formaður Útvegs- bændafélags Vestmannaeyja. Hilmar segir skipstjóra í Vest- mannaeyjum hafa lagt það til á fundi í Skipstjórafélaginu Verð- anda með Jóni Jónssyni, fiski- fræðingi og forstjóra Hafrann- sóknastofnunar, árið 1953 að friða svæðin þar sem hægt var að veiða stóru hrygnuna í netin. Á þessum fundi lét Jón þau frægu orð falla að engin ástæða væri til að grípa til slíkra aðgerða. Þessi fisk- ur væri orðinn gamall og að dauða kominn og hann væri því réttdræp- ur. — Jón virtist hins vegar ekki átta sig á því að stóru hrygnurnar áttu a.m.k. eftir að hrygna einu sinni áður en þær dræpust úr elli og við skipstjórarnir töldum rétt að friða þennan fisk. Við höfðum ekkert fyrir okkur í þessum efnum annað en tilfinningu okkar en ég held að sagan og seinni tíma rann- sóknir hafi leitt í ljós að ótti okkar var ekki ástæðulaus, segir Hilmar en hann segir sennilegt að ummæli Jóns hafi sfðar verið notuð sem réttlæting fyrir veiðum á stóru hrygnunum f þorskanótína. — Það, sem fór mest fyrir brjóstið á okkur varðandi þorska- nótina, var hve stjórnlausar þessar veiðar voru. Það hafði verið land- burður af þorski á vertíðum áður en nótin kom til og mokafli nóta- bátanna var hrein viðbót við þann mikla afla sem hér barst á land. Þetta var í raun og veru hreint hneyksli því það hafðist ekki und- an að vinna þorskinn í landi. í sum- um tilvikum kom hann óblóðgaður í land af þorskanótabátunum og allur afli var óslægður á þessum árum. Það voru öll frystihús og saltfiskverkanir yfirfull af þorski og þess voru dæmi að aflinn værí geymdur í haugum fyrir utan húsin vegna þess að allt rými ínnandyra var upptekið. Það eyðilögðust hundruð tonna af fiski vegna þessa og mikiu magni var ekið beint í bræðslu, segir Hilmar en sjálfur segist hann ekki hafa tekið þátt f veiðum með þorskanót. — Ég var skipstjóri á lítlum bátí, Sæbjörgu VE, á þessum árum og við vorum alltaf á netum. Víð vorum mest með net með sjö tommu möskva og netin voru yfirleitt 32 möskva djúp og aldrei dýpri en 36 möskva. Nú eru margir netabátanna komnir með allt að helmingi dýpri net og níu tommu möskva og það má því segja að sagan sé að endurtaka sig að vissu ieyti. Þessi net eru ætluð til þess að veiða stærsta og verðmætasta hrygníngarfiskinn og að þvf ieyti eru þau ekkert betri en þorskanótín var á sínum tíma. Víð vorum reyndar búnir að festa kaup á notaðrí þorskan- ót og ætluðum okkur að taka þátt í þessum veiðum en það kom aldrei tíl þess að hún væri notuð. Ég man ekki ástæðuna en senni- lega hafa afiabrögðin verið dott- in níður, segir Hílmar Rósmun- dsson.

x

Fiskifréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fiskifréttir
https://timarit.is/publication/1594

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.